Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 47 ! MINNINGAR JÓN ÁRNI GUÐMUNDSSON + Jón Árni Guð- mundsson vél- fræðingur fæddist í Reykjavfk 20. des- ember 1951. Hann lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 9. sept- ember síðastliðinn og fór útfbr hans fram frá Fossvogs- kirkju 17. septem- ber. Þegar fréttin af láti æskuvinar míns, Jóni Arna, barst mér hing- að til Kýpur er ekki laust við að mér hafi fallist hendur. Vegna fjarlægðar sl. 10 ár var samband okkar orðið nokkuð stop- ult og var mér því ekki kunnugt um veikindi hans. Jón var yngstur af okkur strákunum í „gömlu vina- grúppuni" og þar af leiðandi fannst manni að hann hefði átt að vera síðastur okkar félaga til að kveðja þennan heim. Máltækið segir að „enginn veit hvern annan grefur“ og það sannaði sig í þetta skiptið. Mín fyrstu kynni af Jóni Árna voru haustið sem við byrjuðum saman í sjö ára bekk í Miðbæjar- barnaskólanum. Okkar leiðir lágu síðan saman í gegn um barna- skóla, gagnfræðaskóla og vélskóla. Við vorum nokkrir félagar nánast óaðskiljanlegir á þessum tíma og var margt skemmtilegt brallað eins og gerist og gengur um unga menn. Jón var með frjótt ímyndunarafl og var því aðal hug- myndasmiðurinn í hópnum um það „hvað ætti að gera næst“. Það væri eflaust efni í heila bók ef ég ætti að fara í saumana á öll- um þeim uppákomum og tiltækjum sem við stóðum í á þeim árum, en vil ég þó nefna ógleymanlega ferð okkar félaganna á mótorhjólunum sumarið 1972 frá Hornafirði til Reykjavíkur, en þá var hringvegurinn ekki kominn. Ferðin var eitt skemmtilegasta uppátæki okkar og mun aldrei geymast. Okkur tókst meira að segja að komast á forsíðu Vikunn- ar í þeirri ferð, það er að segja mótorhjólunum okkar. Það fór síðan um okkar grúppu eins og aðrar, hún leystist upp, menn stofnuðu fjölskyldur og fluttu um set. Þráðurinn slitnaði þó aldrei á milli okkar, við höfðum alltaf samband við hvor annan, þó stundum hafi liðið langt á milli. Kæra Anna, börn og aðrir ást- vinir. Þegar Jón Arni er kvaddur hinstu kveðju, vil ég votta ykkur mína dýpstu samúð, blessuð sé minning hans. Baldvin Jónsson (Kýpur). Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tviverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfm Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úi-vinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfílega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða Ijóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. BRIPS llmsjón Arnúr G. Kagnarsson Bridsfélag Reykjavíkur MIÐVIKUDAGINN 22. september var spilaður eins kvölds tölvureikn- aður tvímenningur með þátttöku 14 para. Spilaður var Monrad Baró- meter. SpOaðar voru 7 umferðir, 4 spii í hverri umferð. Efstu pör vora: Sigurður B. Þorsteinss. - Haukur Ingason +30 Björn Friðriksson - Kristinn Karlsson +18 Jórunn Fjeldsted - Helgi Samúelsson +16 Jón Alfreðsson - Eiríkur Jónsson +14 7 pör tóku þátt í verðlaunapottin- um og rann hann til Sigurðar og Hauks, alls 3.500 kr. Föstudaginn 24. september var spilaður Mitchell-tvímenningur með forgefnum spilum. 14 pör spiluðu 7 umferðir með 4 spilum á milli para. Meðalskor var 168 og efstu pör vora: NS Arni Hannesson - Orinarr Snæbjörnsson 1% Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðarson 190 Garðar Garðarsson - Óli Þór Kjartansson 187 AV Asgeir Gunnarsson - Einar Oddsson 198 Halldór Þórólfsson - Andrés Þórarinsson 189 Gunnar Valgeirss. - Hafþór Kristjánss. 177 Að tvímenningnum loknum var spOuð miðnæturútsláttarsveita- keppni með þátttöku 5 sveita. Til úrslita spiiuðu sveitir Friðriks Jóns- sonar og Birkis Jónssonar. Sveit Friðriks vann með 33 impum gegn 19. Með Friðriki spBuðu: Eggert Bergsson, Halldór Þórólfsson og Andrés Þórarinsson. Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Síðastliðinn miðvikudag lauk öðra kvöldinu af þremur í þriggja kvölda tvímenningi hjá félaginu og urðu úrslit efstu para þessi: Þröstur Þorláksson - Birkir Jónsson 62,04% Ævar Jónasson - Jón Gíslason 59,26% Jóhann Ben. - Sigurður Albertss. 56,95% Óli Þ. Kjartanss. - Garðar Garðarss. 54,63% Staða efstu para eftir tvö kvöld er þessi: Þröstur Þorláksson - Birkir Jónsson 59,50% Óli Þ. Kjartanss. - Garðar Garðarss. 