Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 54

Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 54
54 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Matur og matargerð Lifrarstrudel (rúlla) * I austurrískri matreiðslu er mikið um alls konar knödel og strudel (bollur og rúllur), segir Kristín Gestsdóttir, sem borðaði óvenjulegt strudel í Austurríki. VTÐ hjónin dvöldumst í apríl í fjóra daga í Austurríki og vorum boðin í mat á stóran bóndabæ. Þar voru ýmsar kræsingar á borðum svo sem tær súpa með sneið af „strudel“. Þetta var Ijúf- fengur og fallegur réttur. Þegar ég hafði lokið við hann, hældi ég matnum og spurði hvaða fylling væri í strudelsneiðinni. Svarið var: „Kálfslungu". Mér brá ansi mikið og var fegin að hafa lokið við réttinn áður en ég spurði ann- ars hefí ég líklega orðið mér til skammar. Allt var heimagert í þessari veislu, reykt svínakjöt og svínasteik með stökkri pöru, tvenns konar bjúgu, græn- metisknödel, súrkál og heimagert pasta, heimabrugguð borðvín og heimagerður afar ljúffengur ost- ur með berjum af landinu, en þau voru geymd frosin. A borðum var grænmetisknödel sem ég horfði á húsmóðurina hnoða í höndum og sjóða í vatni. Geysistór eldavél með mörgum hólfum var í eld- húsinu. Svipaðar vélar - Agavélar - voru til á Islandi fyrir mörgum árum. Hugsanlega er eitthvað til af þeim enn. Apfelstrudel (epl- arúlla) er upprunnin í Bæjara- landi og mikið borðuð í Austur- ríki og má segja að hún sé heims- fræg. En ýmislegt annað en epli er sett í strudel og raunar má nota hvað sem er. Helst þarf að nota glutenmikið hveiti og fletja svo örþunnt út, að hægt sé að lesa í gegnum deigið, segja sum- ir. Hvorki bjó ég tíl strudel með eplum né lungum en notaði í staðinn lambslifur. Deigið var þunnt hjá mér en langt í frá að hæjgt væri að lesa gegnum það. I síðasta þætti Hestar og hon- ey-nut tókst ekki betur til en svo að magn honey-nuts í rúgbrauð- ið vantaði, en það eiga að vera 3 dl. Kristín biður velvirðingar á þessum mistökum. Tær súpa með lifrarrúllu (strudel) 1 '/2 dl glutenríkt hveiti 1/8 tsk. salt 1 tsk. edik __________1 eggjarauðo__________ 2 msk. kalt vatn brætt smjör 1. Blandið öllu nema smjöri sam- an og hnoðið deig þar tO það er seigt og alveg sprungulaust. Best er að nota hrærivél. Breiðið yfir deigið 1 skálinni og látið bíða í 1 klst. 2. Stráið hveiti á hreint stykki og þrýstið deiginu vel niður með hnúunum, leggið annað hveitistráð stykki ofan á og fletjið út. Þetta á að verða fer- kantaður bútur um 30 cm á kant. Penslið síðan með bræddu smjöri. Fyllingin: 150 g lifur 1 dl hveiti 2 msk. smjör 1 meðalstór laukur ’Atsk. engiferduft '/4 tsk. pipar 1 tsk. salt 1 eggjarauða 1. Hreinsið sinar úr lifrinni, setj- ið í kvöm eða hakkavél og hakk- ið fínt. 2. Afhýðið og saxið laukinn fínt og sjóðið í smjörinu í 2 mínútur, hrærið þá hveiti út í og loks engiferduft, pipar, salt og eggjarauðu og setjið saman við lifrarstöppuna. 3. Smyrjið jafnt á rúlludeigið og vefjið þétt saman. 4. Hitið bakaraofn í 190°C, blást- ursofn í 200°C og bakið rúlluna í 30 mínútur. 5. Kælið örlítið, skerið í þykkar sneiðar og setjið 1-2 sneiðar á hvern djúpan disk. Súpan: 2 lítrar gott kjötsoð 1 meðalstór gulrót í sneiðum ________V2 meðalstór laukur______ væn grein steinselja '/2 tsk. piparkorn 1. Búið til gott kjötsoð úr bein- um, saltið það og setjið gulrót, lauk, steinselju og piparkorn út í og sjóðið í 15 mínútur. Nota má góðan súputening eða soð- kraft. 