Morgunblaðið - 07.03.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 B 11
HANDKNATTLEIKUR
Barisic var bjarg-
vættur Eyjamanna
MIRO Barisic tryggði Eyjamönnum dýrmætt stig gegn Val á
sunnudagskvöldið þegar hann fór inn úr hægra horninu og jafn-
aði, 21:21, þegar 5 sekúndur voru eftir af leik liðanna á Hlíðar-
enda. ÍBV og Valur eru því áfram jöfn að stigum og eiga fyrir
höndum harðan slag í lokaumferðunum um sæti í úrslitakeppn-
inni.
Víðir Sigurðsson
Valsmenn voru klaufar að inn-
byrða ekki sigurinn því þeir
áttu alla möguleika á því á lokamín-
útunum. Þegar Axel
Stefánsson, mark-
skrifar' vörður Vals, varði
frá Daða Pálssyni úr
dauðafæri 40 sekúndum fyrir leiks-
lok blasti sigurinn við Hlíðarendalið-
inu sem var yfir, 21:20, og með bolt-
ann. En þegar 15 sekúndur voru
eftir fór Freyr Brynjarsson inn úr
vinstra hominu, Gísli Guðmundsson,
markvörður IBV, varði og Eyja-
menn nýttu skamman tíma til hins
ýtrasta.
Eyjamenn gátu líka nagað sig í
handarbökin því undirtökin voru
þeirra lengst af. Þeir náðu fjögurra
marka forystu í íyrri hálfleik og
fengu góð færi til að auka hana. I
seinni hálfleiknum vom þeir aftur í
vænlegri stöðu, komnir í 17:14 og tvö
stig innan seilingar. En á 11 mínútna
kafla gerðu Valsmenn fjögur mörk
gegn engu, komust í 18:17, og voru
eftir það fyrri til að skgra í hnífjöfn-
um slag til leiksloka.
Eigum að vera
skynsamari en þetta
„Við erum búnir að klúðra mörg-
um leikjum á þennan hátt og eigum
að vera skynsamari en það að reyna
skot úr erfiðu færi þegar 15 sekúnd-
ur eru eftir. Þetta var leikur sem við
áttum að klára og við töpuðum dýr-
mætu stigi. Jafnteflið bætir stöðu
okkar lítið, við þurfum 3 stig enn til
að vera öruggir í úrslitakeppnina.
Við eigum erfiða leiki eftir, heima-
leik við Hauka og tvo útileiki á erfið-
um völlum,“ sagði Theódór Valsson,
línumaður Vals og varnarjaxl, við
Morgunblaðið eftir leikinn.
Theódór fékk langþráð tækifæri í
sókn Vals og skoraði 7 mörk en hann
hefur til þessa fyrst og fremst verið
lykilmaður í vörn Hlíðarendaliðsins.
„Þetta gekk ágætlega, ég hafði
heppnina með mér, og vonandi þýðir
það að ég fái að spila meira. Ég var
ekki búinn að spila nema 1-2 leiki í
sókninni í vetur og aðallega leyst af
Sigfús og síðan Geir,“ sagði Theó-
dór.
Hann og hinn 18 ára gamli Mark-
ús Máni Michaelsson stóðu upp úr í
Valsliðinu ásamt Axel Stefánssyni,
markverði. Markús er eitt mesta efni
í íslenskum handbolta í dag, lang-
skytta sem þorir að reyna sjálfur og
matar línuna óspart en hann átti sjö
línusendingar sem gáfu mörk.
Klúðruðum þessu
i fyrri hálfleiknum
„Við vorum betra liðið framan af
en klúðruðum þessu í fyrri hálfleik.
Þá vorum við fjórum mörkum yfir og
tveimur mönnum fleiri en nýttum
það ekki. Varnarleikurinn gekk vel
og einnig markvarslan en sóknar-
leikurinn var ráðleysislegur í seinni
hálfleik, Heppnin var frekar á bandi
Valsmanna en annars var þetta lík-
lega sanngjarnt þegar á heildina er
litið. Við höfum fengið fleiri stig á
útivöllum en í íyrra og það er já-
kvætt,“ sagði Erlingur Richardsson,
fyrirliði ÍBV.
