Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 1

Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 1
* BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1999 ÞRIÐJUDA GUR 19. OKTÓBER BLAÐ Hermann byrjaði vel með Wimbledon HERMANN Hreiðarsson lék fyrsta leik sinn með Wimbledon á laugardaginn er liðið vann Brad- ford 3:2 á heimavelli. „Ég get vel verið ánægður með leikinn enda var sigurinn sætur. Það má segja að þetta hafi veri óskabyrjun hjá mér með nýju liði og þjálfarinn var ánægður með frammistöðu mína,“ sagði Hermann, sem lék sem mið- vörður allan leikinn. „Við vorum miklu betri í leikn- um, sérstaklega í fyrri hálfleik, og hefðum getað unnið mun stærra. Drillo sagði að þetta hafi veri besti leikur liðsins síðan hann tók við lið- inu og þá sérstaklega fyrri hálfleik- urinn,“ sagði íslenski landsliðsmað- urinn. Hermann var nálægt því að skora í fyrri hálfleik er hann átti hörku skalla að marki sem var var- inn. John Hartson gerði tvö marka liðsins og Carl Cort það þriðja. Wimbledon náði með sigrinum að lyfta sér af mesta fallsvæðinu, er í sjötta neðsta sæti með 11 stig. Næsti leikur liðsins í úrvalsdeild- inni verður gegn Aston Villa á úti- velli um næstu helgi. Morgunblaðið/Golli Þrír íslenskir knattspymujöfrar sem koma að Stoke-málinu; Atli Eðvaldsson, þjálfari KR, tekur lík- lega við landsliðinu af Guðjóni Þórðarsyni sem verður yfirmaður knattspyrnumála hjá Stoke. Fyrir aftan þá er Ásgeir Sigurvinsson, einn fjárfestanna sem líklega verður stjórnarmaður í félaginu. Eggert kallar Atla til viðræðna Tilboði íslenskra fjárfesta í ráð- andi hlut í enska knattspymu- félaginu Stoke City hefur þegar verið tekið samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Síðar í vikunni verður formlega tilkynnt um yfir- töku íslenskra aðila á rekstri knatt- spymufélagsins og búist er við að skrifað verði undir á laugardag fyr- ir leik liðsins við Wrexham í 2. deild. Ljóst er að Guðjón Þórðar- son landsliðsþjálfari verður ráðinn af hálfu fjárfestanna til að hafa yf- immsjón með uppbyggingu liðsins og hættir um leið með íslenska landsliðið. Eggert Magnússon, for- maður KSÍ, hefur fullt umboð stjómar til að ræða við Atla Eð- valdsson, þjálfara íslands- og bik- armeistara KR, um að hann taki að sér þjálfun landsliðsins. Enska dagblaðið The Sentinel, sem gefið er út í Staffordskíri, segir í gær að gengið verði formlega frá samningum við ijárfestana á fimmtudag. Tilboð þeirra hljóði upp á kaup á ráðandi hlut í félaginu og auk þess verði gjaldfallnar skuldir greiddar, nýjir leikmenn keyptir og æfingaaðstaðan byggð upp. íslensku fjárfestamir hyggjast ákveða sjálfir hvemig uppbygg- ingu félagsins til framtíðar verði háttað, þar á meðal ráðningu knattspyrnustjóra liðsins. Mikil ánægja er í Stoke með störf núver- andi stjóra, Gary Megson, sem tók við liðinu fyrir tímabilið og hefur stýrt því án taps í átta leikjum í röð. Hann nýtur mikils stuðnings í Stoke og líklegt er talið að íslensku fjárfestarnir muni ekki hrófla við stöðu hans, hið minnsta ekki fyrst í stað. Þess í stað verði Guðjón gerð- ur að yfirmanni knattspyrnumála í félaginu, vinni að því að styrkja hópinn og samræma áætlanir þess til framtíðar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er gert ráð fyrir því að Eggert Magnússon muni fyrir hönd KSÍ hefja viðræður við Atla Eðvaldsson síðar í vikunni, þar eð forysta KSÍ telur ljóst að Guðjón verði ekki áfram með liðið. Sam- staða mun innan stjórnar Rnatt- spyrnusambandsins um það að bjóða Atla starfið og hann hefur lýst því yfir að kæmi til þess myndi hann íhuga það alvarlega. „Það er auðvitað mikill heiður að vera tal- inn koma til álita,“ sagði Atli í gær. ■ Guðjón... / B2 ÞRJÚ MET FÉLLU í KÖRFUKNATTLEIK / B3,B4,B5 VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN Jókertölur vikunnar 2 0 4 6 8 IFjöldi I Upphæö vinninga á mann 0 1.000.000 1 100.000 13 ____10.000 112 | 1.000 VINNINGSTÖLUR MIÐVIKUDAGINN l 13.10.1999 l AÐALTÖLUR Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö 1. 6 af 6 2 20.397.190 2. 5 af 6 + bónus 0 339.130 3. 5 af 6 2 133.230 4. 4 af 6 161 2.630 3. 3 af 6+ Búnus 400 450 Alltaf á miðvikudögum Upplýsingar: LOTTÓ 5/38 1. vinningur verður þrefaldur næst. Bónusvinningurinn kom á miða sem var seldur í Tvistinum, Faxastíg 36, Vestmannaeyjum. JÓKER Miðinn með 100.000 króna vinn- íngnum í Jóker var seldur í Ábæ við Ártorg á Sauðárkróki. VÍKiNGALOTTÓ 1. vinningur skiptist á milli Svíþjóðar og Noregs. llpplýsingar í síma: 568-1511 Textavarp: 281, 283 og 284 í þágu öryrkja, ungmonna og íþrótta um bjcajuáj

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.