Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 B 3 REYKJAVÍK- MENNINGARBORG EVRÓPU 2000 í KRINGUM LÁNDIÐ 19.05 Mannlíf við opið haf Jörundur Svavarsson - Fyrir- lestur: Hvað leynist í íslenskum undirdjúpum? Fræðasetrið í Sandgerði kl. 20:30. www.sandgerdi.is Sjávarlist á Akranesi - meðal fjölmargra viðburða 20.05 - 04.06 Sýning í Kirkju- hvoli á verkum nemenda í Grund- arskóla. 24.05- 28.05 írskir dagar á Akranesi. 28.05 Umhverfislistaverk af- hjúpuð á Langasandi. 29.05 Sögubrot úr sjávarþorpi. Sýning í bæjar- og héraðsbóka- safninu. 03.06 Akraneshlaupið. www.akranes.is 15.05- 20.08 Hveragerði - blómstrandi bær Þungamiðja dagskrárinnar er Hverasvæðið þar sem gestum og gangandi er boðið í vettvangsferð- ir og að bragða á framleiðslunni og þeim sagt frá líf- og jarðfræði svæðisins. 20.05-20.09 Vatnajökull - nátt- úra, saga, menning Einstök jöklasýning í Sindrabæ Höfn í Hornafirði þar sem visindi, listir og alþýðufróðleikur blandast saman. Stefnt er að því að sýningin verði vísir að Jöklasafni í sveitarfé- laginu þar sem fram fer öflug miðl- un upplýsinga um jökla í tengslum við rannsóknir á þeim. Sýningin tengist Gestastofu Náttúruvernd- ar ríkisins í Skaftafelli og teygir reyndar anga sína um alla sýsluna þar sem sjónum er beint að náttúr- unni sjálfri. Jöklasýningin stendur til 20. september. www.homafjordur.is 31.05 Söguveisla í Sögusetrinu á Hvolsvelli Sögusetrið á Hvolsvelli er brautryðjandi í að tengja saman sögu og atvinnulíf og hefur byggt upp menningarlega ferðaþjónustu með Njáls sögu í öndvegi. Nú verð- ur sett upp sérstök sýning um menningarsögu þjóðarinnar í 1000 ár í máli og myndum. Sýningunni er m.a. ætlað að bregða ljósi á það hvers vegna ísland hefur stundum verið nefnt „Sögueyjan". Sögu- veislan hefst i Söguskálanum kl. 20:00 og verður í sýningu út ágúst. 02.06 - 04.06 Þorláksvaka í sveitarfélaginu Olfusi Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna með tónlistaratriðum, leikjum, fjölskyldugrilli og dans- leik. Dagskráin hefst með tónleik- um Dixielandhljómsveitar Ama Isleifs og Blúsmanna Andreu. 04.06 Minningarsafn Jóns úr Vör Safn um æfi og starf skáldsins Jóns úr Vör verður opnað á Pat- reksfirði á sjómannadaginn. 04.06-17.06 Tengsl menningar og náttúruauðæfa Þetta samstarfsverkefni Grindavíkur og Bláa lónsins og Menningarborgarinnar leggur út af náttúruauðæfum staðarins - jarðhita og sjávarútvegi. Fjöl- breytt dagskrá með tónleikum, myndlistarsýningum, upplestmm og fræðslu sem endurspeglar kröftugt atvinnu- og menningarlíf í Grindavík og nágrenni. www.bluelagoon.is Sýn í heiðna goðafræði Leikbrúðuhefð Tékka er aldagömu! Don Giovanni eftir Mozart Leikbrúðusýningin Don Giovanni er heimsfræg upp- færsla frá Národní Divadlo Marionet, Þjóðarbrúðu- leikhúsi Tékklands í Prag. Hér er á ferðinni hin al- þekkta ópera Mozarts, þar sem um eins metra háar og skrautlegar leikbrúður leika öll hlutverkin TÉKKNESKA Þjóðarbrúðuleik- húsið í Prag hóf starfsemi árið 1991 í kjölfar þeirra miklu breyt- inga sem áttu sér stað í Tékklandi á þeim tíma. Með stofnun þess var blásið nýju lífi í aldagamla brúðu- leikhúshefð Tékka; hefð sem á sér ríka og glæsilega sögu en hafði leg- ið í dvala um áratuga skeið. Þjóðar- brúðuleikhúsið varð liður í mikilli endurfæðingu tékknesks leikhús- lífs, þar sem stefnt var að þvl að hægt væri að hefja að nýju