Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 64

Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 64
Heimavörn Drögum næst 12. okt. HAPPDRÆTT! HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569II22, NETFANG: RITSTJ&MBLIS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Stjórnir SÍF og ÍS samþykktu sameiningu félaganna Heildarhlutafé félags- ins 1,5 milljarðar Ekið á hross FLUTNINGABIFREIÐ ók á hross við bæinn Syðri-Brekku í Austur- Húnavatnssýslu um klukkan hálfníu __ í gærkvöld og þurfti að aflífa hrossið ^^eftir áreksturinn. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi stökk hrossið upp á veginn fyrir flutningabifreiðina þannig að það var lítið sem ökumaðurinn gat gert. Hrossið lenti framan á öðru horni bifreiðarinnar og fékk það þungt högg að ráðlegast þótti að aflífa það. Bifreiðin skemmdist furðu lítið, að sögn lögreglu. -------------- Speglun í sjó FAÐIR og sonur voru í hjólreiða- túr niðri við Suðurbugt í Reykja- /^íifcvíkurhöfn í gær. Sólin var hátt á lofti, vind hreyfði varla og sjórinn spegilsléttur. Þeir feðgar gerðu því hlé á ferð sinni um hafnar- svæðið og litu sem snöggvast í náttúrunnar stærsta spegil. ÁÆTLUN um samruna SÍF og ÍS undir merki SIF hf. var samþykkt á stjórnarfundum beggja félaganna í gærmorgun og verður- hlutur SIF í félaginu 70% og hlutur ÍS 30%. Gunn- ar Orn Kristjánsson verður forstjóri SIF hf. og Finnbogi Jónsson verður aðstoðarforstjóri. Friðrik Pálsson verður stjórnarformaður félagsins, en IS tilnefnir vai'aformann stjórnar á hluthafafundi í desember. Samruninn miðast við 1. júli 1999, og afturvirkt frá og með þeim degi tekur SIF hf. við öllum skyldum, skuidbindingum og réttindum félag- anna. Heildarhlutafé félagsins verður 1.500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að samrunaáætl- un verði undirrituð 15. október næst- komandi og eftir að hún hefur verið birt opinberlega verður boðað til hluthafafunda í báðum félögunum og verða þeir væntanlega haldnir í kringum 20. desember. A blaðamannafundi sem boðað var til í tilefni sameiningarinnar síðdegis í gær kom fram að eignaraðild að SIF hf. eftir samrunann væri ákaf- lega dreifð og einungis 23 hluthafar væru með meira en 1% hlutafé í því. Alls væru hluthafarnir hátt á annað þúsund, og enginn einn hluthafi væri með yfir 8% hlut. Fimm stærstu hluthafarnir eru Burðarás hf. með 7,9%, Framleiðendur ehf. með 6,7%, Búnaðarbanki íslands með 3,7%, Mundill hf. með 3,3% og Lífeyris- sjóður verslunarmanna með 3,3%. Starfsstöðvar í 15 löndum Starfsstöðvar verða í 15 löndum í fímm heimsálfum og starfsmanna- fjöldinn um 1.700 manns, þar af 1.570 manns erlendis. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á starfsemi Iceland Seafood í Banda- ríkjunum, en ljóst er að einhverjar breytingar kunna að verða í starf- semi félaganna í Frakklandi. ■ Markar/32 Morgunblaðið/RAX Nýja kjötvinnslu- fyrirtækið Slátrar 245 þúsund- um fjár FYRIRTÆKI sem til verður um áramót með samruna fimm sláturleyfishafa og kjöt- vinnslufyrirtækja verður langstærsta sláturfélag lands- ins. I sláturhúsum á þess veg- um var á síðasta ári slátrað 245 þúsundum fjár sem er hátt í helmingur sauðfjárslátr- unar í landinu. í gær var gengið frá sam- runaáætlun Norðvestur- bandalagsins hf. á Hvamms- tanga, kjötiðnaðar Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri, Kjöt- iðjunnar ehf. á