Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 53

Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 53 BRÉF TIL BLAÐSINS KIRKJUSTARF Af aldamóta heimildum Frá Baldri Ragnarssyni: ENN LEITAR Jón Brynjólfsson, verkfræðingur, að týndu ári í tíma- talinu. Finni Jón týnda árið telur hann stoðum rennt undir skoðun sína að Jesús frá Nasaret hafi fæðst árið 2 f.Kr. Þar með mætti skjóta inn heilu ári, árinu núll, inn í tíma- talið á milli 1 e.Kr. og 1 f.Kr. Árið núll yrði þá upphafsár tímatalsins (fyrsta árið) í stað árins 1 e.Kr. og Galileumaðurinn yrði eftir sem áður talinn fæddur árið 1. f.Kr. Þannig yrðu næstkomandi áramót að alda- mótum. í gi’ein hér í Morgunblaðinu þann 13. ágúst sl. benti ég á að Heródes barnaslátrari hefði gefið upp öndina árið 4. f.Kr. svo trésmið- urinn hefði þurft að fæðast fyrir þann tíma. Jón svarar mér í Morg- unblaðinu 23. september sl. Þar seg- ir hann mig rugla saman Heródesi konungi og syni hans, Heródesi Antipas, sem Jón telur að sé ill- mennið. Á barnaskólaárum mínum leidd- ust mér Biblíusögurnar öðrum kennslustundum fremur. Athygli mína vakti samt að tveir Heródesar komu við sögu Galileumannsins. Annar Heródesinn, konungurinn, var hinn skelfílegasti harðstjóri. Flúði Jósef með konu sína og barn undan klóm hans til Egyptalands og sneru þau ekki aftur fyrr en kóngsi var dauður. Hinn Heródes- inn, fjórðungsstjórinn, lét sig hins vegar engu varða um örlög Galileu- mannsins og framseldi hann til Pontíusar Pílatusar. Jón segir um Biblíuna að hún sé góð heimild um þetta mál sem önnur“. Finnst mér að hann ætti þá að lesa hana betur því hún staðfestir það litla sem ég lærði í Biblíusögutímum (sjá Matt. 2 og 14). Jón fer augljós- lega mannavillt enda les hann ekki eigin heimildir. Hann hefði líka bet- ur flett upp í alfræðisafninu Encyclopædia Britannica. Vefút- gáfa hennar stendur öllum hérlend- is til boða ókeypis (http://se- arch.eb.com) og má þar sannfærast um grimmd konungsins. Jón nefnir 5 heimildir til stuðn- ings þeirri staðhæfingu sinni að fæð- ingu Galileumannsins beri upp á ár- ið 2 f.Kr. Ein er „yfirlýsing kaþólsku kirkjunnar“. Af þeim bæ hafa komið Frá Helgu Sigríði Úlfarsdóttur: SVARIÐ við þessari spurningu er eflaust eins misjafnt og við erum mörg. En ef þú, lesandi góður, vilt að barn þitt gangi í leikskóla, hvern- ig viltu þá að sá leikskóli sé úr garði gerður? Skal áhersla vera lögð á ákveðna uppeldisþætti? Hvaða þætti þá? Ef svarið er ,já, ég vil að barn mitt gangi í leikskóla" og ,Já, ég vil að vel sé búið að barninu hvað varðar þá þætti sem til uppeldis teljast“. Hverjum treystir þú þá best til þess að annast barn þitt? Viltu fá hæft og menntað starfsfólk sem hefur áhuga og þekkingu á börnum? Eða viltu bara fá gæslu fyrir barn þitt til þess að komast til vinnu? Við foreldrar bai’na framtíðarinn- ar þurfum að spyrja okkur þessara spurninga og margra annarra slíkra. En sem foreldri leikskóla- bams er mér ekki sama hver sér um umönnun bamsins míns. Eg vil að bæði hæft og menntað stai’fsfólk hugsi um og mennti mitt barn. Ég vil að það hafi áhuga og þekkingu á barninu mínu. Við getum ekki ætlast til þess að endalaust sé byggt af nýjum leik- skólum. Það leysir engan vanda! Nær væri að reyna að viðhalda þeim byggingum sem þegar eru til staðar en láta þær ekki sitja á hak- anum fyrir nýbyggingum, þar sem ekki fæst einu sinni fólk til starfa. Þá eru það launin, ef þau væru ýmsar yfirlýsingar, svo sem eins og að sólin snerist í kringum jörðina. Tek ég lítið mark á slíkum „heimild- um“. Onnur heimild Jóns eru „sam- tímaheimildir sem Adam Ruther- ford fann“. Það eru undur og stór- merki ef fundist hafa samtímaheim- ildir um fæðingu trésmiðsins frá Nasaret. Fyrrnefnd Britanniea full- yrðir t.a.m. að þær séu ekki til. Þriðja heimild Jóns er eitthvað „sem enn hefur ekki verið birt“. í mínum huga er óbirt plagg engin heimild. Fjórðu heimildina