Morgunblaðið - 08.12.1999, Side 26
Þau sjá um bókmenntagagnrýnina í Mósaík i Sjónvarpinu
Hvort í sínum
stólnum með
bók í hönd
Menningarþátturinn Mósaík í
umsjón Jónatans Garöarsson-
ar er á dagskrá Sjónvarpsins
á miövikudögum. Þau Ásdís
Guðrún Sigmundsdóttir og
Stefán Baldur Árnason sjá um
bókmenntaumfjöllun þáttarins
og hafa því mikið að gera
núna fyrir jólin.
Ásdís og Stefán eru þar og
ástin kviknaði þegar þau voru
saman í bókmenntafræði í Há-
skólanum og því ekki að
undra aö bókmenntirnar eigi
hug þeirra allan. En hvernig
ætli þau undirbúi sig fyrir
þættina?
RÖKRÆTT HEIMA í STOFU
„Við veljum efnið og vinnum
alla bakgrunnsvinnu
saman," segir Ás-
dís og Stefán
bætir við aö
auövitaö sé
það gert í sam-
ráði við Jónatan
Garðarsson rit-
stjóra þáttarins.
„Það eru regluleg-
ir samráösfundir í stofunni
heima," segir Stefán og bros-
ir. „Aðalmarkmið okkar í
bókaumfjölluninni í þættinum
er að draga fram sjónarhorn
lesenda frekar en að um eigin-
lega gagnrýni sé að ræða,"
segir Ásdfs.
- Engar erjur heima þegar
bækurnar eru valdar?
„Jú, jú, aö einhverju leyti,"
segir Stefán, en Ásdís dregur
úr þeim ágreiningi og segir að
eöli málsins samkvæmt séu
þau mjög vön að ræða bók-
menntir í þaula. „Það verða í
þaö minnsta ekki sambúðar-
siit út af bókmenntum," segir
hún og hlær.
- En hafið þið sama smekk
á bókmenntum?
„Nei, eiginlega ekki," segir
Stefán. „Við tölum svo mikiö
um bækur aö oft er þaö
þannig aö ég reyni að sann-
færa Ásdísi um gæði þeirra
bóka sem ég er hrifinn
af og svo öfugt. Við er-
um auövitaö ekki
alltaf sammála."
- Hvers konar bók-
menntir eru í mestu
uppáhaldi?
„Ég er mest hrifinn
af bókum kenndum við
vitundarflæði. Ulysses
eftir James Joyce er líklega
uppáhaldsbókin mín og síðan
er ég mjög hrifinn af Steinari
Sigurjónssyni," segir Stefán.
„Ég hef mjög fjölbreyttan
smekk, en veit frekar hvað
mér finnst ekki skemmtilegt,
heidur en að ég geti dregiö út
einhverjar uppáhaldsbækur.
Ég er til að mynda mjög lítiö
fyrir sögulegar skáldsögur,"
segir Ásdís.
- Hefur bókaástríöan fylgt
ykkur frá barnæsku?
„Já, eins og margir krakkar
las ég mjög mikið sem barn og
í náminu hefur maður lítiö ann-
að gert en lesið og talað um
bækur í sex ár," segir Stefán.
„Auðvitaö verður þetta stór
hluti af lífi manns. Alveg eins
og ef þú ert læknir þá hlýtur
læknisfræðin að skiþta mjög
miklu máli í lífi þínu. En
ástríða .. . Hvaö er ástríöa?
Það knýr þig eitthvað áfram í
svona námi."
í FÉLAGSSKAP
ÍSFÓLKSINS
„Síðan er það bara bóklest-
urinn sjálfur sem skiþtir öllu
máli. Ég las til dæmis ísfólkiö
f fyrrahaust - aftur," segir
Stefán. „Það er heil kynslóð
íslendinga sem las þennan
bókaflokk. Ég las þetta sem
krakki og hætti ekki fyrr en á
27. bók þegar systir mín hætti
að kaupa bækurnar..."
- Systir þín? Ber hún ábyrgð
á þessu?
„Ja, ég átti ekki pening fyrir
bókum á þessum tíma. En
það er margt áhugavert í
þessum bókum og gaman að
sjá, til dæmis, hvað þær hafa
haft mikil áhrif á nafngiftir ís-
lendinga," segir Stefán.
„Þetta eru afþreyingarbækur
og ágætar sem slíkar. Þetta
er svipað og að horfa á Vini í
sjónvarpinu. Tekur ekki mikið
á,“ segir Ásdís.
„En það er svo merkilegt við
okkar tíma aö núna má beita
aðferðafræði bókmenntafræð-
innar á ailan texta og sumir
halda að með því sé verið að
setja allt á sama stall. Hins
vegar er mótsögnin sú að það
sem best er gert í bókmennt-
um verður enn þá meira áber-
andi og áhugaverðara fyrir vik-
ið. Kannski helst vegna þess
að menn verða ekki sjálfkrafa
mikilvægir rit höfundar af því
að gefa út bók," segir Stefán.
- Nú eruð þið að lesa bækur
alla daga. Blundar í ykkur
skáldagáfan?
„Ég á enga skúffu fulla af
Ijóöum eða óbirtum handrit-
um,“ segir Ásdís og ktmir.
Stefán verður óræður á svip.
„Ég myndi nú vilja gera mikið
til að berja niður þá mýtu að
allir bókmenntafræðingar
gangi með rithöfundadrauma í
maganum. En ég get ekki ai-
veg gert það, því ég á það til
að setjast niöur og skrifa. En
það er bara mtn leiö til að
takast á við málin. Kannski er
það líka vegna þess að formiö
er manni tamt," segir Stefán
sem gefur þó lítið út á vænt-
anlega útgáfu. Þegar þau eru
sþurð um framtíð bókarinnar á
tæknivæddri öld Netsins og
margmiölunardiska segjast
þau ekki kvíða neinu. „Bókin í
dag er ekki það sama og hún
var fyrir 20 árum og hún verð-
ur ekki eins eftir önnur 20 ár.
Áhrif nýrra miöla á eftir að
setja sitt mark á hana. En
þótt ný tækni hafi áhrif á bók-
ina verður hún áfram bók, þótt
hún breyti um ásýnd," segir
Stefán að lokum.
26