Morgunblaðið - 29.09.1999, Síða 29

Morgunblaðið - 29.09.1999, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 29 ERLENT Wm) Ho«f NO' ' i*pásifl,r DEasYSHlRE Ævisaga Reagans væntanleg í vikunni en þegar orðin umdeild Reagan ásamt varaforseta sínum, George Bush. I ævisögunni segir, að Reagan hafi ekki haft mikið álit á Bush. I bókinni seg- ir, að á tímum kreppunnar miklu, þegar margir leikarar eins og hann höfðu hvorki til hnífs né skeiðar, hafi Reagan gælt dálítið við kommúnismann og sótt um inn- göngu í banda- ríska kommún- istaflokkinn 1938. Honum var hins vegar hafn- að þar sem fram- mámenii í flokknum töldu, að hann sigldi undir fölsku flaggi, einkum vegna þess, að þá var hann sjálf- ur í vinnu og með um 200 doll- ara á viku. Þegar kom fram á sjötta ára- tuginn var Reagan orðinn sann- færður íhaldsmaður og repúb- likani og átti þá þátt í að benda á þá leikara, sem grunaðir voru um samúð með kommúnistum. Orlagaríkur dagur 2. mars í bókinni segir Morris, að 1987 hafí Howard Baker, nýr starfsmannasljóri Hvíta hússins, kallað ráðgjafa sína á fund til að ræða um andlegt heilsufar for- setans. Þá voru menn farnir að hafa áhyggjur af því, að Reagan, sem var kominn með Alzheimerssjúkdóm, hefði ekki getu lengur til að gegna emb- ættinu. Lagði Baker til, að vel yrði fylgst með Reagan tiltekinn dag, 2. mars, og reyndist forset- inn þá að flestra dómi vera „úti á þekju“, skyldi haft samband við lögspekinga með það fyrir augum að setja hann af með til- vísan til ákveðinnar greinar í sljórnarskránni. Hún heimilar það ef unnt er að sýna fram á, að forsetinn sé ófær um að gegna skyldum sín- um. Þennan umrædda dag mætti Reagan til vinnu hress og kátur og vel með á nótunum. Var þetta mál ekki vakið upp aftur í þann tíma, sem Reagan átti eftir á forsetastóli. í ævisögunni segir, að Reagan hafi haft lítið álit á George Bush, varaforseta sínum og síð- ar forseta. Hafi hann litið á hann sem eins konar liðlétting og mann, sem léti bugast þegar að honum væri sótt. Tony Blair vill horfa til 21. aldarinnar Bourncmouth. Reuters. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í stefnuræðu sinni á flokksþingi breska Verkamanna- flokksins í gær að ríkisstjóm sín hefði sýnt fram á að hún gæti bæði barist gegn fátækt og knúið hjól efnahagslífsins áfram, en að nú riði á að horfa til 21. aldarinnar. Fullyrti Blair að efnahagsstefna stjórnarinnar væri traust og að ef henni yrði fylgt áfram yrði unnt að veita sífellt meira fé til mennta- og heilbrigðismála. „Héðan í frá mun fólk kjósa Verkamannaflokkinn af skynsemisástæðum, ekki síður en af hugsjónaástæðum,“ sagði Blair. Hvatti hann hefðarsinna innan flokksins til að endurskilgreina sig sem „nútíma róttæklinga", en ekki sósíalista. Endaði forsætisráðherrann ræðu sína á hvatningarorðunum „frelsum fólkið“, en Ihaldsflokkurinn notaði þetta slagorð með góðum árangri í kosningunum 1951, til að gagnrýna hafta- og skömmtunarstefnu Verka- mannaflokksins. Nær 16 þúsund andstæðingar hugsanlegs banns bresku stjórnar- innar við refaveiðum stóðu fyrir mótmælum fyi-ir utan flokksþingið í gær. Blésu mótmælendur í veiði- hom og hrópuðu slagorð. „Þið stjómið landinu, við munum stjórna landsbyggðinni,“ kallaði miðaldra veiðiunnandi að þinggestum. Reuters Þúsundir andstæðinga banns við refaveiðum stóðu fyrir mótmælum fyrir utan flokksþing breska Verkamannafiokksins í Bournemouth í gær. New York, Washington. Daily Telegraph, Reuters. RONALD Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, reyndi að fá inngöngn í bandaríska kommún- istaflokkinn árið 1938 en var liafnað. Árið 1987 velti starfslið Hvíta hússins því fyrir sér að svipta hann embætti eins