Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sigurhæðir, Hús skáldsins
Bókmenntanámskeið og
ljóðakvöld að hefjast
NAMSKEIÐAHALD í „Húsi skáldsins“ á Sigur-
hæðum hefst að nýju í byrjun október.
Njála skipar öndvegi íslenskra fornsagna og
stendur fólki nú til boða í þriðja sinn að kynnast
þessu gamla snilldarverki, skiptast á skoðunum
um það og fara á söguslóðir undir leiðsögn Erl-
ings Sigurðarsonar. Þetta verður síðasta Njálu-
námskeiðið að sinni. Hvort tveggja veldur: fleiri
sögur þykja áhugaverðar og svo hitt að nám-
skeiðin hafa notið mikilla vinsælda þeirra sem
þau hafa sótt að þeir þrýsta á að sækja fleiri við-
líka um fleiri efni. Svigrúmið leyfir hins vegar
ekki að mörg námskeið séu í gangi samtímis. I
haust gefst Akureyringum og nærsveitamönnum
tækifæri á að kynnast sögum sem eiga sér svið í
næsta nágrenni, en á næstunni verða Svarfdæla
saga, Víga-Glúms saga, Reykdælasaga og Víga-
Skútu og Ljósvetningasaga teknar fyrir, svo
helstu Eyfirðinga- og Pingeyingasögur séu
nefndar. Verði tíðarfar sæmilegt í haust liggur
líka fyrir að fara tvo dagparta á vettvang atburða
sem sögumar greina frá og lífga með því þær og
landið.
Dalalíf og íslandsklukka
Verk frá síðari tímum þykja ekki síður gefa til-
efni til skoðanaskipta en fornsögumar svo ákveð-
ið hefur verið að kanna áhuga á námskeiðum eða
umræðuhópum um Dalalíf Guðrúnar frá Lundi
og Islandsklukku Haldórs Laxness. Þeir sem
áhuga hafa á að taka þátt í þeirri umræðu ættu
að hafa samband við forstöðumann Sigurhæða
sem og einnig þeir sem vildu sækja námskeið í
lestri ljóða sem hefur verið valið heitið: Landið
og ljóðin.
Skráning stendur yfir á námskeiðin og farið af
stað með þau sem mestrar hylli njóta, en þátt-
töku þai-f að tilkynna í síðasta lagi 30. september
næstkomandi.
Ljóðakvöld
I október og nóvember verða ljóðakvöld á Sig-
urhæðum. Sýning á ljóðum eftir horfin Akureyr-
arskáld er á veggjum hússins og myndar um-
gjörð um dagskrár ljóðakvöldanna. Hópum, t.d.
úr skólum, vinnustöðum eða félagasamtökum er
heimilt að koma í heimsókn} skoða sýninguna og
hlýða á ljóðadagskrána. Áhugafólki um bók-
menntir sem hug hefur á að stofna leshring en
vantar húsnæði er einnig bent á að hafa samband
við forstöðumann og þá má að lokum geta þess að
tvær skrifstofur eru leigðar út til þeirra sem vilja
stunda skriftir í góðu næði, en þær eru nú lausar
til umsóknar.
Fyrsta hæð í ráðhúsi Akureyrarbæjar tekin 1 notkun
Morgunblaðið/Kristján
Starfsfólk í fjárreiðudeild Akureyrarbæjar að störfum í nýju húsnæði á fyrstu hæð ráðhúss bæjarins.
Afgreiðsla
og upplýs-
ingamiðlun
í upplýs-
ingaanddyri
AKUREYRARBÆR hefur tekið í
notkun fyrstu hæðina í ráðhúsi
bæjarins við Geislagötu, en þar
er um að ræða nýbyggingu,
eldra húsnæði og húsnæði það
sem slökkvistöðin hafði til um-
ráða áður. Hæðin er alls um 750
fermetrar að stærð og nemur
kostnaður við bygginguna,
breytingar á fyrstu og annarri
hæð hússins sem og kaup á bún-
aði um 140 milljónum króna.
I miðju hæðarinnar er ný af-
greiðsla og upplýsingamiðíun,
sem gengið hefur undir nafninu
„upplýsingaanddyri“ en þar er
hægt að ganga að upplýsingum
um starfsemi bæjarins og þjón-
ustu bæjarkerfisins. Einnig eru
þar skrifstofur bæjarsljóra, bæj-
arlögmanns, sviðsstjóra þjón-
ustusviðs og Ijármálastjóra.
