Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 28

Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Aðgerðir Rússa gegn Tsjetsjníu þykja bera keim af aðferðum NATO í Kosovo Markmiðið að komast hjá landhernaði Reuters Tsjetsjenskar konur mótmæla loftárásum Rússa í höfuðborginni Grosný. Halda þær á spjöldum með mynd af Dzokar Dudajev, leiðtoga úr Tsjetsjníustríðinu, og Aslan Maskhadov, forseta landsins. Moskvu. AFP. ÞRÁTT fyrir að Rússar hafi harð- lega gagnrýnt loftárásir Atlants- hafsbandalagsins á Serbíu síðasta vor hafa þeir sjálfir beitt svipuðum aðgerðum gegn íslömskum skæru- liðum í Tsjetsjníu. Rússneski herinn hefur jafnvel tekið upp á því að skýra ýtarlega frá atburðarásinni í fjölmiðlum til að freista þess að auka stuðning almennings við að- gerðimar. Rússar hófu árásir á skotmörk í Tsjetsjníu á fimmtudag í síðustu viku vegna árása íslamskra skæru- liða, sem hafa bækistöðvar í land- inu, inn í rússneska héraðið Dagest- an, og sprengjutilræða skærulið- anna í fjölbýlishúsum í Rússlandi, sem kostað hafa yfir 300 manns líf- ið. Hemaðarsérfræðingar telja að árásimar gegn Tsjetsjenum séu sniðnar nákvæmlega eftir aðgerð- um NATO í Serbíu, þar sem banda- lagið stóð fyrir þriggja mánaða loft- árásum á hernaðarmannvirki og mikilvægar stofnanir, til að knýja Slobodan Milosevic Júgóslavíufor- seta til að stöðva sókn Serba gegn Kosovo-Albönum. Aðgerðir Rússa miða að því að hafa uppi á hópum skæruliða, eyði- leggja búðir þeirra, hindra birgða- flutninga og loka útvarps- og sím- stöðvum sem þeir nota. Markmiðið er að komast hjá landhemaði, sem yrði óhjákvæmilega afar mann- skæður, en Rússar vilja umfram allt forðast að ófarimar frá Tsjetsjníu- stríðinu á áranum 1994-1996 endur- taki sig. Fréttamannafundir á vestræna vísu Það er algjör nýlunda að rúss- neski herinn haldi fréttamanna- fundi til að greina frá gangi mála. Háttsettir herforingjar hafa verið kallaðir til að útskýra loftárásimar á Grosný, höfuðborg Tsjetsjníu, fjarskiptamiðstöðvar, flugvelli, vegi, brýr og olíuvinnslustöðvar. Yfirmaður rússneska flughersins, Anatólí Komukov hershöfðingi, hélt til að mynda fréttamannafund um síðustu helgi, þar sem hann skýrði nákvæmlega frá 30 brúm og 250 km vegarkafla sem hefðu verið eyðilögð í 1.700 árásarferðum frá 3. ágúst til 24. september. Þótti fundurinn, sem sjónvarpað var um allt Rússland, minna óhemju mikið á hina daglegu upplýsingafundi sem Jamie Shea, talsmaður NATO, hélt í höfuðstöðv- um bandalagsins í Brussel á meðan á árásunum á Serbíu stóð. Komukov sýndi meðal annars há- tæknilegar upptökur af hámá- kvæmum sprengjuárásum rúss- neska hersins, eins og gert var á fréttamannafundum NATO. Skiptar skoðanir um aðferðir „Rússar gagnrýndu NATO harð- lega fyrir aðgerðimar í Kosovo, en það hefur ekki komið í veg fyrir að þeir beiti sömu aðferðum í Tsjetsjn- íu,“ sagði Ivan Safranchuk hjá PIR- Centre hugmyndabankanum, í við- tali sem birtist í rússneska dagblað- inu Vremya á mánudag. I blaðinu er einnig haft eftir Vladímír Baranov- sky, meðlimi Vísindaakademíunnar í Moskvu, að