Morgunblaðið - 19.10.1999, Page 3

Morgunblaðið - 19.10.1999, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 B 3 ÍÞRÓTTIR KÖRFUKNATTLEIKUR Clifton Bush lék í 59 mínútur ÞRJÚ met féllu í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik um helg- ina. Bandaríski leikmaðurinn Clifton Bush hjá KFÍ setti met er KFÍ vann Skallagrím, 132:129, í fjórframlengdum leik í Borgarnesi á sunnudag- kvöld er hann lék í 59 mínútur. Enginn leikmaður hefur leikið eins margar nu'nútur í einum leik hér á landi, enda er venju- Iegur leiktfmi 40 minútur. Tómas Holton lék lengst Borg- nesinga, var inn á í 54 mínút- ur. Aldrei áður hefur leikur í efstu deild verið fjórfram- Iengdur. Eldra metið var þrjár framlengingar er Haukar mættu Tindastóli 16. október 1988. Þeim leik lauk með sigri Hauka, 141:134 og stendur það stigamet enn. A Akranesi léku ÍA og Ham- ar og urðu lokatölur 54:45 fyr- ir Hamar, sem trónir á toppi deildarinnar. Þetta er lægsta skor í einum leik í efstu deild, að sögn starfsmanna KKÍ. „Já, ég held að það sé alveg öruggt. Við höfum ekki fundið leik með lægra skori í gögnum okkar,“ sagði Pétur Hrafn Sig- urðsson, framkvæmdastjóri KKÍ. Keflvíkingar töpuðu fyrir Haukum á heimavelli sínum á sunnudagskvöld og var þetta fyrsta tap liðsins á heimavelli í tvö ár. Gengið upp og ofan hjá Fal og félögum í ToPo Morgunblaðið/Einar Falur Falur Harðarson gerði 29 stig fyrir finnska liðið ToPo f Evrópu- keppninni, en liðinu hefur ekki gengið vel í finnsku deildinni og hefur tapað þremur síðustu leikjum sínum. FALUR Harðarson átti stórleik með liði sínu, ToPo frá Finn- landi, er liðið lék í Evrópu- keppninni við júgóslavneska liðið Radnicki Jugopetrol í síð- ustu viku. Hann skoraði 29 stig er liðið tapaði, 69:64, á útivelli. „Þetta var langbesti leikurinn hjá mér frá því ég kom til finnska liðsins. Það hefur ekki gengið vel hjá okk- ur í deildinni því lykilmenn hafa verið meiddir og við höf- um þurft að skipta um báða útlendingana sem byrjuðu með okkur í haust,“ sagði hann. Liðið hefur leikið sex leiki í finnsku deildinni og unnið að- eins tvo og fjóra leiki í Evrópu- keppninni og unnið einn. Falur segist kunna vel við sig í Finnlandi og það væri vel búið að öllum leikmönnum liðsins. Æft er tvisvar á dag og leikið mjög stíft bæði í Evrópukeppninni og finnsku deildinni. ToPo lék um síðustu helgi við efsta lið deildarinnar, Turku, en tapaði með þremur stigum eftir framlengingu, 84:81. Falur gerði sjö stig í leiknum. „Það er óhætt að segja að gengi liðsins hafi verið upp og ofan. Við höfum misst báða útlendingana, Litháa og Bandaríkjamann. Lithá- inn sleit krossbönd og Bandaríkja- maðurinn fékk gott tilboð frá kín- versku liði rétt eftir að hann var bú- inn að skrifa undir samning við okk- ur og lét hálfpartinn reka sig til að komast til Kína. Bandaríkjamaður- inn sem við fengum í staðinn hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem bundnar voru við hann og ekki verið löglegur í Evrópukeppninni," sagði Falur. Hann segir að þeir hafi verið óheppnir í deildarleikjunum þar sem þeir hafa tapað þremur leikjum með fjórum stigum eða minna. Hann segist vera með 12 stig að Ólafur varði vel ÓLAFUR Gottskálksson varði vel í marki Ilibernian er liðið gerði 2:2-jafntefli við Motherwell í skosku úr- valsdeildinni um helgina. Er Ólafur sagður hafa komið í veg fyrir að Motherwell tækist að tryggja sér sigur, sem tvisvar sinnum fékk upp- lögð tækifæri til þess í síð- ari kálfleik en Ólafur varði í bæði skiptin. Honum tókst hins vegar ekki að koma í veg fyrir jöfnunarmark Motherwell sem var gert er komið var fram yfir hefð- bundinn leiktima. meðaltali í finnsku deildinni en 15 stig í Evrópukeppninni. Mikið álag er á liðinu og sem