Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Lokið við út- sýnispall Flateyri - Lokið er uppsetn- ing’u útsýnispalls á varnar- görðunum fyrir ofan byggð. Um leið var göngustígur lagður upp að útsýnispallin- um. Það var Afrek ehf. á Flateyri, sem bauð í verkefn- ið og var með lægsta tilboðið, sem sá um framkvæmdirnar. Aðeins er eftir að Ijúka frá- gangi bílastæðis, sem mun verða næst kirkjugarðinum. Með tilkomu útsýnispalls- ins og um leið göngustígsins gefst gott tækifæri til að virða fyrir sér byggðina á sólbjörtum degi. Töluverð aukning var á heimsóknum ferðamanna til Flateyrar í sumar og nýttu margir sér tækifærið til að virða fyrir sér fjöllin og byggðina úr út- sýnispallinum, enda útsýnið einstakt. Morgunblaðið/Egill Egilsson Utsýnispallurinn á Flateyri. Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir S nj ó fl ó ð avamag-ar ð ar vígðir Siglufírði - Tveir nýir og öflugir snjóflóðavarnagarðar, samtals tæpur kílómetri að lengd, voru vígðir í Siglufírði sl. föstudag. Bæjarbúar telja að þarna sé um byltingu að ræða og garðana skipta sköpum varðandi öryggi íbúa sem búa á svæðinu fyrir neðan garðana. Þessar nýju snjóflóðavai'nir saman- standa af tveimur görðum sem ruddir hafa verið upp í 18 m hæð stærri garðurinn og 14 m hæð minni garður- inn. Stærri garðurinn, sem gengur undir nafninu Stóri boli er um 700 m að lengd en sá minni sem nefndur er Litli boli er um 200 m að lengd. Kostnaður við garðana er orðinn um 270 milljónir. Framkvæmd verksins hófst í fyrravor og var það verktakafyrirtækið Héraðsverk frá Egilsstöðum sem annaðist það. Varnirnar hafa þegar sannað gildi sitt því sl. vetur féll snjóflóð á stærri garðinn og bægði hann því frá íbúð- arhúsum neðar í hlíðinni. Meðal gesta við vígsluna voru um- hverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, Páll Péturssor, félagsmálaráðherra, sem flutti ávarp, þingmenn kjör- dæmisins og fulltrúar frá Ofan- fljóðasjóði. Forseti bæjarstjórnar, Skarphéðinn Guðmundsson, flutti tölu og sr. Bragi J. Ingibergsson fór með blessunarorð. I máli Skarphéð- ins kom m.a. fram að hugmynda- smiðir að því að yfírfæra nöfnin Stóri boli og Litli boli af skíðapöll- um, sem voru þarna fyrr á árum, eru kennararnir Páll Helgason og Kjart- an Heiðberg. Nú er hafíð þriggja ára upp- græðsluverkefni sem Bás ehf. á Siglufirði annast. Gert er ráð fyrir tjaldsvæðum sunnan við garðana og gert er ráð fyrir mikilli útivistar- paradís á þessu svæði og fólk er þeg- ar farið að nýta sér svæðið til göngu og útivistar. Nútíma tímastjórnun Lófatölvur Mánudagur 4. október Kl. 14:00-17:00 Hótel Loftleiðir, þingsalur 1 Hraði í lífi og starfi stjórnenda er nú meiri en nokkru sinni. Nútíma stjórnendur eru hreyfan- legir en þurfa samtímis að hafa aðgang að skjölum og gögnum sem tengjast starfi þeirra. Tölvupóstur er einn helsti samskiptamiðill stjórnenda í dag og hann þarf að senda og móttaka hvar og hvenær sem er. Veraldarvefurinn er upplýsingabanki stjórnandans og því er nauðsynlegt að hægt sé að tengjast honum með einföldum hætti. Peir þættir sem að ofan eru nefndir kalla á nýjar áðferðir og tækni við vinnu. Stjórnunarfélag Islands hefur því sett saman