Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ FOLK Leeds gefur ekkert eftir í baráttunni um enska meistaratitilinn „Við spiluðum ynd- islegan fótbolta“ Reuters Lee Bowyer, leikmaður Leeds, leggst af fullum þunga ofan á John Eustace hjá Coventry. Úrslitin voru í samræmi við þetta návígi því Leeds vann öruggan sigur, 3:0, og er áfram með í baráttunni um enska meistaratitilinn. ■ GUÐNI Bergsson lék allan leik- inn í vörn Bolton sem tapaði, 0:2, fyrir Charlton í 1. deildinni. Eiður Smári Guðjohnsen tók út annan leik sinn í þriggja leikja banni og fór heim til Islands í helgarfrí. Charlton vann sinn 11. leik í röð í 1. deild og sæti í úrvalsdeild blasir við liðinu. ■ LÁRUS Orri Sigurðsson fékk að +líta rauða spjaldið 14 mínútum fyrir leikslok þegar WBA tapaði enn einu sinni í 1. deildinni, nú 0:3 gegn Birmingham á heimavelli. Hann fékk þá sitt annað gula spjald fyrir brot. Staðan var þá 0:2 eftir tvö mörk frá Dele Adebola á íyrstu 8 mínútum leiksins. WBA er nú kom- ið í fallsætiog útlitið er dökkt. ■ BJARNÓLFUR Lárusson lék síðustu 6 mínútumar með Walsall sem vann mikilvægan sigur á Grimsby, 1:0. Líkumar á að Walsall haldi sér í 1. deildinni aukast stöð- ugt en liðinu var spáð ófömm og falli í vetur. ■ GUNNAR Einarsson fékk loks tækifæri í byrjunarliði Brentford n sem gerði jafntefli, 1:1, við Cam- bridge í 2. deild. Gunnari var skipt út af á 50. mínútu og ívar Ingimars- son fór sömu leið á 75. mínútu. ■ BJARKI Gunnlaugsson sat á bekknum allan tímann þegar Prest- on vann mikilvægan útisigur á Bumley, 0:3. Áhorfendur á leiknum vom 22.310 sem er met í 2. deild í vetur. Ian Wright náði ekki að skora fyrir Burnley og er ekki enn kominn á blað fyrir félagið. ■ LUC Nilis, belgíski sóknarmað- urinn hjá PSV Eindhoven, hefur \ekið tilboði Aston Villa um tveggja ára samning og kemur til enska fé- lagsins í sumar. Nilis er 32 ára og hefur skorað 12 mörk fyrir PSV í vetur en hann er að ljúka sínu sjötta tímabili með hollenska toppliðinu. ■ PAUL Scholes leikur ekki með Manchester United gegn Bor- deaux í meistaradeild Evrópu í kvöld. Scholes, sem lék ekki gegn Liverpool á laugardaginn, hefur ekki náð sér af meiðslum í mjöðm. ■ EMMANUEL Petit, miðjumaður Arsenal, gæti átt refsingu yfír höfði sér fyrir að senda stuðningsmönn- um Aston Villa „kveðju" þegar honum var skipt af velli í leik lið- anna á sunnudaginn. t ■ RYAN Giggs er sagður í þann veginn að skrifa undir nýjan fjög- urra ára samning við Manchester United sem gefi honum rúmar 20,5 milljónir króna í laun á mánuði. ■ JOHN Hartson er að öllum lík- indum á leið frá Wimbledon til Tottenham, sem hefur boðið rúmar 800 milljónir króna í þennan eitil- harða sóknarmann. ■ JIM Smith, stjóri Derby, lofaði því eftir 4:0 sigurinn á Wimbledon að samið yrði við Georgíumanninn snjalla Georgi Kinkladze til lengri tíma. Hann er sem stendur í láni hjá Derby frá Ajax og er orðinn geysilega vinsæll hjá stuðnings- mönnum félagsins. i ■ HERMANN Hreiðarsson fékk næsthæstu einkunn leikmanna Wimbledon gegn Derby, eða 7, hjá Sunday People. ■ ALEX Ferguson, stjóri Ma- nchester United, segir að fréttir um að David Beckham sé til sölu séu úr lausu lofti gripnar. Beckham sé tilbúinn til að leika með félaginu næstu árin. LEEDS hefur ekki gefið upp vonina um að skáka Manchest- er United í baráttunni um enska meistaratitilinn. Leeds nýtti sér stórmeistarajafntefli