Morgunblaðið - 05.10.1999, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
i
Ómar
með
Víði
ÓMAR Jóhannsson var um
helgina ráðinn þjálfari Víðis
í Garði næstu tvö árin. Tek-
ur hann við af Guðjóni Guð-
mundssyni sem ekki gaf kost
á sér áfram, en hann tók við
liðinu síðari hluta sumars.
Víðir féll í 2. deild í haust
ásamt KVA. „Okkar stefna
er að fara beint upp aftur,“
segir Vignir Rúnarsson,
gjaldkeri Víðis. „Ég vænti
þess að flestir þeirra leik-
manna sem með okkur voru
í sumar verði áfram og von-
andi bætast einhverjir við,“
sagði Vignir ennfremur.
Hann sagðist þó búast við að
Grétar Einarsson leggi
skóna á hilluna. Ómar Jó-
hannsson hefur þjálfað
Hauka undanfarin ár.
Glæsimark
Reuters
Varnarveggur Wolfsburg réð ekkert við aukaspyrnu Stefan Beinlich (22) þegar hann gulltryggði Ba-
yer Leverkusen öruggan sigur í Wolfsburg, 3:1.
Dortmund
á toppinn
BORUSSIA Dortmund er loksins komið í efsta sæti þýsku deild-
arinnar eftir langa mæðu. Liðið vann öruggan sigur á Rostock á
heimavelli um helgina 3:0 og skoraði Ikpeba loksins fyrir lið sitt
og það 2 mörk. Hann hefur gagnrýnt þjálfarann, Skibbe, fyrir að
láta sig sitja á bekknum og gefa sér fá tækifæri, en hann kom til
liðsins í sumar. Skibbe var ekki lengi að sekta leikmanninn og
varð hann að borga 800 þúsund króna sekt. Því var það kær-
komið fyrir Nígeríumanninn sem kom til liðsins fyrir 500 milljónir
að sýna getu sína þegar Fredi Bobic var frá vegna meiðsia.
Bayem Munchen heldur áfram að
tapa stigum og það var svo sann-
arlega hin fræga Bayem-heppni sem
kom í veg íyrir tap gegn Schalke.
Schalke sem lék á heimavelli var mun
betra liðið nær allan leiktímann. Loth-
ar Matthaus slapp við rauða spjaldið
þegar hann felldi einn leikmann
Klakksvík vann
í Færeyjum
KLAKKSVÍK var færeyskur meistari í knattspymu í 17. skiptið um
helgina. Liðið sigraði Fuglafjörð 4:1 í siðustu umferð deildarinnar og
hlaut 41 stig, tveimur stigum fleiri hcldur en Gata. Klakksvík vann
einnig bikarkeppnina fyrr í sumar. FuglaQörður hafnaði í neðsta
sæti deldarinnar með 10 stig.
HB, sem Allan Morkore og Uni Arge, hafa leikið með að undan-
fömu, vann Sand 7:1 í lokaumferðinni. HB hafnaði í fjórða sæti deiid-
arinnar, en hafði unnið deildina árið áður.
Schalke sem kominn var í gegn. Þvert
á það sem allir aðrir leikmenn í deild-
inni hefðu fengið, rauða spjaldið, slapp
öldungurinn með gult. Wilmots skor-
aði 1:0 fyrir Schalke á 51. mínútu.
Kuffour hjá Bayern fékk svo annað
gult spjald og þar af leiðandi rautt
spjald í framhaldinu á 79. mín. og
héldu menn að þar með hefðu Bæjar-
ar tapað. En liðið tók sig saman í and-
litinu og jafnaði Effenberg metin á
síðustu stundu eða á 90. mínútu og
bjargaði einu stigi í safnið.
Stuttgart klifrar hægt og örugg-
lega upp töfluna og sigraði Frankfurt
á útivelli, 0-1. Frankfurt hefur gefíð
eftir, eftir góða byrjun í deildinni.
Hamurger voru svo sannarlega
heppnir að fara með bæði stigin til
Hamburgar frá nýliðum Ulm. Ulm
leiddi leikinn 1-0 , þar til á 86. mín., að
Hamburger jafnaði. Yeboah hreinlega
stal svo sigrinum íyrir framan 23.000
vonsvikna áhorfendur með góðu
skallamarki á 91. mínútu, og tryggði
stöðu liðsins meðal toppliðanna í
deildinni.
Leikmenn Leverkusen virkuðu afar
þreyttir þegar þeir sóttu lið Wolfs-
burg heim. Skemmst er frá að segja
að Wolfsburg yfirspilaði stjömum
prýtt lið Leverkusen og vann verð-
skuldað 3:1. Mikið álag er á liðum sem
leika í Meistaradeildinni og em leik-
menn famir að kvarta undan álagi.
Einkum og sérílagi leikmenn Bayem
og Leverkusen, enda nokkrir leik-
menn liðanna frá vegna meiðsla og því
verður álag á aðra leikmenn meira.
Alls komu 321.555 áhorfendur að
sjá leiki helgarinnar eða um 36.000 að
meðaltali á leik. Flestir komu á viður-
eign Dortmund og Rostock, eða
63.000.
FOLK
■ ALÞJOÐA kiiattspyrnusam-
bandið, FIFA, hélt fund um fé-
lagaskiptareglur á dögunum í
Flórens á Ítlaíu, þar sem einnig
voru staddir margir helstu um-
boðsmenn knattspymumanna í
heiminum. Michel-Zen Rufine, að-
alritari FIFA, sagði að fundi lokn-
um að nýjar reglur um félagaskipti
í atvinnuknattspyrnu um allan
heim myndu brátt líta dagsins ljós.
Hann taldi nýju reglurnar til mik-
illa bóta, en þær verða birtar mjög
fljótlega.
■ OLLVER Bierhoff, fyrirliði
þýska landsliðsins og leikmaður
AC Milan, segist vera algjörlega
andvígur því að sett verði þak á
launagreiðslur til knattspyrnu-
manna. Umræða hefur verið há-
vær um slíkt víða um lönd, enda
telja margir að laun leikmanna séu
úr öllu samhengi við þau afköst
sem leikmenn verða að skila.
■ BIERHOFF segir það vera til-
gangslaust því liðin færu einfald-
lega kringum reglurnar vilji þau
næla sér í einhvem leikmann. Það
yrðu einfaldlega gerðir hliðar-
samningar sem kallast til dæmis
auglýsingasamningur eða eitthvað
þessháttar, og vonlaust væri að
fylgjast með hvað hver og einn
þénaði. Reglur um hámarkslaun
sem félag má borga atvinnumanni
í íþróttum er í gildi í mörgum
íþróttagreinum í Bandaríkjunum.
Emerson á förum frá Leverkusen
ÞÝSKU blöðin segja að Brasilíu-
maðurinn Emerson, leikmaður
Leverkusen, muni yfírgefa liðið að
þessu leiktímabili loknu. Leverku-
sen hafí fengið það gott tilboð í
hann að ekki sé hægt að neita.
Þrátt fyrir að Emerson segist
ætla að uppíylla samninginn við
Leverkusen, en hann er til ársins
2003, viðurkennir Christoph
Daum, þjálfari Leverksuen, að
leikmaðurinn verði sennilega að-
eins út þetta tímabil. Leverkusen
hefur reynt að framlengja samn-
ingninn við Emerson til 2005 í
þeim tilgangi að fá enn hærri upp-
hæð en þá 2,8 milljarða sem þegar
hafa verið boðnir í pilt.