Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Aðgerðir Rússa gegn Tsjetsjníu þykja bera keim af aðferðum NATO í Kosovo
Markmiðið að
komast hjá
landhernaði
Reuters
Tsjetsjenskar konur mótmæla loftárásum Rússa í höfuðborginni Grosný. Halda þær á spjöldum með mynd
af Dzokar Dudajev, leiðtoga úr Tsjetsjníustríðinu, og Aslan Maskhadov, forseta landsins.
Moskvu. AFP.
ÞRÁTT fyrir að Rússar hafi harð-
lega gagnrýnt loftárásir Atlants-
hafsbandalagsins á Serbíu síðasta
vor hafa þeir sjálfir beitt svipuðum
aðgerðum gegn íslömskum skæru-
liðum í Tsjetsjníu. Rússneski herinn
hefur jafnvel tekið upp á því að
skýra ýtarlega frá atburðarásinni í
fjölmiðlum til að freista þess að
auka stuðning almennings við að-
gerðimar.
Rússar hófu árásir á skotmörk í
Tsjetsjníu á fimmtudag í síðustu
viku vegna árása íslamskra skæru-
liða, sem hafa bækistöðvar í land-
inu, inn í rússneska héraðið Dagest-
an, og sprengjutilræða skærulið-
anna í fjölbýlishúsum í Rússlandi,
sem kostað hafa yfir 300 manns líf-
ið. Hemaðarsérfræðingar telja að
árásimar gegn Tsjetsjenum séu
sniðnar nákvæmlega eftir aðgerð-
um NATO í Serbíu, þar sem banda-
lagið stóð fyrir þriggja mánaða loft-
árásum á hernaðarmannvirki og
mikilvægar stofnanir, til að knýja
Slobodan Milosevic Júgóslavíufor-
seta til að stöðva sókn Serba gegn
Kosovo-Albönum.
Aðgerðir Rússa miða að því að
hafa uppi á hópum skæruliða, eyði-
leggja búðir þeirra, hindra birgða-
flutninga og loka útvarps- og sím-
stöðvum sem þeir nota. Markmiðið
er að komast hjá landhemaði, sem
yrði óhjákvæmilega afar mann-
skæður, en Rússar vilja umfram allt
forðast að ófarimar frá Tsjetsjníu-
stríðinu á áranum 1994-1996 endur-
taki sig.
Fréttamannafundir
á vestræna vísu
Það er algjör nýlunda að rúss-
neski herinn haldi fréttamanna-
fundi til að greina frá gangi mála.
Háttsettir herforingjar hafa verið
kallaðir til að útskýra loftárásimar
á Grosný, höfuðborg Tsjetsjníu,
fjarskiptamiðstöðvar, flugvelli, vegi,
brýr og olíuvinnslustöðvar.
Yfirmaður rússneska flughersins,
Anatólí Komukov hershöfðingi, hélt
til að mynda fréttamannafund um
síðustu helgi, þar sem hann skýrði
nákvæmlega frá 30 brúm og 250 km
vegarkafla sem hefðu verið eyðilögð
í 1.700 árásarferðum frá 3. ágúst til
24. september. Þótti fundurinn, sem
sjónvarpað var um allt Rússland,
minna óhemju mikið á hina daglegu
upplýsingafundi sem Jamie Shea,
talsmaður NATO, hélt í höfuðstöðv-
um bandalagsins í Brussel á meðan
á árásunum á Serbíu stóð.
Komukov sýndi meðal annars há-
tæknilegar upptökur af hámá-
kvæmum sprengjuárásum rúss-
neska hersins, eins og gert var á
fréttamannafundum NATO.
Skiptar skoðanir um aðferðir
„Rússar gagnrýndu NATO harð-
lega fyrir aðgerðimar í Kosovo, en
það hefur ekki komið í veg fyrir að
þeir beiti sömu aðferðum í Tsjetsjn-
íu,“ sagði Ivan Safranchuk hjá PIR-
Centre hugmyndabankanum, í við-
tali sem birtist í rússneska dagblað-
inu Vremya á mánudag. I blaðinu er
einnig haft eftir Vladímír Baranov-
sky, meðlimi Vísindaakademíunnar
í Moskvu, að hemaðaráætlunin sem
beitt er í Tjsetsjníu miði að því að
mannfall verði sem minnst og að að-
gerðir NATO í Júgóslavíu hafi
byggst á sömu hugmyndafræði.
