Morgunblaðið - 29.09.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 21
VIÐSKIPTI
Blíðan notuð til
náttúruskoðunar
Eyja- og Miklaholtshreppi - Nem-
endur Laugagerðisskóla notuðu
góða veðrið á dögunum og skoð-
uðu nánasta umhverfi sitt.
Yngstu nemendurnir fóru að
Rauðamelsölkeldu, á Rauðkúlu
og á Gerðuberg. Miðhópurinn
gekk á Eldborg og elstu nemend-
urnir fóru í Gullborgarhella.
Allt eru þetta náttúruperlur
skólans og eru svona ferðir Iiður
í því að kynna betur nemendum
nánasta umhverfi þeirra. Þegar
nemendur hafa lokið námi í skól-
anum eiga þeir að vera vel að sér
um náttúruna á skólasvæðinu.
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
Þjónustumiðstöð hesta-
manna í Grundarfírði
Grundarfirði - Fyrsta skóflustunga
að þjónustumiðstöð hestamanna í
Grundarfirði var tekin 26. septem-
ber. Úr húsinu er góð yfirsýn yfir
skeiðvöllinn og er þar aðstaða fyrir
dómara þegar keppni fer fram.
Hesteigendafélag Grundarfjarðai-
byggir húsið og verður það byggt að
mestu leyti í sjálfboðavinnu, en efni
fjármagnað með ýmsum framlögum
og styrkjum. A svæði félagsins eru
10 hesthús enda áhugi á hestum tals-
verður í þorpinu. Fyrstu skólf-
ustunguna tók Hjálmar Gunnarsson.
Morgunblaðið/AÓalheiður Högnadóttir
Fé heimt af fjalli
á Rangárvöllum
Hellu - Rangvellingar heimtu fé
sitt af fjalli um síðustu helgi, en þá
var réttað í Reyðarvatnsréttum en
þær eru skammt frá Keldum. AIls
voru um 1.500 fjár í safninu frá
nokkrum bæjum á Rangárvöllum,
en Ingimar ísleifsson, bóndi á Sól-
völlum, er fjallkóngur þeirra. A
myndinni eru leitarmenn að reka
síðasta spölinn.
Gates næstvoldugasti
maður Bretlands
London. Reuters.
BILL Gates Microsoft-forstjóri
er næstvoldugasti maður Bret-
lands og bandaríski seðlabanka-
stjórinn Alan Greenspan og
fjölmiðlajöfurinn Rupert Mur-
doch fylgja fast á eftir sam-
kvæmt könnun Sunday Times.
Tony Blair forsætisráðherra
er í efsta sæti á skrá blaðsins
yfir 500 áhrifamestu menn
Bretlands. Gates er í öðru sæti
vegna þess að 90% allra
brezkra tölva eru búin
Microsoft-hugbúnaði og Alan
Greenspan er í þriðja sæti
vegna áhrifa sinna á fjármála-
mörkuðum heims. Murdoch,
forstjóri News Corp, móðurfyr-
irtækis Sunday Times, er í
fjórða sæti.
Prinsinn af Wales er í 36.
sæti og hefur meiri áhrif en
Elísabet drottning, sem er í 47.
sæti, vegna ýmissa baráttumála
sinna, allt frá lífrænt ræktuðum
mat til byggingarlistar.
Talsmaður Blairs, Alastair
Campbell, komst ofar en allir
aðrir ráðherrar stjórnarinnar
Eini stjórnmálamaðurinn auk
Blairs í 10 efstu sætunum er
Gordon Brown fjármálaráð-
herra.
Jack Straw innanríkisráð-
herra er í 12. sæti og John
Prescott varaforsætisráðherra
er fimm sætum fyrir neðan
hann. Robin Cooke utanríkis-
ráðherra er í 61. sæti og leiðtogi
Ihaldsflokksins, Wiliam Hague,
komst ekki í hóp 100. efstu.
David Beckham knatt-
spyrnumaður og poppstjarnan
Posh Spice eru í 91. sæti og
hafa meiri áhrif en erkibisk-
upinn af Kantaraborg. Jóhann-
es Páll páfil er eini trúarleið-
toginn í hópi 100 efstu.
Tíu voldugustu
í Bretlandi
1. Tony Blair forsætis-
ráðherra.
2. Bill Gates eigandi
Microsoft.
3. Alan Greenspan seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna.
4. Rupert Murdoch fjölmiðla-
jöfur.
5. Gordon Brown fjármála-
ráðherra.
6. Eddie George seðlabanka
stjóri.
7. John Bridgeman yfirmaður
samkeppnisstofnunar.
8. Stevenson lávarður yfir-
mað ur Halifax-banka.
9. Alastair Campbell, blaða-
full trúi Tony Blair.
10. Brian Pitman fulltrúi í
stjórn Lloyds-banka.
Ripp-
lewood
kaupir
banka af
Japönum
Tókýó. Reuters.
BANDARÍSKA fjárfestingarfyrir-
tækið Ripplewood mun kaupa Long
Term Credit-bankann í Japan og er
hann fyrsti japanski bankinn, sem
er seldur erlendu fyrirtæki.
Ripplewood mun greiða einn
milljarð jena og leggja fram 120
milljarða jena í fyrirtækið.
Að fjárfestingarfyrirtækinu
standa meðal annarra General
Electric Capital Corp, Mellon Bank
Corp, Paine Webber, ABN Amro
Bank, Deutsche Bank og Citigroup-
deildin Travelers Insurance.
Samningurinn er talinn framfor í
baráttu stjómarinnar fyrir því að
hreinsa til í japanska bankageiran-
um, sem hefur staðið höllum fæti
vegna óinnheimtanlegra skulda síð-
an hrun varð á fasteignamarkaði
fyrir tíu árum.
Fréttir á Netinu
/§> mbl.is
/\LLTAf= GiTTHXSAÐ iSTÝTT
Nuggets kjúklingabitarnir frá Ferskum kjúklingum bókstaflega bráðna í munninum enda eru þeir himneskir á bragðið og
sérlega safaríklr. Börnin elska bitana og biðja um þá aftur og aftur. Nuggets bitarnir eru forsteiktir þannig að það þarf
einungis að hita þá upp í ofni, örbylgjuofni eða á pönnu.
INÓATÚNI
0
FJARÐARKAUP
mBDDQ]