Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 53
BRÉF TIL BLAÐSINS
KIRKJUSTARF
Af aldamóta
heimildum
Frá Baldri Ragnarssyni:
ENN LEITAR Jón Brynjólfsson,
verkfræðingur, að týndu ári í tíma-
talinu. Finni Jón týnda árið telur
hann stoðum rennt undir skoðun
sína að Jesús frá Nasaret hafi fæðst
árið 2 f.Kr. Þar með mætti skjóta
inn heilu ári, árinu núll, inn í tíma-
talið á milli 1 e.Kr. og 1 f.Kr. Árið
núll yrði þá upphafsár tímatalsins
(fyrsta árið) í stað árins 1 e.Kr. og
Galileumaðurinn yrði eftir sem áður
talinn fæddur árið 1. f.Kr. Þannig
yrðu næstkomandi áramót að alda-
mótum. í gi’ein hér í Morgunblaðinu
þann 13. ágúst sl. benti ég á að
Heródes barnaslátrari hefði gefið
upp öndina árið 4. f.Kr. svo trésmið-
urinn hefði þurft að fæðast fyrir
þann tíma. Jón svarar mér í Morg-
unblaðinu 23. september sl. Þar seg-
ir hann mig rugla saman Heródesi
konungi og syni hans, Heródesi
Antipas, sem Jón telur að sé ill-
mennið.
Á barnaskólaárum mínum leidd-
ust mér Biblíusögurnar öðrum
kennslustundum fremur. Athygli
mína vakti samt að tveir Heródesar
komu við sögu Galileumannsins.
Annar Heródesinn, konungurinn,
var hinn skelfílegasti harðstjóri.
Flúði Jósef með konu sína og barn
undan klóm hans til Egyptalands
og sneru þau ekki aftur fyrr en
kóngsi var dauður. Hinn Heródes-
inn, fjórðungsstjórinn, lét sig hins
vegar engu varða um örlög Galileu-
mannsins og framseldi hann til
Pontíusar Pílatusar. Jón segir um
Biblíuna að hún sé góð heimild
um þetta mál sem önnur“. Finnst
mér að hann ætti þá að lesa hana
betur því hún staðfestir það litla
sem ég lærði í Biblíusögutímum
(sjá Matt. 2 og 14). Jón fer augljós-
lega mannavillt enda les hann ekki
eigin heimildir. Hann hefði líka bet-
ur flett upp í alfræðisafninu
Encyclopædia Britannica. Vefút-
gáfa hennar stendur öllum hérlend-
is til boða ókeypis (http://se-
arch.eb.com) og má þar sannfærast
um grimmd konungsins.
Jón nefnir 5 heimildir til stuðn-
ings þeirri staðhæfingu sinni að fæð-
ingu Galileumannsins beri upp á ár-
ið 2 f.Kr. Ein er „yfirlýsing kaþólsku
kirkjunnar“. Af þeim bæ hafa komið
Frá Helgu Sigríði Úlfarsdóttur:
SVARIÐ við þessari spurningu er
eflaust eins misjafnt og við erum
mörg. En ef þú, lesandi góður, vilt
að barn þitt gangi í leikskóla, hvern-
ig viltu þá að sá leikskóli sé úr garði
gerður? Skal áhersla vera lögð á
ákveðna uppeldisþætti? Hvaða
þætti þá?
Ef svarið er ,já, ég vil að barn mitt
gangi í leikskóla" og ,Já, ég vil að
vel sé búið að barninu hvað varðar
þá þætti sem til uppeldis teljast“.
Hverjum treystir þú þá best til þess
að annast barn þitt? Viltu fá hæft og
menntað starfsfólk sem hefur áhuga
og þekkingu á börnum? Eða viltu
bara fá gæslu fyrir barn þitt til þess
að komast til vinnu?
Við foreldrar bai’na framtíðarinn-
ar þurfum að spyrja okkur þessara
spurninga og margra annarra
slíkra. En sem foreldri leikskóla-
bams er mér ekki sama hver sér
um umönnun bamsins míns. Eg vil
að bæði hæft og menntað stai’fsfólk
hugsi um og mennti mitt barn. Ég
vil að það hafi áhuga og þekkingu á
barninu mínu.
Við getum ekki ætlast til þess að
endalaust sé byggt af nýjum leik-
skólum. Það leysir engan vanda!
Nær væri að reyna að viðhalda
þeim byggingum sem þegar eru til
staðar en láta þær ekki sitja á hak-
anum fyrir nýbyggingum, þar sem
ekki fæst einu sinni fólk til starfa.
