Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 5

Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 B 5 KORFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Jim Smart Skagamaðurinn Sveinbjörn Ásgeirsson sækir að körfu Hamars, þar sem Ómar Ö. Sigmarsson, Hjalti Pálsson og Óli S. B. Reynisson eru til varnar. Nýliðarnir gefá ekkerl eftir SIGURGANGA nýliða Hamars heldur óslitin áfram eftir leiki helg- arinnar, því með 45:54 sigri á Skagamönnum á Akranesi á sunnudagskvöldið tróna þeir einir á toppi deildarinnar eftir sigra í öllum fjórum leikjum sínum. Elstu menn segjast ekki muna eftir lægra stigaskori en ástæðan fyrir því er ekki slíkur fyrirtaks varnarleikur heldur var sóknarleik beggja liða afar áfátt. Það leið og beið eftir íyrstu stig- unum. Varnir beggja liða voru á tánum á móti taugastrekktum sókn- arleik og líf komst Stefán ekki í leikinn fyrr en Stefánsson Skagamenn glutruðu skrífar boltanum þrisvar í röð í hendur Hver- gerðinga, sem þökkuðu pent fyrir sig og náðu 7:14 forystu. Sú sæla stóð stutt yfir því Skagamenn jafna en eftir þriggja stiga skot Ómars Sig- marssonar á síðustu sekúndu höfðu Hvergerðingar 22:19 í leikhléi. Síðari hálfleikur var jafn framan af en leikmenn voru engu síður orðn- ir þreyttir og eyddu tíma i að röfia í annars ágætum dómurum leiksins, sem sýndu þeim þolinmæði. Þegar svo Skagamenn steingleymdu sér í vörninni um tíma nýttu gestirnir það og náðu níu stiga forystu, 31:40. Þá tóku heimamenn leikhlé og réðu ráð- um sínum, sem dugði til að þeir fóru að saxa á forskotið uns það varð 3 stig þegar 38 sekúndur vora til leiksloka. Þá gekk ekkert upp hjá þeim og Hamarsmenn skoraðu síð- ustu sex stigin í leiknum áður en þokulúðurinn í íþróttahúsinu á Akra- nesi gall við. „Eg trúði ekki að það gæti gengið eins illa að skora og raun bar vitni en vörnin var samt góð,“ sagði Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari Skaga- manna, þar sem hann var enn að ná áttum eftir leikinn. Hann náði sér samt á strik: „En við eigum að geta unnið hvaða lið sem er ef sóknarleik- urinn kemst í lag því að vörnin hjá okkur er í lagi.“ Reid Beckett bar höfuð og herðar yfir leikmenn ÍA en Ægir H. Jónsson, Magnús Guð- mundsson og Brynjar Sigurðsson áttu góða spretti. Liðið stóð sig ágætlega í vítaskotum þegar öll tíu fóra ofan í körfuna en á móti kemur að liðið tapaði boltanum í 27 skipti. Annað hljóð var í strokknum hjá Pétri Ingvarssyni, leikmanni og þjálfara Hamars. „Þetta er betri byrjun á mótinu en ég bjóst við og þessi sigur ágætur, sérstaklega þar sem þeir hafa sagt að þeir séu með bestu vöm á landinu,“ sagði hann. „Það var gaman að þessu og á meðan svo er og sjálfstraustið er í lagi mun- um við hafa gaman að þessu áfram. Ætli það megi ekki frekar fara að tala um Suðurlandsliðið í stað þess að segja Suðurnesjalið," bætti Pétur við en hann stóð sig vel ásamt Rodney Dean, Ómari, og Skarphéðni Jóns- syni. Hvergerðingar voru litlu skárri þegar kemur að því að tapa boltanum til mótherja en það gerðist í 24 skipti. Baráttusigur hjá IS JT IS-stúlkur unnu heimastúlkur í Grindavík í baráttuleik á laugar- dag í 1. deild kvenna í körfuknatt- ■■■■■■■■ leik, 40:33. Þær vora Garðar Páll yfir nánast allan leik- Vignisson inn nema í hálfleik, skrifar en Grindavíkurstúlk- ur komust einu sinni yfir í leiknum, 20:19. Bæði lið komu gríðarlega grimm til leiks í seinni hálfleik og spiluðu grimma vörn. Það tók fjórar mínútur að skora fyrstu stig seinni hálfleiks og þau komu úr þriggjastigaskoti ÍS stúlkna sem létu forastuna eftir það ekki af hendi. Bestar í liði gestanna voru þær Georgía Kristiansen og Jófríður Halldórsdóttir. Hjá heimastúlkum var Sólveig Gunnlaugsdóttir allt í öllu og skoraði 20 af 33 stigum heimastúlkna. KR-liðið lék tvo leiki á Sauðár- króki og vann báða - 76:54 og 73:44. Fjórframlengt í Borgarnesi LEIKUR Skallagríms og KFÍ í Borgarnesi á sunnudaginn verður eftirminnilegur fyrir margra hluta sakir. Staðan í hálfleik var 43:44 og 75:75 eftir venjulegan leiktíma. Úrslit náðust ekki fyrr en eftir fjórðu framlengingu. Lokatölur urðu 129:132 og hlutu ísfirðingar þar með sín fyrstu stig í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Sigur-sigur-sigur hljómaði úr búningsklefa KFÍ rétt fyrir upp- haf leiksins. Liðið var búið að leika ■■■■■■■I þrjá leiki og tapa öll- Ingimundur ™ Og þyrsti því í Ingimundarson sigur. Fjöldi áhan- skrifar genda liðsins var á áhorfendapöllum og hafði hátt allan tímann. Gestirnir