nefnir Jón kirkju- ár grísku kirkjunnar. Jafnlítið mark tek ég á grísku kirkjunni og á þeirri rómversk-kaþólsku. Fimmtu heim- ildina segir Jón vera tímatalið ásamt „kirkjulegi-i tímaskráningu“ (lesist; Dionysius Exiguus, sem áðurnefnd Brittanica segir beinlínis að hafi misreiknað sig). Nú ætti lesanda að vera nokkuð ljóst að mér þykir ekki mikið til heimilda Jóns koma. Jón segist hafa leitað logandi ljósi að heimildum í fyrri greinum mínum. Ekki hefur týran sú verið skær. Ég hef áður nefnt Time Almanac 1999, vefslóð- ina http://www.calendarzone.com, Almanak Háskóla Islands fyrir næsta ár og Rímfræði Þorsteins Sæ- mundssonar, stjörnufræðings. Síð- ast nefndi ég bókina „The Calendar" eftir David Ewing Duncan. Aðrar heimildir sem nefna mætti eru m.a. vefslóð Royal Greenwich Observ- atory (http://www.rog.nmm.ac.uk/), vefslóðina http://greenwich2000. com/millennium/ og vefslóð US Na- val Observatory (http://www.usno. navy.mil/). Auk þess má nefna grein um tímatalið í 9. tölublaði „Lifandi vísinda“. Einföldustu rökin fyrir því að aldamótin séu um áramótin 2000/2001 er þó að finna í rökvísi einfaldrar talningar þar sem byrjað er að telja á 1 (ekki núlli), tugurinn er íylltur með tölunni 10 (ekki 9) og næsti tugur hefst á tölunni 11 (ekki 10). Á sama hátt hefjum við tíma- talningu á árinu eitt enda er árið hans Jóns sem fyrr týnt og tröllum gefið. Næsta ár er tugár og alda- mótin koma því ekki fyrr að því loknu. hæn’i, gætum við eflaust mannað alla leikskóla borgarinnar og gott betur. Þegar þessu tvennu hefur verið komið í gott horf, þá fyrst get- um við farið að byggja! En ég er að verða ansi uggandi um að þetta sé raunhæf ósk. I fjöl- miðlum hef ég nú lesið hverja grein- ina á fætur annarri, þar sem lýst er ástandinu í leikskólum borgarinnar og það er ekki fögur eða uppörvandi lesning fyrii’ foreldra. Ég veit hins- vegar af eigin raun sem leikskóla- kennari að ekki er verið að mála skrattann á vegginn, síður en svo. Það er staðreynd, sem ekki verður litið framhjá, að fólk fæst ekki til starfa innan veggja leikskólans og það er vegna launanna, fyrst og fremst, hugsjónin lendir í öðru sæti! Annars er aldrei að vita hvað kemur næst? Helmingur leikskóla borgarinnar óstarfhæfir vegna manneklu? Hvar verður barnið mitt/þitt þá? Ætlar þorri borgarbúa að una við þetta ástand í leikskóla- málum? Látið í ykkur heyra, foreldrar og aðrii’ sem bera hag barna framtíð- arinnar fyrir brjósti. Skorum á yfir- völd leikskólamála að gera eitthvað annað en það sem þegar hefur verið reynt, því það hefur ekki borið mik- inn árangur og ekki skilað sér í fleira starfsfólki til vinnu í leikskól- um! HELGA S. ÚLFARSDÓTTIR, foreldri og leikskólakennari. Safnaðarstarf Opið hús með biskupi í Hall- grímskirkju í DAG, miðvikudaginn 29. septem- ber, verður opið hús í Hallginms- kirkju kl. 20-21, en kl. 21 verður Náttsöngur að venju. Biskup ís- lands, hr. Karl Sigurbjörnsson, mun ræða um „kirkju og trú“. I vetur verður þessi háttur hafður á að á hverju miðvikudagskvöldi verður fólki gefinn kostur á samtali um mikilvæg málefni er snerta lífið í landinu skoðað út frá sjónarhorni kirkju og kristinnar trúar. Af og til verða kallaðir til einstaklingar til að hefja samtalið um eitt einstakt efni, en aðra daga gefst fólki kostur á að koma með tillögur að samtalsefni. Að samtali loknu verður Nátt- söngur í kirkjunni, tíðasöngur sam- kvæmt elstu mynd skipulegs bæna- halds kirkjunnar. Sr. Kristján Valur Ingólfsson leiðir sönginn. Fólk er að sjálfsögðu velkomið í Náttsönginn þó það kjósi að vera ekki á „opna húsinu“. Orgeltónleikar í Neskirkju REYNIR Jónasson, organisti Nes- kirkju, heldur tónleika í kirkjunni í dag, miðvikudaginn 29. september. Á dagskrá verða verk eftir J.S. Bach og Marcel Dupré og einnig nýtt verk eftir Jón Ásgeirsson, sem sér- staklega var samið fyrir Reyni og nýja orgelið. