Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Ef Hermann Hreiðarsson ynni í tískuvöruverslun og byði mér aðstoð sína myndi ég eflaust segja: „Nei, takk. Ég er bara að skoða.“ Hermann vinnur ekki í slíkri verslun, en eigi að síður fær hann sömu viðbrögð frá þorra „viðskipta- vina“ sinna á starfsvettvangi sínum - knattspyrnuvellinum. „Ég var nú bara að skoða,“ gætu margir mót- herjar hans hafa sagt eftir að hafa litið við hjá Hermanni í von um góð kaup, jafnt stórir sem smáir, nafn- togaðir sem óþekktir. Hermann hef- ur það að lifibrauði að spilla sóknar- tilburðum þeirra sem gestkvæmt eiga til hans. Hann er harður í horn að taka. Hermann er tiltölulega nýr starfs- maður á vinnustað sínum, knatt- spyrnufélaginu Wimbledon. Keppi- nautar þess hafa fengið skýr skilaboð síðan hann var ráðinn í október á síðasta ári. Vörurnar í „verslun“ Hermanns og félaga eru dýru verði keyptar ... og sumir hafa einfaldlega ekki ráð á að stunda við- skipti við „brjálaða gengið" eins og starfsmennimir eru nefndir. Aðra sögu er að segja af viðmóti Hermanns utan vallarins. Hann er eins og margir Eyjamenn, léttlyndur og ræðinn. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan ég tók leikmanninn tali í Lundúnum fyrir tveimur og hálfu ári. Þá var Hermann nýfluttur til milljónaborgarinnar, hafði vakið athygli Steve Coppells, knattspymu- stjóra Crystal Palace, sem þá lék í ensku úrvalsdeildinni. Félagið keypti hann af ÍBV, liðinu sem Her- mann hafði alist upp hjá í Vest- mannaeyjum. Síðan þá hefur hann leikið í öllum fjórum deildum ensku knattspyrn- unnar og er kominn aftur í úrvals- deildina ... og á Selhurst Park, völl- inn sem Crystal Palace og Wimbledon deila með sér. Hermann býr skammt suður af Lundúnum ásamt eiginkonu sinni, Rögnu Lóu Stefánsdóttur, og barni þeirra beggja, Thelmu Lóu, sem kom í heiminn hinn 14. nóvember sl., auk bama Rögnu, Stefáni Kára, sem er 14 ára, og Elsu Hmnd, sex ára. Hermann segir að honum og fjöl- skyldunni líði vel á þessum slóðum. „Þetta er svo gott sem uppi í sveit. Hér er rólegt og þægilegt að vera, en það er stutt í fjörið ef maður vill komast þangað," segir hann. Hinn rétti morgunverður Þegar Hermann fluttist til Eng- lands árið 1997, gerðist atvinnumað- ur í knattspyrnu og gekk til liðs við Hér er rólegt og þægilegt að vera, en þad er stutt í fjörió ef mað- ur vill komast þangað. Fæstir muna hvaó hann heitir, þessi númer 30 hjá Wimbledon, en menn hafa heyrt því fleygt að hann snæói glerbrot í morgunveró. Hermann Hreiðarsson hefur leikið í öllum fjórum deildum ensku knattspyrnunnar síð- an hann hélt utan árió 1997. Edwin Rögn- valdsson ræddi viö Eyjamanninn um afdrif hans hjá félögunum þremur sem hann hefur leikió meö í Englandi... og spuröi eigin- konu hans hvaö hann boröar í morgunmat. Crystal Palace, hafði það tryggt sér sæti í úrvalsdeild vorið áður eftir úr- slitakeppni í fyrstu deild. ,^AIlir vissu að þetta yrði erfitt. Okkur gekk vel fram að áramótum, vorum í fjórt- ánda til fimmtánda sæti, nokkuð frá fallsvæðinu," segir Hermann, sem vakti um þetta leyti mikla athygli í breskum fjölmiðlum fyrir að vera fastur fyiir í vörn nýliðanna. Sér- staklega fékk viðureign hans og Dennis Bergkamps, „Hollendingsins fljúgandi" hjá stórliði Arsenal, mikla umfjöllun, en sá síðarnefndi mætti íslenska vamarmanninum líklega oftar en hann hefði viljað þann vetur. Svo lítið svigrúm fékk Bergkamp að áhorfandi á Highbury, heimavelli Arsenal, kvaðst hafa heyrt því fleygt að Hermann borðaði glerbrot í morgunmat. Ragna Lóa staðfesti að uppistaða mikilvægustu máltíðar dagsins hjá Hermanni væri ekki gler. „Hann borðar Cheerios," segir hún og vísar þannig í hið gamal- kunna morgunkom. Á miðjum vetri tók að halla undan fæti hjá Palace í efstu deild. „Um og eftir áramótin meiddust fimm eða sex lykilmenn, markaskorarar. Ég held að við höfum ekki skorað mark í sex deildarleikjum í röð, jafnvel lengur. Við fengum einhver tvö stig í átta leikjum og lið sem sigrar ekki á heimavelli í tólf leikjum í röð á bara ekki skilið að vera í efstu deild. Það vora gífurleg vonbrigði. Sjálfum hafði mér gengið nokkuð vel. Ég hafði haldið sæti mínu í liðinu, sem var framar öllum vonum,“ segir Eyjamaðurinn. Fljótlega var Crystal Palace komið í erflða fallbaráttu og Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson flestir spáðu liðinu falli. Steve Coppell, knattspymu- stjóri liðsins, sem gerði áður garðinn frægan sem leik- maður Manchester United og enska landsliðsins, sagði stöðu sinni lausri og settist inn á skrifstofu sína á Sel- hurst Park. „Coppell sagði að hann væri ekki að gefast upp, en að hann væri Palace-aðdá- andi og að hann elskaði fé- lagið af öllu sínu hjarta. Hann tók fram að hann vildi gera það sem honum fyndist Palace fyrir bestu, sagðist sjálfur ekki ná nógu góðum árangri og að liðið yrði að fá fleiri stig.“ Attilio Lombardo, ítalsk- ur leikmaður liðsins sem hafði orðið Evrópumeistari með Juventus vorið áður, tók við stjórn liðsins og Sví- inn Thomas Brolin var gerð- ur að aðstoðarmanni hans. Hermann var svo ólánsamur að vera í leikbanni í fyrsta leik Lombardos sem knatt- spymustjóra. „Hann stillti upp öðra liði. Þær útskýr- ingar sem ég fékk vora þær að hann væri bara sáttur við það lið, fannst það standa sig ágætlega þótt það hefði tap- að. Ég datt úr Úðinu í tvo eða þrjá leiki, síðan komst ég í liðið aftur og stóð mig mjög vel, að mér fannst. I næsta leik var ég ekki í liðinu,“ segir Hermann. Þegar þrír Morgunblaðið/Golli Hermann Hreiðarsson er harður í hom að taka og gefur ekki þumlung eftir. Hér hvessir hann brýmar og lætur leikmenn franska landsliðsins heyra það í viðureign íslendinga við heimsmeistarana í París í október sl., tveimur dögum áður en hann gekk til liðs við Wimbledon. Hér reyna þeir Lilian Thuram, Laurent Blanc, Alain Boghossian og Marcel Desailly að sefa Eyjamanninn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.