Morgunblaðið - 05.10.1999, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 05.10.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999 B 9 Evrópumeistararnir kjöldregnir í heimsókn til Chelsea og Leeds komst á toppinn Veisla á Brúnni ÞAÐ var svo sannarlega veisla hjá Chelsea og stuðnings- mönnum liðsins á heimavelli, Stamford Bridge, á sunnudag- inn þegar Evrópumeistarar Manchester United komu þangað í heimsókn og voru hreinlega kjöldregnir, lokatöl- ur 5:0, og var sigurinn síst of stór. Á sama tíma og þessu fór fram vann West Ham liðs- menn Arsenal, 2:1, í uppgjöri Lundúnaliðanna og þar með komst Leeds á toppinn með 2:1-sigri á Watford. Leeds hefur 22 stig, einu stigi meira en Manchester og tveimur stigum fleiri en Sunderland sem hreiðraði um sig í þriðja sætinu með 4:0-sigri á Brad- ford. Staða Chelsea er hins vegar mjög góð, liðið hefur 19 stig eftir aðeins 8 leiki, tveim- ur færri en keppinautarnir auk þess sem markatalan er 15:3. Tap Manchester er það stærsta sem liðið hefur mátt þola í þrjú ár eða allt frá 5:0-tapinu fyrir Newcastle á haustdögum 1996. Nú hafði Manehester ekki tapað í 30 leikjum í röð í deildinni er það mætti til leiks á „Brúnni". Mikil eftirvænting ríkti fyrir leikinn, enda á ferðinni tvö af betri liðum Englands um þessar mundir og fulltrúar landsins í meistaradeild Evrópu. Reiknað var með jafnri viðureign en sumir þeirra höfðu vart áttað sig á því að leikurinn væri byrjaður þegar heimamenn höfðu gert fyrsta markið. Aðeins 28 sekúndur voru liðnar þegar Gustavo Poyet skoraði fyrsta markið með skalla eftir að há sending kom inn að vítateig Manchester. Massimo Taipi tók á sprett út að teignum, stökk á eigin varnarmann og náði ekki að kló- festa knöttinn sem Poyet skallaði auðveldlega í markið. Aðeins fimmtán mínútum síðar bætti Chris Sutton við öðru marki heimamanna og enn hafði Taipi hætt sér of langt frá markinu þannig að skalli Suttons fór í boga yfir makvörðinn og í netið. Var þetta fyrsta deildamark Suttons eftir að hann gekk til liðs við fé- lagið í sumar. Eftir markið datt spennan úr leiknum og heima- menn hertu tökin á gestum sínum sem létu skapið hlaupa með sig í gönur. Leikmenn Evrópumeistar- anna fengu engan frið til þess að byggja upp sókn og m.a. sást Da- vid Beckham vart bregða fyrir og fór svo að hann var tekinn af leik- velli í síðari hálfleik. Chris Sutton sækir að marki Man. Utd. - Henning Berg, fjær, spyrnir knettinum í eigin mark án þess að Taibi kemur vörnum við. Manchester átti svo sannarlega í vök að verjast og ekki bætti úr skák að eftir tæplega hálftíma leik var Nicky Butt rekinn af leikvelli fyrir að sparka í Dennis Wise og skömmu síðar var Paul Scholes ljónheppinn að fara ekki sömu leið fyrir álíka brot og Sutton. I síðari hálfleik var nánast aðeins eitt lið á vellinum, einstefna var að marki Manchester United þar sem vamarmennirnir voru algjörlega búnir að missa sjálfstraustið og voru oft líkari áhugamönnum en at- vinnumönnum hjá einu fremsta fé- lagsliði heims. Poyet bætti þriðja markinu við og nokkru síðar gerði Henning Berg fjórða markið er hann skoraði í eigið mark eftir kapphlaup við Sutton. Jody Morris innsiglaði síðan sigurinn átta mínút- um fyrir leikslok og stuðningsmenn Chelsea sungu og fögnuðu ákaft og gera væntanlega enn. Vialli varar við bjartsýni „Því miður eru sumir dagar eins og þessi, allt gengur í mót,“ sagði Alex Ferguson, knattspymustjóri Manchester, daufur í bragði. „En við verðum að taka þessu eins og hverju öðm hundsbiti, lífið heldur jú áfram. Við munum hins vegar bíta frá okkur, það er alveg ljóst.