Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 18

Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Sigurhæðir, Hús skáldsins Bókmenntanámskeið og ljóðakvöld að hefjast NAMSKEIÐAHALD í „Húsi skáldsins“ á Sigur- hæðum hefst að nýju í byrjun október. Njála skipar öndvegi íslenskra fornsagna og stendur fólki nú til boða í þriðja sinn að kynnast þessu gamla snilldarverki, skiptast á skoðunum um það og fara á söguslóðir undir leiðsögn Erl- ings Sigurðarsonar. Þetta verður síðasta Njálu- námskeiðið að sinni. Hvort tveggja veldur: fleiri sögur þykja áhugaverðar og svo hitt að nám- skeiðin hafa notið mikilla vinsælda þeirra sem þau hafa sótt að þeir þrýsta á að sækja fleiri við- líka um fleiri efni. Svigrúmið leyfir hins vegar ekki að mörg námskeið séu í gangi samtímis. I haust gefst Akureyringum og nærsveitamönnum tækifæri á að kynnast sögum sem eiga sér svið í næsta nágrenni, en á næstunni verða Svarfdæla saga, Víga-Glúms saga, Reykdælasaga og Víga- Skútu og Ljósvetningasaga teknar fyrir, svo helstu Eyfirðinga- og Pingeyingasögur séu nefndar. Verði tíðarfar sæmilegt í haust liggur líka fyrir að fara tvo dagparta á vettvang atburða sem sögumar greina frá og lífga með því þær og landið. Dalalíf og íslandsklukka Verk frá síðari tímum þykja ekki síður gefa til- efni til skoðanaskipta en fornsögumar svo ákveð- ið hefur verið að kanna áhuga á námskeiðum eða umræðuhópum um Dalalíf Guðrúnar frá Lundi og Islandsklukku Haldórs Laxness. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í þeirri umræðu ættu að hafa samband við forstöðumann Sigurhæða sem og einnig þeir sem vildu sækja námskeið í lestri ljóða sem hefur verið valið heitið: Landið og ljóðin. Skráning stendur yfir á námskeiðin og farið af stað með þau sem mestrar hylli njóta, en þátt- töku þai-f að tilkynna í síðasta lagi 30. september næstkomandi. Ljóðakvöld I október og nóvember verða ljóðakvöld á Sig- urhæðum. Sýning á ljóðum eftir horfin Akureyr- arskáld er á veggjum hússins og myndar um- gjörð um dagskrár ljóðakvöldanna. Hópum, t.d. úr skólum, vinnustöðum eða félagasamtökum er heimilt að koma í heimsókn} skoða sýninguna og hlýða á ljóðadagskrána. Áhugafólki um bók- menntir sem hug hefur á að stofna leshring en vantar húsnæði er einnig bent á að hafa samband við forstöðumann og þá má að lokum geta þess að tvær skrifstofur eru leigðar út til þeirra sem vilja stunda skriftir í góðu næði, en þær eru nú lausar til umsóknar. Fyrsta hæð í ráðhúsi Akureyrarbæjar tekin 1 notkun Morgunblaðið/Kristján Starfsfólk í fjárreiðudeild Akureyrarbæjar að störfum í nýju húsnæði á fyrstu hæð ráðhúss bæjarins. Afgreiðsla og upplýs- ingamiðlun í upplýs- ingaanddyri AKUREYRARBÆR hefur tekið í notkun fyrstu hæðina í ráðhúsi bæjarins við Geislagötu, en þar er um að ræða nýbyggingu, eldra húsnæði og húsnæði það sem slökkvistöðin hafði til um- ráða áður. Hæðin er alls um 750 fermetrar að stærð og nemur kostnaður við bygginguna, breytingar á fyrstu og annarri hæð hússins sem og kaup á bún- aði um 140 milljónum króna. I miðju hæðarinnar er ný af- greiðsla og upplýsingamiðíun, sem gengið hefur undir nafninu „upplýsingaanddyri“ en