Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 E 3
netið
Á NETSTÖÐINNI Á GRANDA ER FÓLKI KENNT HVERNIG ÞAÐ GETUR TEKIÐ HEILLEGA HLUTI ÚR GÖMLUM TÖLVUM OG BÚIÐ TILTÖLVU ÚR
PÖRTUNUM SEM GENGUR FYRIR LINUX-STÝRIKERFI. GÍSLI ÞORSTEINSSON KYNNTI SÉR HVAÐ FRAM FER í HÚSAKYNNUM NETSTÖÐVARINNAR.
Tólvur sem
öðlast nýtt
Netstööinni fara
fram námskeið
fyrirfólká aldr-
inum 15-25 ára,
sem áhuga hefur
á að vinna við
tölvureöa Netiö.
Hvert námskeið
byggist á kennslu í Linux-stýri-
kerfinu auk þess sem nemendur
fá kennslu í að taka það sem heil-
legt er í gömlum tölvum, búa til
nýja og setja á hana stýrikerfiö. Er
markmið námskeiðsins að gera
fólk sjálfbjarga á tölvur og tengda
tækni til þess að hasla sér völl á
þeim vettvangi. Guðmundur Ragn-
arGuðmundsson, sem erfor-
stööumaður Netstöðvarinnar, seg-
ir að flestir haldi aö það sé mikil
kúnst að setja upp tölvu en svo sé
ekki. „Þegar búið er að læra undir-
stöðuatriðin er ekkert því til fyrir-
stööu að setja saman tölvu og
setja inn á hana stýrikerfi. Fólk er
stundum svolítið hrætt við þetta
en það er mjög þægilegtilfinning
að vita hvað erí kassanum."
Guðmundur segir að ástæða
þess að Linux-stýrikerfi sé sett á
tölvurnar sé sú að lítil Linux-vél
geti gert ýmislegt er tengist
Netinu, til dæmis unnið sem
vefþjónn og póstþjónn, en til þess
að vinna með gluggakerfi, eins og
Windows, þyrfti stærri ogöflugri
tölvur. „Þá hentarverrað kenna
innri verkan tölvunnar í gluggakerfi
því það miðast oftast við að hægt
sé að nota vélina án þess að
skilja hvernig hún virkar."
Vildi koma fólki af stað
Aöspurður um hvers vegna
hann hafi ákveðiö að koma starf-
semi Netstöðvarinnar á legg segir
Guðmundur að eftir margra ára
vinnu og kennslu í tengslum við
tölvur og Netið hafi hann komist
að því að margir, sem hefðu áhuga
á aö fóta sig á slíkum vettvangi,
hefðu ekki til þess tækifæri nema
meö miklum tilkostnaði, svo sem
framhaldsnámi eða umfangsmikl-
um námskeiöum. „Tölvukennsla I
skólum snýst mest um að kenna
Morgunblaðið/Amaldur
Guómundur Ragnar, til hægri, ásamt tveimur piltum í Netstöðinni. Frá
vinstri: Ásgeir Halldór Leifsson og Eyjólfur Karl Eyjólfsson.
fólki að nota tölvur og það dugar
fólki í hefðbundnum störfum. Það
er hinsvegar skortur á fólki sem
kann að setja upp og reka net-
tengd tölvukerfi, vefþjóna og svo-
leiöis. Það vantar einnig fólk f
uppsetningu, aðlögun oggerð
hugbúnaðar. Ég hafði komist að
því að margir eru hæfileikaríkir á
þessu sviði og hefðu áhuga en
ekki hafttök á að koma sér áfram.
Því þótti mértilhlýðilegt að koma á
fót leiö sem gæti komið áhuga-
fólki um tölvur af stað til þess að
fá vinnu á þessu sviði. Ég held að
meö því að bjóða fólki kennslu og
uppsetningu á netkerfum, upp-
setningu á tölvum og stýrikerfum
væri hægt að koma mörgum á rek-
spöl.“
Guðmundur ásamt fleirum fékk
stuðning hjá Reykjavíkurborgfyrir
húsnæði oggóðri nettengingu til
þess að koma námskeiðum af
stað. „Það er Ijóst að margt er
hægt að læra af bókum og nám-
skeiðum. Þó er það á þessu sviði
eins og reyndar í flestu ööru að
æfingin skapar meistarann. Þess
vegna er mikilvægur þáttur í starf-
seminni aö skaþa vinnuaðstöðu
sem fólk hefur aðgang að eftir því
sem því hentar. Fyrstu skrefin fel-
ast í því að æfa það sem tengist
kennslunni beint en síöan leiðist
fólk út í ýmsar þælingar tengdar
Netinu."
