Morgunblaðið - 07.11.1999, Side 18
18 E SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999
♦
MORGUNBLAÐIÐ
Vélskóli Islands
Innritun á vorönn 2000
Umsóknir, ásamt gögnum um fyrra nám,
verða að hafa borist skrifstofu skólans
fyrir 19. nóvember nk.
Kennsla fer fram eftir áfangakerfi. Nemendur,
sem hafa stundað nám við aðra skóla, fá nám
sitt metið að svo miklu leyti sem það fellur að
námi í Vélskóla íslands.
Inntökuski ly rði:
Umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi með
tilskildum árangri.
Námið er byggt upp sem þrepanám með stig-
hækkandi réttindum. Sé gengið útfrá grunn-
skólaprófi tekur
1. stig vélavörður
2. stig vélstjóri
3. stig vélstjóri
4. stig vélfræðingur
1 námsönn,
4 námsannir,
7 námsannir,
10 námsannir.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingarfást
á skrifstofu skólans kl. 8.00—16.00 alla virka
daga. Sími 551 9755, fax 552 3760.
Netfang: vsi@ismennt.is.
Veffang: http://www.velskoli.is
Póstfang: Vélskóli íslands, Sjómannaskólanum
r//Háteigsveg, 105 Reykjavík.
Skólameistari.
TILKYNNINGAR
KÓPAVOGSBÆR
Lóðaúthlutun
Kópavogsbær auglýsir eftirtaldar ein-
býlishúsalóðir lausar til úthlutunar:
1. Fjallalind
Um er að ræða 2 lóðir (Fjallalind 133 og 145)
undir einbýlishús á einni og hálfri til tveggja
hæða með innbyggðum bílskúr. Grunnflötur
um 120 fm. Lóðirnar eru byggingarhæfar.
2. Dimmuhvarf í Vatnsendalandi
Um er að ræða 2 lóðir (Dimmuhvarf 21 og 29)
undir einnartil tveggja hæða einbýlishús. Lóð-
jrnareru um 1.500 fm að flatarmáli. Dimmu-
hvarf 29 er byggingarhæf en áætlað er að lóðin
Dimmuhvarf 21 verði byggingarhæf í ágúst
2000.
3. Skjólsalir og Roðasalir
Um er að ræða 5 lóðir (Skjólsalir 2 og 4 og Roð-
asalir 16,18 og 20) undirtveggja hæða einbýl-
ishús með innbyggðum bílskúr. Hámarks-
grunnflötur húss er 190 fm. Húsin standa í suð-
urhalla og er aðkoma á jarðhæð. Lóðirnar
verða byggingarhæfar í september 2000.
jSkipulagsuppdrættir, skipulags- og byggingar-
skilmálar ásamt umsóknareyðublöðum fást
afhent á Tæknideild Kópavogsbæjar, Fannborg
2, III hæð, frá kl. 9—15 alla virka daga.
Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir
kl. 15.00 þriðjudaginn 16. nóvember
1999.
V Bæjarstjórinn í Kópavogi.
k Vinningar í haust-
Ék happdrætti Gigtar-
félags íslands
Dregið var 21. október 1999
1. vinningur: Audi A4
4001
2. -9. vinningur: Tjaldvagn Combi camp
1785 5824 25633 36698
5523 23905 34518 38575
10.-21. vinningur Úttekt hjá Bang og Olufsen
1342 11633 28172 33670
4379 22035 29060 35432
4739 23809 33018 44808
22.-40. vinningur: GE þurrkari frá Electric
2662 18766 46407 46714
4531 42176
22.-40. vinningur: GE þvottavél frá Electric
2282 18738 23979 41904
4928 19710 30334 48658
16181 21085 34025
22.-40. vinningur: GE tvöfaldur ísskápur
29435 33105
STYRKIR
Menntamáiaráðuneytið
Styrkir til háskólanáms í
Finnlandi, Hollandi og
Noregi
Stjórnvöld í Finnlandi bjóða fram einn styrk
handa íslendingum til háskólanáms eða rann-
sóknarstarfa þar í landi skólaárið 2000-2001.
Styrkfjárhæðin er 4.100 finnsk mörk á mánuði.
Styrkurinn er ætlaður þeim sem komnir eru
nokkuð áleiðis í háskólanámi og er miðaður
við 9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur
að skipta styrknum ef henta þykir.
Umsóknarfresturertil 1. mars nk. Hollensk
stjórnvöld bjóða fram styrki til háskólanáms
í Hollandi skólaárið 2000—2001. Styrkirnir eru
til 3—10 mánaða námsdvalar. íslenskum
námsmönnum gefst kostur á að sækja um
styrki þessa en ekki er vitað fyrirfram hvort ein-
hver þeirra kemur í hlut íslendinga. Styrkirnir
eru ætlaðir námsmönnum sem eru komnir
nokkuð áleiðis í háskólanámi eða kandídötum
til framhaldsnáms. Umsækjendur um styrkina
skulu vera yngri en 35 ára. Styrkfjárhæðin er
1.545 gyllini á mánuði. Umsóknarfrestur er
til 15. desember nk.
