Morgunblaðið - 06.10.1999, Qupperneq 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Laxeldi eykst mikið
við Norður-Atlantshaf
ELDISFRAMLEIÐSLA á Atl-
antshafslaxi á síðasta ári var sam-
tals um 710.342 tonn, samkvæmt
skýrslu Alþjóðahafrannsóknaráðs-
ins (ICES). Þetta er mesta fram-
leiðsla á Atlantshafslaxi frá upphafi, 12% aukning frá árinu 1997, þegar fram-
leidd voru 634.418 tonn, en helmingsaukning irá meðaltali áranna 1993-7.
Hafbeit hefur nánast
lagst af á svæðinu
Eldislax; heimsframleiðslan
þúsund 1 Norður Atlantshafi tonn 1998 Meðaltal 1993-97
Noregur 345,6 263,3
Bretland/Skotland 115,5 73,0
Færeyjar 20,4 16,1
Kanada 22,6 14,6
írland 18,0 12,7
Bandarikin 13,2 9,0
ísland 2,7 2,6
Bretland/N-írland 0,1 0,2
Rússland 0,0 0,0
Samtals 538,0 391,6
Fyrir utan Norður Atlantshaf 1998 Meðaltal
Chile 125,0 52,4
Vesturstr. Bandaríkjana 3,0 5,1
Vesturstr. Kanada 32,9 18,0
Ástralía 10,0 6,4
Tyrkland 1,0 1,0
Aðrir 0,4 0,5
Samtals 172,3 83,4
Samantekt úr skýrslu Alþjóða Hafrannsóknarráðsins ICFS
Á Norður-Atlantshafssvæðinu
nam framleiðsla á eldislaxi um
538.011 tonnum á síðasta ári, sem er
7% aukning frá fyrra ári, en 37%
aukning frá meðaltali áranna 1993-7.
Langmest var framleitt í Noregi,
um 346 þúsund tonn, eða 64% af
heildarframleiðslu á svæðinu, en um
21% framleiðslunnar fór fram í
Skotlandi, samtals tæp 115 þúsund
tonn. Á Islandi nam framleiðslan um
2.686 tonnum.
Fyrsta
nýsmíðin
• STÆRSTA sjávarútvegs-
fyrirtæki í Suður-Afríku, Ir-
vin & Johnson, hefur tekið í
notkun nýjan úthafveiðitog-
ara. Togarinn, sem kostar
um 360 milljónir króna, er
fyrsta nýsmíðin sem tekin er
í notkun í Suður-Ameríku í
15 ár og er liður í 3,6 millj-
arða króna endurnýjun á
fiskvinnslu og fiskiskipaflota
fyrirtækisins. M.a. hefur
verið endurnýjuð fiskrétta-
verksmiðja fyrirtækisins í
Cape Town fyrir um hálfan
milljarð króna.
Ný vefsíða opnuð um
íslenskan sjávarútveg
UPPLYSINGAVEITA um íslenskan
sjávarútveg var formlega opnuð af Ama
M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, á
Fiskiþingi í síðustu viku. Þar er að finna upplýsingar um fiskveiðistjórnun,
fiskistofna, skipakost og sjávarafurðir. Veffangið er www.fisheries.is
www.fisheries.is
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, boðaði á
Fiskiþingi fyrir tveimur árum að
hann hygðist setja á laggirnar nefnd
til að huga að útfærslu veitunnar. I
henni áttu sæti Alda Möller frá
Sölumiðstöðinni, Einar Svansson frá
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur, Krist-
ján Þórarinsson frá LIU og Snorri
Rúnar Pálmason og Guðrún Eyjólfs-
dóttir úr ráðuneytinu, en hún hefur
JMC
Dýptarmælir
V-138
* 50/200 KHz
* 2kw/500w
* 10" skjár
Friðrik A. Jónsson ehf.
Fiskislóð 90, Reykjavík,
sími 552 2111
haft umsjón með verkinu. Tiltölu-
lega fljótlega komust menn að nið-
urstöðu um efnið, en úrvinnsla að
gagni varð ekki fyrr en ráðuneytið
fékk Öldu Möller nú í vor til að
skrifa efni veitunnar. Akveðið var að
byrja á að setja vefinn upp á ensku,
einungis hluti hans er kominn á ís-
lensku en ætlunin er að hafa hann á
þessum tveimur málum.