Húsavík, kjöt- iðnaðar Kaupfélags Héraðs- búa á Egilsstöðum og Kjötum- boðsins hf. í Reykjavík. „Nýja félagið verður markaðsstýrt framleiðslufyrirtæki sem leggur áherslu á sölu í versl- anir um allt land. Með stofnun þess er skorið á öll tengsl á milli verslunarreksturs og framleiðslu," segir meðal ann- ars í fréttatilkynningu sem fyrirtækin sendu frá sér í gær. Átta sláturhús frá Borgar- nesi til Breiðdalsvíkur Ef Sláturfélag Vesturlands, sem er í eigu Norðvestur- bandalagsins og KEA, er talið með mun samsteypan reka átta sláturhús á svæðinu frá Borgamesi, vestur, norður og austur um land til Breiðdals- víkur, og sex kjötvinnslur. Forsvarsmenn fyrirtækjanna telja unnt að auka rekstrar- hagræði með verkaskiptingu sláturhúsa og kjötvinnslu- stöðva, auk spamaðai’ í yfir- stjórn og bættri nýtingu fjár- muna sem varið er til mark- aðsmála. ■ Annast tæplega/10 Alþingismaður í fæðingarorlofí Missir orlofsrétt ef hann mætir við þingsetningu Opnar tvær Sparkaups- verslanir ÞINGMAÐUR sem er í barneign- arfríi getur ekki mætt við þing- setningu á morgun, vilji hann ekki eiga í hættu að glata fæð- ingarorlofsgreiðslum. Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþing- segir að þetta sé í samræmi við lög og reglur um opinbera starfsmenn. „Ef þingmaður sem svo er ástatt um mætir við þingsetn- ingu, er hann að koma í vinn- una,“ segir Friðrik. „Þetta á við um þingmenn eins og aðra, ef ^-fólk er að mæta í vinnuna. Ef ■"—pingmenn taka á annað borð barneignarfrí, getur það ekki hafíst seinna en við barnsburð- inn og ef þeir mæta í vinnuna, eru þeir búnir að rjúfa sinn rétt.“ Friðrik segir að farið sé eftir lögum um opinbera starfsmenn í þessu sambandi og þó svo að þingmenn séu kosnir til embættis, sé samt sem áður litið svo á að þeir séu ráðnir til vinnu og eng- inn munur sé á þeim og öðrum opinberum starfsmönnum í þessu tilliti. Setning hluti af þinghaldi „Þingsetningin er hluti af þinghaldinu og ekki hægt að greina það frá öðrum þingstörf- um. Það er sú skylda á þing- mönnum almennt og alltaf að þeir mæti, nema að þeir hafi einhver lögleg forföll. Ef sá sem er í fæðingarorlofi mætir á þingi, er hann að koma til vinnu. Hann hefur rétt á fæð- ingarorlofí og hefur varamann fyrir sig meðan á því leyfi stendur. Það er því alveg jafn útilokað fyrir þingmann sem svo er ástatt um að sitja þingsetn- ingu eins og hvern annan þing- fund. Þingsetningin er ekkert frábrugðin öðrum fundum þingsins," segir Friðrik. KAUPFÉLAG Héraðsbúa á Egils- stöðum er að taka upp keðjusam- starf við Samkaup um rekstur verslana sinna. Þá er félagið að yfir- taka rekstur verslana á Fáskrúðs- firði og í Neskaupstað og hyggst opna þar Sparkaupsverslanir um áramót. Ingi Már Aðalsteinsson, kaupfé- lagsstjóri Kaupfélags Héraðsbúa (KHB), segir að tilgangurinn með keðjusamstarfi við Samkaup í Keflavík sé að ná hagkvæmari inn- kaupum og betri nýtingu á fjár- munum til markaðsmála. KHB rek- ur sex verslanir á Austurlandi og segir Ingi Már að útliti þeirra verði breytt til samræmis við verslanir Samkaups en ekki hafi verið ákveð- ið endanlega hvernig að því verði staðið. Kaupfélag Héraðsbúa er að kaupa Melabúðina í Neskaupstað og hefur ákveðið að taka á leigu verslun Kaupfélags Fáskrúðsfirð- inga á Fáskrúðsfirði. Um áramót verða opnaðar verslanir á þessum stöðum undir nafni Sparkaups.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.