Morgunblaðið - 09.11.1999, Side 4

Morgunblaðið - 09.11.1999, Side 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Hertha fékk skell í Frankfurt BAYERN Munchen er á kunnuglegum slóðum í þýsku knatt- spyrnunni, hefur tveggja stiga forskot eftir 1:0-sigur á SSV Ulm á útivelli. Dortmund, sem er í öðru sæti, gerði jafntefli við Bayer Leverkusen og Hertha Berlín fékk óvæntan skell í Frankfurt. Bayern lék ekki sannfærandi gegn nýliðunum í Ulm og geta þakkað Carsten Jancker sigurinn, en hann gerði eina mark leiksins einni mínútu fyrir leikhlé. Þetta var fyrsta mark Janckers á tímabilinu og það reyndist dýrmætt. Borussia Dortmund mistókst að ná efsta sætinu er liðið gerði jafn- tefli, 1:1, við Bayer Leverkusen á heimavelli. Dortmund var betra í leiknum og fékk fjölmörg góð færi áður en Ulf Kirsten skoraði fyrsta rriark leiksins fyrir gestina á 33. mínútu. Otto Addo jafnaði 10 mín- útum síðar og þar við sat. .Óvæntustu úrslitin verða þó að tqpjast er Eintracht Frankfurt, sem vár í fallsæti fyrir umferðina, búrstaði Meistaradeildarliðið Hert- hu Berlín 4:0. Berlínarliðið náði sér aldrei á strik og var fyrirmunað að skora þrátt fyrir nokkur ágæt færi og vítaspyrnu, sem dæmd var er brotið var á Eyjólfi Sverrissyni inn- an vítateigs. Tvö mörk á síðustu sex mínút- unum dugðu Kaiserslautern til sigurs á heimavelli gegn Schalek, 2:1. Franski landsliðsmaðurinn Youri Djorkaeff gerði sigurmarkið á 89. mínútu eftir að Martin Wagner hafði jafnað fyrir liðið fjórum mínútum áður. Schalke komst yfir í leiknum með marki Marc Wilmots úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Austurríski framherjinn Marcus Weissenberger sköraði bæði mörk- in fyrir Arminia Bielefeld er liðið gerði jafntefli við Werder Bremen, 2:2, á sunnudag. Stefán Þórðarson skoraði STEFÁN Þór Þórðarson skoraði mark KRC Uerdingen í l:l-jafn- tefli við SC Verl í þýsku 3. deildinni á sunnudag. Stefán og Sigurð- ur Örn Jónsson léku allan leikinn, en Bjarni Þorsteinsson og Þór- hallur Hinriksson sátu á varamannabekknum allan tímann og komu ekki við sögu. AP Eyjólfur Sverrisson og félagar hans í Herthu Berlín riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Eintracht Frankfurt á laugardaginn, töpuðu 4:0, og eru í neðri hluta deildarinnar. Eyjólfur og Kín- verjinn Chen Yang berjast hér um boltann í leiknum. LAZIO náði þriggja stiga for- skoti á toppi ítölsku deildar- innar með því að bursta Ver- ona 4:0. Juventus, sem er í öðru sæti, gerði markalaust jafntefli við Tóríno og Inter féll niður í sjötta sæti eftir 3:0 tap fyrir Bologna. Sebastian Veron var í miklu stuði hjá Lazio, gerði eitt mark og lagði upp tvö gegn Verona. Hann skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu og það beint úr horn- spyrnu, boltinn sveif efst í fjær- hornið. „Þetta voru mistök,“ sagði Veron um markið. „Eg var búinn að segja Marcelo Salas að vera við fjærstöngina," sagði hann. Fjórum mínútum síðar skoraði Marcelo annað markið eftir hornspymu Verons. Á lokamínútu fyrir hálf- leiks lagði Veron upp þriðja markið sem varnarmaðurinn