Morgunblaðið - 29.09.1999, Síða 64
Heimavörn
Drögum næst
12. okt.
HAPPDRÆTT!
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569II22, NETFANG: RITSTJ&MBLIS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Stjórnir SÍF og ÍS samþykktu sameiningu félaganna
Heildarhlutafé félags-
ins 1,5 milljarðar
Ekið á hross
FLUTNINGABIFREIÐ ók á hross
við bæinn Syðri-Brekku í Austur-
Húnavatnssýslu um klukkan hálfníu
__ í gærkvöld og þurfti að aflífa hrossið
^^eftir áreksturinn.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi
stökk hrossið upp á veginn fyrir
flutningabifreiðina þannig að það var
lítið sem ökumaðurinn gat gert.
Hrossið lenti framan á öðru horni
bifreiðarinnar og fékk það þungt
högg að ráðlegast þótti að aflífa það.
Bifreiðin skemmdist furðu lítið, að
sögn lögreglu.
--------------
Speglun í sjó
FAÐIR og sonur voru í hjólreiða-
túr niðri við Suðurbugt í Reykja-
/^íifcvíkurhöfn í gær. Sólin var hátt á
lofti, vind hreyfði varla og sjórinn
spegilsléttur. Þeir feðgar gerðu
því hlé á ferð sinni um hafnar-
svæðið og litu sem snöggvast í
náttúrunnar stærsta spegil.
ÁÆTLUN um samruna SÍF og ÍS
undir merki SIF hf. var samþykkt á
stjórnarfundum beggja félaganna í
gærmorgun og verður- hlutur SIF í
félaginu 70% og hlutur ÍS 30%. Gunn-
ar Orn Kristjánsson verður forstjóri
SIF hf. og Finnbogi Jónsson verður
aðstoðarforstjóri. Friðrik Pálsson
verður stjórnarformaður félagsins, en
IS tilnefnir vai'aformann stjórnar á
hluthafafundi í desember.
Samruninn miðast við 1. júli 1999,
og afturvirkt frá og með þeim degi
tekur SIF hf. við öllum skyldum,
skuidbindingum og réttindum félag-
anna. Heildarhlutafé félagsins verður
1.500 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að samrunaáætl-
un verði undirrituð 15. október næst-
komandi og eftir að hún hefur verið
birt opinberlega verður boðað til
hluthafafunda í báðum félögunum og
verða þeir væntanlega haldnir í
kringum 20. desember.
A blaðamannafundi sem boðað var
til í tilefni sameiningarinnar síðdegis
í gær kom fram að eignaraðild að
SIF hf. eftir samrunann væri ákaf-
lega dreifð og einungis 23 hluthafar
væru með meira en 1% hlutafé í því.
Alls væru hluthafarnir hátt á annað
þúsund, og enginn einn hluthafi væri
með yfir 8% hlut. Fimm stærstu
hluthafarnir eru Burðarás hf. með
7,9%, Framleiðendur ehf. með 6,7%,
Búnaðarbanki íslands með 3,7%,
Mundill hf. með 3,3% og Lífeyris-
sjóður verslunarmanna með 3,3%.
Starfsstöðvar í 15 löndum
Starfsstöðvar verða í 15 löndum í
fímm heimsálfum og starfsmanna-
fjöldinn um 1.700 manns, þar af
1.570 manns erlendis.
Ekki er gert ráð fyrir breytingum
á starfsemi Iceland Seafood í Banda-
ríkjunum, en ljóst er að einhverjar
breytingar kunna að verða í starf-
semi félaganna í Frakklandi.
■ Markar/32
Morgunblaðið/RAX
Nýja kjötvinnslu-
fyrirtækið
Slátrar
245
þúsund-
um fjár
FYRIRTÆKI sem til verður
um áramót með samruna
fimm sláturleyfishafa og kjöt-
vinnslufyrirtækja verður
langstærsta sláturfélag lands-
ins. I sláturhúsum á þess veg-
um var á síðasta ári slátrað
245 þúsundum fjár sem er
hátt í helmingur sauðfjárslátr-
unar í landinu.
