Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 47
!
MINNINGAR
JÓN ÁRNI
GUÐMUNDSSON
+ Jón Árni Guð-
mundsson vél-
fræðingur fæddist í
Reykjavfk 20. des-
ember 1951. Hann
lést í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 9. sept-
ember síðastliðinn
og fór útfbr hans
fram frá Fossvogs-
kirkju 17. septem-
ber.
Þegar fréttin af láti
æskuvinar míns, Jóni
Arna, barst mér hing-
að til Kýpur er ekki
laust við að mér hafi fallist hendur.
Vegna fjarlægðar sl. 10 ár var
samband okkar orðið nokkuð stop-
ult og var mér því ekki kunnugt
um veikindi hans. Jón var yngstur
af okkur strákunum í „gömlu vina-
grúppuni" og þar af leiðandi
fannst manni að hann hefði átt að
vera síðastur okkar félaga til að
kveðja þennan heim. Máltækið
segir að „enginn veit hvern annan
grefur“ og það sannaði sig í þetta
skiptið.
Mín fyrstu kynni af Jóni Árna
voru haustið sem við byrjuðum
saman í sjö ára bekk í Miðbæjar-
barnaskólanum. Okkar leiðir lágu
síðan saman í gegn um barna-
skóla, gagnfræðaskóla og vélskóla.
Við vorum nokkrir félagar nánast
óaðskiljanlegir á þessum tíma og
var margt skemmtilegt brallað
eins og gerist og
gengur um unga
menn. Jón var með
frjótt ímyndunarafl
og var því aðal hug-
myndasmiðurinn í
hópnum um það „hvað
ætti að gera næst“.
Það væri eflaust efni í
heila bók ef ég ætti að
fara í saumana á öll-
um þeim uppákomum
og tiltækjum sem við
stóðum í á þeim árum,
en vil ég þó nefna
ógleymanlega ferð
okkar félaganna á
mótorhjólunum sumarið 1972 frá
Hornafirði til Reykjavíkur, en þá
var hringvegurinn ekki kominn.
Ferðin var eitt skemmtilegasta
uppátæki okkar og mun aldrei
geymast. Okkur tókst meira að
segja að komast á forsíðu Vikunn-
ar í þeirri ferð, það er að segja
mótorhjólunum okkar.
Það fór síðan um okkar grúppu
eins og aðrar, hún leystist upp,
menn stofnuðu fjölskyldur og
fluttu um set. Þráðurinn slitnaði þó
aldrei á milli okkar, við höfðum
alltaf samband við hvor annan, þó
stundum hafi liðið langt á milli.
Kæra Anna, börn og aðrir ást-
vinir. Þegar Jón Arni er kvaddur
hinstu kveðju, vil ég votta ykkur
mína dýpstu samúð, blessuð sé
minning hans.
Baldvin Jónsson (Kýpur).
Frágangur
afmælis-
og minn-
ingar-
greina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tviverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minning@mbl.-
is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem við-
hengi.
Auðveldust er móttaka svokall-
aðra ASCII skráa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-texta-
skrár. Þá eru ritvinnslukerfm
Word og WordPerfect einnig
nokkuð auðveld úi-vinnslu.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar grein-
ar um sama einstakling tak-
markast við eina örk, A-4, miðað
við meðallínubil og hæfílega
línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Til-
vitnanir í sálma eða Ijóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi.
Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
BRIPS
llmsjón Arnúr G.
Kagnarsson
Bridsfélag
Reykjavíkur
MIÐVIKUDAGINN 22. september
var spilaður eins kvölds tölvureikn-
aður tvímenningur með þátttöku 14
para. Spilaður var Monrad Baró-
meter. SpOaðar voru 7 umferðir, 4
spii í hverri umferð. Efstu pör vora:
Sigurður B. Þorsteinss. - Haukur Ingason +30
Björn Friðriksson - Kristinn Karlsson +18
Jórunn Fjeldsted - Helgi Samúelsson +16
Jón Alfreðsson - Eiríkur Jónsson +14
7 pör tóku þátt í verðlaunapottin-
um og rann hann til Sigurðar og
Hauks, alls 3.500 kr.
Föstudaginn 24. september var
spilaður Mitchell-tvímenningur með
forgefnum spilum. 14 pör spiluðu 7
umferðir með 4 spilum á milli para.
Meðalskor var 168 og efstu pör
vora:
NS
Arni Hannesson - Orinarr Snæbjörnsson 1%
Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðarson 190
Garðar Garðarsson - Óli Þór Kjartansson 187
AV
Asgeir Gunnarsson - Einar Oddsson 198
Halldór Þórólfsson - Andrés Þórarinsson 189
Gunnar Valgeirss. - Hafþór Kristjánss. 177
Að tvímenningnum loknum var
spOuð miðnæturútsláttarsveita-
keppni með þátttöku 5 sveita. Til
úrslita spiiuðu sveitir Friðriks Jóns-
sonar og Birkis Jónssonar. Sveit
Friðriks vann með 33 impum gegn
19. Með Friðriki spBuðu: Eggert
Bergsson, Halldór Þórólfsson og
Andrés Þórarinsson.
