Morgunblaðið - 07.11.1999, Page 19

Morgunblaðið - 07.11.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 E 19; ®Dagbók Háskóla íslands DAGBÓK HÍ dagana 7.-13. nóv- ember. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla ís- lands. ítarlegri upplýsingar um viðburði er að finna á heimasíðu Háskólans á slóðinni: http://www.hi.is/stjorn/sam/dag- bok.html Laugardaginn 6. og sunnudag- inn 7. nóvember er haldin í Reyk- holti í Borgarfirði ráðstefnan „Is- lensk sagnfræði við árþúsunda- mót. Sýn sagnfræðinga á Islands- söguna“. Þar er rætt um íslenska sagnaritun og sagnfræðirannsókn- ir á þessari öld og stöðu fræðanna nú um árþúsundamótin. Ráðstefn- an er haldin á vegum Sögufélags og Sagnfræðistofnunar Háskóla íslands, en ritnefnd tímaritsins Sögu annast undirbúning hennar og framkvæmd. Afrakstur ráð- stefnunnar verður síðan birtur í Sögu árið 2000. Þriðjudaginn 9. nóvember kl. 16.15 flytur Magnús S. Magnús- son, skrifstofustjóri á Hagstofu ís- lands fyrirlesturinn: Atvinnu- stefna stjórnvalda í málstofu hag- fræðiskorar og sagnfræðiskorar. Málstofan fer fram í kaffistofu á 3. hæð í Odda. Miðvikudaginn 10. nóvember, kl. 9-17, verður efnt til málþings um þroskahefta foreldra og börn þeirra á Hótel Sögu, þingstofu A, 2. hæð. Aðalfyrirlesarar verða dr. Tim Booth prófessor við háskólann í Sheffield og Wendy Booth fræði- maður við sama skóla. Þau hafa undanfarin ár unnið að rannsókn- um um þroskahefta foreldra og börn þeirra og hafa nýlega gefið út tvær bækur um þetta efni auk fjölda greina. Þau hjónin njóta al- þjóðlegrar virðingar vegna þess- ara rannsókna og eru meðal virt- ustu fræðimanna á þessu rann- sóknasviði. Miðvikudaginn 10. nóvember kl. 12:30 flytur Eydís Franzdóttir, óbó, verk eftir Isang Yun, Thea Musgrave og Gianni Possio á Há- skólatónleikum í Norræna húsinu. Tónleikarnir taka um það bil hálf- tíma. Aðgangseyrir er 500 kr. en ókeypis er fyrir handhafa stúd- entaskírteinis. Fimmtudaginn 11. nóvember kl. 12-13 verður Svanhildur Óskars- dóttir, íslenskufræðingur, með rabb á vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum í stofu 101 í Odda. Rabbið ber yfirskriftina: „Með hinni bestu prýði: Júditarbók gamla testamentisins í íslenskum búningi“. Fimmtudaginn 11. nóvember kl. 16-18 verður haldin málstofa í guð- fræði í Skólabæ. Þá flytur dr. Jón Ma. Ageirsson, nýskipaður pró- fessor í nýjatestamentisfræðum, erindi sem hann nefnir: Persóna Jesú í Tómasarguðspjalli. Fimmtudaginn 11. nóvember kl. 16:15 flytur Stefanía Þorgeirsdótt- ir, líffræðingur, fyrirlesturinn „Rannsóknir á sambandi riðu- næmis og arfgerða príongensins“ í málstofu læknadeildar. Málstofan fer fram í sal Krabbameinsfélags Islands, efstu hæð. Kaffiveitingar verða frá kl. 16. Fimmtudaginn 11. nóvember kl. 16 mun prófessor Luis Esteva halda fyrirlestur í húsi verkfræði- deildar, VR-II, stofu 158, sem ber heitið: „Evolutionary properties of stochastic models of earthqu- ake accelerograms: their dependence on magnitude and distance." Föstudaginn 12. nóvember kl. 15 mun prófessor Luis Esteva halda fyrirlestur í fundarsal SASS , Austurvegi 56 á Selfossi, sem nefnist: „Reliability- and perfor- mance-based earthquake resistant design: basic concepts and pract- ical considerations." Föstudaginn 12. nóvember kl. 12 flytur Veena Das, prófessor í mannfræði við New School of Social Research í New York og við Delhi-háskóla á