2. Síið soðið og ausið heitu yfir rúllusneiðarnar á diskunum. ÍÁvaxtaði | 56 Avaxtaði peningana mína 3500% - Auðveldlega! -1- ) í DAG VELVAKANPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Óskiljanleg framkoma við ferðamenn SKYLDI konan frá Hollandi sem skrifaði til blaðsins sem ég las í gær, 25. september, aldrei hafa gengið um götur Amster- dam í Hollandi að kvöldi til? Það hef ég gert og var það ekki góð reynsla sem við upplifðum þar. Við sá- um öskrandi lýð brjóta m.a. niður símaklefa. Við flýttum okkur burtu, dauðhrædd. Pjórir ferðalangar. Hætta af hjólum á göngustígum VE LVAKAND A barst eftirfarandi: „Því er þannig háttað að við hjónin erum flutt í Grafarvog. Þar er mjög góður og skemmtilegur göngustígur meðfram sjónum. Höfum við farið á hverjum degi í göngu en fyrir stuttu urð- um við fyrir því að heill hópui’ af krökkum á hjól- um, 6-8 ára, kom á fleygi- ferð fyrir beygju og íyrsta hjólið lentí á mér, ég féll við á göngustíginn og meiddi mig. Drengurinn á hjólinu virtist ekki meiða sig en hann var mjög sleg- inn, baðst fyrirgefningar og var mjög kurteis. Vil ég koma því á framfæri við foreldra að þau brýni fyrir bömum sínum að fara var- lega á hjólum þarna því fólk á ekki möguleika á að forða sér undan þeim. Göngukona. Of mikið golf á Rúv UM síðustu helgi var golfþáttur alla helgina á Ríkissjónvarpinu, svokajl- aður „Ryder-bikar“. Ég er öryrki, sem hef borgað mína áskrift, og hef ekki mikla möguleika á að sækja mér skemmtun annars staðar en í sjón- varpinu. Ég hef ekkert gaman af íþróttum, síst áf öllu golfi. Éinnst mér ekki boðlegt að bjóða fólki upp á svona sjónvarpsefni alla helgina, flestir vilja frek- ar bíómyndir eða skemmtiefni. Sigga. Tapað/fundið Gamall gullkross týndist GULLKROSS, frekar stór og gamall, sérkenni- legur útlits, týndist ný- lega. Krossinn hefur til- finningalegt gildi fyrir eiganda. Skilvís finnandi hafi samband í síma 555 0867 og 698 0867. Gullarmband týndist GULLARMBAND týnd- ist á Seltjarnarnesi 20. september, á göngu um Neshringinn. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 561 1258. Aftaníkerra týndist AFTANÍKERRA týndist frá Njálsgötu 31 aðfaranótt sl. fimmtudags. Kerran er u.þ.b. tveggja metra löng, með opnanlegum göflum, að framan og aftan. Kerr- an er úr stálramma með krossviði. Þeir sem hafa orðið varir við kemma hafi samband í síma 893 6617. Fundarlaun. Grá barnahettupeysa týndist GRÁ barnahettupeysa merkt „Iowa“ týndist á ferðalagi um landið sl. sumar. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553 6239. Giftingarhringur i óskilum GIFTINGARHRINGUR merktur „Þinn Georg“ fannst á Hlíðarvegi 35 í Kópavogi. Upplýsingar í síma 564 1741. Græn flíspeysa týndist GRÆN flíspeysa, 66°N, týndist á leiðinni frá Hól- um í Efra-Breiðholti að Plastprenti á Fosshálsi. Skilvís finnandi hafí sam- band við Guðrúnu í síma 567 5799. Fjallahjó! í óskilum ICEFOX-fjallahjól er í óskilum í Kópavogi. Upp- lýsingar í síma 898 9545 eftir kl. 17. Dýrahald Kettlingar fást geíins KETTLINGAR fást gef- ins, kassavanir, 2 mánaða og bráðvantar framtíðar- heimili sem fyrst. Upplýs- ingar í síma 554 0902 og 554 5737. Kettlingar fást gefins TVEIR 6 mánaða kett- lingar fást gefins vegna breyttra heimilisað- stæðna. Upplýsingar í síma 898 9630. SKAK Uinsjón Margcir Pélursson STADAN kom upp í und- anrásariðli Evrópukeppni taflfélaga í Reykjavík um síðustu helgi. Hannes Hlífar Stefánsson (2.584), Helli, hafði hvítt, en Jóhann Hjart- arson (2.630), Skákfélagi Akureyrar, var með svart og átti leik. 31. - Hc3!! 