Morgunblaðið - 05.10.1999, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999 B 3
Atta KR-
ingar á
Sigurður Örn
Þór semja við
TVEIR íslenskir knattspyrnumenn hafa þegar þekkst boð þýska
3. deildarliðsins Krefeld Uerdingen um að leika með liðinu í vet-
ur. Það eru Sigurður Örn Jónsson, varnarmaðurinn sterki úr KR,
og Stefán Þór Þórðarson, hinn marksækni miðherji Skagamanna.
Líklegt er og talið að tveir leikmenn aðrir haldi til Uerdingen á
fimmtudag; þeir Bjarni Þorsteinsson, KR, og Jóhannes Harðar-
son, ÍA.
Islensku leikmennirnir halda til
Þýskalands á fimmtudag og
kanna aðstæður hjá liðinu. Ekki
er ljóst hvenær þeir leika fyrsta
leik sinn með liðinu, því ganga
þarf frá leikheimild fyrir þá og
nauðsynlegum málum milli
Uerdingen og íslensku félagslið-
anna.
Lárus Guðmundsson, tæknileg-
ur ráðgjafi Uerdingen hér á landi
og fyrrverandi atvinnumaður með
liðinu, segir að þar á bæ séu menn
spenntir fyrir þessari tilraun og
bíði komu íslensku víkinganna.
„Eg hef rætt við þjálfara liðsins
og hann segist bíða spenntur.
Þetta er óneitanlega spennandi
dæmi og vonandi gengur það
upp,“ sagði Lárus.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu fyrir helgi sóttu for-
ráðamenn Uerdingen Island heim
á dögunum, fylgdust með æfing-
um Islands- og bikarmeistara KR
og ræddu við Atla Eðvaldsson
þjálfara í því augnamiði að fá hann
til að móta þjálfarastefnu félags-
ins til framtíðar. Aukinheldur
fylgdust Þjóðverjarnir með bikar-
úrslitaleik í A og KR og settu sig í
framhaldi af honum í samband við
Skagamennina Gunnlaug Jónsson,
Jóhannes og Stefán Þór og KR-
ingana Bjarna og Sigurð Öm með
það fyrir augum að fá þá til láns
eða leigu út keppnistímabilið og
mynda þannig sterka blokk í lið-
inu til að hefja það til vegs og virð-
ingar á nýjan leik.
Sigurður Örn Jónsson mun leika með Uerdingen í vetur.
Morgunblaðið/Kristinn
og Stefán
Uerdingen
4»
Marel
til
Stabæk
MAREL Baldvinsson, leik-
maður Breiðabliks, fór fyr-
ir skömmu út til norska úr-
valsdeildarliðsins Stabæk
til þess að skoða aðstæður
hjá félaginu. Hann æfði
hvorki né spilaði með fé-
laginu því hann er að ná
sér af meiðslum, sem hann
varð fyrir í sumar. Ekki er
ljóst hvort hann fari aftur
út til Stabæk en hugsanlegt
er að hann fari aftur utan
er hann hefur náð sér.
útleið
ívar Bjarklind
á fömm frá ÍBV
ÍVAR Bjarklind, knattspyrnumaðurinn sterki í liði Eyjamanna,
er hættur að leika með liðinu. Hefur hann þegar tilkynnt for-
ráðamönnum ÍBV þetta, svo og nýráðnum þjálfara, Kristni R.
Jónssyni. Útlit er fyrir frekari breytingar á leikmannahópi Eyja
manna.
Leikmenn íslands- og bikar-
meistara KR virðast mjög eft-
irsóttir þessa dagana og líklegt er
að vegna sölu eða leigu leikmanna
verði átta fastamenn liðsins leik-
menn á erlendri grundu í vetur.
Annars staðar er greint frá til-
boði Lilleström í Indriða Sigurðs-
son og Ki-eufeld Uerdingen í þá
Sigurð Örn Jónsson og Bjarna
Þorsteinsson. Þá hafa fjölmörg lið
leitað eftir leikmönnum liðsins til
leigu, m.a. frá Skotlandi, Belgíu,
Hollandi, Þýskalandi og Englandi.
Að sögn Magnúsar Orra Schram,
framkvæmdastjóra Rekstrarfélags
KR, mun skýrast á næstu dögum
hvaða leikmenn leika erlendis í
vetur. „Það er greinilega mikill
áhugi á leikmönnum liðsins," sagði
Magnús Orri.
Sainkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa erlend lið sett sig í
samband við KR vegna Guðmund-
ar Benediktssonar, Þórhalls Hin-
rikssonar, Sigþórs Júlíussonar,
Einars Þórs Daníelssonar, Krist-
jáns Finnbogasonar, Sigursteins
Gíslasonar og Þormóðs Egilsson-
ar. Aður er Bjarki Gunnlaugsson,
markahæsti leikmaður liðsins í
sumar, farinn til Englands, þar
sem hann er í láni hjá Preston
North End í 2. deild í vetur.
Ivar hefur verið lykilmaður í liði
ÍBV í fimm ár, gekk til liðs við
Eyjamenn frá KA fyrir leiktíðina
1995. Hann hefur tvívegis orðið ís-
landsmeistari með liðinu og einu
sinni bikarmeistari. „Þetta hefur
verið mjög góður tími, en nú er
kominn tími til að breyta til.
Samningur minn við ÍBV var
runninn út og ég stefni á að leika
með liði á höfuðborgarsvæðinu í
framtíðinni - því þar bý ég og dótt-
ir mín líka,“ segir ívar, en hann
lýkur prófi í sálfræði úr Háskólan-
um næsta vor.
ívar vildi ekki nefna þau lið sem
hann hefði rætt við, en Morgun-
blaðið hefur heimildir fyi-ir því að
KR og Fram séu meðal þeirra liða
sem áhuga hafi á kröftum hans.
„Ég mun taka mér gott frí frá
knattspymunni og hugsa málið.
Það liggur ekkert á,“ sagði Ivar.
Frekari breytingar
Ljóst er að frekari breytinga er
að vænta í liði Eyjamanna. Þannig
runnu út samningar þeirra Zorans
Miljkovics, Gorans Aleksics,
Hlyns Stefánssonar og Kristins
Hafliðaspnar nú í haust, auk
ívars. Óvíst er hvort Zoran og
Goran komi aftur í vor, Hlynur
Stefánsson er í fríi erlendis og
hyggst taka ákvörðun eftir það og
Kristinn Hafliðason er enn óá-
kveðinn. „Þetta skýrist á næst-
unni, en enn er allt óráðið," sagði
Kristinn í gærkvöldi, aðspurður
hvort hann verði áfram í herbúð-
um Eyjamanna. Hann átti við erf-
ið meiðsl að stríða lengi framan af
sumri, en náði sér svo góðum en
fékk þá fá tækifæri.
Birkir Kristinsson, markvörður
landsliðsins og IBV, hefur sem
kunnugt er verið leigður til austur-
ríska liðsins Lustenau, en gert er
ráð fyrir því að hann leiki með
Eyjaliðinu næsta sumar. ívar Ingi-
marsson hefur dvalist í Hollandi
að undanförnu við æfingar og vitað
er að hann hefur hug á atvinnu-
mennsku. Þá er óvíst hvort Baldur
Bragason leikur áfram, en hann
íhugar að hætta knattspyrnuiðkun
vegna þrálátra meiðsla.
Birkir bestur
hjá Lustenau
BIRKIR Kristinsson átti mjög góðan leik í marki Lustenau er
liðið mætti SW Bregenz í nágrannaslag á Casino-leikvellinum í
Bregens á laugardaginn. 10.800 áhorfendur sáu Birki verja
mjög vel, en hann náði ekki að koma í veg fyrir ósigur
Laustenau, 2:0. Austurríska blaðið Wann & Wo hrósaði Birki,
en hann varð að sjá á eftir knettinum í netið hjá sér á 35. og
78. mín. - og voru það ódýr mörk, sem komu eftir varnarmis-
tök.
„Við vorum hreint út sagt lélegir og áttum aldrei möguleika
á að veita leikmönnum Bregenz keppni,“ sagði Birkir.
Lustenau er í þriðja neðsta sætinu í 1. deildarkeppninni í Aust-
urríki með 14 stig, Bregenz er með 11 og í neðsta sæti er
LASK Linz með 9 stig. FC Tirol er efst með 33 stig, þá kemur
Rapid Vín og Austria Vín með 24 stig.
Haraldur skoraði tvö
HARALDUR Ingólfsson skoraði tvö mörk í gærkvöldi er lið
hans, Elfsborg, sigraði Maimö 5:2 í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Sverrir Sverrisson skoraði annað mark Malmö í
leiknum.
Elfsborg réð iögum og lofum í leiknum og hafði yfir í leikhléi,
4:0. Haraldur gerði þriðja mark Elfsborgar og hið fimmta úr
víti, en Sverrir minnkaði muninn í 4:1 í upphafi seinni hálfleiks.