“ Gianluca Vialli, knattspyrnu- stjóri Chelsea, var heldur upplits- djarfari í leikslok og sagði sigur- inn auka mjög sjálfstraust sinna manna. Hann varaði stuðnings- menn hins vegar við bjartsýni þótt staðan væri vænleg í deildinni. Huga bæri að því að enn væri langur vegur ófarinn þar til deildakeppninni lyki og hlutirnir væru fljótir að breytast. „Það verður erfitt að ná forystu í deild- inni. Á hinn bóginn skiptir ekki meginmáli hvernig staðan er í dag, eða hvernig leikur dagsins fór. Aðalatriðið er að vera á toppn- um í mótslok.“ Leeds komst á toppinn Michael Bridges og Harry Kewell tryggðu Leeds sigur, 2:1, á Watford og um leið efsta sæti deildarinnar með mörkum á 45. og 70. mínútu en áður hafði Mark Williams komið Wadford yfír á 42. mínútu. Alan Shearer hefur heldur betur verið á skotskónum síðan Bobby Robson tók við Newcastle fyrir skemmstu og alls hefur hann nú gert 10 mörk í úrvalsdeildinni síð- an Robson kom á St. James’s Park. Á sunnudaginn skoraði hann bæði mörk liðsins í 2:l-sigri á heimavelli gegn Middlesbrough en Brian De- an klóraði í bakkann áður en yfir lauk. Varnarmaðurinn Gerry Taggart skoraði sigurmark Leicester í 3:2- sigri á Tottenham á 76. mínútu á White Hart Lane. Mussy Izzet kom Leicester yfir með víta- Kluivert í stuði SPANN Hollendingurinn Patrick Kluivert var í stuði - eftir að hafa verið fjarri góðu gamni í síðustu tveimur deildarleikjum. Hann setti eitt mark og lagði upp annað í 2:0 sigri Barcelona á Valladolid Mark sitt skoraði Klui- vert eftir hálftíma leik. Á 72. mínútu lék hann vöm Valladolid grátt og sendi á Rivaldo sem skoraði auð- veldlega og innsiglaði sigurinn. Ra- yo Vallecano gerði jafntefli við Racing Santander 1:1 á heimavelli og er í öðru sæti deildarinnar með 13 stig, tveimur stigum færra en Barcelona sem trónir á toppnum aðra vikuna í röð. Celta Vigo er í þriðja sæti með 12 stig. „Aðalatriðið er að við erum að vinna leiki og erum efstir," sagði Luis Enrique eftir sigur Barcelona, en hann og Rivaldo hafa verið gagn- rýndir upp á síðkastið fyrir að fara illa með marktækifæri. „Ekki skal gráta glötuð færi heldur gleðjast yf- ir þeim sem eru nýtt og nú skoruð- um við í tvígang." Ekki verður leikið á Spáni um næstu helgi vegna landsleikja en að þeim lokunum verður stórleikur á Spáni er Barcelona og Real Madrid mætast. Þá verður Winston Bogar- de í leikbanni í framhaldi af rauðu spjaldi um helgina og einnig er lík- legt að landi hans Frankl de Boer verði einnig fjarri góðu gamni vegna tognunar sem hann varð fyrir í fyrri hálfleik gegn Valladolid. Roberto Carlos var rekinn af leikvelli á Santiago Bernebeu strax á 9. mínútu leiks Real Madrid og Valencia. Það reyndist Madrídarlið- inu dýrt sem varð að sætta sig við tap, 3:2, og er þetta í fyrsta skipti sem John Toschack þjálfari stýrir liðinu í tapleik á heimavelli, en þetta var í 36. sinn sem það leikur á vell- inum undir hans stjórn og er þá fyrri vera hans með liðið, snemma á þessum áratug einnig tekin með í reikninginn. „Eg er ekkert yfir mig óánægður með tapið,“ sagði Toschack efth- leik- inn. „Við vorum einum færri nær all- an leikinn og menn mínir börðust og reyndu hvað þeir gætu tO þess að vinna að minnsta kosti annað stigið. Það lánaðist ekki, en menn lögðu sig fram og það skiptir miklu.