Skiptist f 8 kafla
Vefurinn skiptist í 8 kafla, eins og
sést hér efst. Fremstu tveir kaflamir
þar eru einfaldir, í hvomm er ein
síða, annars vegar ávarp sjávarút-
vegsráðherra, hins vegar umhverfis-
yfirlýsing ráðuneytisins. Þetta er það
sem komið er á íslensku á vefnum.
Stjórn fiskveiða er næsti yfirkafli.
Hann skiptist í tvo kafla, annars
vegar um hið sögulega sem er í
tveimur undirköflum og umfjöllun
um gildandi lög og reglur sem er í
fjórum undirköflum. Þar er meðal
annars lýst þróun fiskveiðistjórnun-
ar á þessari öld fram að 1976 og að-
gengileg lýsing á fiskveiðistjórnar-
kerfinu, svo og stjórnun þar sem
veitt er utan landhelgi.
Ennfremur er í veitunni upptalning
á þeim alþjóðasamningum sem ís-
land er aðlili að og tenging til þeirra,
s.s. til hafréttarsamnings Samein-
uðu þjóðanna (UNCLOS), til svæð-
isbundins samstarfs ICES og svæð-
isstofnana NEAFC og NAFO.
Yfirkaflinn um fiskistofna er mikill
að vöxtum. í yfirliti er greint frá þýð-
ingu sjávarútvegs. Síðan er síða fyrir
hverja þá tegund sem sett hefur ver-
ið undir veiðistjórn. Birtar eru mynd-
Á svæðum annars staðar en við
Norður-Atlantshafið var framleiðsla
á Atlantshafslaxi samtals um
172.331 tonn á síðasta ári, eða um
24% heimsíramleiðslunnar.
Hafbeit mest á íslandi
Á þessum svæðum hefur fram-
leiðslan aukist verulega undanfarin
ár og var framleiðsla síðasta árs um
107% meiri meðalframleiðsla á árun-
um 1993-7. Mest var framleitt af Atl-
antshafslaxi í Chile á síðasta ári, eða
125 þúsund tonn, og á vesturströnd
Kanada, eða um 33 þúsund tonn.
Framleiðsla á hafbeitarlaxi hefur
dregist verulega saman síðasta ára-
tuginn og er nú ekki stunduð af
neinu marki nema hérlendis. Sam-
tals nam framleiðsla á hafbeitarlaxi
við Norður-Atlantshaf aðeins um 47
tonnum á síðasta ári, sem er 10
tonnum minna en árið 1997 og
minnsta ársframleiðsla frá árinu
1987. Hafbeit heldur áfram að drag-
ast saman hérlendis en er engu áð
síður um 72% af heildarframleiðslu
svæðisins, eða 34 tonn á síðasta ári.
Hafbeit er aðeins stunduð í rann-
sóknarskyni í flestum öðrum lönd-
um á svæðinu, s.s. Irlandi, Bretlandi
og Noregi og er mjög lítil.
Loðnan óvenju
norðarlega
NORSKA hafrannsókna-
skipið Johan Hjort hefur
fundið loðnu norðan við
Kong Karls-land í
Barentshafi að því er
fram kemur í norska blaðinu Fiskaren. Kong Karls-land er austan við
Svalbarða og er óvenjulegt að loðnan leiti svo langt norður en fiskifræðing-
ar skýra þessa hegðun hennar með óvenju háu hitastigi sjávar.
Loðnustofninn í Barents-
hafí að rétta úr kútnum
ir af viðkomandi tegund og fræðiheiti
á latínu sem og nafnið á íslensku.
Eins er gert grein fyrir lífshlaupi við-
komandi tegundar, hvai’ og hvernig
hún er veidd, hversu mikið af henni
og hvað fiskifræðingar segja um
ástand stofnsins, og sett upp í línurit
hvernig ráðgjöf, kvóti og veiði hefur
verið undanfarin ár. Einnig er fjallað
um hvalategundir á sérstakri síðu.
Yfirkaflinn um heilnæmi fjallar
um mengunarmælingar hér við land.
Kaflinn hefur tvo undirkafla, gerð er
grein fyrir samstarfi um mengunar-
varnir í sjó sem Islendingar eru aðil-
ar að og í kafla um sjávarmælingar
er sagt frá hvernig nýjustu mæling-
ar hafa komið út.
Yfirkaflinn um skipakost og
tækjabúnað skiptist í þrennt, eftir
almenna umfjöllun um flotann, um
veiðarfæri og um sókn. Þessar síður
eru ekki allar fullbúnar en á þeim er
m.a. að finna myndir af ýmsum
skipagerðum.
