Morgunblaðið - 05.10.1999, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999 B 7
HANDKNATTLEIKUR
Róberl átfti stórieik
ÓHÆTT er að segja að spútnik
lið þýsku deiidarinnar í hand-
knattleik, Nordhorn, gefi ekk-
ert eftir. Nú tala hinir 50.000
íbúar þessa smábæjar við hol-
lensku landamærin um að
vinna meistaratitilinn.
Nordhorn tók lið Willstatt, sem
Gústaf Bjarnason og Magnús
Sigurðsson leika með, í
kennslustund í Willstatt á
sunnudagskvöld og sigruðu
með yfirburðum 33:16.
Jochen Fratz var markhæstur
hjá Nordhorn með 7 mörk og
Johan Petterson gerði 6. Dudzic
Piotr gerði 5 fyi’ir Willstatt en
Gústaf Bjarnason setti 2. Willstatt
er eina liðið í deildinni sem ekki
hefur fengið stig eftir sex umferðir.
Flensburg sigraði lið Wetzlar
örugglega með 32:19 og er liðið nú
ósigrað á heimavelli í 17 leikjum
og fengið 33 stig en tapað aðeins 1
stigi. Sigurður Bjarnason, lék ekki
með Wetzlar vegna meiðsla, en
hann rann í bleytu í lok æfingar á
dögunum og missteig sig illa.
Hann verður þó líklega klár í slag-
inn um næstu helgi gegn
Grosswallstadt. Christansen var
Róbert Sighvatsson skoraði niu mörk fyrir Dormagen. Hér er hann
um í Skopje á dögunum.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
landsleik gegn Makedóníumönn-
markhæstur heimamanna með 7
mörk.
Bayer Dormagen vann sinn
Morgunblaðið/Kristinn
■arkatöflunni... gæti Geir Sveinsson, þjálfari Valsmanna, verið að segja við sína menn, þegar hann tók leikhlé
til að endurskipuleggja leik sinna manna.
I
ex í Safamýri
í síðari hálfleik gengu Framarar á
lagið og virtust hreinlega ætla að kjöl-
draga Hlíðarendapilta. Þegar tæpar
tuttugu mínútur voru til leiksloka, var
forysta Fram orðin níu mörk; 21:12,
og algjört vonleysi virtist grípa þá
rauðklæddu. En þá létu gamalkunnir
eiginleikar beggja liða á sér kræla.
Valsmenn eru kunnh- fyrir að gefast
aldrei upp, þótt gefí á bátinn, en
Framarar eru alvanir því að varpa frá
sér öruggri forystu og hleypa and-
stæðingunum inn í leikinn á ný.
Sú varð raunin að þessu sinni.
Heimamenn skoruðu ekki mark í
rúmar tólf mínútur, en gesth-nh-
minnkuðu muninn jafnt og þétt og
breyttu stöðunni í 21:18. A þessum
leikkafla munaði minnstu að upp úr
syði, þegar dómararnir misstu öll tök
á leiknum. Urðu Valsmenn til dæmis
ævareiðir þegar Bjarna Viggósson og
Valgeir Ómarsson brast kjarkur tii að
sýna Gunnai’i Berg Viktorssyni rauða
spjaldið fyrir ljótt brot á Bjarka Sig-
urðssyni.
Valsarar höfðu þó ekki orku til að
láta kné fylgja kviði og með góðri
markvörslu Sebastíans Alexanders-
sonar náðu Framarar að halda fengn-
um hlut. Lokatölur urðu sem fyrr
segir 24:20. Valsmenn geta þó huggað
sig við það að lið þein’a er greinilega
á réttri leið og ungu strákarnir í liðinu
léku vel, sérstaklega hinn 18 ára
gamli Snorri Guðjónsson.
Aron skoraði sex mörk
ARON Kristjánsson skoraði sex mörk þegar dönsku meistararnir
Skjern unnu auðveldan sigur á hollenska liðinu Sittardia í Evrópu-
keppni meistaraliða, Staðan í hálflei var 15:14 fyrir Skjern - en um
miðjan seinni hálfleik gerði Aron og samheijar út um leikinn,
komust í 27:21 og lögðu grunninn að öruggum sigri, 31:26.
fyrsta heimasigur og sinn fyrsta
sigur í deildinni í vetur, þegar liðið
fékk Eisenach í heimsókn, lokatölur
30:25. Róbert Sighvatsson átti stór-
leik að vanda og gerði hann 9 mörk í
leiknum. Héðinn Gilsson setti 2.
Andreas Thiel átti mjög góðan leik í
markinu, fyrir aftan sterka vöm
Dormagen.
Gummersbach sótti fyrrum erki-
fjendur sína, Groswallstadt, heim.
