Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 54
54 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matargerð
Lifrarstrudel
(rúlla)
*
I austurrískri matreiðslu er mikið um
alls konar knödel og strudel (bollur og
rúllur), segir Kristín Gestsdóttir, sem
borðaði óvenjulegt strudel í Austurríki.
VTÐ hjónin dvöldumst í apríl í
fjóra daga í Austurríki og vorum
boðin í mat á stóran bóndabæ.
Þar voru ýmsar kræsingar á
borðum svo sem tær súpa með
sneið af „strudel“. Þetta var Ijúf-
fengur og fallegur réttur. Þegar
ég hafði lokið við hann, hældi ég
matnum og spurði hvaða fylling
væri í strudelsneiðinni. Svarið
var: „Kálfslungu". Mér brá ansi
mikið og var fegin að hafa lokið
við réttinn áður en ég spurði ann-
ars hefí ég líklega orðið mér til
skammar. Allt var heimagert í
þessari veislu, reykt svínakjöt og
svínasteik með stökkri pöru,
tvenns konar bjúgu, græn-
metisknödel, súrkál og heimagert
pasta, heimabrugguð borðvín og
heimagerður afar ljúffengur ost-
ur með berjum af landinu, en þau
voru geymd frosin. A borðum var
grænmetisknödel sem ég horfði á
húsmóðurina hnoða í höndum og
sjóða í vatni. Geysistór eldavél
með mörgum hólfum var í eld-
húsinu. Svipaðar vélar - Agavélar
- voru til á Islandi fyrir mörgum
árum. Hugsanlega er eitthvað til
af þeim enn. Apfelstrudel (epl-
arúlla) er upprunnin í Bæjara-
landi og mikið borðuð í Austur-
ríki og má segja að hún sé heims-
fræg. En ýmislegt annað en epli
er sett í strudel og raunar má
nota hvað sem er. Helst þarf að
nota glutenmikið hveiti og fletja
svo örþunnt út, að hægt sé að
lesa í gegnum deigið, segja sum-
ir. Hvorki bjó ég tíl strudel með
eplum né lungum en notaði í
staðinn lambslifur. Deigið var
þunnt hjá mér en langt í frá að
hæjgt væri að lesa gegnum það.
I síðasta þætti Hestar og hon-
ey-nut tókst ekki betur til en svo
að magn honey-nuts í rúgbrauð-
ið vantaði, en það eiga að vera 3
dl. Kristín biður velvirðingar á
þessum mistökum.
Tær súpa með
lifrarrúllu (strudel)
1 '/2 dl glutenríkt hveiti
1/8 tsk. salt
1 tsk. edik
__________1 eggjarauðo__________
2 msk. kalt vatn
brætt smjör
1. Blandið öllu nema smjöri sam-
an og hnoðið deig þar tO það er
seigt og alveg sprungulaust.
Best er að nota hrærivél. Breiðið
yfir deigið 1 skálinni og látið bíða
í 1 klst.
2. Stráið hveiti á hreint stykki
og þrýstið deiginu vel niður
með hnúunum, leggið annað
hveitistráð stykki ofan á og
fletjið út. Þetta á að verða fer-
kantaður bútur um 30 cm á
kant. Penslið síðan með
bræddu smjöri.
Fyllingin:
150 g lifur
1 dl hveiti
2 msk. smjör
1 meðalstór laukur
’Atsk. engiferduft
'/4 tsk. pipar
1 tsk. salt
1 eggjarauða
1. Hreinsið sinar úr lifrinni, setj-
ið í kvöm eða hakkavél og hakk-
ið fínt.
2. Afhýðið og saxið laukinn fínt
og sjóðið í smjörinu í 2 mínútur,
hrærið þá hveiti út í og loks
engiferduft, pipar, salt og
eggjarauðu og setjið saman við
lifrarstöppuna.
3. Smyrjið jafnt á rúlludeigið og
vefjið þétt saman.
4. Hitið bakaraofn í 190°C, blást-
ursofn í 200°C og bakið rúlluna í
30 mínútur.
5. Kælið örlítið, skerið í þykkar
sneiðar og setjið 1-2 sneiðar á
hvern djúpan disk.
Súpan:
2 lítrar gott kjötsoð
1 meðalstór gulrót í sneiðum
________V2 meðalstór laukur______
væn grein steinselja
'/2 tsk. piparkorn
1. Búið til gott kjötsoð úr bein-
um, saltið það og setjið gulrót,
lauk, steinselju og piparkorn út
í og sjóðið í 15 mínútur. Nota
má góðan súputening eða soð-
kraft.