Bridsfélagið
Muninn, Sandgerði
Síðastliðinn miðvikudag lauk
öðra kvöldinu af þremur í þriggja
kvölda tvímenningi hjá félaginu og
urðu úrslit efstu para þessi:
Þröstur Þorláksson - Birkir Jónsson 62,04%
Ævar Jónasson - Jón Gíslason 59,26%
Jóhann Ben. - Sigurður Albertss. 56,95%
Óli Þ. Kjartanss. - Garðar Garðarss. 54,63%
Staða efstu para eftir tvö kvöld er
þessi:
Þröstur Þorláksson - Birkir Jónsson 59,50%
Óli Þ. Kjartanss. - Garðar Garðarss. 56,02%
Kjartan Ólas. - Gunnar Guðbjörnss. 54,17%
Svala Pálsdóttir - Svavar Jensen 53,43%
Nethyl 2 ♦ S. 587 8044
Kristján Sigurðsson Ijósm.
RALA
Rannsóknastofnun landbúnaðarins og
Búnaðarsamband Suðurlands auglýsa
stöðu tilraunastjóra
Staða tilraunastjóra á tilraunastöðinni
á Stóra Ármóti í Hraungerðishreppi er
laus til umsóknar.
Tilraunastöðin á Stóra Ármóti er rekin sameig-
inlega af Rannsóknastofnun landbúnaðarins
og Búnaðarsambandi Suðurlands í samræmi
við lög nr. 29 1981 og samstarfssamningi þess-
ara aðila frá 1983. í samræmi við þetta er óskað
eftir umsóknum frá aðilum, sem hafa sér-
menntun ertengjast nautgriparækt, einkum
fóðurfræði eða sambærilegum sviðum, sem
nýtast myndi starfseminni.
Skipulag á rekstri stöðvarinnar og áherslur
4 í rannsóknastarfseminni eru í endurskoðun
og er þess vænst, að nýr tilraunastjóri taki
virkan þátt í þeirri skipulagningu.
Á Stóra Ármóti er ný tilraunaaðstaða, sem
byggð hefur verið upp á síðustu fimmtán
árum, en starfsemi á staðnum hófst árið 1987
og er framhald af starfsemi sem unnin var í
Laugardælum. Möguleiki er á búsetu á staðn-
um.
Umsóknum ber að skila fýrir 20. október nk.
Itil Þorsteins Tómassonar, forstjóra Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins, Keldnaholti. Upplýs-
ingar veitir einnig Sveinn Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suður-
lands.
Smiðir — verkamenn
Okkurvantar smiði og verkamenn íýmisverk-
Iefni, bæði inni og úti. Vinnustaður er Borga-
og Staðahverfi í Grafarvogi.
Upplýsingar í síma 861 6797 eða 892 3797.
TSH byggingaverktakar.
Félágsþjónustan
Starfsmaður í eldhús
Starfsmaður óskast sem fyrst til starfa í eldhúsi
félagsstarfs aldraðra, Dalbraut 18—20. Um
50% starf er að ræða, eftir hádegi.
Nánari upplýsingar veitir Selma Jóhannsdóttir,
forstöðumaður í síma 588 9533.
Leiðbeinandi
Leiðbeinandi óskast til starfa í postulínsmálun
og „opinni handavinnustofu" í félagsstarfi
aldraðra, Dalbraut 18—20. Um 40% starf er
að ræða, vinnutími eftir samkomulagi. Starfið
er laust 1. desember 1999.
Nánari upplýsingar veitir Selma Jóhannsdóttir,
forstöðumaður í síma 588 9533.
Félagsþjónustan er fjölmennur vinnustaður sem veitir
borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin leggur
mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk sitt, að
uþþlýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavíkurborgar f
málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu
sem veitt er. Allir nýir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og
kynningu um Félagsþjónustuna og borgarkerfið og fréttabréf
reglulega um starfsemi stofnunarinnar.
Kennarar
Kennarar óskast til yfirferðar á samræmdum
könnunarprófum í 4. og 7. bekk 1999.
Skilyrði eru að viðkomandi hafi kennsluréttindi
og reynslu af kennslu nemenda á grunnskóla-
stigi í stærðfræði og/eða íslensku.
Nánari upplýsingar eru veittar á Rannsókna-
stofnun uppeldis- og menntamála í síma
551 0560 milli klukkan 13.00 og 16.00 alla virka
daga til 6. október nk. Hægt er að nálgast um-
sóknareyðublöð á stofnuninni í uSuðurgötu
39 og á netinu, slóðin www.rum.is.
Brauðberg
Afgreiðslustarf
Brauðberg, Hagamel 67, óskarað ráða dugmik-
inn starfskrafttil afgreiðslustarfa sem fyrst.
Viðkomandi þarf að vera duglegur, stundvís
og tilbúinn til að takast á við ábyrgð í starfi.
Æskilegt er að viðkomandi sé 25 ára eða eldri
en þó ekki skilyrði.
Nánari upplýsingar í síma 694 7272, einnig
í síma 567 7272 eftir kl. 15.00.
sói/i/im
Starfsmenn óskast
á hjólbarðaverkstæði Sólningar á
Smiðjuvegi í Kópavogi.
Upplýsingar í síma 544 5020 eða á staðnum.
Sólning hf.,
Smiðjuvegi 32—34.
Smart
Vegna mikilla anna þurfum við að bæta við
góðum starfskrafti í fullt starf. Vaktavinna.
Skilyrði er að viðkomandi sé þjónustulundað-
ur, samstarfsfús og stutt í brosið. Tekið verður
við skriflegum umsóknum á staðnum.
Sólbaðstofan Smart,
Grensásvegi 7.
Lykilhótel Cabin
Óskum eftir að ráða starfsfólk í gestamóttöku,
næturvörð og aðstoð í morgunverð.
Upplýsingar veittar á staðnum í dag, miðviku-
daginn 29. september og fimmtudaginn 30. sept-
ember milli kl. 16 og 18.