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er aðgangur ókeypis. Með tónleikunum líkur formlega orgelhátíð Neskirkju, sem hófst með helgun hins nýja Noack-orgels, sunnudaginn 19. september. Dómkirkjan. Samvera fyrir mæður með ung börn kl. 10.30-12 í safnað- arheimilinu. Hádegisbænir kl. 12.10 í safnaðarheimilinu. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á eftir. Grensáskirkja. Samverustund eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur, sam- verustund, kaffiveitingar. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for- eldra ungra barna kl. 10-12. Nátt- söngur kl. 21. Opið hús frá kl. 20-21 í safnaðarsal. Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrir- bænir kl. 18. Langholtskirkja. Starf eldri borg- ara í dag kl. 13-17. Spil, lestur, handavinna. Kaffi og meðlæti kl. 15. Djákni flytur hugvekju. Söngstund undir stjórn Jóns Stefánssonar org- anista. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Kirkjuprakkarar kl. 14.30. St- arf fyrir 7-9 ára börn. TTT kl. 16. Starf fyrir 10-12 ára börn. Ferming- artími kl. 19.15. Unglingakvöld á vegum Laugarneskirkju, Þrótt- heima og Blómavals. Nýtt og spenn- andi tilboð fyrir unglinga í Laugar- neshverfi. Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10- 12. Fræðsla: Mataræði ungbarna. Hjúkrunarfræðingur frá Heilsu- gæslustöð Seltjai’narness. Samveru- stund í safnaðarheimilinu í dag. Op- ið hús kl. 15-17. Dagskrá ákveðin á staðnum. Veitingar á vægu verði. Verið velkomin. Bænamessa kl. 18.05. Sr. Örn Bárður Jónsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðai'stund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu. Starf fyrir 11-12 ára börn kl. 17-18.15. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr- aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16. Handavinna og spil. Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safnaðarins. Breiðholtskirkja. KyiTðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnað- arheimilinu á eftir. Kirkjuprakkar- ar, starf fyrir 7-9 ára börn, kl. 16. TTT-starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15. Æskulýðsstarf á vegum KFUM og K og kirkjunnar kl. 20. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17. Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf á sama stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45- 18.45. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Tekið á móti fyrirbæna- efnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14-16.30. Helgistund, spil og kaffi. Vídalínskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Hafnarfj arðarkirkj a. Kyrrðarstund kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyr- irbænir, léttur málsverður á eftir í Ljósbroti, Strandbergi, kl. 13. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyn-ðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12.25. Djáknasúpa, salat og brauð á vægu verði. Allir aldurshópar. Alfa-námskeið kemur saman í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkjunni kl. 21.30. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á miðvikudögum kl. 10. Sóknarprest- ur. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Fermingarbörn mæti í fermingar- fræðslu samkvæmt stundaskrá. Kletturinn, kristið samfélag. Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18.30. Kynningarfundur fyrir Alfa nám- skeið kl. 19.30. Allir hjartanlega vel- komnir. Hólaneskirkja, Skagaströnd. Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10. NÝTT FRA Tes. 4523 Verö. 5.995,- Litur: Svartur Stæröir: 36-41 Hlýir og loðfóðraðir ] Tes. 4529 Verö. 6.995,- Litur: Svartur Stærðir: 36-41 D0MUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík Sími 551 8519 KRINGLAN Kringiunni 8-12 - Reykjavík Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR BALDUR RAGNARSSON, kerfisfræðingur. Viljum við leikskóla fyrir börn okkar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.