og stjórnarskráin heimilar þegar andlegt heilsufar forseta þykir vera orðið mjög bágborið. Kem- ur þetta meðal annars fram í ævisögn Reagans, sem er nú þegar orðin mjög umdeild þótt hún komi ekki fyrir almennings- sjónir fyrr en nú í vikunni. Þykir bókin mjög nýstárleg að því leyti, að höfundurinn, Edmund Morris, gerir sjálfan sig að sögu- manni og býr í því skyni til per- sónu, sem er samtíða Reagan og vitni að flestu, sem máli skiptir í lífí hans. ntrv Sports Alone! Hugleiddu að setja forsetann af árið 1987 Málarekstur gegn Augusto Pinochet hefur staðið í næstum eitt ár Tekist á um þjóðréttar- leg ágreiningsatriði • • Ocalan varar Tyrki við KÚRDÍSKI skæruliðaleiðtog- inn Abdullah Öcalan sagði í gær, að hætta væri á, að upp- reisn Kúrda í Suðaustur-Tyrk- landi breiddist út ef tyrknesk stjórnvöld brygðust ekki vel við tilboði skæruliða um frið. Öcal- an, sem er í tyrknesku fangelsi, vai- dæmdur til dauða í júní sl. en hefur áfrýjað dómnum. Hef- ur hann hvatt vopnabræður sína til að hætta baráttunni fyr- ir sjálfstæðu ríki en þó gegn því, að menningarleg sérstaða Kúrda verði virt. Talsmaður tyrkneská hersins sagði í gær, að flokkur Öcalans, Kúrdíski verkamannaflokkurinn, væri enn ógnun við öryggi ríkisins. Vonast eftir WTO-aðild KÍNVERJAR kváðust í gær hafa nokkra von um, að samn- ingar tækjust við Bandaríkja- stjóm um aðild þeirra að Heimsviðskiptastofnuninni, WTO. Sagði Long Yongtu, helsti samningamaður þeirra, að nú þyrfti að koma til pólitísk ákvörðun um. að ljúka málinu. Kínverjar hafa reynt að fá að- gang að Heimsviðskiptastofn- uninni í 13 ár en Bandaríkin og Evrópusambandið setja það skilyrði, að þeir opni um leið sinn eigin heimamarkað fyrir erlendri samkeppni. Kínveijar krefjast aftur á móti ótal und- anþágna sem þriðjaheimsríki en þeir óttast, að kínversku rík- isfyrirtækin muni mega sín lít- ils hjá erlendu fyrirtækjunum. ÁKVÖRÐUN laganefndar bresku lávarðadeildai-innar í nóvember á síðasta ári, þess efnis að Augusto Pinochet nyti ekki friðhelgi, vakti mikla og verðskuldaða athygli um heim allan. Með ákvörðuninni ógilti lávarðadeildin dóm Hæstaréttar Bretlands sem hafði komist að þeirri niðurstöðu að Pinochet nyti friðhelgi vegna þess að á þeim tíma sem meinth' glæpir áttu sér stað hefðj hann gegnt stöðu þjóðarleiðtoga. I niðm’stöðu réttarins fólst einnig að sökum þess að ekki væri hægt að lögsækja Pinochet í Bretlandi væri heldur ekki unnt að framselja hann til Spánar. Laganefnd lávarðadeildarinnar, sem er æðsta dómsvald í Bretlandi, úrskurðaði hins vegar að þeir glæpir sem Pinochet væri sakaður um að bera ábyrgð á væru þess eðlis að þeir gætu ekki heyrt undir lögbund- ið vald hans sem þjóðarleiðtoga og þai- með væri tómt mál að tala um friðhelgi. í kjölfar þessarar niður- stöðu tók Jack Straw, innanríkisráð- herra Bretlands, þá ákvörðun að heimila að framsalskrafa Spánverja yrði tekin fyrir í breskum dómstóli. Þau réttarhöld sem nú standa yfir í London varða aðeins síðastnefnda atriðið, þ.e. hvort Pinochet verði framseldur til Spánar. Ljóst er að enda þótt í ljós komi að ekki megi framselja hann til Spánar kann svo að fara að höfðað verði mál gegn honum í einhverju öðru landi í Evr- ópu. Til dæmis hafa handtökuskipan- ir verið gefnar út á hendur Pinochet í Frakklandi, Belgíu og Sviss og sak- sóknarar undirbúa málshöfðun gegn honum í Svíþjóð, Lúxemburg, Þýskalandi og Italíu. Framhald málsins veltur þó á því hvaða svör fást á næstu vikum við spurningum sem fyrst og fremst eru lagalegs eðlis. Allur málatilbúnaður gegn Pinochet veltur á því að lagaleg rök andstæðinga hans fái scaðist en þau byggjast á nýjum hugmyndum um eðli þjóðaréttar sem hafa verið að