þar er hægt að ganga að upplýsingum um starfsemi bæjarins og þjón- ustu bæjarkerfisins. Einnig eru þar skrifstofur bæjarsljóra, bæj- arlögmanns, sviðsstjóra þjón- ustusviðs og Ijármálastjóra. Einnig eru þar verkefnastjórar þjónustusviðs, fjárreiðudeild og skrifstofa og afgreiðsla húsnæð- isdeildar eru þar einnig til húsa. Bókhald og starfsmannadeild eru á annarri hæð hússins og tæknideildin á þeirri þriðju. Fundarsalur bæjarstjórnar og fleira er á þeirri fjórðu og efstu. Starfsmenn í húsinu eru um 60 talsins. Bætt þjónusta við bæjarbúa Sigríður Stefánsdóttir, sviðs- stjóri þjónustusviðs Akureyrar- bæjar, sagði að markmiðið með þessum breytingum væri að bæta þjónustu við bæjarbúa, sem nú geta komið og fengið af- greiðslu sinna erinda á einum stað. í anddyrinu eru til sýnis gamlar Akureyrarmyndir og einnig eru á hæðinni myndir í eigu bæjarins. Til stendur að skipta um myndir á veggjum ráðhússins tvisvar á ári til að gefa bæjarbúum færi á að njóta þeirra listaverka sem bærinn á. Upplýsingaanddyrið er opið daglega frá kl. 8 til 16 og verður afgreiðslutími annarra deilda í húsinu sá sami, nema hvað af- greiðsla gjaldkera er opin til kl. 15. Samhliða því að húsnæðið er tekið í notkun hefur Akureyrar- bær fengið nýtt símanúmer, 460 1000, en það kemur í stað aðalsímanúmera bæjarins í ráð- húsinu við Geislagötu og hús- næði þess við Glerárgötu. Morgunblaðið/Kristján Robert Dell, bandarískur mynd- höggvari, notar háþróaða að- ferð við gerð skúlptúra sinna. Þarna hefur hann framleitt raf- magn einungis með því að stinga koparröri ofan í heitt vatn. Myndhöggvari fær leyfí fyrir innsetningu við Geysi ROBERT Dell, myndhöggvari frá New York, hefur fengið leyfi Nátt- úruverndarráðs til að vera með inn- setningu á verkum sínum við Geysi í Haukadal og verður hún að líkindum um næstu helgi. Robert Dell dvelur á íslandi um þessar mundir en hann hélt fyrirlest- irn fyrir fullu húsi I Listasafninu á Akureyri í vikunni um aðferðir sínar og rannsóknir. Hann hefur viðhaft óvenjulegar aðferðir í listsköpun sinni allt frá árinu 1988 og notað há- þróaða tækni við gerð skúlptúra sinna, m.a. jarðvarma. Þegar hann vann að verkefnum við Center for Advances Visual Studies í MIT á ár- unum 1993-1997 og síðar í Tuft-há- skólanum og Harvard hefur hann gert tilraunir með og þróað jarð- varmahermi sem hann notar við inn- setningar sínar. Einnig hefur hann sett upp verk þar sem jarðhitinn er hluti af gangverki þess. Þekktasta verk hans er í Yellowstone-þjóðgarð- inum, en eitt verk eftir hann er hér á landi, við Perluna í Öskjuhlíð. Verkefni J)au sem Robert Dell vinnur að á Islandi um þessar mund- ir eru styrkt af American-Scandinav- ian Foundation, Hitaveitu Reykja- víkur, Eimskip, Flugleiðum og Myndlistarskólanum á Akureyri. Þá nýtur hann einnig styi-kja nokkuiTa fyrirtækja í heimalandi sínu, Banda- ríkjunum. Syngja söng jarðarinnar „Eg hef unnið að þessu í ellefu ár og það var stórfenglegt þegai- árang- urinn fór að koma í ljós,“ sagði Ro- bert Dell, en aðferðin sem hann hef- ur þróað er blanda af list og vísind- um. „Verk mín eru eins konar sjáan- legar ballöður, þau syngja söng jarð- arinnar fyrir þá sem vilja hlusta.