Morgunblaðið - 29.09.1999, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Lokið við út-
sýnispall
Flateyri - Lokið er uppsetn-
ing’u útsýnispalls á varnar-
görðunum fyrir ofan byggð.
Um leið var göngustígur
lagður upp að útsýnispallin-
um. Það var Afrek ehf. á
Flateyri, sem bauð í verkefn-
ið og var með lægsta tilboðið,
sem sá um framkvæmdirnar.
Aðeins er eftir að Ijúka frá-
gangi bílastæðis, sem mun
verða næst kirkjugarðinum.
Með tilkomu útsýnispalls-
ins og um leið göngustígsins
gefst gott tækifæri til að
virða fyrir sér byggðina á
sólbjörtum degi. Töluverð
aukning var á heimsóknum
ferðamanna til Flateyrar í
sumar og nýttu margir sér
tækifærið til að virða fyrir
sér fjöllin og byggðina úr út-
sýnispallinum, enda útsýnið
einstakt.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Utsýnispallurinn á Flateyri.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
S nj ó fl ó ð avamag-ar ð ar vígðir
Siglufírði - Tveir nýir og öflugir
snjóflóðavarnagarðar, samtals tæpur
kílómetri að lengd, voru vígðir í
Siglufírði sl. föstudag. Bæjarbúar
telja að þarna sé um byltingu að
ræða og garðana skipta sköpum
varðandi öryggi íbúa sem búa á
svæðinu fyrir neðan garðana.
Þessar nýju snjóflóðavai'nir saman-
standa af tveimur görðum sem ruddir
hafa verið upp í 18 m hæð stærri
garðurinn og 14 m hæð minni garður-
inn. Stærri garðurinn, sem gengur
undir nafninu Stóri boli er um 700 m
að lengd en sá minni sem nefndur er
Litli boli er um 200 m að lengd.
Kostnaður við garðana er orðinn
um 270 milljónir. Framkvæmd
verksins hófst í fyrravor og var það
verktakafyrirtækið Héraðsverk frá
Egilsstöðum sem annaðist það.
Varnirnar hafa þegar sannað gildi
sitt því sl. vetur féll snjóflóð á stærri
garðinn og bægði hann því frá íbúð-
arhúsum neðar í hlíðinni.
Meðal gesta við vígsluna voru um-
hverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir,
Páll Péturssor, félagsmálaráðherra,
sem flutti ávarp, þingmenn kjör-
dæmisins og fulltrúar frá Ofan-
fljóðasjóði. Forseti bæjarstjórnar,
Skarphéðinn Guðmundsson, flutti
tölu og sr. Bragi J. Ingibergsson fór
með blessunarorð. I máli Skarphéð-
ins kom m.a. fram að hugmynda-
smiðir að því að yfírfæra nöfnin
Stóri boli og Litli boli af skíðapöll-
um, sem voru þarna fyrr á árum, eru
kennararnir Páll Helgason og Kjart-
an Heiðberg.
Nú er hafíð þriggja ára upp-
græðsluverkefni sem Bás ehf. á
Siglufirði annast. Gert er ráð fyrir
tjaldsvæðum sunnan við garðana og
gert er ráð fyrir mikilli útivistar-
paradís á þessu svæði og fólk er þeg-
ar farið að nýta sér svæðið til göngu
og útivistar.
Nútíma tímastjórnun
Lófatölvur
Mánudagur 4. október
Kl. 14:00-17:00
Hótel Loftleiðir, þingsalur 1
Hraði í lífi og starfi stjórnenda er nú meiri en
nokkru sinni. Nútíma stjórnendur eru hreyfan-
legir en þurfa samtímis að hafa aðgang að
skjölum og gögnum sem tengjast starfi þeirra.
Tölvupóstur er einn helsti samskiptamiðill
stjórnenda í dag og hann þarf að senda og
móttaka hvar og hvenær sem er.
Veraldarvefurinn er upplýsingabanki
stjórnandans og því er nauðsynlegt að hægt sé
að tengjast honum með einföldum hætti.
Peir þættir sem að ofan eru nefndir kalla á nýjar
áðferðir og tækni við vinnu. Stjórnunarfélag
Islands hefur því sett saman námstefnu í
samvinnu við Hauk Haraldsson, ráðgjafa,
Rúnar Gunnarsson og Páll M. Egonsson EJS.
