Morgunblaðið - 07.03.2000, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 B 7
ÍÞRÓTTIR
FRJALSIÞROTTIR/STORMOT IR
Morgunblaðið/Sverrir
Guðrún Arnardóttir og Susanna Kallur háðu harða baráttu um sigurinn í 50 m hlaupi kvenna á Stórmótinu. Guðrún hafði betur, Sus-
anna varð önnur og Silja Úlf arsdóttir, lengst til vinstri, náði þriðja sætinu. Silju á vinstri hönd er Jenny Kallur er varð fjórða og loks er
á ystu brautinni Guðný Eyþórsdóttir er varð í fimmta sæti.
Stage
farinn
fráKA
DANSKI leikmaðurinn Bo
Stage, sem leikið hefur
með KA í 1. deildinni í
handknatttleik í vetur,
hefur verið leigður til
spænska liðsins Ciudad
Real. Stage lék sinn síð-
asta leik með KA gegn
Fylki á sunnudag og fdr
af landi brott í gær. Hann
verður leigður út tímabilið
á Spáni. Ciudad Real lýsti
yfír áhuga á að fá Stage
til sín og dskaði hann eftir
að fara frá KA. Hann mun
ekki leika með KA á
næsta tímabili því hann
hefur ekki tök á að koma
til landsins af per-
sdnulegum ástæðum. Ciud-
ad Real er félag skammt
frá Madríd og er um miðja
1. deild. Atli Hilmarsson,
þjálfari KA, sagði engan
bilbug á leikmönnum að
finna þrátt fyrir að Stage
væri farinn úr herbúðum
þeirra. „Samstaðan verður
meiri og við munum
treysta á yngri leikmenn
fyrir vikið.“
Þrefalt hjá
Jóni Arnari
Stórmót IR var haldið í Laugardalshöll
fjórða árið í röð á sunnudagskvöldið. Mótið
var hin mesta skemmtun þar sem jöfn og
spennandi keppni var í öllum greinum, fjög-
/
ur Islandsmet voru slegin, auk margra vall-
ar- og mótsmeta. ívar Benediktsson fylgd-
ist með atganginum 1 Laugardalshöll og
rabbaði við fremstu frjálsíþróttamenn
landsins sem þarna luku keppni á innan-
hússkeppnistímabilinu með bros á vör.
að var sannarlega glæsibragur á
frammistöðu keppenda á fjórða
Stórmóti IR í frjálsíþróttum sem
fram fór í Laugardalshöll á sunnu-
dagskvöldið. Fjögur Islandsmet voru
sett, eitt sænskt met var slegið og eitt
írskt auk þess sem betri árangur náð-
ist í stangarstökki kvenna en nokkru
sinni fyrr hefur náðst á móti hér á
landi. Jón Amar Magnússon, Tinda-
stóli, setti þrjú Islandsmet, stökk 7,82
m í langstökki, hljóp 50 m grinda-
hlaup á 6,76 skúndum, auk þess bætti
hann eigið met í þríþraut. „Svona
ganga hlutirnir fyrir sig þegar maður
mætir heill til leiks auk þess sem ald-
urinn og reynslan hefur sitt að segja,“
sagði Jón Amai' að keppni lokinni
með bros á vör.
Guðrún Arnardóttir, Armanni, kór-
ónaði góðan árangur sinn upp á síð-
kastið með því að stórbæta eigið ís-
landsmet í 50 m grindahlaupi, kom í
mark á 6,89 sekúndum.
Jón Arnar kom ákveðinn til leiks,
staðráðinn í að sýna hvað í honum
býr. Strax í fyrstu grein þríþrautar-
innar, 50 m grindahlaupi, hljóp hann
af mikill ákveðni, tók forystu um mitt
hlaup og hélt henni til loka þótt silfur-
verðlaunahafinn í sjöþrautinni á EM
um síðustu helgi, Roman Sebrle, frá
Tékklandi, reyndi að sauma að Jóni.