Þá eru það launin, ef þau væru
ýmsar yfirlýsingar, svo sem eins og
að sólin snerist í kringum jörðina.
Tek ég lítið mark á slíkum „heimild-
um“. Onnur heimild Jóns eru „sam-
tímaheimildir sem Adam Ruther-
ford fann“. Það eru undur og stór-
merki ef fundist hafa samtímaheim-
ildir um fæðingu trésmiðsins frá
Nasaret. Fyrrnefnd Britanniea full-
yrðir t.a.m. að þær séu ekki til.
Þriðja heimild Jóns er eitthvað „sem
enn hefur ekki verið birt“. í mínum
huga er óbirt plagg engin heimild.
Fjórðu heimildina nefnir Jón kirkju-
ár grísku kirkjunnar. Jafnlítið mark
tek ég á grísku kirkjunni og á þeirri
rómversk-kaþólsku. Fimmtu heim-
ildina segir Jón vera tímatalið ásamt
„kirkjulegi-i tímaskráningu“ (lesist;
Dionysius Exiguus, sem áðurnefnd
Brittanica segir beinlínis að hafi
misreiknað sig).
Nú ætti lesanda að vera nokkuð
ljóst að mér þykir ekki mikið til
heimilda Jóns koma. Jón segist hafa
leitað logandi ljósi að heimildum í
fyrri greinum mínum. Ekki hefur
týran sú verið skær. Ég hef áður
nefnt Time Almanac 1999, vefslóð-
ina http://www.calendarzone.com,
Almanak Háskóla Islands fyrir
næsta ár og Rímfræði Þorsteins Sæ-
mundssonar, stjörnufræðings. Síð-
ast nefndi ég bókina „The Calendar"
eftir David Ewing Duncan. Aðrar
heimildir sem nefna mætti eru m.a.
vefslóð Royal Greenwich Observ-
atory (http://www.rog.nmm.ac.uk/),
vefslóðina http://greenwich2000.
com/millennium/ og vefslóð US Na-
val Observatory (http://www.usno.
navy.mil/). Auk þess má nefna grein
um tímatalið í 9. tölublaði „Lifandi
vísinda“.
Einföldustu rökin fyrir því að
aldamótin séu um áramótin
2000/2001 er þó að finna í rökvísi
einfaldrar talningar þar sem byrjað
er að telja á 1 (ekki núlli), tugurinn
er íylltur með tölunni 10 (ekki 9) og
næsti tugur hefst á tölunni 11 (ekki
10). Á sama hátt hefjum við tíma-
talningu á árinu eitt enda er árið
hans Jóns sem fyrr týnt og tröllum
gefið. Næsta ár er tugár og alda-
mótin koma því ekki fyrr að því
loknu.
hæn’i, gætum við eflaust mannað
alla leikskóla borgarinnar og gott
betur. Þegar þessu tvennu hefur
verið komið í gott horf, þá fyrst get-
um við farið að byggja!
En ég er að verða ansi uggandi
um að þetta sé raunhæf ósk. I fjöl-
miðlum hef ég nú lesið hverja grein-
ina á fætur annarri, þar sem lýst er
ástandinu í leikskólum borgarinnar
og það er ekki fögur eða uppörvandi
lesning fyrii’ foreldra. Ég veit hins-
vegar af eigin raun sem leikskóla-
kennari að ekki er verið að mála
skrattann á vegginn, síður en svo.
Það er staðreynd, sem ekki verður
litið framhjá, að fólk fæst ekki til
starfa innan veggja leikskólans og
það er vegna launanna, fyrst og
fremst, hugsjónin lendir í öðru sæti!
Annars er aldrei að vita hvað
kemur næst? Helmingur leikskóla
borgarinnar óstarfhæfir vegna
manneklu? Hvar verður barnið
mitt/þitt þá? Ætlar þorri borgarbúa
að una við þetta ástand í leikskóla-
málum?
Látið í ykkur heyra, foreldrar og
aðrii’ sem bera hag barna framtíð-
arinnar fyrir brjósti. Skorum á yfir-
völd leikskólamála að gera eitthvað
annað en það sem þegar hefur verið
reynt, því það hefur ekki borið mik-
inn árangur og ekki skilað sér í
fleira starfsfólki til vinnu í leikskól-
um!
HELGA S. ÚLFARSDÓTTIR,
foreldri og leikskólakennari.