Það var aðeins í byrjun sem gest-
irnir veittu mótspyrnu. Eftir að
Yoon hafði gert 4 af 5 mörkum liðs-
ins setti Peter Meisinger þjálfari
Jackson Richardson til að taka
hann úr umferð. Þá var allur vindur
úr liðinu og gerði Yoon aðeins 1
mark eftir það. Groswallstadt vann
örugglega 27:21 og óhætt að segja
að Gummersbach leikur langt undir
væntingum, aðeins fengið 2 stig úr
fyrstu 5 umferðunum.
Nettelstedt og Minden gerðu
jafntefli 28:28 í hörkuleik. Minden
varð fyrir því áfalli í vikunni að
Aron Ziercke landsliðsmaður
meiddist á mjöðm og verður frá
keppni næstu vikur. Þá er
Tutschkin frá vegna meiðsla og
ljóst, að enn einn veturinn nær
Minden ekki settu marki, að leika í
hópi þriggja bestu liða. Leikmenn
Minden voru afar ósáttir við dóm-
gæsluna, en því miður er heima-
dómgæsla eitthvað sem aðkomulið
verða að reikna með í þýsku 1.
deildinni. Landsliðsmaðurinn ungi,
Frank Von Behren, var marka-
hæstur hjá Minden með 7 mörk, en
dýrasti leikmaður deildarinnar,
Talant Dujshbajev, var ekki meðal
markaskorara og munar um minna.
Hjá Nettelstedt var línumaðurinn
Dirk Beuchler markahæstur með 5
mörk. Nettelstedt jafnaði leikinn á
síðustu sekúndum úr vafasömu
vítakasti.
Öruggt hjá
Aftureldingu
MOSFELLINGAR mættu víg-
reifir í Víkina á sunnudaginn
þótt í liðið vantaði leíkstjórn-
andann Savukylas Gintas og
varnarjaxlinn Þorkel Guð-
brandsson og sýndu að það
þarf meira til að slá þá útaf
laginu. Þeir höfðu sterk tök á
leiknum, skoruðu til dæmis
þrátt fyrir að vera tveimur
færri og unnu sannfærandi
29:24.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Víkingar byrjuðu vel fyrstu níu
mínúturnar en þá komu níu
sóknir á níu mínútum þar sem ekki
stóð steinn yfir steini,
sóknarleikurinn var
óyfirvegaður og ekki
var á það bætandi
þegar Bergsveinn
Bergsveinsson í marki Afturelding-
ar tók sig til og lokaði markinu.
Mosfellingar þökkuðu pent fyrir og
náðu fimm marka forskoti, sem þeir
héldu að mestu út leikinn. Munurinn
varð mestur átta mörk um miðjan
síðari hálfleik eftir afar dapran kafla
hjá Víkingum en það munaði miklu
hvernig hið þrautreynda lið Aftur-
eldingai’ nýtti sér slaka kafla heima-
manna.
„Ég er mjög ánægður með að við
tókum skref í rétta átt í kvöld og að
mesti skrekkurinn er farinn úr mín-
um mönnum, þeir eru að átta sig á
því að þetta er fyrsta deild og þeir
geta alveg verið með og nú förum
við að mæta liðum, sem við eigum að
geta tekið stig af,“ sagði Þorbergur
Aðalsteinsson, þjálfari Víkinga, eftir
leikinn. „Það var óöryggi hjá okkur
um tíma, við vorum tvívegis einum
færri og sterkt lið eins og Aftureld-
ing er fljótt að nýta sér það. Svo
þegar þeir komast fjórum eða fimm
mörkum yfir er erfitt að vinna það
upp.“ Hlynur Morthens í markinu
átti góðan leik og varði úr mörgum
opnum færum Aftureldingar og Val-
gai’ð Thorodsen skoraði mikið úr
mjög þröngum færum í horninu.
Sigurbjörn Narfason, Þröstur
Helgason og Hjalti Gylfason skipt-
ust á að eiga ágæta kafla en sáust
lítið Joess á milli.
„Ég er sáttui- við sigurinn og ég -
held að sigm’inn hafi fyrst og fremst
unnist á varnarleiknum þvi þegar við
náum okkm’ á strik þar er kominn
grunnur að sigri,“ sagði Skúli Gunn-
steinsson, þjálfari Aftureldingar.
„Ég var líka ánægður með að sjá
hvað breiddin er orðin góð í liðinu.
Það vantaði bæði Gintas og Þorkel
en það kom maður í manns stað og
ungu strákarnir stóðu sig vel í sínum
hlutverkum." Bergsveinn markvörð-
ur fór á kostum í markinu enda báru
mörg skot Víkinga merki örvænting-
ar því hann sló þá alveg útaf laginu
um tíma. Bjarki Sigurðsson lék við *
hvern sinn fingur en meiddist
snemma í síðari hálfleik og kom lítið
inná eftir það. Magnús Már Þórðar-
son, Jón Andri Finnsson, Einar
Gunnar Sigurðsson og Valdimar
Þórsson, ungur piltur sem kom frá
Selfossi, stóð sig ágætlega í stöðu
leikstjórnanda í fjarveru Gintas.