Indlandi, op- inberan fyrirlestur á vegum Mannfræðistofnunar Háskóla ís- lands í stofu 101 í Odda. í fyrir- lestri sínum, sem hún nefnir „Pu- blic Goods and Private Terrors: Biomedicine, Poverty and the Globalization of Health“, mun Das fjalla um tvenns konar skilning á heilbrigðismálum og spennuna þar á milli; annars vegar er litið á heilsugæslu sem hnattræn gæði almenningi til handa og hins veg- ar sem einstaklingsbundið verk- efni. Hún leiðir rök að því, með áherslu á reynslu Indverja, að hafa beri þennan tvíþætta skiln- ing í huga þegar rætt er um sið- ferðileg álitamál tengd líftækni og læknavísindum. Sýningar Arnastofnun Stofnun Arna Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu. Hand- ritasýning er opin kl. 14-16 þriðju- daga til föstudaga, 1. sept. til 15. maí og kl. 13-17 daglega, 1. júní til 31. ágúst. Unnt er að panta sýn- ingu utan reglulegs sýningartíma sé það gert með dags fyrirvara. Orðabankar og gagnasöfn Öllum er heimill aðgangur að eftirtöldum orðabönkum og gagn- söfnum á vegum Háskóla Islands ogstofnana hans: Islensk málstöð. Orðabanki. Hefur að geyma fjölmörg orðasöfn í sérgreinum: http://www.ismal.hi.is/ob/ Landsbókasafn Islands - Há- skólabókasafn. Gegnir og Greinir. http://www.bok.hi.is/gegnir.html Órðabók Háskólans. Ritmáls- skrá: http://www.lexis.hi.is/ Rannsóknagagnasafn íslands. Hægt að líta á rannsóknarverkefni og niðurstöður rannsókna- og þró- unarstarfs: http://www.ris.is Námskeið á vegum Námskeiða á vegum Endurmenntunarstofn- unar HI vikuna 7.-13. nóvember: 8. og 10. nóv. kl. 8:30-12:30. Markaðssetning á Netinu. Kenn- ari: Gestur G. Gestsson markaðs- stjóri Margmiðlunar. 8. nóv. kl. 8:30-12. í samstarfi við menntanefnd Félags löggiltra endurskoðenda. Skattaréttur: Fræðileg og hagnýt atriði. Skatt- skyldar tekjur og frádráttarliðir einstaklinga og rekstraraðila. Kennari: Ingvar J. Rögnvaldsson lögfræðingur hjá Skattstjóranum í Reykjavík. 8., 10. og 15. nóv. kl. 20:15-22:15. Að skrifa kynningar- og auglýs- ingatexta. Kennari: Guðrún J. Bachmann leikhúsritari hjá Þjóð- leikhúsinu. 8. og 9. nóv. kl. 16-20. Árangurs- rík liðsheild. Kennari: Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur og ráð- gjafi. 8. nóv. kl. 16-19. I samstarfi við Lögfræðingafélag íslands og Lög- mannafélag íslands. Breytingar á skaðabótalögunum. Kennari: Gest- ur Jónsson hrl. 8., 9. og 11. nóv. kl. 18:15-21:30. í samstarfi við Lyfjatæknafélag ís- lands. Hjúkrunarvörur og sjúkra- gögn. Kennari: Svava Þorkelsdótt- ir hjúkrunarfræðingur MNS og kennslustjóri Heilbrigðisskólans. 8. nóv. kl. 15-19. Mat á verðmæti fyrirtækja og rekstrareininga. Kennarar: Davíð Björnsson for- stöðumaður á íýrirtækjasviði Landsbanka Islands hf. og Gunnar V. Engilbertsson framkvæmda- stjóri Landsbankans-Framtaks. Þri. og fim. 9. nóv.-9. des. kl. 18:45-20:15 (lOx). í samvinnu við Mími-Tómstundaskólann með styrk frá Scandinavia-Japan Sa- sakawa Foundation. Japanska II. Framhaldsnámskeið. Kennari: Tomoko Gamo, BA, en hún hefur sl. þrjú ár kennt japönsku á ís- landi. 9. -11. nóv. kl. 9-13. Linux. Kenn- ari: Magnús Egilsson hjá gagna- flutningsdeild Landssíma íslands. Þri. og fim. 9. nóv.-2. des. kl. 20:15-22:15 (8x). Spænska II. Framhaldsnámskeið. Kennari: Margrét Jónsdóttir, lektor í spænsku við HÍ. 9. nóv. kl. 8:30-12. í samstarfi við menntanefnd Félags löggiltra endurskoðenda. Skattaréttur: Fræðileg og hagnýt atriði. Stjórn- sýsla og málsmeðferð í skattamál- um. Kennari: Kristján Gunnar Valdimarsson lögfræðingur og skrifstofustjóri skattstjóranum í Reykjavík. 