Morgunblaðið - 07.11.1999, Page 1

Morgunblaðið - 07.11.1999, Page 1
ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER1999 BLAÐ E AJVINNUAUGLÝSINGAR Fræðimannsstyrkir Atl- antshafsbandalagsins ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ tilkynnir í auglýsingu í dag að það muni „að venju veita nokkra fræðimanns- styrki“ til rannsókna og eru nú styrkir fyrir tímabilið 2000/2002 lausir til umsóknar. Fram kemur að umsækj- endur þurfi að vera frá aðildarríkjum NATO eða sam- starfsríkjum þess og er jafn framt gert ráð fyrir að um- sækjendur hafi lokið námi við viðurkenndan háskóla. Það er þó ekki án undantekninga. Einnig er veittur sérstakur styrkur, Manfred Wömer styrkurinn sem stofnað var til í minningu fyrrverandi aðalframkvæmdastjóra NATO. Hér um einn styrk að ræða, að upphæð tæplega 1,5 milljónir ís- lenskra króna. I auglýsingunni kemur fram að styrkurinn sé aðeins veittur viðurkenndum fræðimönnum, rannsókna- stofnunum eða mikla starfsreynslu á fjölmiðlum. Laust starf sérfræðings FRAMHALDSSKÓLA- og fuliorðinsfræðsludeiid mennta- málaráðuneytisins auglýsir í dag laust starf séfræðings. Fram kemur að um sé að ræða fullt starf frá næstu alda- mótum og að meginviðfangsefni verði tengsl við framhalds- skóla og starfsgreinaráð, réttindamál kennara, gagna- vinnsla og fleira á þeim vettvangi eins og þar stendur. Ösk- að er eftir háskólalærðum manni með reynslu af gagna- vinnslu og meðferð algengustu tölvuforrita. Þá er kennslu- reynsla á framhaldsskólastigi talin æskileg. Staða deildarstjóra SKATTSTJÓRINN í Norðurlandsumdæmi eystra auglýs- ir í dag laust til umsóknar starf deiidarstjóra í tekja- skattsdeild. Óskað er eftir viðskiptafræðingi eða aðila með sambærilega menntun og reynslu á þessu sviði. Launakjör eru sögð í samræmi við kjarasamninga opinberra starfs- manna. Sérfræðing a Selfoss BÚNAÐARBANKI íslands leitar að sérfræðingi í útibú bankans á Selfossi. Fram kemur í auglýsingu bankans að leit- að sé að einstaklingi með háskólamenntun á sviði viðskipta eða sambærilega menntun og að eingöngu komi til greina að- ilar sem hafi tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð og hafi hæfni til að vinna undir álagi. Starfssviðið felur m.a. í sér ráðgjöf og viðtöl á sviði spamaðar, innlána og verðbréfa, kaup og sala verðbréfa og aðstoð vegna lána til fyrirtækja o.fl. RAÐA UGL ÝSINGAR Þátttaka í tískuvikum í RAÐAUGLÝSINGU í dag gerir Útflutningsráð íslands heyrinkunnugt að stefnt sé að þátttöku í tískuviku í Lund- únum eða París. Það skilyrði er fyrir þátttöku að viðkom- andi tískuhönnuðir geti hafið útflutning á vörum sínum. Kemur fram að allar frekari upplýsingar sé að hafa á skrifstofu Útflutningsráðs. íbúðíLA AUGLÝST er til leigu lítil íbúð með sérinngangi í Santa Monica í Los Angeles í Kalifomíu og er leigutíminn sagður frá 18.nóvember nk til 18.janúar árið 2000, eða annað sam- kvæmt samkomulagi. Kemur fram að íbúðin sé vel stað- sett með tilliti til allrai- þjónustu. SMÁAUGLÝSINGAR Aglow í Reykjavík Aglow í Reykjavík auglýsir næsta fund sinn í Kornhlöð- unni/Lækjarbrekku næst komandi þriðjudag klukkan 20.00. Ræðumaður kvöldsins verður Valdís Magnúsdóttir frá KFUM og Kangakvartettinn flytur nokkur lög. Þórarinn Guðmundsson matreiðsiumeistari og Inga Rósa Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Ferðafélags Islands, fyrir utan veislusal Fí. Veislusmiðjan flytur og tek- ur við rekstri Fl-salarins VEISLUSMIÐJAN