Morgunblaðið - 19.10.1999, Page 4

Morgunblaðið - 19.10.1999, Page 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Sverrir Edda L. Biöndal stóð sig best íslensku keppendanna á Norður- landamótinu og var m.a. útnefnd besta karatekona mótsins og fékk sérstök verðlaun af því tilefni. Edda hélt uppi heiðri íslands EDDA Blöndal úr Þórshamri hélt uppi heiðri íslands á Opna Norðurlandamótinu í karate sem fram fór í Laugardalshöll á laugardaginn. Hún vann ein silfurverðlaun og þrenn bronsverð- laun og var valin karatekona mótsins. Árangur íslenska liðsins olli nokkrum vonbrigðum enda var markmiðið fyrir mótið að vinna tvenn til þrenn gullverðlaun. Svíar voru sigursælastir á mótinu, hlutu fimm gullverðlaun, Eist- lendingar komu næstir með fern gullverðlaun og Skotar Valur B. og Finnar hlutu tvenn Jónatansson gullverðlaun. Allar skrífar þjóðirnar unnu gull- verðlaun nema Islend- ingar, sem hlutu samtals ein siifur- verðlaun og sjö bronsverðlaun. Halldór Svavarsson landsliðsþjálf- ari sagðist ekki alveg fyllilega sáttur við árangurinn. „Við vorum reyndar mjög nálægt því að komast í úrslit í tveimur flokkum, sem töpuðust í framlengingu. Síðan töpuðum við 3:2 fyrir Skotum í liðakeppninni, en hefðum við unnið Skota hefðum við keppt um gullið. Þannig að við vor- um mjög nálægt því að keppa um þrenn gullverðlaun eins og stefnt var að. Það er í sjálfu sér ágætt að ná í ein silfurverðlaun og nokkur brons- verðlaun, en það verður að segjast eins og er að þetta urðu viss von- brigði,“ sagði landsliðsþjálfarinn sem einnig keppti á mótinu. „Já, það var frekar stutt gaman hjá mér því ég sparkaði niður andstæðing minn eftir aðeins tíu sekúndur og var dæmdur úr leik,“ sagði hann. Hann sagði að þetta væri lang- sterkasta Norðurlandamótið sem haldið hefur verið og þau ættu eftir að vera enn stærri og sterkari því Eystrasaltsríkin verða með á næstu mótum og síðan verður tveimur til þremur öðrum þjóðum boðið líka. Fyrstu NM-verðlaun Eddu Edda, sem er 23 ára, sagðist ánægðust með árangurinn í opna flokknum í kumite þar sem hún náði þriðja sæti. „Ég vann sænsku stúlk- una Lia Zegey, sem ég hef aldrei unnið áður og því get ég verið ánægð með það því hún er mjög sterk kara- tekona. Það voru að vísu fáir kepp- endur í kvennaflokki og ég þurfti því ekki að vinna marga bardaga, en við getum sagt að þetta hafi verið fá- mennt en góðmennt. Hins vegar var ég óheppin í nokkrum viðureignum þar sem ég fékk refsistig fyrir of harðar árásir. En ég get ekki annað en verið nokkuð ánægð með árang- urinn í heild.“ Hún hefur æft karte í sex ár og segist enn ung í íþróttinni og voru þetta fyrstu verðlaun hennar á Norðurlandamóti. „Bestu karatekon- urnar eru í kringum 28 til 29 ára ald- ur þannig að ég á mörg ár eftir enn. Ég er ákveðin í að halda áfram að æfa á fullu og markmiðið er að bæta sig enn frekar," sagði Edda, sem þjálfar krakka í íþróttinni hjá Þórs- hamri og segist hafa mikla ánægju af því. Edda segir að mikill áhugi sé á íþróttinni hjá krökkum og aukning verið hjá öllum karatefélögunum síð- ustu ár. Hún sagði að um 130 krakk- ar æfi hjá Þórshamri sem er fjöl- mennasta karatefélagið. „Það er ofsalega mikill agi í karate og krakk- amir hafa mjög gott af því. Við erum ekki að kenna krökkunum árásar- tækni, heldur mest aga og virðingu. Þeir öðlast meira sjálfstraust og það er markmiðið með þjálfuninni," sagði hún. Haukar lögðu meistarana í Keflavík „TRÚIN flytur fjöll og menn þurfa að trúa því að það sé hægt að sigra Keflvíkinga og síðan er að leika af skynsemi og það tókst okkur í dag. En mér sýnist að lið þeirra sé ekki eins sterkt nú og það hefur verið,“ sagði ívar Ásgrímsson þjálfari Hauka frá Hafn- arfirði eftir að lið hans hafði gert sér lítið