Bendir Baronovsky þó á að áætlun-
in sé áhættusöm, þar sem NATO
hafi haft yfir að ráða mun betri her-
þotum og nákvæmari vopnakerfum.
Þá hafa ýmsir lýst yfir efasemd-
um um árangur slíkra aðgerða. Pa-
vel Felgenhauer, sjálfstæður hern-
aðai'sérfræðingur sem starfar í
Moskvu, spáir því að herferð Rússa
mistakist algjörlega. Telur hann að
eftir því sem Rússar valdi meiri
skaða á þjóðlífi og efnahagslífi
Tsjetsjníu, aukist hættan á því að
skæraliðaforingjamir taki völdin í
landinu. „Það er hægt að gera
sprengjuárásir á skæraliðaforingj-
ana til hinsta dags, þeir láta sig
mannfall óbreyttra borgara engu
skipta, en það er ekki hægt að út-
rýma skæraliðunum á þennan hátt.
Slík hernaðaráætlun er því dæmd
frá upphafi til að mistakast," sagði
Felgenhauer.
Heimildamenn innan hersins hafa
fullyrt að aðgerðir Rússa í Tsjetsjn-
íu gætu staðið yftr í allt að átján
mánuði. Telja þeir nauðsynlegt að
eyðileggja vegi sem liggja þaðan tii
nágrannaríkjanna Georgíu og
Aserbaídsjan, auk þess sem loka
verði landamæranum að rússnesku
héraðunum Dagestan, Norður-Os-
setíu og Ingúsetíu. Annað takmark
aðgerðanna mun vera að valda
ágreiningi milli tsjetsjensku skæru-
liðaforingjanna og koma þannig af
stað borgarastríði. Það myndi snúa
almenningsálitinu gegn skæraliða-
hópunum og gæti leitt til þess að að-
ilar hlynntir stjómvöldum í Moskvu
næðu völdum í landinu.
Kak hjarl
njiiíiiu.mj
Heimabanki SPV
- ókeypis þjónusta á netinu.
Þitt er valið. Þú getur nýtt þér
án endurgjalds þjónustu SPV
í Heimabanka okkar á netinu
eða komid á afgreiðslustadi
SPV Borgartúni 18, Síðumúla 1
eða Rof abæ 39.
1%
Peningamarkaðsreikningur
Sparisióðsins
PM-reikningur er innlánsreikningur
sem sameinar kosti sparireiknings og
verðbréfa.Vaxtakjör eins og þau gerast
best á íslenskum f jármagnsmarkaði.
Lágmarksf járhæð á PM-reikningi er
250.000 kr. Binditími á PM-reikningi er
aðeins 10 dagar. Engin þjónustugjöld.
8,62 % nafnávöxtun
Bak hjarl
SPARISJÓDSINS
Bakhjarl Sparisjóðs vélstjóra er
verðtryggður, bundinn innlánsreikn-
ingur fyrir þá sem vilja njóta hagstæð-
ustu ávöxtunarkjara hjá Sparisjóðnum.
Velja má um bínditíma í 36,48 eða 60
mánuði.
5,30% raunávöxtun
(vextir umfram verðbólgu)
n
spv
Sparisjóður
vélstjóra
PENINGAMARKADSREIKNINGUR
Sparisiódsins
taþess
w að taka áhættu.
Öryggið er þó meira virði
þegar á reynir.
Umtalsverður fjárhagslegur ávinningur þarf ekki að vera bundinn
þvf skilyrdi að þú teflir á tæpasta vað.
PM-reikningur og Bakhjarl Sparisjóðs vélstjóra bjóða sparifjárcigendum
öryggi, sveigjanleika og - sem mestu máli skiptir - afbragðs góða ávöxtun.
Komdu ár þinni vel fyrir borð.
Taktu ekki áhættu þegar þú leggur grunn að farsælli fjárhagslegri framtíð.
Veldu PM-reikning og Bakhjarl Sparisjóðs vélstjóra.
Njótið góðrar og persónulegrar þjónustu.
Verið velkomin í viðskipti hjá Sparisjóði vélstjóra.
Sparisjóður
vélst]óra