Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 21

Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 21 VIÐSKIPTI Blíðan notuð til náttúruskoðunar Eyja- og Miklaholtshreppi - Nem- endur Laugagerðisskóla notuðu góða veðrið á dögunum og skoð- uðu nánasta umhverfi sitt. Yngstu nemendurnir fóru að Rauðamelsölkeldu, á Rauðkúlu og á Gerðuberg. Miðhópurinn gekk á Eldborg og elstu nemend- urnir fóru í Gullborgarhella. Allt eru þetta náttúruperlur skólans og eru svona ferðir Iiður í því að kynna betur nemendum nánasta umhverfi þeirra. Þegar nemendur hafa lokið námi í skól- anum eiga þeir að vera vel að sér um náttúruna á skólasvæðinu. Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon Þjónustumiðstöð hesta- manna í Grundarfírði Grundarfirði - Fyrsta skóflustunga að þjónustumiðstöð hestamanna í Grundarfirði var tekin 26. septem- ber. Úr húsinu er góð yfirsýn yfir skeiðvöllinn og er þar aðstaða fyrir dómara þegar keppni fer fram. Hesteigendafélag Grundarfjarðai- byggir húsið og verður það byggt að mestu leyti í sjálfboðavinnu, en efni fjármagnað með ýmsum framlögum og styrkjum. A svæði félagsins eru 10 hesthús enda áhugi á hestum tals- verður í þorpinu. Fyrstu skólf- ustunguna tók Hjálmar Gunnarsson. Morgunblaðið/AÓalheiður Högnadóttir Fé heimt af fjalli á Rangárvöllum Hellu - Rangvellingar heimtu fé sitt af fjalli um síðustu helgi, en þá var réttað í Reyðarvatnsréttum en þær eru skammt frá Keldum. AIls voru um 1.500 fjár í safninu frá nokkrum bæjum á Rangárvöllum, en Ingimar ísleifsson, bóndi á Sól- völlum, er fjallkóngur þeirra. A myndinni eru leitarmenn að reka síðasta spölinn. Gates næstvoldugasti maður Bretlands London. Reuters. BILL Gates Microsoft-forstjóri er næstvoldugasti maður Bret- lands og bandaríski seðlabanka- stjórinn Alan Greenspan og fjölmiðlajöfurinn Rupert Mur- doch fylgja fast á eftir sam- kvæmt könnun Sunday Times. Tony Blair forsætisráðherra er í efsta sæti á skrá blaðsins yfir 500 áhrifamestu menn Bretlands. Gates er í öðru sæti vegna þess að 90% allra brezkra tölva eru búin Microsoft-hugbúnaði og Alan Greenspan er í þriðja sæti vegna áhrifa sinna á fjármála- mörkuðum heims. Murdoch, forstjóri News Corp, móðurfyr- irtækis Sunday Times, er í fjórða sæti. Prinsinn af Wales er í 36. sæti og hefur meiri áhrif en Elísabet drottning, sem er í 47. sæti, vegna ýmissa baráttumála sinna, allt frá lífrænt ræktuðum mat til byggingarlistar. Talsmaður Blairs, Alastair Campbell, komst ofar en allir aðrir ráðherrar stjórnarinnar Eini stjórnmálamaðurinn auk Blairs í 10 efstu sætunum er Gordon Brown fjármálaráð- herra. Jack Straw innanríkisráð- herra er í 12. sæti og John Prescott varaforsætisráðherra er fimm sætum fyrir neðan hann. Robin Cooke utanríkis- ráðherra er í 61. sæti og leiðtogi Ihaldsflokksins, Wiliam Hague, komst ekki í hóp 100. efstu. David Beckham knatt- spyrnumaður og poppstjarnan Posh Spice eru í 91. sæti og hafa meiri áhrif en erkibisk- upinn af Kantaraborg. Jóhann- es Páll páfil er eini trúarleið- toginn í hópi 100 efstu. Tíu voldugustu í Bretlandi 1. Tony Blair forsætis- ráðherra. 2. Bill Gates eigandi Microsoft. 3. Alan Greenspan seðlabanka- stjóri Bandaríkjanna. 4. Rupert Murdoch fjölmiðla- jöfur. 5. Gordon Brown fjármála- ráðherra. 6. Eddie George seðlabanka stjóri. 7. John Bridgeman yfirmaður samkeppnisstofnunar. 8. Stevenson lávarður yfir- mað ur Halifax-banka. 9. Alastair Campbell, blaða- full trúi Tony Blair. 10. Brian Pitman fulltrúi í stjórn Lloyds-banka. Ripp- lewood kaupir banka af Japönum Tókýó. Reuters. BANDARÍSKA fjárfestingarfyrir- tækið Ripplewood mun kaupa Long Term Credit-bankann í Japan og er hann fyrsti japanski bankinn, sem er seldur erlendu fyrirtæki. Ripplewood mun greiða einn milljarð jena og leggja fram 120 milljarða jena í fyrirtækið. Að fjárfestingarfyrirtækinu standa meðal annarra General Electric Capital Corp, Mellon Bank Corp, Paine Webber, ABN Amro Bank, Deutsche Bank og Citigroup- deildin Travelers Insurance. Samningurinn er talinn framfor í baráttu stjómarinnar fyrir því að hreinsa til í japanska bankageiran- um, sem hefur staðið höllum fæti vegna óinnheimtanlegra skulda síð- an hrun varð á fasteignamarkaði fyrir tíu árum. Fréttir á Netinu /§> mbl.is /\LLTAf= GiTTHXSAÐ iSTÝTT Nuggets kjúklingabitarnir frá Ferskum kjúklingum bókstaflega bráðna í munninum enda eru þeir himneskir á bragðið og sérlega safaríklr. Börnin elska bitana og biðja um þá aftur og aftur. Nuggets bitarnir eru forsteiktir þannig að það þarf einungis að hita þá upp í ofni, örbylgjuofni eða á pönnu. INÓATÚNI 0 FJARÐARKAUP mBDDQ]

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.