til vegs og virðingar þjóðlega en jafnframt framsækna leikhúshefð í sjálfstæð- um, einkareknum leikhúsum. Don Giovanni var fyrsta sýning- in sem fór á fjalir Þjóðarbrúðuleik- hússins. Sýningin hefur gengið þar meira eða minna síðan og er nú orðin eitt af kennileitum Prag. Hún hefur einnig verið sýnd víða um heim. Alls hefur sýningin verði flutt nær 1.800 sinnum. Islending- ur kemur við sögu í tónlistarþætti sýningarinnar, sem er fluttur af bandi, en þar syngur Kristinn Sig- mundsson hlutverk II Commend- atore. Sýningin er jafnt við hæfi barna og fullorðinna og lítil þekking á ítölsku eða á söguþræði óperunnar er engin fyrirstaða. Uppsetning þessarar sýningar er samvinnu- verkefni Islensku óperunnar, Listahátíðar í Reykjavík og Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu árið 2000. Sýningar verða í íslenska óper- unni 3. og 4. júní, kl. 15:00 og 20:00. Norsk-íslenska síldin Möguleikhúsiö leggur sitt af mörkum til menningar- ársins meö frumsýningu á Völuspá, nýju leikriti fyrir börn eftir Þórarin Eldjárn „VÖLUSPÁ er leiksýning fyrir áhorfendur frá tíu ára aldri. Eins og titillinn gefur til kynna er hér um að ræða sýningu sem byggist á hinni fornu Völuspá," segir Pétur Eggerz, stjórnandi Möguleikhússins og eini leikari sýningarinnar. „Kvæðið er notað sem grunnur til að veita áhorfendum sýn inn í hug- myndaheim heiðinnar goðafræði og sjá hvernig menn sáu fyrir sér sköp- unarsögu heimsins. Textinn hefur löngum þótt heldur torskilinn, en í sýningunni verður leitast við að færa hann nær áhorfendum og nýta hann til að leikgera þætti og sögur úr nor- rænni goðafræði. Þórarinn Eldjárn hefur áður unnið með texta Völuspár er hann „þýddi“ texta kvæðisins yfir á nútíma íslensku," segir Pétur Egg- erz. Þetta er sýning með einum leik- ara og tónlistarmanni. Leikarinn gegnir í senn hlutverki sögumanns og leikur allar persónurnar með dyggri aðstoð sellóleikarans Stefáns Arnar Arnarsonar. Leikstjóri sýningarinnar er danski leikarinn Peter Holst, en Pétur Eggerz leikari og Stefán Örn Arnarson sellóleikari flytja Völuspá. hann hefur um margra ára skeið rekið sitt eigið leikhús í Danmörku, Det lille turnéteater, sem er barna- og unglingaleikhús sem lagt hefur sérstaka áherslu á frásagnarleikhús af sama toga og hér er um að ræða. Þess má geta að Det lille turnéteater kom hingað til lands fyrir nokkru með sýninguna Ódysseif. Frumsýning verður laugardaginn 27. maí kl. 17:00. Sýningin er á dag- skrá bæði Reykjavíkur menningar- borgar og Listahátíðar í Reykjavík. BOKMENNTIR/KVIKMYNDIR 06.05-08.05 Silfrið salta Ný heimildarmynd um söguna á bak við 100 ára eltingaleik ís- lendinga og Norðmanna við hið eftirsótta silfur hafsins. Myndin er framleidd í samvinnu íslenskra og norskra aðila og varpar nýju ljósi á merkilegt tímabil í sögu og samskiptum þjóðanna. Frum- sýnd í Háskólabíói kl. 18:00. 14.05 Reykjavík vorra daga Frumsýning á endurgerðri kvikmynd Oskars Gíslasonar. Myndin var fyrst sýnd í tveimur hlutum árið 1947 og hefur því ómetanlegt heimildargildi um sögu og menningu Reykjavíkur. Háskólabíó kl. 15:30. 