32. Dxc3 - Rxe4 33. Df3 - Rd2 34. Dd3 - Rxfl 35. Bxfl - Bxf2+ 36. Kh2 - Rf5 37. Bxf8 - e4 38. Da3 - Bgl+ 39. Khl - Rg3+ 40. Dxg3 - fxg3 41. Bxd6 - Dxd6 42. Kxgl - Db6+ og hvítur gafst upp. SVARTUR leikur og vinnur. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... MIKIÐ er oft þægilegt að geta hlustað á kvöldfréttir Ríkis- sjónvarpsins og Stöðvar 2 á viðeig- andi rásum útvarpsstöðvanna, t.d. þegar menn geta ekki komið því við að vera heima í stofu og hlusta þar. Það kemur að vísu æði oft fyrir Vík- verja að sofna undir fréttunum þar en það er annað mál. Þetta á vita- skuld ekki síst við þegar menn eru á ferðalagi. Er þá hægt að hlusta fyrst á fréttir RÚV klukkan 18, eftir nokkurt hlé taka við sjónvarpsfrétt- ir klukkan 19 og í beinu framhaldi kemur síðan Stöð 2 með sinn skammt. Víkverji hefur oftlega fagnað þessari þjónustu Ijósvaka- miðlanna og þannig getað fylgst með því sem er að gerast hérlendis sem erlendis þótt hann sitji ekki við skjáinn. Lítils háttar galli er á fram- kvæmd þessara útsendinga sem hlýtur að vera hægt að lagfæra. Það er þegar íslensku fréttamenn- irnir eða starfsbræður þeirra er- lendis ræða við fólk í fréttatímun- um. Þá kemur nafn viðmælandans að sjálfsögðu á skjáinn en sá sem heyrir aðeins útvarpsútsendinguna fær ekki að vita hvað viðkomandi heitir. Oft snúast fréttirnar að vísu um málefni úr pólitík, atvinnulífi og öðru og því rætt við forystu- menn á þessum sviðum sem allir þekkja, jafnvel af röddinni einni saman. En einnig er rætt við fleiri og þá fer málið að vandast hjá þeim sem aðeins hlustar á útvarp- ið. Hér verður því að vera hægt að skjóta inn í nafni þess sem talar hverju sinni. Þetta getur varla verið mikið mál því báðar stöðvar láta lesa þýðingu á því sem erlendir menn hafa að segja í fréttunum og þeir eru því við hendina. Þeir ættu því að geta verið örsnöggir að skjóta inn nafninu á undan eða eftir fréttinni. XXX * UR því farið er að ræða um frétt- ir á ljósvakamiðlum finnst Vík- verja ástæða til að minnast á að kvöldfréttatímar stöðvanna eru merkilega svipaðir. Sérstaklega fréttir Stöðvar 2 og Ríkissjónvarps. Á báðum stöðvunum eru fimm til sex helstu fréttir hinar sömu og síð- an hríslast nokkrar innan um sem hvor fréttastofa um sig hefur aflað án þess að hin sé með þær. Það má því segja að það sé hálfgerð endur- tekning að hlusta á þrjá fréttatíma í röð en það er önnur saga sem fréttafiklar skilja og verður ekki farið nánar útí hér. xxx VEGAKERFIÐ hefur oft verið til umræðu hjá Víkverja. Ekki alls fyrir löngu var hann á ferð um Vestfirði í bíl og komst þá að raun um að vegir þar eru hinir ágætustu. Þeir sem fara helst ekki út fyrir hringveginn tala gjarnan um það að þeir leggi ekki í Vestfirðina af því að vegimir þar séu slæmir. Þetta er bara hinn mesti misskilningur og það geta menn reynt með því að aka t.d. norður frá Brú og að Hólmavík og áfram um Steingrímsfjarðarheiði og út allt ísafjarðardjúp. Bæði eru þar alllangir kaflar með bundnu slitlagi og malarvegimir era bara merkilega góðir. Víkverji hvetur bara landsmenn til að fara og kanna málið - og hann bendir á að þessir vegir era líka raddir og þeim haldið opnum árið um kring.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.