Tími Jóns var 6,76 og bætti hann þar
með eigið íslandsmet um 3/100 frá því
í íyrra um leið og hann bætti vallar-
metið í Laugardalshöll um 2/100 úr
sekúndu. Það setti Svunn Henrik
Dagard á Stórmótinu í fyrra. Sebrle
varð annar á 6,80 og Norðmaðurinn
Tom Erik Olsson varð þriðji á 6,84.
Jón Arnar náði þar með forystu í
þríþrautinni, fékk 1.000 stig fyrir
fyrstu grein, og lét frumkvæðið ekki
afhendi.
í kúluvai-pinu varpaði Jón lengst
keppenda, 15,97 m í annarri umferð
eftir að hafa varpað 15,19 í fyrstu at-
rennu. Þriðja kast Jóns var síðan
ógilt. Sebrle náði sér ekki á strik í
kúluvarpinu, varpaði lengst 15,02 og
varð annar en Olafur Guðmundsson
varð þriðji með 14,26 m. Jón fékk 849
stig fyrir kúluvarpið og var því sam-
tals kominn með 1.849 stig. Annað ís-
landsmet Jóns Amars kom í lang-
stökki þegar hann fór 7,82 m í annarri
umferð í keppninni. Hann var mjög
ákveðinn í öllum stökkum sínum, en
það fyrsta og þriðja var ógilt. Annað
stökkið heppnaðist hins vegar afar vel
og þar bætti hann sex vikna gamalt
met sitt um 6 sentímetra og hefur þar
með bætt innanhússmetið um 11
sentímetra í vetur. Sebrle, sem er
góður langstökkvari, náði ekki að
svara Jóni og varð annar með 7,46 og
Tom Erik Olsson tryggði sér þriðja
sætið í langstökkinu, stökk 7,27, um
leið og hann vann þriðja sætið í heild-
arkeppninni með 2.549 stig. Sebrle
varð annar með 2.703 stig en Jón Am-
ar fékk 2.864 stig, setti íslandsmet í
þríþraut og bætti fyixa met um 50
stig.
Guðrún feikisterk
Sigurhlaup Guðrúnar Arnardóttur
í 50 m grindahlaupi var afar gott þar
sem hún stakk andstæðinga sína
hreinlega af, þar á meðal Susönnu
Kallm-, Svíþjóð, sem hafnaði í sjötta
sæti í 60 m grindahlaupi á EM fyrir
rúmri viku. Margir bjuggust við að
Kallur yi'ði of sterk fyrir Guðrúnu í
Ijósi þessa, en önnur varð raunin.
Guðrún fékk afar gott viðbragð, náði
strax forystu og gaf hana aldrei eftir í
afar kröftugu hlaupi. Islandsmet
Guðrúnar frá því í fyrra, 7,01 sek-
únda, stóðst ekki átökin. Metið bætti
hún um 12/100 úr sekúndu og hljóp á
6,89. Kallur varð önnur á sænsku
meti, 7,01 og systir hennar, Jenny
Kallur varð þriðja á 7,26 sem er jaftit
sænska metinu eins og það stóð fyrir
hlaupið.
Skömmu áður hafði Guðrún einnig
komið fyrst í mark í 50 m hlaupi á 6,54
sekúndum, 10/100 frá íslandsmeti
Geirlaugar B. Geiriaugsdóttur, Ár-
manni. Susanna Kallur varð einnig að
sætta sig við annað sætið í því hlaupi,
Vernharð Þorleifsson lenti í
níunda sæti á alþjóðlegu júdó-
móti í Búdapest í Ungverjalandi um
síðustu helgi. Fimm íslenskir
landsliðsmenn í júdó tóku þátt í
mótinu, sem gefur stig til þátttöku-
réttar á næstu Ólympíuleikum.
Vernharð, sem keppti á sunnu-
dag, vann Rúmena í fyrstu umferð á
ipponi og Júgóslava á þremur yuko
á 6,56, og þriðja sætið féll Silju Úlf-
arsdóttur, FH, í skaut. Silja hljóp á
6,59, 3/100 á undan Jenny Kallur.
