Morgunblaðið - 05.10.1999, Page 5

Morgunblaðið - 05.10.1999, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ KÖRFUKNATTLEIKUR ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999 B 5 Nýliðar Hamars fögnuðu á Isafirði Síðbúin sigur- karfa Deans NÝLIÐAR Hamars frá Hveragerði, sem unnu góðan sigur á Snæ- felli í fyrsta leik sínum í úrvalsdeild á dögunum, gerðu góða ferð á ísafjörð á sunnudagskvöld. Rodnéy Dean tryggði Hvergerðing- um sigur með þriggja stiga körfu er um sjö sekúndur lifðu ieiks - lokatölur urðu 73:72. Heimamenn voru einu stigi yfir er um hálf mínúta var eftir og tóku þá misheppnað skot, en náðu boltanum aftur og leikhlé var tekið er 25 sekúndur lifðu leiks. Leikmenn Hamars brutu þá á ungum breskum bakverði, Tom Hull, og lánaðist honum aðeins að skora úr síðara vítaskoti sínu - munurinn tvö stig. ar og uppskerum eins og sáð var,“ sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Hamars. Óvæntur sigur ÍA Akurnesingar komu mjög á óvart er þeir báru sigurorð af Haukum á heimavelli sínum á sunnudagskvöld, 81:76, unnu þannig fyrsta sigur sinn í úrvalsdeildinni á nýrri vertíð. Skagamenn byrjuðu mjög vel og komust í 12:2. Haukum tókst aldrei að brúa bilið - náðu raunar að minnka muninn í þrjú stig um miðj- an síðari hálfleik, en þá gerðu heimamenn tvær þriggja stiga körf- ur í röð. „Mér fannst við aldrei sýna neina tilburði til að teljast líklegir til sig- urs,“ sagði ívar Asgrímsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. Leikmenn ÍA vörðust mjög ákveðið, tóku á móti Haukum framarlega á vellinum og skiptu ótt og títt á milli svæðis- og mannvarnar. Tveir hávaxnir leik- menn IA, Hjörtur Hjartarson og Ægir H. Jónsson, fóru fyrir heima- mönnum í vörninni. Þetta sló gestina út af laginu, að sögn ívars. „Pressuvörnin gerði okkur þó ekki erfítt fyrir, en við misstum boltann hvað eftir annað eins og við værum hreinlega rétt að byrja að iðka körfuknattleik," sagði hann. Haukar voru lánlausir og til marks um það má geta þess að þeg- ar tvær mínútur lifðu leiks höfðu þeir tekið tuttugu og eitt þriggja stiga skot, en aðeins hitt úr einu. Þeir gerðu þó tvær þriggja stiga körfur undir lokin og klóruðu þannig lítið eitt í bakkann. Þessi lið mætast tvívegis, á fimmtudag og sunnudag, í eggjabik- arnum svonefnda og líklegt verður að teljast að Haukaliðið brenni sig ekki tvisvar á sama soðinu - reki af sér slyðruorðið eftir áfallið á Akra- nesi. „Við vorum allir jafnlélegir í þessum leik, en við látum ekki hlæja að okkur tvisvar," sagði Ivar As- grímsson, þjálfari Hauka. Blöndal skrifar Grindvíkingar komu miklu ákveðnari til leiksins og þeir tóku frumkvæðið þegar í stað sem ■■■■■■ þeir síðan létu ekki af Björn hendi þrátt fyrir ör- væntingarfullar til- raunir heimamanna. Njarðvíkingar hittu einfaldlega fyrir ofjarl sinn að þessu sinni og mótlætið fór misjafnlega í menn sem ekki kann góðri lukku að stýra og allra síst ef menn ætla að taka slíkt út á dómurunum. Eins og áður sagði tóku Grindvíkingar for- ystuna þegar í upphafi sem þeir síð- an héldu. Smá spenna myndaðist þó um tíma undir lok leiksins þegar Njarðvíkingum tókst að minnka muninn í 5 stig, 80:85, en Grindvík- ingar sýndu þá tennurnai- aftur og tryggðu sér öruggan sigur með góð- um endaspretti. „Það var kominn tími til að snúa dæminu við eftir nokkra tapleiki gegn þeim og með það í huga geng- um við til leiks. Liðið okkar er jafnt og á góðum degi getum við unnið hvern sem er eins og sannaðist að þessu sinni,“ sagði Einar Einars- son, þjálfari Grindvíkinga, eftir leik- inn. Bestu menn Njarðvíkinga voru þeir