Námsstefnan fjallar á skemmtilegan og
aðgengilegan hátt um nýjar aðferðir vio
tímastjórnun og skipulag vinnu. Annars vegar
er vinnulag stjórnenda skoðað með tilliti til þess
hraða og færanleika sem stjórnendur búa við.
Hins vegar er nýjasta tækni á sviði lófatölva
kynnt og farið yfir hvernig nýta má lófatölvur
við skipulag vinnu, samskipti, gagnaflutning,
gagnageymslu, útreikninga, o.fl.
Námsstefnan hentar bæði þeim sem vilja kynnast
nýjustu aðferðum og tækni við tímastjórnun og
ieim sem nú þegar nota lófatölvur en vilja auka
lekkingu sína enn frekar. Farið verður sérstak-
ega yfir notkun Palm tölvanna frá 3Com.
• Breytingar á stjórnunarháttum, nýjar kröfur
og nýjar áherslur.
• Hvaö er lófatölva?
• Palm hugbúnaður kynntur svo og lófatölvan
Palm Pilot.
• Markaðsstaða lófatölvunnar.
• Palm 0S vs. CE Dæmi um notkun
lófatölvunnar.
• Efni þar sem lögð er áhersla á hvernig unnt
er að nýta Lófatölvur til að auka árangur og
markviss vinnubrögð. Jafnframt er fjallað
um markmiðasetningu og hvernig unnt er
að virkja saman ólíka einstaklinga í þágu
fyrirtækisins.
Eftir kynningu verður mönnum leyft að prófa
tölvuna.
RúnarGunnarsson H Páll M. Egonsson ■
Stjórnunarfélag
Islands
Fyrirlesarar:
Rúnar Gunnarsson, sölufulltrúi hjá EJS,
Páll M. Egonsson, sölufulltrúi hja EJS
Haukur Haraldsson, Mannheimum ehf.
Minnum á námstefnuna „Nýjar víddir í stjórnun"
fimmtudaginn. 21. okt. - Takið daginn frá!
Fyrirlesarar: Rolf Falkenberg og Peter Koestenbaum
Skráning og nánari uplýsingar í síma: 533 4567 og www.stjornun.is
Morgunblaðið/Theodór
F.v.: Sýslumaðurinn í Borgarnesi, Stefán Skarphéðinsson, tekur við
stafrænni ljósmyndavél frá Svavari Sigurðssyni, baráttumanni gegn
fíkniefnavandanum.
Gjöf til lög
reglunnar
Borgarnesi - Lögreglan í Borgar-
nesi fékk nýverið stafræna ljós-
myndavél að gjöf frá Svavari
Sigurðssyni, baráttumanni gegn
fíknicfnavandanum. Þetta er ell-
efta ljósmyndavélin sem að
Svavar gefur til lögregluembætt-
anna víðs vegar um landið. Alls
hefur Svavar varið mörgum
milljónum af eigin fjármunum og
söfnunarfé til tækjakaupa handa
lögreglu og til ýmissa forvarnar-
verkefna gegn fíkniefnaneyslu.
Aðspurður kvaðst Svavar ekki
eiga persónulega um sárt að
binda varðandi fíkniefnaneyslu
en hann kvaðst þekkja mörg
sorgleg dæmi um fjölskyldu-
harmleiki sem orsökuðust af
fíkniefnaneyslu. Kvaðst Svavar
hafa fengið köllun fyrir nokkrum
árum til að beita sér sérstaklega
gegn fikniefnavandanum á Is-
landi. Kvaðst Svavar hafa lagt
allt í sölurnar í þessari baráttu.
Fyrst hefði hann gengið á eignir
sínar og þegar þær þraut hefði
hann farið í stofnanir og fyrir-
tæki víðsvegar um landið og
safnað peningum til styrktar bar-
áttunni gegn fíkniefnadjöflinum.
Hann kvaðst hafa styrkt lögregl-
una til tíekjakaupa og framleitt
og dreift ýmiss konar áróðri
gegn notkun fíkniefna. Kvaðst
Svavar vera mjög þakklátur
þeim er veitt hefðu honum stuðn-
ing í þessari baráttu. Fíkniefnin
væru í dag um allt land og allir
þyrftu að vera vakandi í barátt-
unni gegn sölumönnum dauðans.