2. Síið soðið og ausið heitu yfir
rúllusneiðarnar á diskunum.
ÍÁvaxtaði |
56
Avaxtaði peningana mína 3500% - Auðveldlega!
-1-
)
í DAG
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Óskiljanleg
framkoma við
ferðamenn
SKYLDI konan frá
Hollandi sem skrifaði til
blaðsins sem ég las í gær,
25. september, aldrei hafa
gengið um götur Amster-
dam í Hollandi að kvöldi
til? Það hef ég gert og var
það ekki góð reynsla sem
við upplifðum þar. Við sá-
um öskrandi lýð brjóta
m.a. niður símaklefa. Við
flýttum okkur burtu,
dauðhrædd.
Pjórir ferðalangar.
Hætta af hjólum
á göngustígum
VE LVAKAND A barst
eftirfarandi: „Því er
þannig háttað að við hjónin
erum flutt í Grafarvog.
Þar er mjög góður og
skemmtilegur göngustígur
meðfram sjónum. Höfum
við farið á hverjum degi í
göngu en fyrir stuttu urð-
um við fyrir því að heill
hópui’ af krökkum á hjól-
um, 6-8 ára, kom á fleygi-
ferð fyrir beygju og íyrsta
hjólið lentí á mér, ég féll
við á göngustíginn og
meiddi mig. Drengurinn á
hjólinu virtist ekki meiða
sig en hann var mjög sleg-
inn, baðst fyrirgefningar
og var mjög kurteis. Vil ég
koma því á framfæri við
foreldra að þau brýni fyrir
bömum sínum að fara var-
lega á hjólum þarna því
fólk á ekki möguleika á að
forða sér undan þeim.
Göngukona.
Of mikið golf á Rúv
UM síðustu helgi var
golfþáttur alla helgina á
Ríkissjónvarpinu, svokajl-
aður „Ryder-bikar“. Ég
er öryrki, sem hef borgað
mína áskrift, og hef ekki
mikla möguleika á að
sækja mér skemmtun
annars staðar en í sjón-
varpinu. Ég hef ekkert
gaman af íþróttum, síst áf
öllu golfi. Éinnst mér ekki
boðlegt að bjóða fólki upp
á svona sjónvarpsefni alla
helgina, flestir vilja frek-
ar bíómyndir eða
skemmtiefni.
Sigga.
Tapað/fundið
Gamall
gullkross týndist
GULLKROSS, frekar
stór og gamall, sérkenni-
legur útlits, týndist ný-
lega. Krossinn hefur til-
finningalegt gildi fyrir
eiganda. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
555 0867 og 698 0867.
Gullarmband týndist
GULLARMBAND týnd-
ist á Seltjarnarnesi 20.
september, á göngu um
Neshringinn. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
561 1258.
Aftaníkerra týndist
AFTANÍKERRA týndist
frá Njálsgötu 31 aðfaranótt
sl. fimmtudags. Kerran er
u.þ.b. tveggja metra löng,
með opnanlegum göflum,
að framan og aftan. Kerr-
an er úr stálramma með
krossviði. Þeir sem hafa
orðið varir við kemma hafi
samband í síma 893 6617.
Fundarlaun.
Grá barnahettupeysa
týndist
GRÁ barnahettupeysa
merkt „Iowa“ týndist á
ferðalagi um landið sl.
sumar. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 553 6239.
Giftingarhringur
i óskilum
GIFTINGARHRINGUR
merktur „Þinn Georg“
fannst á Hlíðarvegi 35 í
Kópavogi. Upplýsingar í
síma 564 1741.
Græn flíspeysa týndist
GRÆN flíspeysa, 66°N,
týndist á leiðinni frá Hól-
um í Efra-Breiðholti að
Plastprenti á Fosshálsi.
Skilvís finnandi hafí sam-
band við Guðrúnu í síma
567 5799.
Fjallahjó! í óskilum
ICEFOX-fjallahjól er í
óskilum í Kópavogi. Upp-
lýsingar í síma 898 9545
eftir kl. 17.
Dýrahald
Kettlingar fást geíins
KETTLINGAR fást gef-
ins, kassavanir, 2 mánaða
og bráðvantar framtíðar-
heimili sem fyrst. Upplýs-
ingar í síma 554 0902 og
554 5737.
Kettlingar fást gefins
TVEIR 6 mánaða kett-
lingar fást gefins vegna
breyttra heimilisað-
stæðna. Upplýsingar í
síma 898 9630.
SKAK
Uinsjón Margcir
Pélursson
STADAN kom upp í und-
anrásariðli Evrópukeppni
taflfélaga í
Reykjavík um
síðustu helgi.