frændur, Teitur Örlygsson, Keflavíkurstúlkur mikið betri KEFLAVÍKURSTÚLKUR eru í ailt öðrum gæðaflokki en stöllur þeirra í Grindavík, er þær fögnuðu örugguin sigri í fyrsta leik 1. deildarkeppni kvenna í Grindavík, 75:34. Það tók heimastúlkur sex og hálfa mínútu að setja niður fyrstu körfuna en áður höfðu þær sett niður nokkur víti og gestirnir allsráðandi á vellinum. Munur- inn jókst hratt og eftir nímlega 10 mínútur var staðan orðin 6:30 og gestirnir komnir í þægilega stöðu, staðan í hálfleik, 21:36. í síð- ari hálfleik héldu gestirnir áfram að auka forskot sitt og sigruðu önigglega 34:75. Það var lítið sem gladdi augað í Iiði heimamanna en hjá gestunum spilaði Anna María að venju vel og þá átti Erla Þorsteinsdóttir prýðisleik. Ikjölfarið léku gestirnir boltanum á Dean, sem komst í skotfæri á móts við miðjan þriggja stiga bog- ann og skoraði sigurkörfuna frammi íýrir dyggum stuðningsmönnum Is- firðinga, sem jafnan láta vel í sér heyra. Heimamenn reyndu í ör- væntingu sinni að sækja hratt upp völlinn á lokasekúndunum, en misstu boltann og þar með voru úr- slitin ráðin. Pétur Ingvarsson, leikmaður og þjálfari Hamars, sagðist ekki hafa skipað mönnum sínum að taka þriggja stiga skot í lokasókninni. „Nei, en við vildum samt taka skot nógu fljótt til að eiga möguleika á að ná frákastinu og skora í annarri til- raun. En við þurftum ekki að taka fleiri skot í þessum leik,“ sagði Pét- ur, sem gerði 14 stig. Dean var stigahæstur gestanna með 21 stig. Leikmenn KFÍ byrjuðu betur en Hvergcrðingar þurftu nokkurn tíma til að ná áttum eða finna taktinn, líkt og í fyrsta leik sínum í deildinni - gegn Snæfelli. Áður en Dean gerði sigurkörfuna höfðu þeir aðeins einu sinni tekið forystu í leiknum, 70:71. Hamar hefur nú sigrað í báðum leikjum sínum í úrvalsdeildinni, en liðinu vai- spáð þriðja neðsta sæti fyrir tímabilið. „Okkur hefur vissu- lega gengið vonum framai', en við höfum lagt hart að okkur við æfing- Frakki til Snæfells SNÆFELLINGAR hafa fengið til Iiðs við sig 26 ára franskan miðherja, David Colbas. Sá lék með Dínamó Búkarest í Rúm- eníu á síðasta tímabili og er sagður hafa gert 17 stig og tekið 12 fráköst að meðaltali í leik. Von er á leikmanninum á föstu- dag. Snæfeilingar hugðust fá Rob Reinfroe, austurrískan leik- mann sem lék í Mexíkó, en af því varð ekki. MorgunDiaöid/tiom Brenton Birmingham sækir að körfu fyrrverandi félaga sinna hjá Njarðvík. Friðrik Ragnarsson fylgist vanmáttugur með. Birmingham átti stórleik og lagði grunninn að sigri Grindvíkinga á meistaraefnum Njarðvíkinga. Komu, sáu og sigruðu „ÞESSI úrslit voru vissulega vonbrigði. En við vorum slakir, liðið komst aldrei í takt við leikinn og við vorum ekki verðugir sigur- vegarar að þessu sinni,“ sagði Friðrik Rúnarsson eftir að ná- grannar hans frá Grindavík höfðu komið séð og sigrað í Ljóna- gryfjunni í Njarðvík á sunnudagskvöldið. Grindvíkingar sigruðu með 9 stiga mun, 93:84, sem voru sanngjörn úrslit miðað við gang leiksins. í hálfleik var staðan 52:49 fyrir Grindavík. Brenton Birmingham, fyrrum leikmaður Njarðvíkinga, lék sína gömlu fé- laga oft grátt í leiknum, hann gerði 39 stig og var raunar maður- inn á bak við sigur Grindvíkinga að þessu sinni. sem þó var óvenju seinn í gang, St- urla Örlygsson, og Hermann Hauksson og Prunel Perry sem saman gerðu 79 stig af 84. Brenton Birmingam í liði Grindavíkur var besti maður vallarins og raunar maðurinn á bak við sigur UMFG. Alexander Erinolinskij og Pétur Guðmundsson áttu einnig góðan leik í annars jöfnu liði Grindavíkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.