Morgunblaðið - 28.04.2000, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 C 9
BÍÓBLAÐIÐ
Frumsýning
Stjörnubíó, Laugar-
ásbíó og Borgarbíó
Akureyri frumsýna nýjustu mynd Juliu
^ Roberts, „Erin Brockovich“
Erin Brockovich (Jul-
ia Roberts) er kona
sem ekki á sjö dag-
ana sæla. Hún lendir
í bílslysi sem hún á
enga sök á en lög-
fræðingnum hennar
tekst ekki að semja
um neinar bætur
henni til handa. Hún
endar á því að biðja
lögfræðinginn, Ed
Masry (Albert Finn-
ey), um vinnu á
skrifstofunni hans.
Hann sér aumur á henni og brátt
er hún tekin að starfa fyrir hann og
rekst þá á læknaskýrslur innan í
skýrslum um fasteignaviðskipti á
skrifstofunni. Hún áttar sig ekki á
tengslunum þarna á milli og fær
lögfræðinginn til þess að leyfa
henni að rannsaka málið nánar.
Hún kemst þá að því að orðið hefur
mengunarslys í nágrenninu sem
valdið hefur óbætanlegu tjóni.
Þannig er söguþráðurinn að hluta
í þessari nýjustu mynd Julia
Roberts, Erin Brockovich, sem
Steven Soderbergh leikstýrir. í
öðrum hlutverkum eru Albert Finn-
ey, Aaron Eckhard, Peter Coyote,
Kurt Potter, Marg Helgenberger og
Cherry Jones en handritið gerir
Susannah Grant. Einn af framleið-
endum myndarinnar er leikarinn
Danny DeVito.
Tildrög myndarinnar má rekja til
þess þegar einn framleiðandi henn-
ar, Carla Santon Shamberg, fór til
hnykklæknis. Á meðan hnykklækn-
irinn vann sitt verk sagði hann
henni frá ungri vinkonu sinni sem
hét Erin.
„Ég trúði ekki því sem hann
sagði mér um Erin Brockovich. Það
virtist ótrúlegt að þessi kona, sem
átti tvo skilnaði að baki og hafði tvö
ung börn á framfæri sínu, ómenn-
tuð og átti enga peninga, hefði kom-
ið þessu máli heim og saman. Mér
fannst hún strax vera hin fullkomna
fyrirmynd á nýju árþúsundi."
Carla sagði eiginmanni sínum
Michael Shamberg söguna af Erin,
en Shamberg á kvikmyndafyrir-
tækið Jersey Films ásamt DeVito
og Stacey Sher. Þeim fannst sagan
af Erin henta einstaklega vel í bíó-
mynd og fengu Susannah Grant
hana í hendur, sem tók þegar til við
að skrifa handrit. Leikstjórinn
Steven Soderbergh hafði leikstýrt
„Out of Sight“ fyrir fyrirtækið árið
Erin Brockovich: Julia Roberts í titilhlutverkinu.
Albert Finney og Roberts taka upp
gamalt mengunarmál og fara með
það fyrir rétt.
Erin Brockovich
Leikarar:_____________________
Julia Roberts, Albert Finney,
Aaron Eckhard, PeterCoyote,
Kurt Potter, Marg Helgenberger
og Cherry Jones.
Leikstióri:___________________
Steven Soderbergh („Sex, Lies
and Videotape“, „The Kingof
the Hiir, „Out ofSight", „The
Limey“).
áður og var nú fenginn til þess að
leikstýra þessari mynd.
Soderbergh leist vel á handritið
og myndina í heild. „Hún reiddi sig
mikið á leikinn og það var kven-
maður í hverri einustu senu. Ég
hafði aldrei gert neitt þessu líkt áð-
ur,“ er haft eftir leikstjóranum.
„Sagan um Erin er mjög átakamikil.
Ég vissi ekkert um málið áður, en*
þeir hjá Jersey Films höfðu reynt
að fá mig til að lesa handritið í heilt
ár. Svo þegar ég lauk við „The Li-
mey“ fór ég að leita að einhverju
sem var gersamlega ólíkt henni og
Erin varð fyrir valinu."
Tvær myndir Soderbergh verða
frumsýndar um helgina, „The Lim-
ey “ og „Erin Brockovich“.
Frumsýning Háskólabíófrumsýnirfrönsku heimildarmynd-
ina Microcosmos, sem skoöar pöddulífið meö smásjáraugum.
VI
rei sjaum
Franska heimildar-
myndin „Microcosm-
os“ sem Háskólabíó
frumsýnir um helgina,
lýsir einskonar ferða-
lagi um skordýrahéim-
inn og er unnin með
sérstakri tækni sem
gerir kleift að mynda
atferli og hegðun
smæstu dýra jarðar-
innar.
Leikstjórar hennar eru Claude
Nuridsany og Marie Perennou en
framleiðendur Galatee Films,
Jacques Perrin, Christophe
Barratier og Yvette Mallet en
kvikmyndatökuna önnuðust Nur-
idsany, Perennou, Hughes Ryffel
°g Thierry Machado. Myndin er
tæpar áttatíu mínútur að lengd.
Ékki er mikið talað í
„Microcosmos“ heldur er mynd-
málið ráðandi í bland við tónlist og
áhrifshljóð. Það tók framleiðend-
urna fimmtán ár að undirbúa kvik-
myndagerðina, kynna sér viðfangs-
efnið og koma sér niður á byggingu
myndarinnar. Það tók meira en tvö
ár að hanna og þróa þá tækni sem
gerði þeim kleift að skoða skor-
dýralífið í nærmynd og það tók um
þrjú ár að taka þær myndir sem til
þurfti.