56,02% Kjartan Ólas. - Gunnar Guðbjörnss. 54,17% Svala Pálsdóttir - Svavar Jensen 53,43% Nethyl 2 ♦ S. 587 8044 Kristján Sigurðsson Ijósm. RALA Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Búnaðarsamband Suðurlands auglýsa stöðu tilraunastjóra Staða tilraunastjóra á tilraunastöðinni á Stóra Ármóti í Hraungerðishreppi er laus til umsóknar. Tilraunastöðin á Stóra Ármóti er rekin sameig- inlega af Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Búnaðarsambandi Suðurlands í samræmi við lög nr. 29 1981 og samstarfssamningi þess- ara aðila frá 1983. í samræmi við þetta er óskað eftir umsóknum frá aðilum, sem hafa sér- menntun ertengjast nautgriparækt, einkum fóðurfræði eða sambærilegum sviðum, sem nýtast myndi starfseminni. Skipulag á rekstri stöðvarinnar og áherslur 4 í rannsóknastarfseminni eru í endurskoðun og er þess vænst, að nýr tilraunastjóri taki virkan þátt í þeirri skipulagningu. Á Stóra Ármóti er ný tilraunaaðstaða, sem byggð hefur verið upp á síðustu fimmtán árum, en starfsemi á staðnum hófst árið 1987 og er framhald af starfsemi sem unnin var í Laugardælum. Möguleiki er á búsetu á staðn- um. Umsóknum ber að skila fýrir 20. október nk. Itil Þorsteins Tómassonar, forstjóra Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins, Keldnaholti. Upplýs- ingar veitir einnig Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suður- lands. Smiðir — verkamenn Okkurvantar smiði og verkamenn íýmisverk- Iefni, bæði inni og úti. Vinnustaður er Borga- og Staðahverfi í Grafarvogi. Upplýsingar í síma 861 6797 eða 892 3797. TSH byggingaverktakar. Félágsþjónustan Starfsmaður í eldhús Starfsmaður óskast sem fyrst til starfa í eldhúsi félagsstarfs aldraðra, Dalbraut 18—20. Um 50% starf er að ræða, eftir hádegi. Nánari upplýsingar veitir Selma Jóhannsdóttir, forstöðumaður í síma 588 9533. Leiðbeinandi Leiðbeinandi óskast til starfa í postulínsmálun og „opinni handavinnustofu" í félagsstarfi aldraðra, Dalbraut 18—20. Um 40% starf er að ræða, vinnutími eftir samkomulagi. Starfið er laust 1. desember 1999. Nánari upplýsingar veitir Selma Jóhannsdóttir, forstöðumaður í síma 588 9533. Félagsþjónustan er fjölmennur vinnustaður sem veitir borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin leggur mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk sitt, að uþþlýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavíkurborgar f málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu sem veitt er. Allir nýir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og kynningu um Félagsþjónustuna og borgarkerfið og fréttabréf reglulega um starfsemi stofnunarinnar. Kennarar Kennarar óskast til yfirferðar á samræmdum könnunarprófum í 4. og 7. bekk 1999. Skilyrði eru að viðkomandi hafi kennsluréttindi og reynslu af kennslu nemenda á grunnskóla- stigi í stærðfræði og/eða íslensku. Nánari upplýsingar eru veittar á Rannsókna- stofnun uppeldis- og menntamála í síma 551 0560 milli klukkan 13.00 og 16.00 alla virka daga til 6. október nk. Hægt er að nálgast um- sóknareyðublöð á stofnuninni í uSuðurgötu 39 og á netinu, slóðin www.rum.is. Brauðberg Afgreiðslustarf Brauðberg, Hagamel 67, óskarað ráða dugmik- inn starfskrafttil afgreiðslustarfa sem fyrst. Viðkomandi þarf að vera duglegur, stundvís og tilbúinn til að takast á við ábyrgð í starfi. Æskilegt er að viðkomandi sé 25 ára eða eldri en þó ekki skilyrði. Nánari upplýsingar í síma 694 7272, einnig í síma 567 7272 eftir kl. 15.00. sói/i/im Starfsmenn óskast á hjólbarðaverkstæði Sólningar á Smiðjuvegi í Kópavogi. Upplýsingar í síma 544 5020 eða á staðnum. Sólning hf., Smiðjuvegi 32—34. Smart Vegna mikilla anna þurfum við að bæta við góðum starfskrafti í fullt starf. Vaktavinna. Skilyrði er að viðkomandi sé þjónustulundað- ur, samstarfsfús og stutt í brosið. Tekið verður við skriflegum umsóknum á staðnum. Sólbaðstofan Smart, Grensásvegi 7. Lykilhótel Cabin Óskum eftir að ráða starfsfólk í gestamóttöku, næturvörð og aðstoð í morgunverð. Upplýsingar veittar á staðnum í dag, miðviku- daginn 29. september og fimmtudaginn 30. sept- ember milli kl. 16 og 18.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.