19.05 Leiðsögurit um íslenska byggingarlist Arkitektafélag íslands stendur fyrir útgáfu tímamótarits um ís- lenska byggingarlist og sögu, en þetta er í fyrsta sinn sem slíkt heildarrit er gefið út. 20.05-08.06 íslands 1000 ljúð Listahátíð stendur fyrir sýn- ingu í Þjóðmenningarhúsinu, upplestrum, ljóðadagskrá og opnun ljóðavefjar þar sem ís- lensk ljóðlist er hyllt. Markmiðið er einnig að vekja áhuga almenn- ings á ljóðum, fornum og nýjum. www.artfest.is hvarf á dularfullan hátt Laugardaginn 6. maí, morgun, veröur frumsýnd í Háskólabíói ný heimildarkvikmynd, Silfriö salta, um norsk- íslenska síldarævintýriö á íslandi ÞÓR Elís Pálsson er meðframleið- andi myndarinnar og hann lýsir efni hennar á þessa leið:,Á nítjándu öld var síldin mikilvægasta fæðan við Noregsstrendur. En um 1879 hvarf hún á dularfullan hátt undan strönd- um Noregs og neyddust þá norskir sjómenn til að leita hennar á öðrum miðum. Hafið við ísland var krökkt af sfld og á stuttum tíma urðu Aust- firðir sannkölluð sfldarparadís í kringum 1880. Þessi matarkista við Norðausturland hvarf á sama dular- fulla háttinn um 1969. í gjörvallri veiðisögu heimsins er ekkert tímabil sveipað jafn mikilli dulúð og töfrum sem þetta næstum þvi aldarlanga síldarævintýri. í Noregi jafnt sem á Islandi er þessi saga nánast óþekkt meðal almennings. Við leggjum metnað okkar í að segja norsku og íslensku þjóðinni þessa sögu og von- umst til að ná um leið til áheyrenda annars staðar í veröldinni,“ segir Þór Elís. Viðtöl og persónulegar frásagnir „Myndin er þannig byggð upp að fyrstu fimmtíu árin fram undir 1930 er sagan rakin með ljósmyndum, gömlum kvikmyndum, viðtölum við sérfræðinga og upplestri úr dagbók- arbrotum. Tímabilið eftir 1930 not- umst við einnig við safnaefni, en jafnframt erum við svo heppin að geta stuðst við frásagnir fólks sem upplifði atburðina sjálft. Við leggj- um megináherslu á að nota reynslu fólks til að lýsa öllum hliðum norska Síldarkíkir. síldarævintýrsins á íslandi. Pers- ónulegar frásagnir vefjast inn í at- burðarásina, s.s. raunir fjölskyld- unnar sem heima sat, fundum og samskiptum Norðmanna og Islend- inga. Með orðum sjómannanna sjálfra beinum við athyglinni að lífs- skilyrðum þeirra, harðræðinu um borð, óbærilegri vinnuaðstöðunni á úreltum skipum, draumum þeirra um að hreppa þann stóra, sam- keppninni milli báta, gálgahúmor sjómannanna og því hvernig þeir upplifðu ísland, Siglufjörð, Seyðis- íjörð o. fl. Heimsvaldasinnar og arðræningjar Þessi mynd fjallar um samskipti tveggja ólíkra menningarheima. Til að segja söguna einsog hún er mun- um við ekki síst hlýða á sjónarmið Islendinga. Hvað fannst Islending- um jákvætt og hvað neikvætt við innrás Norðmanna? Hvað er hæft í því að Norðmenn hafi reist Siglu- fjörð og Seyðisfjörðog síðar orðið að réttum og sléttum íslendingum? Eða voru Norðmennirnir bara heimsvaldasinnar af verstu gerð sem arðrændu ísland með sfldveið- um við strendur þess og höfðu sig síðan á brott ? Með því að sjá málin frá sjónarhóli íslendinga jafnt sem Norðmanna vonumst við auðvitað til að auka þekkingu og skilning milli þessara frændþjóða," segir Þór Elís Pálsson meðframleiðandi myndar- innar um Norska síldarævintýrið. Leikstjóri myndarinnai* og hand- ritshöfundur er Brynjar Stautland, umsjónarmaður og handritshöfund- ur er Karl Johan Paulsen. Kvik- myndatökumaður var Knut Aas og framleiðendur eru Per Christian Magnus og Stig Andersen. Með- framleiðandi er Þór Elís Pálsson og framleiðslufyrirtæki er Nordis Film. Tónlist er eftir Johan Leiva Modal og Nanna Jónsdóttir sá um förðun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.