United gegn Liverpool á laugardaginn, 1:1, með því að sigra Coventry sannfærandi, 3:0, á sunnudag. Þar með skilja nú fjögur stig lið- in að þegar í hönd fer erfiður kafli hjá Manchester United þar sem skiptast á ieikir í úrvals- deildinni og meistaradeild Evrópu. Eftir þrjá markalausa leiki og hót- un stjórnarformannsins um kaup á nýjum sóknarmönnum tók framlína Leeds vel við sér gegn Cov- entry. Harry Kewell skoraði strax í byrjun leiks og Michael Bridges bætti öðru marki við rétt fýrir hlé. Jason Wilcox innsiglaði síðan sigur- inn skömmu fyrir leikslok. „Við spiluðum yndislegan fótbolta og ég gæti helst gagnrýnt mína menn fyrir að taka lífið of rólega í seinni hálfleik þegar við gátum bætt við mörkum. Menn hafa sagt að við séum að fara á taugum en það er fjarri sanni. Við eigum 11 leiki eftir, reynum að vinna þá alla og sjáum til hvað það gefur okkur,“ sagði David O’Leary, knattspyrnustjóri Leeds. Gordon Strachan, kollegi hans hjá Coventry, sagði fréttamönnum hins- vegar að það hefði verið tímasóun fyrir þá að koma á leikinn. „Þið hefð- uð getað skrifað þetta heima og kíkt á textavarpið til að sjá hverjir skor- uðu. Ég vona bara að leikmenn mínir séu jafn vonsviknir með leikinn og ég,“ sagði hinn líflegi Strachan en Coventry hefur eitt liða í deilda- keppninni enn ekki unnið leik á úti- velli. Áhætta Houlliers reyndist dýrkeypt Gerhard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, getur kennt sjálfum sér um að hafa ekki innbyrt öll stigin á Old Trafford, sem hefði verið fyrsti sigur Liverpool þar í 10 ár. Hann tók þá áhættu að leika manni færri síð- ustu 10 mínútur fyrri hálfleiks eftir að vamarjaxlinn Sami Hyypia fór meiddur af velli, í þeirri von að Finn- inn sterki gæti leikið síðari hálfleik- inn. Mistök í miðri vörn Liverpool leiddu til þess að Ole Gunnar Sol- skjær jafnaði metin fyrir Manchest- er United með síðustu spymu fyrri hálfleiksins. Patrick Berger hafði áður komið Liverpool yfir með glæsimarki, beint úr aukaspyrnu. „Þeir nýta færin betur en við. Þeir fengu eitt færi og jöfnuðu. Þess vegna em þeir betri en við,“ sagði Houllier, vonsvikinn eftir leikinn. Dixon bjargaði Arsenal Bakvörðurinn reyndi Lee Dixon var bjargvættur Arsenal gegn Aston Villa á Villa Park á sunnudaginn. Allt stefndi í sigur hjá Villa sem komst yfir með marki frá Richard Walker en Dixon náði að jafna metin þegar 6 mínútur vom til leiksloka, 1:1. Stan Collymore komst loksins í fréttirnar fyrir annað en vandræði þegar Leicester vann stórsigur á Sunderland, 5:2. Collymore sýndi taktana sem komu honum í fremstu röð á sínum tíma og hann skoraði þrjú mörk fyrir Leicester, tvö þau fyrri hreint stórglæsileg. Ensk blöð fluttu nýjar svallsögur af Collymore á sunnudag en hann svaraði þeim með stórleik. „Það hef- ur gengið á ýmsu hjá Stan Collym- ore en stuðningsmenn Leicester tóku frábærlega á móti mér og leik- mennirnir hafa verið stórkostlegir. Mitt markmið er að skora mörk og ég þakka Martin O’Neill knatt- spyrnustjóra fyrir traustið sem hann hefur sýnt mér,“ sagði Collymore eftir leikinn. Strákurinn úr stórmarkaðnum stendur sig Malcolm Christie, maðurinn sem Jim Smith, stjóri Derby, fann við störf í stórmarkaði og spilandi utan deilda, heldur áfram að gera það gott. Hann átti stóran þátt í góðum sigri Derby á Wimbledon á laugar- daginn, 4:0, en hann lagði upp fyrsta markið fyrir Georgi Kinkladze