hemaðaráætlunin sem beitt er í Tjsetsjníu miði að því að mannfall verði sem minnst og að að- gerðir NATO í Júgóslavíu hafi byggst á sömu hugmyndafræði. Bendir Baronovsky þó á að áætlun- in sé áhættusöm, þar sem NATO hafi haft yfir að ráða mun betri her- þotum og nákvæmari vopnakerfum. Þá hafa ýmsir lýst yfir efasemd- um um árangur slíkra aðgerða. Pa- vel Felgenhauer, sjálfstæður hern- aðai'sérfræðingur sem starfar í Moskvu, spáir því að herferð Rússa mistakist algjörlega. Telur hann að eftir því sem Rússar valdi meiri skaða á þjóðlífi og efnahagslífi Tsjetsjníu, aukist hættan á því að skæraliðaforingjamir taki völdin í landinu. „Það er hægt að gera sprengjuárásir á skæraliðaforingj- ana til hinsta dags, þeir láta sig mannfall óbreyttra borgara engu skipta, en það er ekki hægt að út- rýma skæraliðunum á þennan hátt. Slík hernaðaráætlun er því dæmd frá upphafi til að mistakast," sagði Felgenhauer. Heimildamenn innan hersins hafa fullyrt að aðgerðir Rússa í Tsjetsjn- íu gætu staðið yftr í allt að átján mánuði. Telja þeir nauðsynlegt að eyðileggja vegi sem liggja þaðan tii nágrannaríkjanna Georgíu og Aserbaídsjan, auk þess sem loka verði landamæranum að rússnesku héraðunum Dagestan, Norður-Os- setíu og Ingúsetíu. Annað takmark aðgerðanna mun vera að valda ágreiningi milli tsjetsjensku skæru- liðaforingjanna og koma þannig af stað borgarastríði. Það myndi snúa almenningsálitinu gegn skæraliða- hópunum og gæti leitt til þess að að- ilar hlynntir stjómvöldum í Moskvu næðu völdum í landinu. Kak hjarl njiiíiiu.mj Heimabanki SPV - ókeypis þjónusta á netinu. Þitt er valið. Þú getur nýtt þér án endurgjalds þjónustu SPV í Heimabanka okkar á netinu eða komid á afgreiðslustadi SPV Borgartúni 18, Síðumúla 1 eða Rof abæ 39. 1% Peningamarkaðsreikningur Sparisióðsins PM-reikningur er innlánsreikningur sem sameinar kosti sparireiknings og verðbréfa.Vaxtakjör eins og þau gerast best á íslenskum f jármagnsmarkaði. Lágmarksf járhæð á PM-reikningi er 250.000 kr. Binditími á PM-reikningi er aðeins 10 dagar. Engin þjónustugjöld. 8,62 % nafnávöxtun Bak hjarl SPARISJÓDSINS Bakhjarl Sparisjóðs vélstjóra er verðtryggður, bundinn innlánsreikn- ingur fyrir þá sem vilja njóta hagstæð- ustu ávöxtunarkjara hjá Sparisjóðnum. Velja má um bínditíma í 36,48 eða 60 mánuði. 5,30% raunávöxtun (vextir umfram verðbólgu) n spv Sparisjóður vélstjóra PENINGAMARKADSREIKNINGUR Sparisiódsins taþess w að taka áhættu. Öryggið er þó meira virði þegar á reynir. Umtalsverður fjárhagslegur ávinningur þarf ekki að vera bundinn þvf skilyrdi að þú teflir á tæpasta vað. PM-reikningur og Bakhjarl Sparisjóðs vélstjóra bjóða sparifjárcigendum öryggi, sveigjanleika og - sem mestu máli skiptir - afbragðs góða ávöxtun. Komdu ár þinni vel fyrir borð. Taktu ekki áhættu þegar þú leggur grunn að farsælli fjárhagslegri framtíð. Veldu PM-reikning og Bakhjarl Sparisjóðs vélstjóra. Njótið góðrar og persónulegrar þjónustu. Verið velkomin í viðskipti hjá Sparisjóði vélstjóra. Sparisjóður vélst]óra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.