Morgunblaðið - 31.05.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913
124. TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Framtíðin
sýnd á
Expo 2000
RISAVAXIN líkneski úr pappa-
massa sem ijá framtíðarsýn lista-
manna og töivufræðinga verða til
sýnis á heimssýningunni Expo 2000
í Hannover í Þýskalandi sem verður
opnuð á morgun. Ein sýningarhöll-
in er tileinkuð framtfðinni en fjöl-
mörg ríki hafa reist sýningarskála
á svæðinu, þeirra á meðal ísland.
OECD
spáir 4,3%
liag’vexti í
heiminum
París. Reuters.
EFNAHAGS- og framfarastofnun-
in (OECD) spáði því í gær að hag-
vöxturinn í heiminum yrði rúm 4%
í ár og litlu minni á næsta ári.
Stofnunin telur að efnahagur
heimsins hafí batnað verulega frá
því í efnahagskreppunni í Asíu og
víðar í heiminum á árunum 1997-98
og þróunin í efnahagsmálum hafí
ekki verið hagstæðari í rúman ára-
tug. OECD spáir 4,3% hagvexti í
heiminum í ár og 3,8% á næsta ári,
en hann var 3,1% í fyrra.
í spánni er gert ráð fyrir að hag-
vöxturinn í Bandaríkjunum verði
4,9% í ár en minnki í 3% á næsta
ári. Horfur á viðvarandi hagvexti
og minnkandi atvinnuleysi á evru-
svæðinu séu nú þær bestu í áratug.
Stofnunin spáir 3,5% hagvexti á
svæðinu í ár og 3,3% á næsta ári,
en hann var 2,3% í fyrra.
Stofnunin bendir á að mikill
efnahagsvöxtur og óhófleg bjart-
sýni fjárfesta á hlutabréfamörkuð-
um hafí stundum valdið verðbólgu
og umróti á fjármálamörkuðum og
að lokum víðtækum efnahagssam-
drætti.
■ Hætta á/20
Rússar ósáttir við um-
mæli forseta Lettlands
Riga, Moskva. Reuters.
RÚSSAR hafa brugðist ókvæða við
ummælum Vairu Vike-Freiberga,
forseta Lettlands, í tímaritsviðtali
sem birtist um síðustu helgi. Vike-
Freiberga sagði m.a. í viðtali við
þýska fréttatímaritið Der Spiegel að
óstöðugleikinn í Rússlandi gerði sig
taugaóstyrka og að hún gæti aldrei
útilokað að Lettland yrði hernumið
á nýjan leik af Rússum. I yfirlýsingu
sem rússneska utanríkisráðuneytið
sendi frá sér í gær segir að rússnesk
stjórnvöld álíti „árásargjarnan" tón
forsetans í garð Rússa vera út í hött.
„Við erum þess fullvissir að ekki
deili margir íbúar Lettlands né ann-
arra landa og fjölþjóðasamtaka, sem
hafa að markmiði að skapa lýðræði í
Evrópu án tvöfeldni og nýrra átaka-
lína, afstöðu forsetans," segir i yfir-
lýsingunni.
Grunnt hefur verið á því góða í
samskiptum Rússlands og Lett-
lands frá því að Lettland varð sjálf-
stætt ríki fyrir réttum tíu árum.
Rússar hafa t.d. lengi haft áhyggjur
af stöðu rússneska minnihlutans í
Lettlandi, sem er um þriðjungur
hinna 2,5 milljóna íbúa landsins.
I viðtalinu við Der Spiegel kvart-
aði Vike-Freiberga undan því að
tengsl landanna eftir að Vladimír
Pútín varð forseti Rússlands hefðu
ekki batnað líkt og hún hefði vonast
til. „Rússland verður að átta sig á
þeirri staðreynd að við erum ekki
lengur Sovétlýðveldi. Lettland er
fullvalda ríki.“ Fyrr í þessum mán-
uði sagði hún að yfirlýsingar Rússa
vegna þeirrar stefnu Letta að fá að-
ild að NATO væru í anda „kalda
stríðsins".
Ríkisstjórn Póllands riðar til falls vegna deilna milli stjórnarflokkanna
Stj órnarkreppa yfírvofandi
Varsjá. AP.
Hagfræðingurinn Bog-
uslaw Grabowski, sem
var álitinn líklegastur
til að verða næsti for-
sætisráðherra Pól-
lands, kvaðst í gær ekki
vilja taka við em-
bættinu og dregur það
úr líkunum á því að
hægt verði að bjarga
ríkisstjórninni sem rið-
ar til falls vegna deilna
stj ómarflokkanna,
Samstöðu og Frelsis-
bandalagsins (UW).