fyrir og sigrað íslands- og bikarmeistara Keflvíkinga 87:82 á spennandi lokamínútum í Keflavík á sunnudaginn. Það eru tæp tvö ár síðan Keflvík- ingar hafa tapað leik í deildar- keppninni heima og síðast voru það einmitt Haukar sem Björn hrósuðu sigri í Kefl- Blöndal vík. í hálfleik var skrifar staðan 45:43 fyrir heimamenn. Guðjón Skúlason fyrirliðið Keflvíkinga gat ekki leikið með liði sínu að þessu sinni þar sem hann er meiddur og munar um minna. Haukamir komu Keflvíkingum greinilega á óvart með ágætum leik og það voru þeir sem náðu fljótlega undirtökunum, nokkuð sem heima- menn eru ekki vanir. Það voru síðan lokamínútumar sem réðu úrslitum og þar voru Haukarnir sterkari. Keflvíkingar höfðu þá misst tvo menn útaf með 5 villur og þar á meðal Bandaríkjamanninn Chinati Roberts sem hafði leikið mjög vel. Þegar ein mínúta var til leiksloka var staðan 80:75 fyrir Hauka og þann mun tókst heimamönnum ekki að vinna upp þrátt fyrir mikla bar- áttu. „Við voram slakir í þessum leik - þetta var ekki okkar dagur,“ sagði Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflvíkinga eftir leikinn. Gunnar Einarsson, Chinati Rog- berts, Kristján Guðlaugsson og Elentínus Margeirsson voru bestir hjá Keflvíkingum. Guðmundur Bragason, Jón Amar Ingvarsson, Bragi Magnússon og Chris Dade vora bestir hjá Haukum. Auðvelt hjá Grindavík Grindvíkingar sóttu Þórsara heim í íþróttahöllinni á Akur- eyri á sunnudagskvöldið í fjórðu umferð úrvalsdeildar- innar í körfuknattleik. Heimamenn stóðu í gestunum fyrstu mín- útur leiksins en þá skildi í sundur með liðunum og í leikhléi höfðu Grindvíkingar 21 stigs forystu. Þeir hleyptu Þórsur- um aldrei inn í leikinn í síðari hálf- leik og unnu öruggan sigur, 110:76. Leikurinn fór fjörlega af stað og ljóst að bæði liðin ætluðu sér sigur. Leikurinn var í járnum fram undir miðjan fyrri hálfleikinn og var staðan þá 19:18 Þórsurum í hag. Herman Myers barðist af kappi gegn fyrrum félögum sínum í Gr- indavíkurliðinu í byrjun en úthald- ið var ekki upp á marga fiska. Þeg- ar hann þurfti að fara á bekkinn til að safna kröftum kom góður kafli hjá gestunum og allt í einu var staðan orðin 20:32 þeim í hag. Þeir slökuðu hvergi á og juku forskotið jafnt og þétt. Sóknarleikur þeirra var bæði hraður og fjölbreyttur en heimamenn voru í mestu vandræð- um með að koma boltanum ofan í körfuna. I leikhléi höfðu Grindvík- ingar þægilegt forskot, 55:34. Þótt Þórsarar væra ekkert á þeim buxunum að leggja árar í bát náðu þeir ekki að saxa á forskot Gr- indvíkinga í seinni hálfleik. Gestirn- ir héldu fullri einbeitingu og héldu áfram að spila árangursríkan sókn- arleik þar sem þeir spiluðu sig gegnum götótta Þórsvörnina og skutu langskotum á víxl. Þórsarar áttu í erfiðleikum í sókninni, töpuðu Valur Saemundsson skrífar boltanum oft og náðu ekki að ógna að ráði. Myers sat langdvölum á bekknum, örmagna, á meðan Brent- on Birmingham í Grindavíkurliðinu virtist geta gert það sem honum sýndist án þess að svitna veralega. Munurinn jókst þó ekki seinni hluta hálfleiksins og lokatölumar urðu 110:76. Hjá heimamönnum var Herman Myers sterkur þær mínútur sem hann var inni á, þótt hittnin mætti vera betri. Hafsteinn Lúðvíksson átti góðan fyrri hálfleik en lítið bar á honum eftir hlé. Þá var Ein- ar Örn Aðalsteinsson aftur á móti hvað atkvæðamestur, eftir að hafa aðeins skorað eitt stig í fyrri hálf- leik. Brenton Birmingham skoraði 40 af stigum Grindavíkurliðsins en var samt duglegur við að leika fé- laga sína uppi. Allir leikmenn liðs- ins áttu annars góðan dag og ljóst að liðið er líklegt til afreka í vetur. KR-ingar voru rótburstaðir enn vora hungraðir í sigur - við voram á tánum allan leik- og góður vamarleikur gerði