Það var ekki markmiöið að sögn
Guömundaraö Reykjavíkurborg
fjármagnaöi daglega starfemi Net-
stöövarinnar. Hann segir að upp-
hafið hafi gefið þeim góða von um
að svo yrði ekki því aösókn var að
hans sögn með ágætum í haust.
„Fólk sýnir þessari hugmynd mik-
inn áhuga og við höfum fengið þó
nokkuö af tölvubúnaði frá fyrir-
tækjum. Því miður komu upp
vandamál með kyndinguna f hús-
inu svo hitinn varí lágmarki frá
októberfram í lokjanúar. Það erí
raun skondið, svona eftir á að
hyggja, að þráttfyrirstuðning
Reykjavíkurborgar og ýmissa fyrir-
tækja máttum við okkur lítils í bar-
áttunni við náttúruöflin. Við misst-
um semsagt dampinn og erum
bara rétt að rífa okkur af stað aft-
ur. Nú þegar eru 10 manns með
aðstöðu í Netstöðinni og við ætl-
um að fara af stað með nokkur
námskeið í sumar, en það er ólík-
legt að mikil gróska verði f þeim
fyrr en með haustinu. Við erum að-
allega að endurbæta aöstöóuna
og leita að góðum húsgögnum."
Okkur vantar
alltaf tölvur
Margir hafa lagt Netstöðinni lið
með því aö koma með tölvur og
annað sem til hefur fallið og sagði
Guömundur að sá stuðningur væri
ómetanlegur. „Landssíminn hefur
reynstokkurmjögvel, aðstoðað
okkurí kynningarstarfinu og látið
okkurhafa margartölvur sem það
er hætt að nota. Við þurfum samt
alltaf á fleiri tölvum á að halda og
lofum að nýta eitthvað úr þeim ef
fólk kemur með þær til okkar. Við
viljum hvetja fyrirtæki og einstakl-
inga að láta okkuríté gamlartölv-
ur sem ekki eru lengur í notkun,
það hlýtur að vera betra að nýta úr
þeim en láta þærfara á haugana."
Works
Pdjsfeil**
'erð/ð.
Ótrúlegur pakki hlaðinn öflugum hugbúnaði. Berðu saman verð og gæði.
SCALEO C60-31
• 17" hágæða skjár
• 600 MHz Intel Celeron örgjörvi
• Intel skjástýring (810 kubbasett)
• 64 MB innra minni
• 64 radda hljóðkort
• 10 GB harður diskur
• DVD mynddiskadrif
(®)
celeron'
1119.990,
SCALEO P67-31
'17" hágæða skjár
' 667 MHz Intel Pentium III
Coppermine örgjörvi
■ 16 MB 2D/3D ATi XPERT 2000 skják.
' 64 MB innra minni (133MHz)
■ 64 radda hljóðkort /*A'
■ 10 GB harður diskur fPsXJ
1 DVD mynddiskadrif
139.990
WorcL'Vu
Flight
Simulator
2000
The Worl
Enough
Uot
(ImtijlíS5*
Mkmsoft
Suite 2000:
Frábær hugbúnaðarpakki
sem inniheldur
eitthvað fyrir
alla.
• Street & Trips
2000 fKCAKIA
> Home Publishim
2000
> Word 2000
> Encarta 2000
«Works 2000
> Money 2000
MICROTEK
Nýr USB mynd-
lesari. 600 x 1200 dþj
upplausn og 42 bita
litadýpt. Mjög oflugur
hugbúnaðarpakki
• ScanWizard 5.0
• PageKeeper StandardJ
• OmniPage 3.0 LE [ “
• Adobe
PhotoDeluxe 2.0 ]
• Ulead
Photolmpact 5.0 !
Tölvunum fylgir einnig
margmiðlunarlyklaborð, mús
með skrunhjóli, hátalarar, Betri þjónu.
Windows 98 2nd Ed, • án þess að
Ollum tölvum frá BT
fylgir Silfurkortið frá Tölvu-
simanum og nettenging
frá Margmiðlun
COMPUTERS
SIEMEIMS
BT Skeifunni - S:550-4444 • BT Hafnarfirði - S:550-4020 • BT Kringlunni - S:550-4499 • BT Reykjanesbæ - S:421-4040 • BT Akureyri - S:461-5500