dæmi um það á liðið að spila fjóra leiki í finnsku deildinni á næstu átta dögum plús Evrópuleik. Mikið hefur mætt á Fal Guðmundur Benediktsson, leik- maður Islands- og bikarmeist- ara KR, er til reynslu hjá belgíska 1. deildarliðinu Verbroedering Geel. Guðmundur kom til Belgíu á laugardag og fylgdist með liðinu í bikarkeppninni, en þar tapaði það fyrir 3. deildarliðinu Bergen 4:3 í vítaspyrnukeppni. Hann sagði ekki ljóst hve lengi hann yrði hjá félag- inu, sem er í næstneðsta sæti 1. deildar. Guðmundur, sem var útnefndur í leikjum liðsins því hann er eini skotbakvörðurinn, hinir tveir eru meiddir og oftar en ekki hefur hann leikið allar 40 mínútumar. Hann segist ánægður með að- búnaðinn og gaman að hafa fengið knattspymumaður ársins í efstu deild á dögunum, æfði einnig með þýska 3. deildarliðinu Gútersloh fyrir helgi en hélt þaðan til Belgíu. Hann sagði að forráðamenn þýska liðsins hefðu sagt sér að þeir hefðu hug á að fá hann aftur til liðsins og skoða hann frekar. Guðmundur þekkir vel til í Belgíu en hann lék með Ekeren um nokk- urra ára skeið áður en hann gekk á ný til liðs við Þór á Akureyri árið 1994. tækifæri til að einbeita sér alfarið að körfuboltanum. Hann hefur komið sér vel fyrir í Helsinki ásamt fjölskyldu sinni. „Eg er ánægður með lífið og það er hugsað vel um okkur þó svo að árangur liðsins mætti vera betri. En finnska deild- in er rétt að byrja og ekki komin marktæk staða því liðin eru búin að spila mismarga leiki vegna Evr- ópukeppninnar," sagði hann. ToPo leikur heimaleiki sína í stórri íshokkíhöll sem tekur tíu þús- und áhorfendur. Falur segir að oft sé tómahljóð í höllinni því aðeins um þúsund áhorfendur hafa mætt á heimaleikina það sem af er tímabili. Hann segir að áhorfendum eigi eftir að fjölga þegar líður á veturinn. Hjörtur, samdi við ÍA SKAGAMENN hafa gert þriggja ára samning við Hjört Hjartarson, fyrrverandi leikmann Skallagríms og markakóng 1. deildar síðasta sumar. Hjörtur, sem lék með yngri flokkum IA áður en hann hélt til Skallagríms, gerði 19 mörk í 17 leikjum með Skallagrími í 1. deild í sumar. Alexander með nýjan samning Alexander Högnason, fyrirliði IA, og Ragnar Hauksson hafa framlengt samninga sína við Skagamenn. Báðir hafa gert þriggja ára samninga við- félagið. Heimir Guðjónsson, sem leikið hefur með Skagamönnum und- anfarin tvö ár, hefur einnig átt í við- ræðum við félagið um að endumýja samning sinn við það. Leiftursmenn ræða við Jens Martin ÓLAFSFIRÐINGAR hafa rætt við Færeyinginn Jens Martin Knudsen, markvörð Leifturs, og Einar Ein- arsson, fyrrverandi þjálfara KA, um að þeir taki að sér þjálfun Leifturs næsta sumar. Einar, sem lék áður með Leiftri, tók við þjálfun KA fyrir síðasta tímabil en hætti er árangur liðsins var ekki sem skyldi. Jens Martin þjálfaði um skeið í Færeyj- um áður en hann gerðist liðsmaður Leifturs. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa forsvarsmenn Leift- urs einnig rætt við Sigurð Lárus- son, fyrrverandi þjálfara IA, KA, Völsungs og Þórs Akureyri. DRAUMAFERÐ í DESEMBER Liverpool 3.-5. des. 1999 ÍT-ferðir skipuleggja fótbolta- verslunar- og skemmtiferð til bítlaborgarinnar Liverpool. Spurning dagsins: Hvert fara íbúar Dublin að versla? FRÁBÆRT VERÐ - MJÖG GOTT HÓTEL - HÓPAFSLÁTTUR! Möguleikar m.a.: Man. Utd. - Everton 4/12 Aston Villa - Newcastle 4/12 Liverpool - Sheff. Wed. 5/12 „The Magical Mystery TouK: Skoðunarferð á slóðir The Beatles, heimsókn á Bítlasafnið, í Cavern-klúbbinn o.m.fl. Skoðunarferðir um Anfield og Old Trafford. ÍT-ferðir, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, sími 588 9900, fax 588 9901, netfang: ittraveI@toto.is KNATTSPYRNA Guðmundur í Belgíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.