Hannes Hlífar
Stefánsson
(2.584), Helli,
hafði hvítt, en
Jóhann Hjart-
arson (2.630),
Skákfélagi
Akureyrar, var
með svart og
átti leik.
31. - Hc3!! 32.
Dxc3 - Rxe4
33. Df3 - Rd2
34. Dd3 - Rxfl
35. Bxfl - Bxf2+ 36. Kh2
- Rf5 37. Bxf8 - e4 38.
Da3 - Bgl+ 39. Khl -
Rg3+ 40. Dxg3 - fxg3 41.
Bxd6 - Dxd6 42. Kxgl -
Db6+ og hvítur gafst upp.
SVARTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
MIKIÐ er oft þægilegt að geta
hlustað á kvöldfréttir Ríkis-
sjónvarpsins og Stöðvar 2 á viðeig-
andi rásum útvarpsstöðvanna, t.d.
þegar menn geta ekki komið því við
að vera heima í stofu og hlusta þar.
Það kemur að vísu æði oft fyrir Vík-
verja að sofna undir fréttunum þar
en það er annað mál. Þetta á vita-
skuld ekki síst við þegar menn eru á
ferðalagi. Er þá hægt að hlusta
fyrst á fréttir RÚV klukkan 18, eftir
nokkurt hlé taka við sjónvarpsfrétt-
ir klukkan 19 og í beinu framhaldi
kemur síðan Stöð 2 með sinn
skammt. Víkverji hefur oftlega
fagnað þessari þjónustu Ijósvaka-
miðlanna og þannig getað fylgst
með því sem er að gerast hérlendis
sem erlendis þótt hann sitji ekki við
skjáinn.
Lítils háttar galli er á fram-
kvæmd þessara útsendinga sem
hlýtur að vera hægt að lagfæra.
Það er þegar íslensku fréttamenn-
irnir eða starfsbræður þeirra er-
lendis ræða við fólk í fréttatímun-
um. Þá kemur nafn viðmælandans
að sjálfsögðu á skjáinn en sá sem
heyrir aðeins útvarpsútsendinguna
fær ekki að vita hvað viðkomandi
heitir. Oft snúast fréttirnar að vísu
um málefni úr pólitík, atvinnulífi
og öðru og því rætt við forystu-
menn á þessum sviðum sem allir
þekkja, jafnvel af röddinni einni
saman. En einnig er rætt við fleiri
og þá fer málið að vandast hjá
þeim sem aðeins hlustar á útvarp-
ið. Hér verður því að vera hægt að
skjóta inn í nafni þess sem talar
hverju sinni.
Þetta getur varla verið mikið mál
því báðar stöðvar láta lesa þýðingu
á því sem erlendir menn hafa að
segja í fréttunum og þeir eru því við
hendina. Þeir ættu því að geta verið
örsnöggir að skjóta inn nafninu á
undan eða eftir fréttinni.
XXX
*
UR því farið er að ræða um frétt-
ir á ljósvakamiðlum finnst Vík-
verja ástæða til að minnast á að
kvöldfréttatímar stöðvanna eru
merkilega svipaðir. Sérstaklega
fréttir Stöðvar 2 og Ríkissjónvarps.
Á báðum stöðvunum eru fimm til
sex helstu fréttir hinar sömu og síð-
an hríslast nokkrar innan um sem
hvor fréttastofa um sig hefur aflað
án þess að hin sé með þær. Það má
því segja að það sé hálfgerð endur-
tekning að hlusta á þrjá fréttatíma í
röð en það er önnur saga sem
fréttafiklar skilja og verður ekki
farið nánar útí hér.
xxx
VEGAKERFIÐ hefur oft verið
til umræðu hjá Víkverja. Ekki
alls fyrir löngu var hann á ferð um
Vestfirði í bíl og komst þá að raun
um að vegir þar eru hinir ágætustu.
Þeir sem fara helst ekki út fyrir
hringveginn tala gjarnan um það að
þeir leggi ekki í Vestfirðina af því
að vegimir þar séu slæmir. Þetta er
bara hinn mesti misskilningur og
það geta menn reynt með því að aka
t.d. norður frá Brú og að Hólmavík
og áfram um Steingrímsfjarðarheiði
og út allt ísafjarðardjúp. Bæði eru
þar alllangir kaflar með bundnu
slitlagi og malarvegimir era bara
merkilega góðir. Víkverji hvetur
bara landsmenn til að fara og kanna
málið - og hann bendir á að þessir
vegir era líka raddir og þeim haldið
opnum árið um kring.