Einnig eru þar verkefnastjórar
þjónustusviðs, fjárreiðudeild og
skrifstofa og afgreiðsla húsnæð-
isdeildar eru þar einnig til húsa.
Bókhald og starfsmannadeild
eru á annarri hæð hússins og
tæknideildin á þeirri þriðju.
Fundarsalur bæjarstjórnar og
fleira er á þeirri fjórðu og efstu.
Starfsmenn í húsinu eru um 60
talsins.
Bætt þjónusta
við bæjarbúa
Sigríður Stefánsdóttir, sviðs-
stjóri þjónustusviðs Akureyrar-
bæjar, sagði að markmiðið með
þessum breytingum væri að
bæta þjónustu við bæjarbúa,
sem nú geta komið og fengið af-
greiðslu sinna erinda á einum
stað. í anddyrinu eru til sýnis
gamlar Akureyrarmyndir og
einnig eru á hæðinni myndir í
eigu bæjarins. Til stendur að
skipta um myndir á veggjum
ráðhússins tvisvar á ári til að
gefa bæjarbúum færi á að njóta
þeirra listaverka sem bærinn á.
Upplýsingaanddyrið er opið
daglega frá kl. 8 til 16 og verður
afgreiðslutími annarra deilda í
húsinu sá sami, nema hvað af-
greiðsla gjaldkera er opin til kl.
15.
Samhliða því að húsnæðið er
tekið í notkun hefur Akureyrar-
bær fengið nýtt símanúmer,
460 1000, en það kemur í stað
aðalsímanúmera bæjarins í ráð-
húsinu við Geislagötu og hús-
næði þess við Glerárgötu.
Morgunblaðið/Kristján
Robert Dell, bandarískur mynd-
höggvari, notar háþróaða að-
ferð við gerð skúlptúra sinna.
Þarna hefur hann framleitt raf-
magn einungis með því að stinga
koparröri ofan í heitt vatn.
Myndhöggvari
fær leyfí fyrir
innsetningu
við Geysi
ROBERT Dell, myndhöggvari frá
New York, hefur fengið leyfi Nátt-
úruverndarráðs til að vera með inn-
setningu á verkum sínum við Geysi í
Haukadal og verður hún að líkindum
um næstu helgi.
Robert Dell dvelur á íslandi um
þessar mundir en hann hélt fyrirlest-
irn fyrir fullu húsi I Listasafninu á
Akureyri í vikunni um aðferðir sínar
og rannsóknir. Hann hefur viðhaft
óvenjulegar aðferðir í listsköpun
sinni allt frá árinu 1988 og notað há-
þróaða tækni við gerð skúlptúra
sinna, m.a. jarðvarma. Þegar hann
vann að verkefnum við Center for
Advances Visual Studies í MIT á ár-
unum 1993-1997 og síðar í Tuft-há-
skólanum og Harvard hefur hann
gert tilraunir með og þróað jarð-
varmahermi sem hann notar við inn-
setningar sínar. Einnig hefur hann
sett upp verk þar sem jarðhitinn er
hluti af gangverki þess. Þekktasta
verk hans er í Yellowstone-þjóðgarð-
inum, en eitt verk eftir hann er hér á
landi, við Perluna í Öskjuhlíð.
Verkefni J)au sem Robert Dell
vinnur að á Islandi um þessar mund-
ir eru styrkt af American-Scandinav-
ian Foundation, Hitaveitu Reykja-
víkur, Eimskip, Flugleiðum og
Myndlistarskólanum á Akureyri. Þá
nýtur hann einnig styi-kja nokkuiTa
fyrirtækja í heimalandi sínu, Banda-
ríkjunum.
Syngja söng jarðarinnar
„Eg hef unnið að þessu í ellefu ár
og það var stórfenglegt þegai- árang-
urinn fór að koma í ljós,“ sagði Ro-
bert Dell, en aðferðin sem hann hef-
ur þróað er blanda af list og vísind-
um. „Verk mín eru eins konar sjáan-
legar ballöður, þau syngja söng jarð-
arinnar fyrir þá sem vilja hlusta.“
Róbert mun skrifa greinar um
rannsókniysínar og það sem hann er
að gera á Islandi í tvö tímarit, ann-
ars vegar tímarit alþjóðasamtaka
hitaveitna og hins vegar Leonardo,
sem MIT gefur út.
Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík
Frekar kaldur október
en laus við stórviðri
FÉLAGAR í Veðurklúbbnum á
Dalbæ á Dalvík búast ekki við
neinum stórviðrum í október-
mánuði, en spá því að hann verði
frekar kaldur. Þetta kemur
fram í nýrri veðurspá þeirra fé-
laga fyrir október.
Gera þeir ráð fyrir að nokkrir
dagar verði vindasamir, en
menn ættu ekki að kippa sér
upp við það þar sem inni á milli
komi ágætir dagar. Eflaust
kemur smáföl, rétt hvítt yfir, en
engin snjókoma.
Félagarnir bíða eftir áhuga-
verðu tungli sem kviknar 9.
október í suðsuðaustri, sem er
fyrsta vetrartunglið. Oft sé það
þannig að næstu tvö tungl á eftir
því eru svipuð, þannig að verði
veðrið skaplegt kríngum tungl-
komuna á þessum tíma eru Veð-
urklúbbsmenn bjartsýnir á að
veðrið fram að áramótum verði
gott. Verði hins vegar leiðinda-
veður megi búast við leiðinlegri
tíð fram til áramóta.
Sumir klúbbfélaga vilja líkja
þessu ári við árið 1933, en þá var
sumarið gott norðanlands, sýk-
ing í kartöflum sunnanlands,
rigningar ollu skemmdum vegna
ílóða, eldgos varð í norðanverð-
um Grímsvötnum í nóvember og
desember var sá hlýjasti á land-
inu til þessa.
Framkvæmdir við Vesturbakka Fiskihafnarinnar
Niðurrekstur á
120 metra stálþiii
HAFNASAMLAG Norðurlands hef-
ur gengið frá samningi við Gáma- og
tækjaleigu Austurlands á Reyðar-
fírði um framkvæmdir við Vestur-
bakka Fiskihafnarinnar á Akureyri.
Um er að ræða niðurrekstur á stál-
þili, I. áfanga, samtals um 120 metra
að lengd.
Gáma- og tækjaleiga Austurlands
átti lægsta tilboðið í verkið og hljóð-
aði það upp á rúmar 31,8 milljónir
króna, sem eru tæplega 90% af
kostnaðaráætlun Siglingastofnunar.
Alls bárust fimm tilboð í verkið og
voru aðeins tvö þeirra undir kostnað-
aráætlun, sem var upp á rúmar 35,2
milljónir ki'óna. Guðlaugur Einars-
son Sauðárkróki bauð 34,6 milljónir
króna, eða 97,1%, Guðlaugur Einars-
son ehf. Hafnarfirði bauð rúmar 38,6
milljónir króna eða 108,4%, Völur hf.
Reykjavík bauð rúmar 42,2 milljónir
króna, eða 118,5% og Lárus Einars-
son Reykjavík bauð rúmar 43,2 millj-
ónir króna, eða 121,4%.
190 metra
viðlegukantur
Hörður Blöndal, hafnarstjóri
Hafnasamlags Norðurlands, sagði að
undirbúningsvinna vegna verksins
væri þegar hafin en að niðurrekstur
þilsins hæfist í næsta mánuði. Sam-
kvæmt útboði eru áætluð verklok í
janúar á næsta ári. Hörður sagði að
samkvæmt framkvæmdaáætlun yrði
farið í að steypa þekjuna við þilið á
næsta ári, auk annars frágangs. I
kjölfarið tæki við annar hluti dýpk-
unar, eða árið 2001 og árið 2002 eru
verklok áætluð en þá verður rekið
niður 70 metra langt þil til viðbótar,
þekja steypt og unnið að lokafrá-
gangi.
Heildarkostnaður við Vesturbakk-
ann er áætlaður um 300 milljónir
króna. Viðlegukanturinn verður 190
metrar að lengd og dýpi við þilið 9
metrar. Það þýðir að öll stærstu
fiskiskip landsins eiga að geta lagst
þar að bryggju.