Morgunblaðið - 31.05.2000, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 31.05.2000, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2000 KIRKJUSTARF Safnaðarstarf , Dagur aldraðra „PEGAR nú Drottinn Jesús hafði talað við þá, var hann upp numinn til himins og settist til hægri hand- ar Guði. Þeir fóru og prédikuðu hvarvetna, en Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum, sem henni fylgdu.“ (Mark. 16:19-20.) Þessa er minnst á uppstigningar- degi í kirkju okkar. A ári aldraðra 1982 var uppstigningardagur val- _ jnn kirkjudagur aldraðra í landinu í samráði við Ellimálanefnd þjóð- kirkjunnar, en hún vinnur að efl- ingu kirkjustarfs aldraðra á vegum þjóðkirkjunnar. Þá er eldri borgur- um og fjölskyldum þeirra boðið sérstaklega til guðsþjónustu. Aldr- aðir taka virkan þátt í guðsþjónust- unni með söng ög upplestri. Þá hafa margir söfnuðir boðist til að aka fólki til og frá kirkju og bjóða í kirkjukaffi þennan dag. Þarna gefst fjölskyldum tækifæri á að eiga hátíðarstund saman í kirkjunni sinni. Einnig eru víða í kirkjum sýningar á verkum sem aldraðir hafa unnið í vetrarstarfinu. Útvarpsguðsþjónusta á vegum Ellimálanefndar þjóðkirkjunnar verður að þessu sinni frá Grafar- vogskirkju kl. 11. Sr. Vigfús Þór Arnason og sr. Anna Sigríður Páls- dóttir þjóna fyrir altari og hr. Olaf- ur Skúlason flytur prédikun. Þá munu eldri borgarar þjóna í þess- ari guðsþjónustu. Organisti er Hörður Bragason. Ellimálanefnd þjóðkirkjunnar hvetur alla til að koma í kirkju þennan dag og kynna sér það sem í boði er fyrir eldri borgarana og gleðjast með þeim á kirkjudegi aldraðra. Nýtt safnaðar- heimili Kefia- víkurkirkju blessað og kap- ellan vígð Á UPPSTIGNINGARDAG, fyrsta júní nk., mun biskup Islands, herra Karl Sigurbjörnsson, blessa nýtt safnaðarheimili Keflavíkursafnaðar og vígja hina nýju kapellu. Sam- komulag varð um það á aðalsafnað- arfundi að nefna safnaðarheimilið Kirkjulund og kapelluna Kapellu BAR • FESTI Sundaborg 7-9 Sími: 568-4888 BÁR-FESTI — AfengísLacis bjórz 14) DIEBELS _____jáfengislaus uppfyllir allar kröfur sem neytandinn gerir í dag til svaladrykkja: Braqðmikili jEinkennandi fyrir áfengislausan DIEBELS er hið óviðjafnanlega bragð, auk þess er hann uppfullur af vítamínum, steinefnum og kolvetnum sem endurnæra likamann. Fáar hitaeininqar -------------- .JÁfenaislaus DIEBELS er ekki eingöngu frískandi, hann inniheldur aðeins 17 kcal á 100 ml eða helmingi minna en til dæmis sama magn af eplasafa. KTBÍfiMffBiTnínnslekkur ekki eingöngu þorsta og frískar. Lfkaminn tekur upp næringarefnin, sem áfengislaus DIEBELS inniheldur, á skjótan hátt - sem kemur sér vel þegar stundaðar eru íþróttir eða við aðra líkamlega áreynslu, þar sem svitnað er mikið. DIEBELS gera í dag jppfyllir kröfur sem neytendur tliebds Þitt er augnablikið Wímsar-uörurehf. Umboðsaðili t) ICb CÍ5 á íslandi Sími:544 8060 - Fax: 544 8066 Grafarvogskirkja vonarinnar. Nýja safnaðarheimilið myndar lund við kirkjuna og kap- ellan er vitnisburður vonar er við höldum inn í nýja öld. Það er ánægjulegt og mjög mikils virði að um þessa glæsibyggingu, sem sam- einar fegurð og notagildi, hefur náðst góð sátt Keflvíkinga, Keflavíkurkirkja er aldamóta- kirkja. Fyrsta skráða heimild um kirkjubyggingu í Keflavík er frá 1888 og enn á ný hlúa Keflvíkingar að kirkju og söfnuði við aldahvörf. Athöfnin hefst kl. 14 með hátíð- armessu í Keflavíkurkirkju og henni verður síðan fram haldið í kapellunni og safnaðarheimilinu. Að lokum verður boðið til kaffi- samsætis á staðnum. Við þetta tækifæri verður flutt Kantata, kórverk eftir Eirík Ama Sigtryggsson, er hann hefur samið Fríkirkjan í Reykjavík Uppstigningadagur Dagur aldraðra Guðsþjónusta kl. 11.00 Organisti Kári Þormar Kyrrðarstundir í kapellunni í hádeginu á miðvikudögum. Súpa og brauð á eftir. I I Allir hjartanlega velkomnir : Hjörtur Magni Jóhannsson. cd K §; ! M m ss m m m éí | i § ijfc' i »:°i H í tilefni vígslunnar við texta Davíðs Stefánssonar. Þá munu listamenn efna til listsýningar í gamla Kirkjulundi í tilefni af 1000 ára kristni á íslandi. Það er von sóknamefndar og starfsfólks Keflavíkurkirkju að í Kirkjulundi hinum nýja dafni blóm- legt menningar- og trúarlíf og þar verði samfélagsleg málefni rædd af einurð. Allir era velkomnir að samfagna á uppstigningardag meðan húsrúm leyfir. Safnaðarheimilið verður opið eft- ir vígsluna og þá er tilvalið að kveðja gamla Kirkjulund með því að skoða sýningu okkar ágætu listamanna, sjá nýja heimilið og eiga hljóða stund í Kapellu vonar- innar. Messa aldraðra í Dómkirkjunni Á UPPSTIGNINGARDAG kl. 14 verður að venju messa aldraðra í Dómkirkjunni. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson messar, Bergþór Pálsson syngur einsöng og Dóm- kórinn syngur undir stjórn Mar- teins H. Friðrikssonar. Á undan messu syngur kór 100 barna, sem era á Norrænu barnakóramóti. Kirkjukaffi verður á Hótel Borg að messu lokinni þar sem Bergþór syngur einnig. Nú er gott tækifæri að koma og skoða kirkjuna svo fögur sem hún er nú eftir endurbæturnar. Ekki síst er þó ástæða til þess að minna á þátt aldraðra í safnaðarlífinu með þessum hætti og hugleiða málefni þeirra í ljósi kristins boðskapar. Prestar Dómkirkjunnar hafa haft reglulegt helgihald á Vesturgötu 7 undanfarin ár og samstarf við fé- lagsstarfið þar. Aldraðir í Dómkirkjusókn og vel- unnarar Dómkirkjunnar í hópi aldraðra eru sérstaklega boðnir velkomnir. Öldruðum boðið í kaffi í Hafnarfjarðar- kirkju SVO SEM tíðkast hefur undanfarin ár er eldri borguram boðið sérstak- lega til guðsþjónustu í Hafnarfjarð- arkirkju á uppstigningardegi sem nú ber upp á fimmtudaginn 1. júní og hefst hún kl. 14.00. Eftir hana er boðið til kaffisamsætis í Hásöl- um Strandbergs, safnaðarheimilis- ins nýja. Reynt verður að greiða götu eldri borgara til og frá kirkju. Rúta kemur að Hrafnistu kl. 13.15, Höfn kl. 13.25, Sólvangi um kl. 13.30 og Sólvangshúsum um kl. 13.40 og ek- ur þaðan að kirkju og aftur til baka síðar. Einkabílar verða líka í för- um. Þeir sem óska eftir bílferð geta haft samband við kirkjuþjón í safn- aðarheimilinu kl. 10.00-12.00 þenn- an dag í síma 555 1295 og 862 1027. Prestur í guðsþjónustunni verður séra Þórhildur Olafs. Snorri Jóns- son fyi'rum yfirkennari mun lesa ljóð og leikið vei’ður á hannonikkur í samkvæminu. Fjölmargir hafa síðastliðin ár sótt guðsþjónustuna í Hafnarfjarðarkirkju á uppstigning- ardegi og notið þess að vera í sam- kvæmi á hennar vegum og þess er vænst að svo verði einnig nú. Prestar Hafnarljarðarkirkju. Uppstigningar- dagur í Hall- grímskirkju Á MORGUN, uppstigningardag, verða tvær messur í Hallgríms- kirkju kl. 11.00 og kl. 17.00. I fyrri messunni, kl. 11.00, prédikar sr. Ragnar Fjalar Láras- son fyrram sóknarprestur Hall- grímskirkju, en fyrir altari þjónar sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Schola cantoram syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar kantors. Strax að lokinni messu verður eldri borg- uram boðið að taka þátt í ferð til Strandarkirkju. Fyrst verður ekið til Hafnarfjarðar og hádegisverður snæddur í Fjörakránni. Dagbjört Theodórsdóttir verður fararstjóri. í síðdegisguðsþjónustunni kl. 17.00 flytur Mótettukórinn mótett- una Jesu meine Freude eftir J.S. Bach ásamt hljóðfæraleikurum undir stjórn Harðar Áskelssonar kantors. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjudagur aldraðra í Fella- og Hóla- kirkju Á MORGUN, 1. júní, uppstigning- ardag, kirkjudegi aldraðra, verður guðsþjónusta í Fella- og Hóla- kirkju kl. 14. Sr. Bragi Friðriksson, fyrrverandi prófastur í Kjalarnes- prófastsdæmi, prédikar en séra Guðmundur Karl Ágústsson sókn- arprestur þjónar fyrir altari ásamt Lilju G. Hallgrímsdóttur djákna. Ritningarlestra annast Sigurborg Skúladóttir og Valdimar Olafsson meðhjálpari. Ingibjörg Ingólfsdótt- ir les lokabæn. Organisti kirkjunn- ar, Lenka Matéová, leikur á orgelið og Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar. Eftir guðsþjónustuna bjóða sóknarnefnd- ir upp á kaffiveitingar í safnaðar- heimilinu. Allir eru velkomnir að Heillaóskaskeyti Símans er si^ild kvedja á fermin^ardajsinn Móttaka símskeyta er í síma 146. Við bendum fólki sérstaklega á þá þægilegu leið að panta sendingu fermingar- skeyta á Internetinu eða panta bið- skeyti fram í tímann. Skeytin verða borin út á fermingardagina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.