í gær var gengið frá sam-
runaáætlun Norðvestur-
bandalagsins hf. á Hvamms-
tanga, kjötiðnaðar Kaupfélags
Eyfirðinga á Akureyri, Kjöt-
iðjunnar ehf. á Húsavík, kjöt-
iðnaðar Kaupfélags Héraðs-
búa á Egilsstöðum og Kjötum-
boðsins hf. í Reykjavík. „Nýja
félagið verður markaðsstýrt
framleiðslufyrirtæki sem
leggur áherslu á sölu í versl-
anir um allt land. Með stofnun
þess er skorið á öll tengsl á
milli verslunarreksturs og
framleiðslu," segir meðal ann-
ars í fréttatilkynningu sem
fyrirtækin sendu frá sér í gær.
Átta sláturhús frá Borgar-
nesi til Breiðdalsvíkur
Ef Sláturfélag Vesturlands,
sem er í eigu Norðvestur-
bandalagsins og KEA, er talið
með mun samsteypan reka
átta sláturhús á svæðinu frá
Borgamesi, vestur, norður og
austur um land til Breiðdals-
víkur, og sex kjötvinnslur.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna
telja unnt að auka rekstrar-
hagræði með verkaskiptingu
sláturhúsa og kjötvinnslu-
stöðva, auk spamaðai’ í yfir-
stjórn og bættri nýtingu fjár-
muna sem varið er til mark-
aðsmála.
■ Annast tæplega/10
Alþingismaður í fæðingarorlofí
Missir orlofsrétt ef hann
mætir við þingsetningu
Opnar tvær
Sparkaups-
verslanir
ÞINGMAÐUR sem er í barneign-
arfríi getur ekki mætt við þing-
setningu á morgun, vilji hann
ekki eiga í hættu að glata fæð-
ingarorlofsgreiðslum. Friðrik
Ólafsson, skrifstofustjóri Alþing-
segir að þetta sé í samræmi
við lög og reglur um opinbera
starfsmenn.
„Ef þingmaður sem svo er
ástatt um mætir við þingsetn-
ingu, er hann að koma í vinn-
una,“ segir Friðrik. „Þetta á við
um þingmenn eins og aðra, ef
^-fólk er að mæta í vinnuna. Ef
■"—pingmenn taka á annað borð
barneignarfrí, getur það ekki
hafíst seinna en við barnsburð-
inn og ef þeir mæta í vinnuna,
eru þeir búnir að rjúfa sinn
rétt.“
Friðrik segir að farið sé eftir
lögum um opinbera starfsmenn í
þessu sambandi og þó svo að
þingmenn séu kosnir til embættis,
sé samt sem áður litið svo á að
þeir séu ráðnir til vinnu og eng-
inn munur sé á þeim og öðrum
opinberum starfsmönnum í þessu
tilliti.
Setning hluti af þinghaldi
„Þingsetningin er hluti af
þinghaldinu og ekki hægt að
greina það frá öðrum þingstörf-
um. Það er sú skylda á þing-
mönnum almennt og alltaf að
þeir mæti, nema að þeir hafi
einhver lögleg forföll. Ef sá sem
er í fæðingarorlofi mætir á
þingi, er hann að koma til
vinnu. Hann hefur rétt á fæð-
ingarorlofí og hefur varamann
fyrir sig meðan á því leyfi
stendur. Það er því alveg jafn
útilokað fyrir þingmann sem svo
er ástatt um að sitja þingsetn-
ingu eins og hvern annan þing-
fund. Þingsetningin er ekkert
frábrugðin öðrum fundum
þingsins," segir Friðrik.
KAUPFÉLAG Héraðsbúa á Egils-
stöðum er að taka upp keðjusam-
starf við Samkaup um rekstur
verslana sinna. Þá er félagið að yfir-
taka rekstur verslana á Fáskrúðs-
firði og í Neskaupstað og hyggst
opna þar Sparkaupsverslanir um
áramót.
Ingi Már Aðalsteinsson, kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Héraðsbúa
(KHB), segir að tilgangurinn með
keðjusamstarfi við Samkaup í
Keflavík sé að ná hagkvæmari inn-
kaupum og betri nýtingu á fjár-
munum til markaðsmála. KHB rek-
ur sex verslanir á Austurlandi og
segir Ingi Már að útliti þeirra verði
breytt til samræmis við verslanir
Samkaups en ekki hafi verið ákveð-
ið endanlega hvernig að því verði
staðið.
Kaupfélag Héraðsbúa er að
kaupa Melabúðina í Neskaupstað
og hefur ákveðið að taka á leigu
verslun Kaupfélags Fáskrúðsfirð-
inga á Fáskrúðsfirði. Um áramót
verða opnaðar verslanir á þessum
stöðum undir nafni Sparkaups.