Morgunblaðið - 19.10.1999, Síða 9

Morgunblaðið - 19.10.1999, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 B 9 KNATTSPYRNA SSSK w wk V ÆSt Wi vll S wmm láÉii Rcutcrs Fyrsti sigur Dortmund í Bielefeld í 14 ár LEIKMENN Borussia Dortmund fögnuðu fyrsta sigri liðsins í Bi- elefeld í fjórtán ár - með því að leggja heimamenn að velli, 2:0. Dortmund heldur þar með efsta sætinu í Þýskalandi. Huub Stevens, þjálfari Schalke, sem var orðinn valtur í sessi, getur andað léttar um tíma a.m.k. Liði hans tókst að leggja Stuttgart að velii, 2:0. Bayern Munchen átti ekki í mikl- um vandræðum með Herthu Berlín, 3:1. Brasilíumaðurinn Paulo Sergio skoraði tvö mörk fyrir Bæjara. Eyjólfur Sverrisson náði sér ekki á strik með Herthu - virkaði þreytt- ur og var tekinn af velli eftir fyrri hálfleik. Hamborg átti heldur ekki í nein- um erfiðleikum með Freiburg, 2:0. Butt, markvörður Hamborgarliðs- ins, skoraði enn eitt markið úr vita- spyrnu og hefur hann skorað úr tíu vítaspyrnum í röð. Ulf Kirsten skoraði tvö mörk fyr- ir Leverkusen, sem vann Ulm ör- ugglega, 4:1. Dwight Yorke (t.h.J, markahrókur Manchester United, fagnar hér marki sem hann skoraði gegn Watford á Old Trafford, ásamt félaga sínum Mikael Silvestre. FOLK ■ GUÐNI Bergsson og Eiður Smári Guðjohnsen voru báðir í liði Bolton sem vann Huddersfield 1:0 í 1. deild- inni í Englandi. ■ BJARNÓLFUR Lárusson lék með Walsall sem vann Lárus Orra Sig- urðsson og félaga í WBA 1:0 í 1. deildinni í Englandi. ■ GLASGOW Celtic burstaði Aber- deen 7:0 í skosku úrvalsdeildinni. Henrik Larson og Eyal Berkovic gerðu báðir þrennu og Mark Viduka gerði eitt mark. ■ HELGI Kolviðsson og félagar í Mainz unnu Alem. Aachen 4:2 í þýsku 2. deildinni. Helgi lék allan leikinn. Liðið er níunda sæti deildar- innar með 12 stig eftir átta leiki. ■ BIRKIR Kristinsson var í marki Lustenau sem tapaði 3:0 fyrir FC Tirol í austurísku 1. deildinni á föstudag. Lustenau er í 9. sæti í 10 liða deild. ■ HELGI Sigurðsson skoraði eitt mark fyrir Panathinaikos sem vann Kalamta 5:0 í grísku 1. deildinni á sunnudag. ■ ARNAR Grétarsson var í byrjun- arliði AEK sem vann Iraklis 3:2. Hann fór út af undir lok leiksins. ■ TÓMAS Ingi Tómasson lék allan leikinn með AGF sem gerði l:l-jafn- tefli við Vejle í dönsku 1. deildinni. Ólafur Kristjánsson lék í 75. mínút- ur með AGF. ■ ARNAR Þór Viðarsson átti góðan leik með Lokeren sem vann Club Brugge 1:0 í belgísku bikarkeppn- inni um helgina. Þá lék Þórður Guð- jónsson með Genk sem vann Ton- geren 3:0 í sömu keppni. ■ SVO kann að fara að Ally McCoist verði að leggja skóna á hill- una eftir að hann fótbrotnaði um helgina í leik með Kilmarnock gegn sínum fyrrverandi félögum í Ragners. Brotið er slæmt og talið að sinn tíma muni taka að jafna sig, en McCoist er 37 ára og var farinn að huga að leiðarlokum á knattspyrnu- vellinum, en hann er einn allra mesti markahrókur skoskrar knattspyrnu frá upphafi. Leeds hélt velli Andy Cole og Dwight Yorke fóru á kostum í framlínu Manchest- er United er liðið vann 4:1-sigur á Watford og Arsenal fór ham- förum gegn Everton í síðari hálfleik og skoraði þrjú mörk. Leeds heldur enn efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar er liðið lagði Sheff. Wed 2:0. Þá rak Liverpool af sér slyðruorðið og bar sigurorð af Chelsea, sem missti tvo leikmenn af velli. Reuters Króatinn Davor Suker skoraði tvö mörk fyrir Arsenai. Suker, sem er einn mesti markvarðahrellir Evrópu, hefur skorað sex mörk í fimm leikjum sem hann hefur byrjað inná með Arsenal. Þrátt fyrir að Liverpool hafi nú unnið Arsenal og Leeds hefur því ekki gengið vel í deildinni og mistekist að komast meðal efstu liða. Gerard Houllier, knatt- spyrnustjóri Liverpool, gat hins vegar leyft sér að brosa er liðið bar sigurorð af Chelsea. Houllier viðurkenndi engu að síður að Li- verpool hefði mátt þakka fyrir stigin því Chelsea hefði misst tvo leikmenn út af: þá Marcel Desailly og Dennis Wise. „Okkur tókst aldrei að vinna liðin í efstu sætun- um á síðasta tímabili en nú hefur okkur tekist að vinna þrjú lið, sem líkleg eru til þess að lenda i efstu sætum deildarinnar.“ Fátt gekk upp hjá Chelsea í þessum leik og Gianluca Vialli, knattspyrnustjóri Chelsea, átti erfitt með að hafa stjórn á tilfinningum sínum að leik loknum, var greinilega óánægður með niðurstöðu leiksins. „Ég legg ekki í vana minn að ræða frammi- stöðu dómara en leikurinn gat ekki gengið eðlilega fyrir sig því dóm- arinn flautaði alltof mikið. En ég verð að sætta mig við þá ákvörðun sem dómarar taka í leikjum liðs- ins.