ryðja sér til rúms. Einkum tekist á um tvö lagaleg atriði Handtaka Pinochets fyi’ir tæpu ári hleypti af stað miklum umræðum um lagaleg álitaefni sem tengjast þróun þjóðaréttar síðustu áratugi. Að margra mati mun málið hafa for- dæmisgildi og jafnvel leiða í ljós hvort ríki heims séu raunverulega viljug að sýna í verki að ýmis nýmæli í alþjóðalögum, sem þau hafa stað- fest með undirritun alþjóðlegra sátt- mála, séu annað og meira en orðin tóm. Einnig eru vonir margi-a bundnar við að málið muni geta skerpt á merkingu hugtaka, sem nokkuð hefur verið á reiki og sumir telja að megi rekja til þess hve þró- unin hefur verið ör á þessu sviði. Tímaritið The Economist hefur haldið því fram að málið snúist í meginatriðum um tvennt, friðhelgi þjóðarleiðtoga og lögsögu dómstóla. I fyrsta lagi er deilt um hvort Pin- ochet njóti friðhelgi sem fyrrverandi þjóðarleiðtogi og í öðru lagi er deilt um hvaða dómstólar hafi lögsögu í málinu. Reglan um friðhelgi þjóðarleið- toga er, líkt og reglan um friðhelgi sendiráðsstarfsmanna, ein sú elsta sem gildir í samskiptum þjóða. í tengslum við mál Pinochets hefur hins vegar verið bent á að frá lokum seinni heimstyi'jaldar hafi ýmsir al- þjóðlegh- sáttmálar verið gerðir sem feli í sér að friðhelgi falli niður undir ákveðnum kringumstæðum. Sem dæmi má nefna að samkvæmt stofn- skrám Núrnberg-dómstólsins frá 1945 og Alþjóðastríðsglæpadóm- stólsins í Haag, sem settur var upp í tengslum við átökin í Rúanda og Bosníu, geta leiðtogar ekki komist hjá refsiábyrgð í skjóli stöðu sinnar. Sama á við um samninginn um Al- þjóðasakamáladómstólinn sem und- irritaður var af ríkjum Sameinuðu þjóðanna sumarið 1997 og sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn pynding- um frá árinu 1984. Hvaða dómstólar hafa lögsögu? Einnig hefur því verið haldið fram að þegar ákæruatriði varða jafn al- varlega glæpi og þá sem Pinochet er sagður bera ábyrgð á, gildi svokölluð allsherjarlögsaga, þ.e. að slík mál megi og beri að taka til meðferðar í dómstólum hvar sem er í heiminum. Regluna um allsherjarlögsögu er líkt og regluna um missi friðhelgi að finna víða í alþjóðasáttmálum en að- eins fáein ríki, t.d. Kanada og Belgía, hafa leitt hana í landslög. Samkvæmt eðli máls hafa dóm- stólar ríkja takmarkaða lögsögu að því er varðar afbrot framin í öðrum löndum og af þegnum annarra ríkja. Þetta er eitt af því sem fullveldis- hugtakið felur í sér. Á undanförnum áratugum hafa að vísu komið upp mál þar sem alþjóðlegum dómstólum hefur verið veitt víðtæk lögsaga, þvert á landamæri ríkja, s.s. þegar um hefur verið að ræða stríðsglæpi. Hins vegar er spurningin sem tek- ist er á um í máli Pinochets sú hvort dómstóll einstaks ríkis geti haft alls- herjarlögsögu. I þessu sambandi hefur verið bent á að rökin fyrir því að unnt var að rétta yfir Adolf Eich- mann, einum skipuleggjenda helfar- arinnar, í ísrael árið 1961 hafi verið þau að glæpir hans hafi verið þess eðlis að þeir réttlættu lögsögu ísrael- ski-a dómstóla. Lögsaga Israela í málinu var viðurkennd af flestum ríkjum heims á þeim tima. Spurningin er einnig sú hvort glæpir þeir sem Pinochet er sagður bera ábyrgð á séu þess eðlis að dóm- stóll, jafnvel dómstóO með viður- kennda allherjarlögsögu í ákveðnum málum, geti tekið málið til meðferðar. Hæstiréttur Spánar hefur fyrir sitt leyti svarað spurningunni á þann veg, þvert á rök spænskra stjórnvalda, að umræddh' glæpir séu einmitt af því tagi að Pinochet megi draga fyrir rétt og dæma á Spáni. En hvort til þess kemur mun ekki verða ljóst fyrr en um miðjan október, þegar úrskurður mun verða kveðinn upp vai'ðandi framsalskröfuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.