Grabowski kvaðst
ekki vilja taka við for- jerzy Buzek
sætisráðherraembætt-
inu af Jerzy Buzek, sem nýtur ekki
lengur stuðnings Frelsisbandalags-
ins, vegna þess að hann teldi að öfl-
ugri stjórnmálamann þyrfti til að
binda enda á óeining-
una innan Samstöðu.
Rúmlega 20 þingmenn
Samstöðu hafa hindrað
mörg frumvörp stjórn-
arinnar um markaðs-
umbætur sem era
nauðsynlegar til að búa
Pólland undir aðild að
Evrópusambandinu
(ESB). Þetta varð til
þess að allir ráðherrar
Frelsisbandalagsins
báðust lausnar vegna
óánægju með að Buzek
skyldi ekki hafa taum-
hald á þingflokki Sam-
stöðu, Forsætisráð-
herrann hafnaði afsagnarbeiðni
ráðherranna í von um að hægt yrði að
bjarga stjóminni. Frelsisbandalagið
féllst á að hefja samningaviðræður
um áframhaldandi stjórnarsamstarf
en krafðist þess að forsætisráðherr-
ann segði af sér. Leiðtogar flokkanna
sögðust í gær gefa sér hálfan mánuð
til að leysa deiluna.
Formaður Samstöðu
vill ekki stól Buzeks
Marian Krzaklewski, formaður
Samstöðu, lagði til að Grabowski
tæki við forsætisráðherraembættinu
og leiðtogi Frelsisbandalagsins,
Leszek Balcerowicz fjármálaráð-
herra, virtist styðja þá tillögu. Krafa
Frelsisbandalagsins um að næsti for-
sætisráðherra tryggði nægan stuðn-
ing á þinginu við stefnu stjórnarinnar
virðist hins vegar hafa orðið til þess
að Grabowski hafnaði embættinu.
Hann er hagfræðingur pólska seðla-
bankans en hefur litla reynslu af
stjórnmálum.
Krzaklewski hefur oft verið nefnd-
ur sem hugsanlegur eftirmaður
Buzeks en mun ekki hafa hug á að
taka við embættinu þar sem hann
hyggst gefa kost á sér í forsetakosn-
ingunum síðar á árinu. Hann stendur
frammi fyrir mjög erfiðri baráttu við
Aleksander Kwasniewski forseta
sem er nú vinsælasti stjórnmálamað-
ur Póllands.
Náist ekki samkomulag um nýjan
forsætisráðherra getur Buzek reynt
að stjórna landinu með stuðningi
minnihluta þingsins en líklegt er að
stjórnarandstaðan felli stjórnina við
fyrsta tækifæri til að knýja fram
kosningar. Skoðanakannanir benda
til þess að Lýðræðislega vinstri-
bandalagið, flokkur fyrrverandi
kommúnista, vinni stórsigur í kosn-
ingunum vegna óvinsælda stjórnar-
Norður-Irland
DUP á ný
í héraðs-
sljórnina
Bclfast. AFP.
FLOKKUR eindreginna sam-
bandssinna á Norður-írlandi
ákvað í gærkvöld að taka þátt í
endurreistri héraðsstjórn N-
írlands sem bresk stjómvöld
leystu frá völdum í febrúar sl.
Lýðræðislegi sambandsflokk-
urinn (DUP), sem lýtur forystu
Ian Paisley, hafði tvo ráðherra í
héraðsstjórninni og munu þeir
samkvæmt ákvörðun flokksins
snúa aftur til starfa. Varafor-
maður DUP, Peter Robinson,
varaði þó við því í gær að ráð-
herrar flokksins myndu segja
af sér ef ekki tækist að fá þing
N-írlands til að samþykkja að
víkja Sinn Fein, pólitískum
armi írska lýðveldishersins
(IRA), úr héraðsstjórninni. Ef
mistækist að bola Sinn Fein
burt úr héraðsstjórninni
myndu ráðherrarnir hætta við
þátttöku en flokkurinn útnefna
nýja fulltrúa í þeirra stað.
Lýðræðislegi sambands-
flokkurinn hefur lengi verið
andvígur friðarsamkomulaginu
á N-írlandi frá 1998 sem kennt
hefur verið við föstudaginn
langa. Flokkurinn samþykkti
að eiga aðild að héraðsstjórn-
inni en ráðherrar hans neituðu
ávallt að sitja á fundum með
ráðherrum Sinn Fein.
MORGUNBLAÐIO 31. MAI 2000
5 690900 090000