skoruðu fyrstu körfuna en Sigmar Páll Egilsson svaraði með þriggja stiga körfu. Leikmenn KFI léku hratt og fast og líktust fyrstu mínút- ur leiksins frekar handknattleik af þeirra hálfu en körfuknattleik. Um miðjan fyrri hálfleikinn var staðan 18:25. Gestirnir hittu vel og náðu gjarnan fráköstum en heimamenn drógu á með vítaskotum. KFÍ hélt uppi hraðanum. Vora leikmennirnir að vestan óragir að hlaupa inn í sendingar og fengu á sig 13 villur strax í fyrri hálfleik. En Clifton Buch í liði þeirra slapp vel. Hann komst upp með brot sem aðrir vora dæmdir fyrir. Gestirnir komust í 25:35 er átta mín. voru eftir af fyrri hálfleik, en heimamönnum tókst að laga stöðuna í 43:44 rétt fyrir leikhlé. Skot frá Hlyni Bæringssyni small í körfunni er fiautan gall við. Var það forsmekkurinn að því er á eftir kom. Tómas Holton gaf tóninn í byrjun síðari hálfleiks með fallegri körfu. Leikmenn Skallagríms voru mun ákveðnari en áður en gestirnir hittu verr en í fyrri hálfleik, fengu nú dæmdar á sig villur fyrir brot sem þeir komust upp með í fyrri hálfleik. Enda létu leikstjóri og þjálfari KFI ófriðlega á hliðarlínunni. Mest var um stimpingar og pústra en minna skorað. Eftir fimm mín. leik var staðan 53:48. Sigmar Páll tók Clifton Buch í gæslu svo hann fékk engan frið. Er seinni hálfleikurinn var hálfnaður var staðan 60:56 en KFÍ- menn jöfnuðu, 63:63, er sjö mín. vora eftir. Skömmu síðar fór þjálfari Skallagríms, Dragisa Saric, af leik- velli með fimm villur er staðan var 67:66. Síðustu mínútur síðai'i hálf- leiksins vora tryllingslegar. Heima- menn reyndu að leika langar sóknir en gestirnir börðust gi'immt. Skalla- grímsmenn hófu sókn eftir leikhlé er staðan var 75:72 og 1,34 mín. eftir en misstu boltann. Guðni Guðnason skoraði fyrir KFÍ, fékk villu og jafn- aði leikinn, 75:75. Sóknir beggja liða mistókust, sem eftir lifði, og því varð að framlengja um fimm mín. í fyrstu framlengingu náðu heima- menn öraggri forystu, 82:76, en er 47,6 sek. voru eftir og staðan 82:81 fór fyrsti leikmaður KFI af leikvelli með fimm villur. Tómas Holton kom stöðunni í 84:81 en Baldur hjá KFÍ jafnaði, 84:84, um leið og flautan gall. I annarri framlengingu vii'tist sem allur máttur væri úr KFI-mönnum og heimamenn komust í 89:84, en Birgir Mikaelsson í liði Skallagríms hvarf af velli með fimm villur og Baldur hjá KFÍ tók nú við að skora. Ai'i Gunnarsson kom Skallagrími yf- ir, 96:94, er tæp hálf mín. var eftir en mistókst að skora úr vítaskoti og gestirnir jöfnuðu, 96:96, þegar 3,3 sek. vora eftir og þvi varð að fram- lengja í þriðja sinn. Gestirnir tóku frumkvæðið og komust í 99:101 og í 102:105 er ein og hálf mín. var eftir. Tíminn var að renna út og staðan 107:110 þegar Tómas Holton jafnaði með þriggja stiga skoti. Enn þurfti að framlengja og nú í fjórða sinn og þakið ætlaði bókstaflega að rifna af íþróttahúsinu. Annar dómari leiksins fullyrti við undirritaðan að slíkt hefði aldrei gerst fyrr í sögu körfuknattleiksins á Islandi. Er leið á fjórðu framlenginguna voru sex leikmenn Skallagríms komnii' út af með fimrn villur og fjór- ir leikmenn KFÍ, en Clifton Buch var enn með! Réð það miklu um úr- slit leiksins. Heimamenn hittu illa og gestirnir komust í 114:121. Þá gerði Pálmi Þórisson þriggja stiga körfu og Finnur Jónsson gerði tvær slíkar með stuttu millibili og kom stöðunni í 123:124 er rúm hálf mín. var til leiksloka. Þá voru aðeins fjórir Skallagrímsmenn eftir. Völundur lagaði stöðuna fyrir Skallagrím í 126:128 er 16,8 sek. vora eftir og Trausti F. Jónsson jafnaði í 129:129 en Isfirðingar svöraðu strax og Baldur hjá KFÍ gerði út um leikinn með vítaskoti. Lokatölur urðu 129:132. Gestirnir fögnuðu að vonum ákaft sigri efth’ mikla baráttu og sín- um fyrstu stigum eftir fjórar um- ferðir. Lið Skallagríms lék betur nú en oft áður. Tómas Holton lék manna best, en hann var inná samtals í 54 mín.! Aðrir leikmenn liðsins áttu góða spretti. Skagamaðurinn Trausti F. Jónsson lék sinn fyrsta leik með Skallagrími á heimavelli. Stóð hann sig vel og hefði að ósekju mátt vera meira inná. Lið KFÍ barðist af mikilli grimmd og var stundum á mörkunum að til- burðir sumra leikmanna ættu heima í körfuknattleik. Clifton Buch var yf- irburðamaður í liðinu, auk þess sem hann var í sérstöku uppáhaldi hjá dómurunum. En Pétur M. Sigurðs- son og Baldur I. Jónsson áttu ágæt- an leik. Þá sótti Guðni Guðnason í sig veðrið eftir því sem framlenging- um íjölgaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.