Hjá Eyjamönnum voru Guðfinnur
Kristmannsson og Miro Barisic í að-
alhlutverkum. Erlingur var í farar-
broddi í öflugum varnarleik liðsins
og Gísli varði markið vel.
Morgunblaðið/Sverrir
Freyr Brynjarsson, Valsmaður, fer inn úr vinstra horninu gegn Gísla Guðmundssyni, markverði ÍBV. Miro Barisic fylgist með en hann
jafnaði fyrir ÍBV í blálokin eftir að Gísli varði frá Frey.
Víkingar
þurffa
krafta-
verk
Ekkert annað en kraftaverk fær
nú komið í veg fyrir að Vík-
ingar falli úr efstu deild eftir að-
eins ársdvöl. Á
sunnudagskvöld
Páfeson steinlá lið þeirra
skrifar fyrir Frömurum í
Safamýri með ellefu
marka mun; 34:23. Eina von læri-
sveina Þorbergs Aðalsteinssonar
felst nú í því að sigra í þeim þrem-
ur leikjum sem eftir eru og vona að
IR-ingar tapi öllum sínum. Ef
marka má þennan síðasta leik,
verður þó að teljast líklegra að
Víkingar fari stigalausir út úr loka-
sprettinum. Framarar eru á hinn
bóginn með trausta stöðu í öðru
sætinu og geta einir liða veitt Aft-
ureldingu keppni um deildarmeist-
aratitilinn.
Víkingar mættu ákveðnir til
leiks, sér meðvitandi um að nú
væri að duga eða drepast. Þeir
komu langt út á móti sóknarmönn-
um Fram, staðráðnir í að stöðva
hina hávöxnu leikmenn Gunnar
Berg Viktorsson og Robertas
Pauzolis.
Sú áætlun gekk fullkomlega upp,
en sá böggull fylgdi þó skammrifi
að aðrir leikmenn Fram léku laus-
um hala og skoruðu að vild. Langa-
tkvæðamestur var línumaðurinn
Róbert Gunnarsson sem skoraði
átta mörk í fyrri hálfleik, þar af
fimm eftir að hafa hreinlega gengið
í gegnum Víkingsvörnina. Ekki
bætti úr skák fyrir gestina að
heimamönnum tókst hvað eftir
annað að stela knettinum í vörninni
og bruna fram í hraðaupphlaup.
Niðurstaðan varð sú að Framarar
gengu til búningsklefa í leikhléi
með níu marka forystu; 20:11.
Þar sem segja má að úrslitin hafi
verið ráðin í hálfleik, dofnaði mjög
yfir leiknum í síðari hálfleik. Vík-
ingar þéttu vörnina, en Framarar
létu sér nægja að halda í horfinu
og innbyrða tvö dýrmæt stig með
sem minnstri fyrirhöfn. Yngri leik-
menn fengu að spreyta sig, svo
sem Vilhelm G.Bergsveinsson og
Guðjón Drengsson, auk þess sem
Magnús Erlendsson stóð í markinu
nánast allan leikinn og stóð sig
mjög vel. Athygli vakti að fyrst
þegar í algjört óefni var komið brá
Þorbergur Aðalsteinsson til þess
ráðs að skipta nýjum mönnum inn
á. Er það ef til vill til marks um
það andleysi sem ríkir í liðinu, en
svo virðist sem leikmenn og þjálf-
ari hafi gefið upp alla von um að
bjarga sér frá falli eftir skellinn
gegn HK á dögunum.