Safnaðarstarf
Opið hús með
biskupi í Hall-
grímskirkju
í DAG, miðvikudaginn 29. septem-
ber, verður opið hús í Hallginms-
kirkju kl. 20-21, en kl. 21 verður
Náttsöngur að venju. Biskup ís-
lands, hr. Karl Sigurbjörnsson, mun
ræða um „kirkju og trú“. I vetur
verður þessi háttur hafður á að á
hverju miðvikudagskvöldi verður
fólki gefinn kostur á samtali um
mikilvæg málefni er snerta lífið í
landinu skoðað út frá sjónarhorni
kirkju og kristinnar trúar. Af og til
verða kallaðir til einstaklingar til að
hefja samtalið um eitt einstakt efni,
en aðra daga gefst fólki kostur á að
koma með tillögur að samtalsefni.
Að samtali loknu verður Nátt-
söngur í kirkjunni, tíðasöngur sam-
kvæmt elstu mynd skipulegs bæna-
halds kirkjunnar. Sr. Kristján Valur
Ingólfsson leiðir sönginn. Fólk er að
sjálfsögðu velkomið í Náttsönginn
þó það kjósi að vera ekki á „opna
húsinu“.
Orgeltónleikar
í Neskirkju
REYNIR Jónasson, organisti Nes-
kirkju, heldur tónleika í kirkjunni í
dag, miðvikudaginn 29. september.
Á dagskrá verða verk eftir J.S. Bach
og Marcel Dupré og einnig nýtt
verk eftir Jón Ásgeirsson, sem sér-
staklega var samið fyrir Reyni og
nýja orgelið. Tónleikarnir hefjast kl.
20 og er aðgangur ókeypis.
Með tónleikunum líkur formlega
orgelhátíð Neskirkju, sem hófst með
helgun hins nýja Noack-orgels,
sunnudaginn 19. september.
Dómkirkjan. Samvera fyrir mæður
með ung börn kl. 10.30-12 í safnað-
arheimilinu. Hádegisbænir kl. 12.10
í safnaðarheimilinu. Orgelleikur á
undan. Léttur málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Samverustund eldri
borgara kl. 14-16. Biblíulestur, sam-
verustund, kaffiveitingar.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10-12. Nátt-
söngur kl. 21. Opið hús frá kl. 20-21 í
safnaðarsal.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrir-
bænir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13-17. Spil, lestur,
handavinna. Kaffi og meðlæti kl. 15.
Djákni flytur hugvekju. Söngstund
undir stjórn Jóns Stefánssonar org-
anista.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Kirkjuprakkarar kl. 14.30. St-
arf fyrir 7-9 ára börn. TTT kl. 16.
Starf fyrir 10-12 ára börn. Ferming-
artími kl. 19.15. Unglingakvöld á
vegum Laugarneskirkju, Þrótt-
heima og Blómavals. Nýtt og spenn-
andi tilboð fyrir unglinga í Laugar-
neshverfi.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-
12. Fræðsla: Mataræði ungbarna.
Hjúkrunarfræðingur frá Heilsu-
gæslustöð Seltjai’narness. Samveru-
stund í safnaðarheimilinu í dag. Op-
ið hús kl. 15-17. Dagskrá ákveðin á
staðnum. Veitingar á vægu verði.
Verið velkomin. Bænamessa kl.
18.05. Sr. Örn Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðai'stund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu. Starf fyrir 11-12 ára
börn kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er
hægt að koma til presta safnaðarins.
Breiðholtskirkja. KyiTðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu á eftir. Kirkjuprakkar-
ar, starf fyrir 7-9 ára börn, kl. 16.
TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15.
Æskulýðsstarf á vegum KFUM og
K og kirkjunnar kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Starf á sama
stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45-
18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund
í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma 567 0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14-16.30. Helgistund,
spil og kaffi.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Hafnarfj arðarkirkj a. Kyrrðarstund
kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyr-
irbænir, léttur málsverður á eftir í
Ljósbroti, Strandbergi, kl. 13.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl.
12. Kyn-ðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25. Djáknasúpa,
salat og brauð á vægu verði. Allir
aldurshópar. Alfa-námskeið kemur
saman í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í
kirkjunni kl. 21.30.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á
miðvikudögum kl. 10. Sóknarprest-
ur.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Fermingarbörn mæti í fermingar-
fræðslu samkvæmt stundaskrá.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18.30.
Kynningarfundur fyrir Alfa nám-
skeið kl. 19.30. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10.
NÝTT FRA
Tes. 4523
Verö. 5.995,-
Litur: Svartur
Stæröir: 36-41
Hlýir og loðfóðraðir ]
Tes. 4529
Verö. 6.995,-
Litur: Svartur
Stærðir: 36-41
D0MUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
KRINGLAN
Kringiunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
BALDUR RAGNARSSON,
kerfisfræðingur.
Viljum við leikskóla
fyrir börn okkar?