ehf. hefur flutt starfsemi sína ý-úmgott stóreldhús að Smiðjuvegi 14 í Kópavogi. A þessum tímamótum hefur fyrirtækið einnig tek- ið við rekstri veislusalar Ferðafélags Islands í Mörkinni 6 í Reykjavík. Þórarinn Guðmundsson mat- reiðslumeistari stofnaði Veislu- smiðjuna haustið 1997 og var starf- semin lengst af í Glæsibæ, Áifheim- um 74 í Reykjavík. Undanfarið hef- ur Veislusmiðjan verið í óhentugu húsnæði í Garðabæ en við flutning- inn í Kópavoginn verður öll kæli- og frystiaðstaða meiri og betri, eld- unartækin nýrri og fullkomnari, vörugeymslan stærri og síðast en ekki síst verður aðstaða fyrir við- skiptavini til fyi'irmyndar. Nú geta viðskiptavinir fengið ráðleggingar og skoðað myndir og matseðla í sérstakri stofu sem sérstaklega hefur verið innréttuð í þessum til- gangi. Aherslan er lögð á alhliða veitingaþjónustu fyrir veislur sem og matreiðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Daglega eru sendir mat- arbakkar með tilbúnum mat til fyr- irtækja og einnig er matur sendur til skömmtunar á staðnum s.s. til Alþingis. Um 240 manna salur Veislusalur Ferðfélags íslands var opnaður árið 1995, og hefur fé- lagið séð um rekstur hans hingað til. Nú hefur verið ákveðið að Veislusmiðjan taki salinn á leigu og sjái um reksturinn. Ferðafélagið vísar því öllum fyrirspurnum og bókunum til Veislusmiðjunnar frá 1. nóvember 1999. Veislusalur Nýtt umboðs- og kynn- ingarfyrirtæki stofháð NÝLEGA var stofnað umboðs- og kynningarfyrirtækið PROMO ehf. Það eru þeir Páll Eyjólfsson og Tómas Tómasson sem standa að fyrirtækinu en þeir eru vel kunn- ugir íslensku tónlistarlífi, segir í fréttatilkynningu. Einnig segir: „Fyrirtækið sér um skipulagningu tónleika, árshá- tíða og annarra uppákoma. Það sér um að útvega hljómsveit, hljóð- kerfi, lýsingu og jafnvel húsnæði fyrir hinar ýmsu uppákomur. Samfara formlegri opnun PROMO ehf. hefur fyrirtækið gefið út kynningarbæklinginn PROMO- bókina. PROMO-bókin er eins kon- ar „gulahandbók" skemmtana- bransans og hefur að geyma upp- lýsingar um fjölda hljómsveita, fyr- irtæki í veitingarekstri og ýmsa aðra sem koma að skemmtana- haldi, beint eða óbeint. PROMO- bókin er prentuð í 1.000 eintökum og verður dreift til starfsmannafé- laga, nemendafélaga, félagasam- taka og vínveitingastaða og svo mætti lengi telja. Þá er einnig vert að geta vefsíðu PROMO; www.promo.is., en þar er ávallt hægt að leita sér upplýsinga og að- stoðar." Ferðafélagsins, eða FÍ-salurinn eins og hann er oftast nefndur, tek- ur mest um 240 manns í sæti, en töluvert fleiri í hanastél eða smá- réttaveislur. Salurinn er einnig út- búinn nauðsynlegustu funda- og ráðstefnutækjum. GSMíAz- erbaídsjan og Rúss- landi VIÐSKIPTAVINIR Símans GSM geta nú notfært sér GSM- þjónustu símafyrirtækisins Bakcell í Azerbaídsjan. Þetta er 116. reikisamningur Símans GSM erlendis og Azerbaídsjan er 58. landið þar sem viðskipta- vinu geta notað GSM-símann sinn. Reikisamningur við Kuban- GSM í Rússlandi er einnig orð- inn virkur. Þjónustusvæði fýrir- tækisins er við austanvert Svartahaf, með ströndinni frá Georgíu að Azov-hafinu og í stærstu borgum þar inn til landsins. Þetta er tjórði reiki- samningur Símans GSM í Rúss- landi og stækkar dreifisvæðið til muna. Fyi'ir eru samningar við símafyrirtæki sem bjóða þjónustu í Moskvu og í norð- vesturhluta landsins, þ.m.t. Sankti Pétursborg, Múnnansk, Ai-khangelsk og Kirjálahéraði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.