Eyjamenn á hrakhólum
HANDKNATTLEIKSLIÐ ÍBV var á hrakhólum í höfuðborg-
inni á Iaugardagskvöldið, í kjölfar þess að leik liðsins við
Val var seinkað um sólarhring eftir að þeir Eyjamenn voru
mættir til leiks. Ausandi rigning sfðdegis á laugardag olli
leka í Valsheimilinu þannig að gólfið var of hættulegt til að
á því væri leikið.
„Það var ekki annað að gera en að fresta leiknum en við
lentum í miklum vandræðum. Við rúntuðum um borgina í
tvo tíma til að finna hótel og um tíma blasti við að við þyrft-
um að fara til Keflavíkur því öll hótel á höfuðborgarsvæð-
inu virtust vera full af útlendingum vegna Heklugossins. En
á síðustu stundu fengum við inni á gistiheimili. Þetta þýddi
líka að við misstum af herrakvöldi handknattleiksdeildar-
innar,“ sagði Erlingur Richardsson, fyrirliði IBV, við Morg-
unblaðið.
Hann sagðist ekki viss um hver ætti að bera kostnaðinn
af dvöl liðsins í borginni. „Við töluðum við Einar hjá HSÍ en
hann vissi ekki hvað væri það rétta í málinu. Við hefðum ef-
laust þurft að útvega gistinguna ef þetta hefði gerst í Eyj-
um, en annars látum við gjaldkerana um að greiða úr
þessu,“ sagði Erlingur.
Auðfengin stig KA
KA-menn sóttu tvö auðfengin, en jafnf ramt mikilvæg stig í Ár-
bæinn á sunnudag þegar þeir mættu neðsta liði deildarinnar,
Fylki. Fyrirstaða heimamanna var lítil og lokatölur urðu 15-27,
gestunum í vil.
Það voru Fylkismenn sem hófu
leikinn betur; skoruðu tvö
fyrstu mörkin og virtust líklegir til
afreka í leiknum. Sá
F draumur virtist
Bjarnason hins vegar heldur
skrifar óraunhæfur eftir að
KA-menn höfðu
skorað 5 mörk í röð og breytt stöð-
unni í 2-5. Á þessum tíma varði
Hörður Olafsson, markvörður KA-
manna, afar vel fyrir sína menn,
auk þess sem Fylkismenn voru
klaufskir í sóknarleik sínum. Ein-
kenndist hann oft og tíðum af of
mörgum skrefum, ruðningi og leik-
töfum. Eftir þennan góða kafla fyr-
ir KA-menn skiptust liðin á að
skora; alveg þangað til stutt var
eftir af fyrri hálfleik, þegar gest-
irnir skoruðu 3 mörk í röð og náðu
fjögurra marka forystu. Fylkis-
menn svöruðu og staðan í hálfleik
var 9-12.
Síðari hálfleikur hófst á mjög
svipaðan hátt og sá fyrri. Fylkis-
menn skoruðu, en gestirnir svör-
uðu þá með 5 mörkum í röð og náðu
sjö marka forystu, 10-17. Þar með
var ljóst að leikurinn væri endan-
lega tapaður fyrir Fylkismenn.
Liðin skiptust þó á að skora, alveg
þangað til u.þ.b. 15 mínútur voru
liðnar af hálfleiknum. Þá gerðu
KA-menn sér lítið fyrir og skoruðu
7 mörk í röð og breyttu stöðunni í
13:26. Eftir þessa upprúllun sem
tók um 10 mínútur gátu Fylkis-
menn lítið annað gert en klóra sér í
hausnum. Þeir náðu þó að setja tvö
mörk í lokin til málamynda og loka-
tölur urðu 15:27, KA-mönnum í vil.
Leikurinn í heild var ekki mikið
fyrir augað. Mikið var um mistöK
hjá báðum liðum, þá sérstaklega
heimamönnum sem virtust með
hugann einhvers staðar allt annars
staðar en þar sem hann átti að
vera. KA-menn gengu á lagið, því
þrátt fyrir að þeir hafi ekki átt sér-
lega góðan dag breytti það litlu
máli; fyrirstaðan var nánast engin.