“ Þrátt fyrir að Leeds hafi borið sigurorð af Sheffield Wednesday, 2:0, og að liðið hafi unnið níunda sig- urinn í röð og jafnað met félagsins frá 1931 var David O’Leary, knatt- spymustjóra Leeds, ekki hlátur í huga. Hann sagði að sitt lið hefði gert mikið af mistökum gegn botn- liði Sheff. Wed. „Við vorum heppnir en lukkan þarf að vera til staðar ef vel á að ganga. Það er góð tilfinning að vinna þrátt fyrir að liðið leiki ekki vel.“ Danny Wilson, knatt- spyrnustjóri Sheff. Wed., sagði að ekki væri langt þar til liðið kæmist af mesta hættusvæði deildarinnar. „Mér fannst liðið leika einstaklega vel og liðið fékk að minnsta kosti 14 tækifæri til þess að skora, en við gerðum mistök sem kostuðu okkur sigur.“ Egil Olsen, knattspymustjóri Wimbledon, sagði að 3:2-sigur liðs- ins gegn Bradford væri kærkominn, enda fyrsti heimasigur um tíma. Wimbledon hóf leikinn vel og John Hartson gerði tvö mörk í fyrri hálf- leik og Carl Cort bætti við einu skömmu fyrir leikslok. Olsen taldi að lið sitt væri loks búið að ná sér eftir 5:l-ósigur gegn Sheff. Wed. fyrir skömmu og sagðist ekki eiga von á að tapa aftur með slíkum hætti á keppnistímabilinu. Coventry hóf leikinn gegn Newcastle með glæsibrag og skor- aði þrjú mörk fyrir leikhlé. Ekki bætti úr skák fyrir Newcastle að Warren Barton var rekinn af velli á 30. mínútu og er því annar leikmað- ur liðsins til þess að fá rautt spjald í síðustu tveimur leikjum þess. Bobby Robson, knattspymustjóri Newcastle, sagði að framkoma Barton í leiknum væri heimskuleg. „Við megum ekki við því að leika manni færri meirihluta leiksins, eins og við höfum gert síðustu tvo leiki liðsins,“ sagði Robson og benti á að Barton yrði hegnt fyrir brotið. Með sigri náði Coventry að koma sér af hættusvæði deildarinnar en Gordon Strachan, knattspymu- stjóri liðsins, sagði að ýmislegt hefði farið úrskeiðis í leiknum. „Þrátt fyrir sigur hófum við leikinn ekki nægilega vel og [Magnusj Hedman, markvörður liðsins, varði nokkrum sinnum sérlega vel. Það sama var upp á teningnum gegn Everton fyrir skömmu og ljóst að við verðum að gera betur í næstu leikjum." Leikmenn Manchester United létu ekki 5:0-tap gegn Chelsea í síð- ustu umferð hafa nein áhrif á sig og fóru létt með Watford og unnu 4:1. Andy Cole og Dwight Yorke, fram- herjar United, fóru á kostum og meira að segja Graham Taylor, 26 rauð spjöld á lofti MET var sett er 26 knattspyrnuraenn í Englandi og Skotlandi var vikið af velli um helgina. Fyrra metið var sett fyrir þrett- án árumer 16 leikmönnum var vikið af vellli í einni umferð í deildakeppninni. I ensku úrvaldeildinni fengu sex leikmenn rauð spjöld um helgina: Marcel Desailly og Dennis Wise, Chelsea, Warren Barton, Newcastle, Mark Williams, Wat- ford, Kevin Davies, Southampton, og Shaka Hislop hjá West Ham. knattspymustjóri Watford, gat ekki annað en lofað frammistöðu þeirra í leiknum. Taylor viðurkenndi að, Man. Utd. hefði yfirspilað sitt lið og hann óttaðist að Watford gæti tapað fleiri leikjum með slíkum mun í vet- ur. „Við eigum eftir að tapa illa á þessu tímabili en liðið getur ekki látið slíkt á sig fá og verður að ná fyrri styrk, eins og það hefur sýnt nokkrum sinnum áður á þessu tíma- bili.“ Arsenal er nærri Leeds og Man. Utd. við topp deildarinnar en liðið fór hamförum gegn Everton og vann 4:1 á Highbury. Arsene Wen- ger, knattspymustjóri liðsins, var kátur í leikslok og sagði að sitt lið hefði leikið sinn besta leik í síðari hálfleik, en þá gerði það þrjú mörk. „Við áttum undir högg að sækja í , byrjun enda tókst þeim að skora fyrsta mark leiksins. En liðið gafst ekki upp og Everton átti ekki möguleika í síðari hálfleik.“ Davor Suker gerði tvö mörk fyrir Arsenal og hefur nú gert sex mörk fyrir liðið í þeim fimm leikjum sem hann hefur byijað. Dave Jones, knattspyrnustjóri Southampton, kenndi dómara leiks- ins um 2:l-tap gegn Leieester. Kevin Davis var sendur af velli fyrir brot aðeins níu mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður í stað Mark Hughes. Jones sagði að” brottreksturinn væri rangur og að dómarar í ensku úrvalsdeildinni væm ekki að sinna starfi sínu sem skyldi. „Slíkir dómarar gera út af við leiki og það verður að grípa í taumana. Satt að segja veit ég ekki hvað er til ráða en það getur ekki talist eðlilegt hve dómarar eru spjaldaglaðir um þessar mundir.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.