Norsk stjórnvöld bjóða fram styrki til háskóla-
náms í Noregi skólaárið 2000—2001. Styrkirnir
eru til 1— 10mánaða námsdvalar. íslenskum
námsmönnum gefst kostur á að sækja um
styrkina en ekki er vitað fyrirfram hvort einhver
þeirra kemur í hlut íslendinga. Styrkirnir eru
ætlaðir námsmönnum sem eru komnir nokkuð
áleiðis í háskólanámi (hafa lokið prófi sambær-
ilegu við BA- eða BS-próf) eða kandídötum
til framhaldsnáms. Umsækjendur um styrkina
skulu vera yngri en 40 ára. Styrkfjárhæðin er
7.000 n.kr. á mánuði. Umsóknarfrestur ertil
15. desember nk.
Umsóknir um ofangreinda styrki, ásamt stað-
festum afritum prófskírteina og meðmælum,
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4,150 Reykjavík, á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þarfást, ásamt nánari
upplýsingum. Eyðublöðin er einnig hægt að
nálgast á heimasíðu ráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið,
5. nóvember 1999.
www.mrn.stjr.is
Utanríkisráðuneytið
Fræðimannastyrkir
Atlantshafsbandalagsins
2000-2002
Atlantshafsbandalagið mun að venju veita
nokkra fræðimannastyrki til rannsókna og eru
nú styrkir fyrir tímabilið 2000/2002 lausir til
umsóknar. Umsækjendur þurfa að vera frá að-
ildarríkjum bandalagsins eða samstarfsríkjum
þess. Gert er ráð fyrir að umsækjendur hafi
lokið háskólanámi frá viðurkenndum háskóla,
en í undantekningartilvikum er veitturstyrkur
til þeirra, sem ekki hafa lokið háskólagráðu.
Markmið styrkveitinganna er að stuðla að
rannsóknum og aukinni þekkingu á málefnum
sem snerta Atlantshafsbandalagið og er stefnt
að útgáfu á niðurstöðum rannsóknanna. Styrk-
irnir nema nú u.þ.b. 440.000 ísl. kr. (240.000
belgískum frönkum) fyrir einstaklinga, en
460.000 ísl. kr. (250.000 belgískum frönkum)
fyrir stofnanir. Ætlast er til þess að unnið verði
að rannsóknum frá júní 2000 til 30. júní 2002.
Einnig er veittursérstakurstyrkur, Manfred
Wörner styrkurinn, sem stofnað vartil í minn-
ingu fyrrverandi aðalframkvæmdastjóra At-
lantshafsbandalagsins. Hér er um einn styrk
að ræða að upphæð u.þ.b. 1,480.000 ísl. kr.
(800.000 belgískirfrankar). Styrkur þessi er
veittur viðurkenndum fræðimönnum, rann-
sóknastofnunum eða fólki með mikla starfs-
reynslu á fjölmiðlum.
Umsóknir um styrki þessa skulu berast alþjóða-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins eigi síðar en
31. desember 1999. Ákvörðun um úthlutun
styrkjanna mun liggja fyrir í júní árið 2000.
Alþjóðaskrifstoía utanríkisráðuneytisins veitir
nánari upplýsingar um styrkina og lætur í té
þartil gerð umsóknareyðublöð. Einnig er
áhugasömum bent á heimasíðu Atlantshafs-
bandalagsins, www.nato.int, varðandi hagnýt-
ar upplýsingar um Atlantshafsbandalagið, starf
þess og sögu.
Auglýsing um starfslaun
listamanna árið 2000
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun
til handa listamönnum árið 2000, í samræmi
við ákvæði laga nr. 35/1991 með áorðnum
breytingum.
Starfslaunin eru veitt úrfjórum sjóðum þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda,
2. Launasjóði myndlistarmanna,
3. Tónskáldasjóði,
4. Listasjóði.
Umsóknireinstaklinga skulu hafa borist Stjórn
listamannalauna, menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík, á þartil gerðum
eyðublöðum fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 1.
desember 1999. Umsóknirskulu auðkenndar
„Starfslaun listamanna 2000" og tilgreindur
sá sjóður sem sótt er um laun til. Umsóknar-
eyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Heimilt er að veita starfslaun til stuðnings leik-
hópum, enda verði þeim varið til greiðslu
starfslauna til einstakra leikhúslistamanna. Um-
sóknir leikhópa skulu berast Stjórn listamanna-
launa, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu
4,150 Reykjavík, á þartil gerðum eyðublöðum
fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 1. desember 1999.
Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun lista-
manna 2000 - leikhópar". Umsóknareyðublöð
fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Ath.: Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun
verður umsókn hans því aðeins tekin til um-
fjöllunar að hann hafi skilað Stjórn listamanna-
launa skýrslu um störf sín í samræmi við
ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr.
35/1991 með áorðnum breytingum.
Vakin er athygli á að hægt er að ná í umsóknar-
eyðublöð á internetinu á heimasíðu Stjórnar
listamannalauna. Veffangið er: http://
www.mmedia.is/listlaun.
Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn
1. desember nk.
Reykjavík, 29. september 1999.
Stjórn listamannalauna.