“ spyrnu snemma leiks en Norð- maðurinn Stefen Iversen gerði tvö mörk fyrir Tottenham á 26. og 35. mínútu. Izzet jafnaði metin í 2:2 á 68. mínútu áður en Taggart skor- aði sigurmarkið. Arnar Gunn- laugsson var ekki í leikmannahópi Leicester að þessu sinni, en hann lék með varaliðinu gegn Notting- ham Forest nokkrum dögum áður. Vieira hrækti að Ruddock Ítalínn Paolo di Canio lék við hvurn sinn fingur og gerði bæði mörk West Ham í 2:l-sigri á Ar- senal. Davor Suker minnkaði muninn en lengra komust gestirn- ir ekki. Áður en yfir lauk hafði einum leikmanni í hvoru liðið verið vikið af leikvelli. Patrick Vieira braut gróflega á di Canio á 83. mínútu og var umsvifalaust vísað af leikvelli af Mike Reed dómara. Vieira taldi sig hins vegar vera órétti beittur og fauk hressilega í hann með þeim afleiðingum að hann spýtti í átt að Neil Ruddock áður en hann fór út af. Er þessi atburður til athugunar hjá enska knattspyrnusambandinu og líklegt að Vieira hafi ekki bitið úr nálinni vegna hrákunnar þótt víst sé að hann fái a.m.k. leikbann vegna rauða spjaldsins. Þá átti hann einnig ýmislegt vantalað við lög- reglumann á leið sinni til búnings- klefans. í blálokin varð Marc Vi- ven-Foe að bíta í það súra epli að líta rauða spjaldið. Kevin Phillips heldur áfram að láta til sín taka og um helgina skoraði hann tvö mörk í 4:0-sigri Sunderland á Bradford. Þar með er Phillips kominn með tíu mörk í deildinni eins og Shearer og eru þeir markahæstir. Sunderland hefur svo sannarlega náð sér á flug í upphafi mótsins og er nú um stundir í þriðja sæti, en liðið kom upp í deildina sl. vor. „Okkar áætl- un var að forðast fallið og lifa af deildakeppnina, en hingað til hef- ur árangurinn farið fram úr björt- ustu vonum. Við erum langt- komnir með að tryggja okkur áframhaldandi ve'fu í deildinni þótt enn séu nærri því þrír fjórðu af keppninni eftir,“ sagði Phillips. Markaregn í Róm Lazio og AC Milan skildu með skiptan hlut, 4:4, í einum allra skemmtilegasta leik ítölsku knatt- spyrnunnar um áraraðir á Ólympíu- leikvangingum í Róm á sunnudag- inn. „Við fórum illa að ráði okkar gegn Milan,“ sagði Sergio Cragnotti, forseti Lazio, eftir leik- inn. „Að fá á sig fjögur mörk á heimavelli er of mikið og sýnir að mínir menn náðu ekki að einbeita sér nægilega að leiknum." Sven Göran Eriksson, þjálfari Lazio, var að sama máli og forsetinn eftir leikinn, en lið hans náði 1:0- forystu og hafði auk þess tveggja marka forskot, 3:1. Eigi að síður getur hann þakkað fyrir annað stig- ið eftir að AC Milan hafði náð að komast yfir, 4:3. „Þetta var ein- kennilegur leikur sem erfitt að kryfja til mergjar," sagði Eriksson. „Við vorum með 3:l-forskot, en að- eins hálftíma síðar vorum við komn- ir undir, 4:3. Útilokað verður að komast að því hvað gerðist, en það er ljóst að lið sem hefur 3:1 yfir á að vinna.“ Hvað sem vangaveltum forráða- manna Lazio viðkemur er engum blöðum um það að fletta að leikur- inn var stórskemmtilegur þar sem sóknarleikurinn var í aðalhlutverki hjá báðum fylkingum á kostnað varnarleiksins sem oft var brokk- gengur. Juan Veron kom Lazio yfir, 1:0, en félagi hans Sinisa Mihajlovic varð fyrir því óláni að jafna leikinri með sjálfsmarki. Diego Simone og Marcelo Salas létu hins vegar ekki deigan síga og skoruðu hvor sitt markið fyrir Lazio. Þá var komið að þætti Úkraínumannsins Andriy Shevchenko, sem hefur aldeilis staðið undir væntingum hjá Mílanó- liðinu. Hann skoraði þrennu á stutt- um tíma og kom gestunum yfir. Salas jafnaði síðar metin á 72. mín- útu bjargaði þar með einu stigi í hús. „Lazio og Milan voru í áttunda gír,“ sagði í fyrirsögn ítalska dagy. blaðsins Corriere della Sera um leikinn. Þar var sóknarleikur lið- anna lofaður, einkum leikur Lazio. „Þetta var eins og í þá gömlu góðu daga þegar leikkerfin réðu ekki ríkjum og menn hugsuðu bai'a um það eitt að vinna og létu því sóknar- leikinn ráða ferð,“ hafði blaðið eftir Alberto Zaccheroni, þjálfara Milaru.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.