Einstaklega jöfn keppni var í undan-
úrslitum og síðar í úrslitum 50 m
hlaups karla og munaði aðeins 1/100
úr sekúndu á Bjarna Þór Trausta-
syni, FH, og félaga hans, Sveini Þór-
arinssyni, þegar upp var staðið í úr-
slitum. Bjami sigraði á 6,09 og Sveinn
varð annar á 6,10. Ólafur Sveinn,
bróðir Bjarna Þórs, varð þriðji á 6,21.
Reyndar átti FH einnig fjórða mann í
hlaupinu, Óttar Jónsson, og því varð
fjórfaldur FH-sigur í 50 m hlaupi
karla.
Irinn Brennan Reilly bætti eigið
landsmet um einn sentímetra er hann
vippaði sér yfir 228 m í annarri tili'aun.
Vann hann öruggan sigur í greininni en
Islandsmethafinn, Einar Karl Hjartai-
son, varð annar með 221 m og var þrem-
ur .sentímetrurn frá eigin meti. Einar
reyndi síðan við íslandsmet og Ólympíu-
lágmark, 225 m en náði ekki að komast
yfir þá hæð að þessu sinni, en komst
næst því í þriðju tilraun. Ekki er að efa
að Einar á ekki langt í land með að ná
takmarki sínu. Roman Fricke, Þýska-
landi, Svíinn Christian Olsson og Mika
Polku stukku allir yfir 2,16, en allir áttu
þeir sameiginlegt að fella 221 í þrígang.
í annarri umferð. Hann tapaði fyrir
Hollendingi á ipponi í átta liða úr-
slitum og fyrir Þjóðverja í uppreisn-
arglímu á ipponi. Gísli Jón Magnús-
son, sem keppti einnig á sunnudag,
vann Rússa á ipponi í fyrstu umferð
en tapaði fyrir Georgíumanni á
ipponi í annarri umferð.
Þorvaldur Blöndal og Vignir
Grétar Stefánsson töpuðu báðir í
■ ÁTTA af af þeim frjálsíþrótta-
mönnum úr ÍR sem keppt hafa á
Ólympíuleikum áttu heimangengt
og þekktust boð félagsins og voru
heiðursgestir á Stórmótinu. Af-
hentu sumir þeirra verðlaun, en
allir voru þeir kallaðir út á gólf
Laugardalshallarinnar áður en
mótið var sett. Áttmenningarnir
sem mættu eru: Örn Clausen,
Óskar Jónsson, Jóel Sigurðsson,
Reynir Sigurðsson, Stefán _ Sör-
enson, Jón Þ. Ólafsson, Ágúst
Ásgeirsson og Þórdís Lilja Gísla-
dóttir.
■ EGILL Atlason, knattspyrnu-
maður úr KR og sonur Atla Eð-
valdssonar, landsliðsþjálfara í
knattspyrnu, var á meðal kepp-
enda í 50 m hlaupi á Stórmóti ÍR.
Egill hljóp á 6,30 sekúndum í
undanúrslitum sem nægði honum
ekki til að komast í úrslit.
■ UNGLINGAMÓT ÍR var haldið
í tengslum við Stórmótið og
kepptu 15 og 16 ára unglingar á
mótinu. Athyglisverður árangur
náðist í nokkrum greinum. Jónas
H. Hallgrímsson, FH, stökk 4,01
m í stangarstökki og setti
drengjamet.
■ EINNIG var keppt í fullorðins-
flokkum í nokkrum greinum.
Meðal úrslita þar má_ geta að
Guðný Eyþórsdóttir, ÍR, stökk
5,78 m í langstökki og Sverrir
Guðmundsson, ÍR, lyfti sér yfir
4,51 m í stangarstökki.
fyrstu umferð á laugardag. Bjarni
Skúlason sat hjá í fyrstu umferð og
vann Kanadabúa í annarri umferð
en tapaði fyrir Tékka í 16 manna úr-
slitum.
íslenski landsliðshópurinn hélt til
Tékklands eftir helgi og æfir með
tékkneska landsliðinu fram að
næstu helgi en þá verður haldið mót
í Prag.
Vernharð í níunda sæti