9.-11. nóv. kl. 16-19. í samstarfi við Lögfræðingafélag Islands og Lögmannafélag Islands. Hlutafé- lagaréttur. Samruni - Fundastjórn Kennarar: Jakob Möller hrl., Pét- ur Guðmundarson hrl., Jóhannes Sigurðsson hrl., Vala Valtýsdóttir hdl., Friðgeir Sigurðsson hdl., Árni Harðarson hdl. og Jóhannes Rúnar Jóhannsson hdl. 9. nóv. kl. 9-16. Erfðabreytt matvæli. Umsjón: Elín Guðmunds- dóttir matvælafræðingur hjá Holl- ustuvernd ríkisins. 9., 16. og 17. nóv. kl. 20:05-22:30. Áhrifameiri málflutningur - betri árangur. Kennari: Gísli Blöndal markaðs- og þjónusturáðgjafi. 10., 11., 12., 15. og 16. nóv. kl. 12- 16. Gagnagrunnskerfi. Kennari:^ Bergur Jónsson tölvunarfræðing- ur og yfirmaður tölvumála Lands- vh’kjunar. 10. nóv. kl. 8:30-12. í samstarfi við menntanefnd Félags löggiltra endurskoðenda. Skattaréttur: Fræðileg og hagnýt atriði. Virðis- aukaskattur. Kennari: Kristín Norðfjörð lögfræðingur og skrif- stofustjóri hjá Skattstjóranum í Reykjavík. Í0. nóv. kl 16:15-19:15. Heil- brigðislögfræði I. Réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsfólks. Kennari: Dögg Pálsdóttir hrl. 10. nóv. kl. 9-12. Málsmeðferðar- og efnisreglur upplýsingalaga. Kennari: Kristján Ándri Stefáns- son lögfræðingur og deildarstjóri í forsætisráðuneytinu. 11. nóv. kl. 8:30-12:30. í sam- starfi við ENSÍM (Endurmennt- unarnefnd og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ og SV) og fræðslunefnd Arkitektafélags íslands. Skipulag fyrirtækja. Kennari: Óskar Jósefs- son/Jónatan S. Svavarsson rekstr- ar- og hagverkfræðingar, rekstr- arráðgjafar hjá Pricewaterhou- seCoopers. 11. nóv. kl 16:15-19:15. Heil- brigðislögfræði II. Samskipti við ' sjúklinga. Kennari: Dögg Páls- dóttir hrl. 12. nóv. kl. 9-16 og 13. nóv. kl. 9- 13. I samvinnu við ráðherraskip- aða nefnd til að auka hlut kvenna í stjómmálum. Jafnrétti og lýð- ræði? - Hvar liggja völd íslenskra kvenna? Umsjón: Una María Óskarsdóttir uppeldis- og mennt- unarfræðingur sem er verkefnis- stjóri nefndarinnar. Kennari: Auð- ur Styrkársdóttir dr. í stjórnmála- fræði. Haldið á Akureyri: 12. nóv. kl. 10-17. I samvinnu við Háskólann á Akureyri. Börn í áhættu vegna þroskafrávika og námserfiðleika Kennari: Einar Guðmundsson for- stöðumaður Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála. DULSPEKI Andleg leíösögn Fyrir þá sem eru á krossgötum og finnst þeir þurfa stuðning og svör við áleitnum spurningum. Njóttu lifsins innan frá með því að tengja daglegt líf og andlegan veruleika. Upplýsingar og tíma- pantanir i síma 695 0619. Stefán Örn Hauksson, leiðsagnarmiðill. TILKYNNINGAR Frá Sálar- rannsóknar- félagi íslands Miðlarnir og huglæknarnir Bjarni Kristjánsson, Guðrún Hjörleifs- dóttir, Hafsteinn Guðbjörnsson, Kristín Karlsdóttir, Lára Halla Snæfells, María Sigurðardóttir, Þórunn Maggý Guðmundsdóttir og Skúli Lórentzson starfa hjá félaginu og bjóða upp á einka- tima. Friðbjörg Óskarsdóttir leiðir og heldur utan um bæna- og þróun- arhópa. Upplýsingar, bókanir og tekið á móti fyrirbænum í síma 551 8130 frá kl. 9—15 alla virka daga. Eftir það eru veittar upp- lýsingar og hægt er að skilja eftir skilaboð á símsvara félagsins. Við viljum vekja athygli á að hægt er að senda okkur tölvupóst með fyrirspurnum og fyrirbænum. Póstfangið er: srfi@isholf.is. SRFÍ. SMÁAUGLÝSINGA KENNSLA BRIAN TRACY fj^jfelNTERNATIONAL PHOENIX námskeiðið Leiðin til hámarks árangurs! Yfir ein miljón manns hafa sótt PHOENIX námskeiðin Leiðin til hámarks árangurs! VILT ÞÚ SLÁST í HÓPINN? Námskeið hefst þriðjudaginn 9. nóvember. Símar: 551-5555/ 557-2460 Gsm: 896-2450 • www.sigur.is Netfang: sigurdiu@sigur.is S Ý N www.innsyn.is Með hljóm ■ hjarta Námskeið 13.11 nk. þar sem kennt verður að nota röddina til sjálfefl- is og heilunar. Kennari: Esther Helga Guðmundsdóttir. Upplýsingar í síma 699 2676. S«ngs»‘tur ísther llrlgu llolhthTli B. 105 Ktrt kiuvík. FÉLAGSLÍF Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. joo KFUM & KFUK 1890-1999 KFUM og KFUK í Reykjavík Aðalstöðvar við Holtaveg Samkoma kl. 17.00 í dag. Umsjón: Miðbæjarstarf KFUM & K. Stjórnandi: Sverrir Jónsson. Upphafsorð og bæn: Margrét Jóhannesdóttir. Ungir skjólstæðingar KFUM & K úr miðbænum vitna með söng sínum. Bryndís Valbjörnsdóttir, guðfræðinemi, hugleiðir Guðs orð út frá texta dagsins og í Ijósi þjónustu KFUM & K í miðborg Reykjavíkur. Munið barnastundirnar á sama tíma og hina Ijúffengu máltíð að samkomu lokinni. Komið, heyrið og upplifið hvað þau í miðbæjarstarfi KFUM & K hafa fram að færa. Allir velkomnir. Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Fjölskylduhátíð kl. 11.00 Komum saman og fögnum í húsi Drottins. Léttar veitingar seldar eftir samkomuna. Samkoma kl. 20.00 Samúel Ingimarsson predikar. Allir hjartanlega velkomnir. www.vegurinn.is Kristit i i ■ I i I i j Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sunnudagur 7. nóvember. Kl. 11.00 Krakkakirkja fyrir alla fjölskylduna. Kl. 20.00 Almenn samkoma. Halldór Lárusson predikar. Allir velkomnir. Heimasíða: www.islandia.is/~kletturinn (ítinhjólp Almenn samkoma i Þríbúðum, Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00. Fjölbreyttur söngur. Samhjálpar- kórinn tekur lagið. Ræðumenn Þórir Haraldsson og Björg Lárusdóttir. Barnagæsla. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. Aglow Reykjavík Næsti fundur okkar verður hald- inn í Kornhlöðunni/Lækjarbrekku þriðjudaginn 9. nóv. nk. kl. 20.00. Ræðumaður kvöldsins verður Valdís Magnúsdóttir frá KFUM og K og mun Kanga-kvartettinn flytja nokkur lög. Allar konur innilega velkomnar. Verð kr. 600 fyrir kaffi og veiting- ar. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Brauðsbrotning kl. 11.00. Ræðumaður Vörður Traustason, forstöðumaður. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Melissa Lyle. Allir hjartanlega velkomnir. Mán.: Marita-samkoma kl. 20.00. Mið: Súpa og brauð kl. 18.30. Kennsla kl. 19.30. Fös.: Unglingasamkoma kl. 20.30 Lau.: Bænastund kl. 20.00. www.gospel.is íslenska Kristskirkjan Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Samkoma kl. 20.00. Mikil lof- gjörð og fyrirbænir. Eric Perry frá USA predikar. Heilög kvöld- máltíð. Allir velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 (Ath. engin fjölskyldusamkoma kl. 16.00 í dag). Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma. Kafteinn Miriam Óskarsdóttir talar. Mánudagur 8. nóv.: Kl. 15.00 Heimilasamband. Jóhanna Sigurðardóttir, sjúkra- þjálfari, heimsækir fundinn. □ HELGAFELL 5999110819 IVA/ □ MlMlR 5999110819 II I.O.O.F. 19 = 1801187 - Rk. I.O.O.F. 10 - 1801088 - □ GIMLI 5999110819 III I.O.O.F. 3 * 1801188 = 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.