Alls voru teknir sem samsvarar
80 kílómetrum af filmu eða næstum
fjörutíu sinnum meira en myndin
sjálf hefur að geyma.
Einn af aðalleikurunum:
Ferðalag um skordýraheiminn.
Tökubúnaðurinn: Tók meira en tvö
árað þróa tæknina.
Sálm
Sigurður Flosason
Gunnar Gunnarsson
„Það atriði sem án efa kom mest á óvart á
Jazzhátíð Reykjavíkur og hefur verið mikið talað
um síðan voru tónleikar Sigurðar Flosasonar og
Gunnars Gunnarssonar í Hallgrímskirkju, sem
báru yfirskriftina Sálmar iífsins ... Margir
tónleikagesta voru greinilega mjög hrærðir."
Lana Kolbrún Eddudóttir, Rás 1
„Með eindæmum hrífandi. Bravó!"
Ingvi Þór Kormáksson, DV.
„Tónleikarnir heilluðu áhorfendur gersamlega."
Silja Aöaisteinsdóttir, DV
jar i
Frumsýning Kringlubíó og Borgarbíó Akureyri, frumsýna
spennumyndina „Reindeer Games“r Háskaleiki meö Ben
_Nýr tryllir
Frankenheimers
Affleck í leikstjórn Johns Frankenheimers
Rudy Duncan (Ben
Affleck) hefur nýlega
verið látinn laus úr
fangelsi og hann langar
að byrja nýtt líf með
stúlku drauma sinna,
Ashley (Charlize Ther-
on), sem hann kynntist
í gegnum bréfaskrif úr
fangelsinu.
En á milli þeirra og
eilífrar hamingju stend-
ur brjálaður bróðir
hennar, Gabriel (Gary
Sinise). Hann og krimmarnir vinir
hans halda að Rudy búi yfir upp-
lýsingum um spilavíti sem þeir eru
að hugsa um að ræna en hann starf-
aði þar einu sinni. Þannig lendir
Rudy í hinum verstu málum og
verður að slá nýja lífinu á frest.
Þetta er söguþráðurinn í spennu-
myndinni „Reindeer Games“ sem
frumsýnd er í Sambíóunum Álfa-
bakka en hún er með Ben Affieck
og Charlize Theron í aðalhlutverk-
um. Með önnur hlutverk fara Gary
Sinise, Clarence Williams III og
Dennis Farina en leikstjóri er John
Frankenheimer, maður gamall í
hettunni, þekktur fyrir að hafa gert
"The Manchurian Candidate" í upp-
hafi sjöunda áratugarins.
Frankenheimer segist ætíð hafa
haft mikið yndi af spennumyndum
og leist vel á handritið eftir Ehrcn
Kruger. Kruger fékk hugmyndina
að myndinni vetur nokkurn fyrir
stuttu en myndin gerist einmitt um
Affleck og Theron á harðahlaupum undan
óþokkunum í Reindeer Games.
Ben Affleck fer með aðalhlutverkið í
nýrri spennumynd Johns Franken-
heimers.
vetur. „Mig langaði til þess að búa
til eitthvað fyndið úr spennumynda-
forminu," er haft eftir honum. Hann
var mjög ánægður að heyra að
Frankenheimer hefði áhuga á að
stýra myndinni. „Allir þeir sem
skrifa kvikmyndahandrit vita hvað
John Frankenheimer hefur gert
fyrir spennumyndirnar svo ég leit á
það sem mikinn heiður,“ segir hand-
ritshöfundurinn. „Mér fannst hann
einmitt rétti maðurinn fyrir svona
sögu með flóknum karakterum og
mörgum óvæntum uppákomum.
Við þurftum Ieikara sem auðvelt
er að finna til samkenndar með í
hlutverk Rudys og Ben Affleck
smellpassaði í hlutverkið," segir
Frankenheimer. „Hann er líkt og
James Stewart á undan honum einn
af okkur, hversdagslegur, venjuleg-
ur strákur. Og að auki er hann
virkilega hæfileikaríkur leikari."
Affleck hafði gaman af að leika í
myndinni. „Þetta er virkilega
skemmtilegur tryllir,“ segir leikar-
inn, „sem er sífellt að koma áhorf-
endum á óvart, en það er líka í hon-
um alvarlegur undirtónn sem ég
kann vel við.“
Frankenheimer tekur undir þau
orð og segir: „Það sem vakti helst
áhuga minn á handritinu var
þroskasaga aðalpersónunnar,
hvernig hún breytist í gegnum sög-
una og þær raunir sem hún gengur í
gegnum. I byrjun er hann fyrst og
fremst að hugsa um sjálfan sig og
allt það sem er honum fyrir bestu en
þegar á líður tekur hann að líta á
hlutina í stærra samhengi. Hann
gengur fram á brún hengiflugsins
bæði andlega og líkamlega og það
fannst mér athyglisvert að skoða.“
Reindeer Games
Leikarar:
Ben Affleck, Charlize Theron,
Gary Sinise, Clarence Williams
III og Dennis Farina.
Leikstjóri:____________________
John Frankenheimer („ The Ma-
nchurian Candidate “, „Seven
Days in May“, „Black Sunday“,
„52 Pick Up“, ,,Ronin“).