námstefnu í samvinnu við Hauk Haraldsson, ráðgjafa, Rúnar Gunnarsson og Páll M. Egonsson EJS. Námsstefnan fjallar á skemmtilegan og aðgengilegan hátt um nýjar aðferðir vio tímastjórnun og skipulag vinnu. Annars vegar er vinnulag stjórnenda skoðað með tilliti til þess hraða og færanleika sem stjórnendur búa við. Hins vegar er nýjasta tækni á sviði lófatölva kynnt og farið yfir hvernig nýta má lófatölvur við skipulag vinnu, samskipti, gagnaflutning, gagnageymslu, útreikninga, o.fl. Námsstefnan hentar bæði þeim sem vilja kynnast nýjustu aðferðum og tækni við tímastjórnun og ieim sem nú þegar nota lófatölvur en vilja auka lekkingu sína enn frekar. Farið verður sérstak- ega yfir notkun Palm tölvanna frá 3Com. • Breytingar á stjórnunarháttum, nýjar kröfur og nýjar áherslur. • Hvaö er lófatölva? • Palm hugbúnaður kynntur svo og lófatölvan Palm Pilot. • Markaðsstaða lófatölvunnar. • Palm 0S vs. CE Dæmi um notkun lófatölvunnar. • Efni þar sem lögð er áhersla á hvernig unnt er að nýta Lófatölvur til að auka árangur og markviss vinnubrögð. Jafnframt er fjallað um markmiðasetningu og hvernig unnt er að virkja saman ólíka einstaklinga í þágu fyrirtækisins. Eftir kynningu verður mönnum leyft að prófa tölvuna. RúnarGunnarsson H Páll M. Egonsson ■ Stjórnunarfélag Islands Fyrirlesarar: Rúnar Gunnarsson, sölufulltrúi hjá EJS, Páll M. Egonsson, sölufulltrúi hja EJS Haukur Haraldsson, Mannheimum ehf. Minnum á námstefnuna „Nýjar víddir í stjórnun" fimmtudaginn. 21. okt. - Takið daginn frá! Fyrirlesarar: Rolf Falkenberg og Peter Koestenbaum Skráning og nánari uplýsingar í síma: 533 4567 og www.stjornun.is Morgunblaðið/Theodór F.v.: Sýslumaðurinn í Borgarnesi, Stefán Skarphéðinsson, tekur við stafrænni ljósmyndavél frá Svavari Sigurðssyni, baráttumanni gegn fíkniefnavandanum. Gjöf til lög reglunnar Borgarnesi - Lögreglan í Borgar- nesi fékk nýverið stafræna ljós- myndavél að gjöf frá Svavari Sigurðssyni, baráttumanni gegn fíknicfnavandanum. Þetta er ell- efta ljósmyndavélin sem að Svavar gefur til lögregluembætt- anna víðs vegar um landið. Alls hefur Svavar varið mörgum milljónum af eigin fjármunum og söfnunarfé til tækjakaupa handa lögreglu og til ýmissa forvarnar- verkefna gegn fíkniefnaneyslu. Aðspurður kvaðst Svavar ekki eiga persónulega um sárt að binda varðandi fíkniefnaneyslu en hann kvaðst þekkja mörg sorgleg dæmi um fjölskyldu- harmleiki sem orsökuðust af fíkniefnaneyslu. Kvaðst Svavar hafa fengið köllun fyrir nokkrum árum til að beita sér sérstaklega gegn fikniefnavandanum á Is- landi. Kvaðst Svavar hafa lagt allt í sölurnar í þessari baráttu. Fyrst hefði hann gengið á eignir sínar og þegar þær þraut hefði hann farið í stofnanir og fyrir- tæki víðsvegar um landið og safnað peningum til styrktar bar- áttunni gegn fíkniefnadjöflinum. Hann kvaðst hafa styrkt lögregl- una til tíekjakaupa og framleitt og dreift ýmiss konar áróðri gegn notkun fíkniefna. Kvaðst Svavar vera mjög þakklátur þeim er veitt hefðu honum stuðn- ing í þessari baráttu. Fíkniefnin væru í dag um allt land og allir þyrftu að vera vakandi í barátt- unni gegn sölumönnum dauðans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.