Paolo Negro gerði áður en Króatinn Alen Boksic bætti því fjórða við um miðjan síð- ari hálfleik. „Við töpuðum fyrir besta liði Evrópu,“ sagði Cesare Prandelli, þjálfari Verona. Inter Milan hefur ekki riðið feit- um hesti í deildinni að undanförnu og tapaði nú fyrir Bologna 3:0. Int- er hefur aðeins hlotið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum sínum. Marcello Lippi, þjálfari Inter, ásak- aði sína liðsmenn fyrir slaka frammistöðu. „Ég sá ekki Inter eins og það á að sér eina einustu mínútu í leiknum," sagði Lippi sem tók við liðinu sl. sumar. Inter var mun sterkara í fyrri hálfleik en saknaði greinilega Christian Vieri og þeir Ivan Zamorano og Ronaldo fundu ekki leiðina framhjá Gianluca Pagliuca, Reuters Oliver Bierhoff fagnar hér ásamt George Weah, eftir að hafa skorað fyrir AC Milan, síðan bætti Weah marki við er Mílanóliðið lagði lið Feneyinga. markverði, sem hefur haldið hreinu í 476 mínútur. Bologna skoraði úr sinni fyrstu sókn í leiknum á 36. mínútu er Kennet Andersson skall- aði fyrirgjöf Giuseppe Signori og var þetta fyrsta mark Svíans fyrir félagið og hann bætti síðan öðru við áður Signori gerði það þriðja á 76. mínútu. AC Milan, sem féll úr meistara- deild Evrópu í síðustu viku, náði að þagga niður í einhverjum gagnrýn- isröddum með því að vinna Venezia á heimavelli, 3:0. Öll mörkin voru gerð í síðari hálfleik. Það fyrsta gerði Þjóðverjinn Oliver Bierhoff, þá George Weah og loks Pierluigi Orlandini. Það gekk mikið á í derby-slag Juventus og Tórínó sem endaði með markalausu jafntelfi. Tíu leik- menn fengu að líta gula spjaldið og tveir voru reiknir út af á lokamínút- um leiksins, Edgar Davis hjá Juve og Gianluigi Lentini hjá Tórínó. Davis missir af næsta leik Juve sem verður gegn AC Milan. 35 Þetta vo ru i mistök“ - sagði Sebastian Veron sem skoraði beint úr hornspyrnu fyrir Lazio Fyrsta tap PSV PSV Eindhoven tapaði fyrsta leiknum á tímabilinu í hollensku knattspyrnunni um helgina, tapaði fyrir NEC Nijmegen 2:1. Ajax er í efsta sæti deildarinnar eftir 2:1 sigur á Sparta Rotter- dam. Meistararnir í Feyen- oord gerðu jafntefli, 3:3, á móti Twente Enschede þar sem Somalia jafnaði fyrir meistarana á lokamínútu leiksins. Lyon aftur í efsta sætið Brasilíumaðurinn Sonny Anderson skoraði tvívegis í síðari hálfleik fyrir Olymp- ique Lyon sem vann Le Ha- vre 3:0 og endurheimti efsta sæti frönsku deildarinnar. Auxerre, sem hafði tveggja stiga forskot á Lyon fyrir leiki helgarinnar og unnið sex leiki í röð, tapaði fyrir Nantes 3:1. Mónakó og Marseille gerðu jafntefli, 1:1. Miðjumaðurinn Peter Luccin skoraði fyrst fyrir Marseille með marki beint úr aukaspyrnu á 24. mín. framhjá Tony Sylva, sem stóð í markinu í stað lands- liðsmannsins Fabien Barthez, sem er meiddur. Mexíkanski varnarmaðurinn Rafael Marquez jafnaði sex mínútum síðar með fyrsta marki sínu fyrir félagið. Mónakó var mun sterkara, sérstaklega eftir að Frederic Brando, varnarmað- ur Marseille, var rekinn út af þegar stundarfjórðungur var eftir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.