og bætti öðru við tveimur mínútum síð- ar. Þar með var mótspyrna Her- manns Hreiðarssonar og félaga brotin á bak aftur og Derby lagaði stöðu sína í fallbaráttunni til muna. Wimbledon dregst hinsvegar æ lengra inn á hættusvæðið. Bobby Robson mátti sætta sig við sinn fyrsta ósigur á heimavelli sem stjóri Newcastle þegar Chelsea, mótherjarnir í undanúrslitum bikar- sins, komu í heimsókn. Gustavo Poyet skoraði markið sem skildi lið- inað, 0:1. Ungur íri, Alan Quinn, tryggði Sheffield Wednesday óvænt stig gegn Everton á Merseyside þegar hann jafnaði, 1:1, og gerði þar sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni. Bradford kom líka á óvart með jafntefli gegn Tottenham í London. Jamie Lawrence jafnaði metin, 1:1, en Tottenham hafði þá haft yfirburði mestallan tímann. Southampton og Middlesbrough STOKE City hristi af sér slyðru- orðið á heimavelli og malaði botnlið Chesterfield, 5:1, í 2. deildinni í fyrsta leik Arnars Gunnlaugssonar með félaginu. Það var Peter Thorne sem var maður leiksins en hann gerði fjögur fyrstu mörkin, þrjú á fyrsta hálftímanum og annað markið gerði hann eftir horn- spyrnu Arnars. Varnarmaðurinn Anders Jacobsen skoraði fimmta markið á lokamínútu leiksins. eru bæði áfram á hættusvæðinu eftir jafntefli liðanna á suðurströndinni, 1:1. Arnar lék allan leikinn með Stoke og Brynjar Björn Gunn- arsson fór af velli 5 mínútum fyrir leikslok. Sigursteinn Gísla- son var ekki í leikmannahópi Stoke. Stoke er áfram í 6. sæti deild- arinnar en Gillingham er áfram tveimur stigum á eftir og á fjóra leiki til góða. Þrjú af fimm efstu liðunum náðu ekki að sigra þannig að hagur Stoke vænkaðist að því leyti. Sigurður Ragnar skoraði SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson skoraði fyrra mark Chester sem vann mikilvægan útisigur á Exeter, 2:0, i ensku 3. deildinni á laugardaginn. Sigurður skoraði fyrra markið á 7. mínútu og það er hans þriðja í deildinni með Chester en hann er þar í láni frá Walsall. Chester komst með sigrinum úr neðsta sætinu í fyrsta skipti í vetur, uppfyrir Carlisle, en neðsta lið 3. deildar missir sæti sitt í deildakeppninni. Þriðja mark Heiðars HEIÐAR Helguson skoraði sitt þriðja mark fyrir Watford í 6 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Hann minnkaði þá muninn í seinni hálfleiknum þegar Watford tapaði eina ferð- ina enn, nú 1:2 á heimavelli gegpi West Ham. Heiðar gerði markið með laglegu, viðstöðu- lausu skoti úr þröngu færi, í markhornið fjær, eftir laglega sókn. Heiðar lék allan leikinn í fremstu víglínu og stóð sig ágætlega. Hann og Nordin Wooter fengu hæstu einkunn leikmanna Watford, 7, í Sunday Mirror. Watford situr eitt og yfir- gefið á botni deildarinnar en Graham Taylor, knattspymu- stjóri, segist þó ekki búinn að gefast upp í baráttunni um að halda liðinu uppi. Hann var hins vegar afar óhress með frammi- stöðu liðsins í fyrri hálflcik og lét það í Ijós með því að skipta um þrjá leikmenn áður en síðari hálfleikurinn hófst. „Ég hefði getað eytt öllu leik- hléinu í að benda leikmönnum mi'num á það sem var að, en sá ekki að það yrði að gagni. Ég sparaði mér 15 mi'nútna reiði- lestur með því að segjast ætla að gera þrjár breytingar. Þegar upp er staðið eru það leikmenn- imir sjálfir sem þurfa að taka á málunum til að betur gangi,“ sagði Taylor. Fimm mörk Stokemanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.