gæfumuninn," sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir að þeir höfðu rótburstað vestur- KR í Ljónagryfjunni í á sunnudagskvöldið. Lokatölur leiksins urðu 102:65 sem er ótrúlega mikill munur. I hálfleik var staðan 38:30. Njarðvíkingar tefldu fram nýjum erlendum leik- manni, Jason Hoover frá Banda- ríkjunum. Hann stóð sig vel og var stigahæstur í liði UMFN. Það vora þó KR-ingar sem byrj- uðu betur og komust í 21:14, en þá urðu straumhvörf í leiknum, Njarð- víkingar settu 15 stig í röð og breyttu stöðunni í 29:21. Þetta virt- ist setja KR-inga algerlega út af laginu því þeir gerðu nánast lítið af viti það sem eftir iifði leiks. Rot- höggið fengu þeir síðan í upphafi síðari hálfleiks þegar Njarðvíking- ar settu 22 stig gegn aðeins 7 stig- um KR á fyrstu 7 mínútunum. Eftir Björn Blöndal skrífar bæjarlið Njarðvík Björn Bjömsson skrífar það var aðeins formsatriði fyrir heimamenn að Ijúka leiknum. Njarðvíkingar léku oft vel og sér- staklega var liðsheildin góð að þessu sinni. Nýi maðurinn, Jason Hoover, stóð sig vel og á öragglega eftir að gera góða hluti. Páll Krist- insson náði sér vel á strik og Teitur setti fimm 3ja stiga körfur eins og honum einum er lagið. Þetta var ekki dagur KR-inga og Ijóst að þeir þurfa að skoða sinn gang því greini- legt er að meira býr í liðinu en þetta. Allt annað lið Tindastóls Tindastólsmenn rifu sig upp úr öldudalnum er þeir lögðu Snæ- fell, 100:61, á heimavelli á sunnu- daginn. Það var veru- legur munur að sjá leik Tindastólsliðsins eftir að skipt var um erlenda leikmenn í herbúðum þess í síðustu viku og hinn nýi liðsmaður, Shawn Myers, virtist ná sér vel á strik í fyrsta leik sínum. Mikið var um mistök í byrjun og þannig náði hvorugt liðið að skora úr sex fyrstu sóknunum, en þá tók Baldur Þorleifsson af skarið og skoraði fallega 3ja stiga körfu og áður en langt um leið höfðu gestim- ir komist í 2-9. Heimamenn tóku þá leikhlé og komust eftir það betur inn í leikinn, en það var ekki fyrr en þegar 7 mínútur vora eftir af hálfleiknum að þeir komust yfir og juku foryst- una fram til leikhlés. í síðari hálfleik tóku heimamenn af skarið þegar á upphafsmínútun- um, og í raun var ekki spurning um hvort liðið mundi vinna heldur hversu stór sigurinn yrði. í liði Tindastóls áttu mjög góðan leik þeir Valur Ingimundarson, Shawn Myers og Sune Hendriksen, en einnig voru mjög traustir Svavar Birgisson, og Sverrir Sverrisson, og Lárus Dagur var góður í vörn- inni og skoraði þrjár fallegar 3ja stiga körfur. Hjá Snæfelli var Kim Lewis bestur, en mikið mæddi á öllu lið- inu, þar sem nokkuð virtist vanta á að varamannabekkur væri skipaður og raunar aðeins tveir skiptimenn, en Jón Þór Eyþórsson, Sigtryggur Jónatansson og Pálmi Fr. Sigur- geirsson börðust einnig vel þó að við ofurefli væri að etja. Islands- og bikar- meistararnir mætast UM helgina var dregið í 32-Iiða úrslit í bikarkeppni KKÍ og drógust Suðurnesjaliðin Keflavík og Njarðvík saman, en þessi lið mættust einmitt í bikarúrslitaleiknum í fyrra. „Þessi lið luku bikarkeppninni í fyrra og hefja hana aftur núna. Svona er bik- arkeppnin, það er þetta óvænta sem er spennandi þegar dregið er í bikarnum," sagði Pétur Hrafn Sigurðsson, framkvæmda- stjóri KKÍ. Eftirtalin Iið drógust saman: Breiðablik - Hamar, Dalvík - Sel- foss, Stjarnan - Grindavík, Keflavfk - Njarðvík, Fjölnir - Hauk- ar, Ármann/Þróttur - Tindastóll, ÍS - KR, Stafholtstungur - KR- b, Þór Akureyri - KFÍ, Þór Þorlákshöfn - Skallagrímur, HK - Snæfell, ÍV - ÍR, Golfklúbbur Grindavíkur - Smári, Valur - ÍA og Örninn og Reynir Sandgerði sitja hjá í 32-liða úrslitum og Ijóst að þau eru komin í 16-liða úrslit. ikir eiga að fara fram 30. og 31. október.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.