“ Róbert mun skrifa greinar um rannsókniysínar og það sem hann er að gera á Islandi í tvö tímarit, ann- ars vegar tímarit alþjóðasamtaka hitaveitna og hins vegar Leonardo, sem MIT gefur út. Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík Frekar kaldur október en laus við stórviðri FÉLAGAR í Veðurklúbbnum á Dalbæ á Dalvík búast ekki við neinum stórviðrum í október- mánuði, en spá því að hann verði frekar kaldur. Þetta kemur fram í nýrri veðurspá þeirra fé- laga fyrir október. Gera þeir ráð fyrir að nokkrir dagar verði vindasamir, en menn ættu ekki að kippa sér upp við það þar sem inni á milli komi ágætir dagar. Eflaust kemur smáföl, rétt hvítt yfir, en engin snjókoma. Félagarnir bíða eftir áhuga- verðu tungli sem kviknar 9. október í suðsuðaustri, sem er fyrsta vetrartunglið. Oft sé það þannig að næstu tvö tungl á eftir því eru svipuð, þannig að verði veðrið skaplegt kríngum tungl- komuna á þessum tíma eru Veð- urklúbbsmenn bjartsýnir á að veðrið fram að áramótum verði gott. Verði hins vegar leiðinda- veður megi búast við leiðinlegri tíð fram til áramóta. Sumir klúbbfélaga vilja líkja þessu ári við árið 1933, en þá var sumarið gott norðanlands, sýk- ing í kartöflum sunnanlands, rigningar ollu skemmdum vegna ílóða, eldgos varð í norðanverð- um Grímsvötnum í nóvember og desember var sá hlýjasti á land- inu til þessa. Framkvæmdir við Vesturbakka Fiskihafnarinnar Niðurrekstur á 120 metra stálþiii HAFNASAMLAG Norðurlands hef- ur gengið frá samningi við Gáma- og tækjaleigu Austurlands á Reyðar- fírði um framkvæmdir við Vestur- bakka Fiskihafnarinnar á Akureyri. Um er að ræða niðurrekstur á stál- þili, I. áfanga, samtals um 120 metra að lengd. Gáma- og tækjaleiga Austurlands átti lægsta tilboðið í verkið og hljóð- aði það upp á rúmar 31,8 milljónir króna, sem eru tæplega 90% af kostnaðaráætlun Siglingastofnunar. Alls bárust fimm tilboð í verkið og voru aðeins tvö þeirra undir kostnað- aráætlun, sem var upp á rúmar 35,2 milljónir ki'óna. Guðlaugur Einars- son Sauðárkróki bauð 34,6 milljónir króna, eða 97,1%, Guðlaugur Einars- son ehf. Hafnarfirði bauð rúmar 38,6 milljónir króna eða 108,4%, Völur hf. Reykjavík bauð rúmar 42,2 milljónir króna, eða 118,5% og Lárus Einars- son Reykjavík bauð rúmar 43,2 millj- ónir króna, eða 121,4%. 190 metra viðlegukantur Hörður Blöndal, hafnarstjóri Hafnasamlags Norðurlands, sagði að undirbúningsvinna vegna verksins væri þegar hafin en að niðurrekstur þilsins hæfist í næsta mánuði. Sam- kvæmt útboði eru áætluð verklok í janúar á næsta ári. Hörður sagði að samkvæmt framkvæmdaáætlun yrði farið í að steypa þekjuna við þilið á næsta ári, auk annars frágangs. I kjölfarið tæki við annar hluti dýpk- unar, eða árið 2001 og árið 2002 eru verklok áætluð en þá verður rekið niður 70 metra langt þil til viðbótar, þekja steypt og unnið að lokafrá- gangi. Heildarkostnaður við Vesturbakk- ann er áætlaður um 300 milljónir króna. Viðlegukanturinn verður 190 metrar að lengd og dýpi við þilið 9 metrar. Það þýðir að öll stærstu fiskiskip landsins eiga að geta lagst þar að bryggju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.