Morgunblaðið - 14.03.2000, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
SKIÐI/HEIMSBIKARINN
Ég mun
fagna vik-
um saman
Hermann Maier frá Austurríki
tryggði sér á laugardaginn
sigur í stigakeppni heimsbikarsins
á skíðum í annað skiptið á þremur
árum. Hann varð þá í þriðja sæti í
stórsvigi í Hinterstoder í heima-
landi sínu og kominn með 1.820
stig á tímabilinu og verður ekki
velt úr toppsætinu héðan af. Kjetil
Andre Aamodt frá Noregi er næst-
ur með 1.400 stig.
Maier hefur jafnframt forystu í
stigakeppninni í stórsvigi og bruni
og getur því sigrað þrefalt á tíma-
bilinu. Maier hefur þegar slegið
stigamet heimsbikarsins en Paul
Accola hafði áður náð flestum stig-
um á einu tímabili, 1.699 árið 1992.
Maier stefnir að því að gera enn
betur og ná 2.000 stigum.
„Ég er útkeyrður og verð afar
hamingjusamur þegar þessu tíma-
bili lýkur. Ég er ekki farinn að
fagna neinum titlum ennþá en ég
mun fagna vikum saman þegar
þessu er öllu lokið,“ sagði hinn 27
ára gamli fyrrverandi múrari eftir
keppnina á laugardag.
Christian Mayer, landi Maiers,
sigraði í stórsviginu á laugardag
og Sonja Nef frá Sviss sigraði í
stórsvigi kvenna í Sestriere á Ital-
íu. Þar kom 18 ára stúlka frá
Spáni, Carolina Ruiz Castillo,
geysilega á óvart með því að ná
öðru sætinu.
Tap hjá Fylki á Kýpur
FYLKIRtapaði 5.1 fyrir rússneska 1. deildar félaginu Alania
Vladikavkaz á Kýpur á mánudag. Fylkir, sem lék án Sverris
Sverrissonar, Þórhalls Dans Jóhannssonar og Hrafnkels Helga-
sonar, náði forystu í leiknum með marki frá Omari Valdimars-
syni á 6. mínútu en staðan var 1:1 í hálfleik. Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Fylkis, sagði að sitt lið hefði leikið vel í fyrri háifleik en
siðan hefði það rússneska, sem var rússneskur meistari árið
1992, tekið öll völd í síðari hálfleik. Fylkir lék tvo leiki til viðbót-
ar á Kýpur, tapaði 5:2 fyrir Landskrona en vann rússneska 2.
deildar liðið Kamaz Chally 5:2.
Reuters
Skíðakappinn Herman
Maier fagnar.
Pylkir lagði
niður vopnin
Leikurinn minnti fremur á æfinga-
leik heldur en leik á Is-
landsmóti. Áhorfendur voru sárafáir
og andrúmsloftið af-
Gísli slappað. FH-ingar
Þorste/nsson fóru sér rólega í upp-
skrífar hafi, hvíldu lykilleik-
menn, en náðu engu
að síður forystu, sem þeir létu ekki af
hendi. Þegar nær dró hálfleik voru
FH-ingar komnir með fjögurra
marka forystu, 11:7, en þá tók Orvar
Rúdolfsson markvörður Fylkis til
sinna ráða, lokaði markinu í nokkrar
mínútur en það gaf Fylkismönnum
færi á að komast aftur inn í leikinn
og minnka muninn lítillega. Sóknar-
leikur Fylkis var aðallega borinn
uppi af þremur mönnum: Þorvarði
Tjörva Olafssyni, David Kekelia og
Eymari Krúger, en þeir gerðu 16 af
20 mörkum liðsins. Aðrir útileik-
menn liðsins virðast ekki eiga erindi
í 1. deild, ef marka má leikinn gegn
FH. Það er því ekki hægt að segja að
liðið hafi yfir breiðum hópi leik-
manna að ráða, enda langt um liðið
síðan ljóst var, að liðið yrði í 2. deild
næsta haust. Leikmenn gerðu sér
vel grein fyrir stöðu liðsins og kipptu
margir þeirra sér ekkert upp við það
þótt sífellt syrti í álinn. Það var því
ekki við því að búast að Fylkir héldi
leikinn út og eftir að liðið misnotaði
sex sóknir í röð í upphafi síðari hálf-
leiks voru úrslitin ráðin. FH skoraði
á sama tíma fjögur mörk og komst í
19:12. Guðmundur Pedersen, með
níu mörk, og Knútur Sigurðsson,
með átta mörk, voru óstöðvandi í
leiknum og virtust skora að vild.
Minna fór fyrir öðrum leikmönnum.
Með sigri er FH nær því að tryggja
sér sæti í úrslitakeppninni en mjótt
er á mununum í neðri hluta deildar-
innar og liðið þarf því á öllum stigum
að halda í síðustu leikjum í deildar-
keppninni, enda verður mótstaðan í
næstu leikjum talsvert meiri heldur
en gegn Fylki á sunnudag.
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 B 3
Vilt þú starfa við
eitthvað skemmtilegt
í sumar?
Fjölbreytt störf í boði - létt og lifandi ÍTR
Hver dagur hefur ný og skemmtileg ævintýri upp á að bjóða.
Með frábærum samstarfsmönnum lærir þú að takast á við
spennandi og stundum erfiðar aðstæður en ert samt
hlæjandi allan tímann.
útilegur - siglingar - íþróttir - klettaklifur - sund - hjólreiðar - sig - kvöldvökur - hellaferðir - ratleikir - gönguferðir
Við leitum að kraftmiklum og jákvæðum starfsmönnum.
Áhugasamir hafi samband við íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
í síma 551-5799 á skrifstofutíma til að fá nánari upplýsingar.
Einnig er hægt að kynna sér ýmis störf hjá ÍTR á http://storf.hitthusid.is.
Hjá okkur finnur þú starf við þitt hæfi.
hress eins og hross.