Síðasti yfirkaflinn er svo um
vinnslu sjávarafurða. Þar er annars
vegar undirkafli um ráðstöfun afla,
og svo síða um hverja vinnslugrein.
Á ráðstöfunarsíðunni má m.a. sjá á
línuritum til hvaða vinnslu nokkrar
tegundir fara sem og breytingar á
ráðstöfun afla. Neðst á þessum síð-
um er kökurit um skiptingu viðkom-
andi afurða á markaði.
Loðnustofninn í Barentshafi var
á árum áður geysilega stór og mun
stærri en hér við land. Hann hefur
hinsvegar verið í lægð í mörg ár og
hefur ekkert verið veitt úr honum
en heimilt verður að veiða 80 þús-
und tonn á næsta ári. Þá telja fiski-
fræðingar að skilin sé eftir 500 þús-
und tonna hrygningarstofn. Margt
er talið hafa leitt til þess að loðnu-
stofninn í Barentshafi hrundi.
Þorskstofninn í Barentshafi hefur
verið stór á undanförnum árum en
hefur farið minnkandi. Eins hefur
ungsfld í stórum síldarárgöngum
gengið hart að loðnuseiðum á þess-
um slóðum. Norðmenn og Rússar
eru nú í loðnurannsóknum í
Barentshafi og er niðurstaðna
þeirra beðið með óþreyju, enda
gera margir sér vonir um að loðnu-
veiðar geti hafist þar af fullum
krafti á næstu árum.
Engin áhrif á íslenska
loðnustofninn
Sveinn Sveinbjörnsson, fiski-
fræðingur á Hafrannsóknastofnun,
segir þessar fréttir af loðnustofnin-
um í Barentshafi engin áhrif hafa á
loðnustofninn við Island. Hinsvegar
G
R • 75° -s':' Svalbarði
Æ £j\'\
N V
L V
A PpÉW Konq Karls Land KHi
N 700
D $5" °o — ■y Í5
C3
ÍSLAND 60*N Uj Qr
O
*
sé sjórinn á hefðbundnum loðnu-
miðum hér við land einnig mjög
hlýr. Það gæti verið ástæða þess að
loðnan hafi ekki fundist þar í sumar
og haust. „Þegar sjórinn er svona
hlýr liggur loðnan væntanlega vest-
arlega, nær Grænlandi og norður
úr. Sjórinn fer síðan að kólna strax
með haustinu og þá vonandi skflai’
loðnan sér inn á miðin,“ segir
Sveinn.
Irar borði meiri físk
• ÍRAR hyggjast nú heija herferð til að auka neyslu á sjávar-
afurðum í landinu og er herferðinni ætlað að fylgja eftir
stækkandi hlutdeild íra á bæði erlendum og innlendum mörk-
uðum fyrir sjávarafurðir. Áætlað er að kostnaðurinn við her-
ferðina nemi um 70 milljónum íslenskra króna. Stefnt er að því
að auka framboð sjávarrétta á öldurhúsum en þau eru helstu
samkomustaðir. Gefnir verða úr sérstakir sjávarréttamatseðl-
ar fyrir veitingastaði með vínveitingaleyfi, auk þess sem sjáv-
arfang verður kynnt sérstaklega í skólum þar sem nemendur
verða hvattir til að biðja oftar um fisk í matinn á hcimilum sín-
um. Ennfremur munu Irar veija fé til kynningar á írskum sjáv-
arafurðum á erlendum vettvangi.
Rannsókn á meintu broti hætt
SÝSLUM AN N SE MBÆTTIÐ á
Eskifirði hefur hætt rannsókn á
meintu landhelgisbroti rússneska
togarans Murman-2, sem var færð-
ur til Eskifjarðarhafnar sl. sunnu-
dagskvöld.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær tilkynntu Rússarnir
að þeir væru við sfldveiðar innan
lögsögunnar en í ljós kom að þeim
var óheimilt að veiða á viðkomandi
slóð. Því fór varðskipið Týr til
þeirra og fylgdi þeim til hafnar en
sýslumannsembættið á Eskifirði yf-
irheyrði skipstjóra rússneska
skipsins í fyrradag. „Með hliðsjón
af því sem fram kom við yfir-
heyrslu og að fenginni afstöðu
Landhelgisgæslu Islands var
rannsókn hætt með vísan til 1.
mgr. 76. gr. laga um meðferð opin-
berra mála nr. 19,1991,“ segir í til-
kynningu frá embættinu í gær og
þar með er málinu lokið.