Morgunblaðið - 21.06.2000, Side 8

Morgunblaðið - 21.06.2000, Side 8
8 E MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Páll Ketilsson segir Netið á góðri leið með að breyta umhverfi héraðs- fréttablaða allverulega. = netið = Nokkur héraös- fréttablÖð hafa fylgt kalli tímans, opnaö vefsíöurog haldiö úti fréttaþjón- ustu á Netinu, í mis- miklum mæli þó. Gísli Þorsteinsson kynnti sér starfsemi hér- aösfréttablaöanna á nýjum vett- VangÍ og komst að því að þau hafa gengið í endurnýjun Tlf- daga. Morgunblaöiö/Halldór Sveinbjömsson Sigurjón J. Sigurósson, ritstjóri Bæjarins besta á ísafirði, kveðst leggja rækt við fréttavef blaðsins. Gamalt vín á nýjum belgjum Upphaf blaöa á íslandi nær allt afturtil ofan- verðrar 18. aldar er Magnús Ketilsson, sýslumaöurí Dalasýslu, gaf út Islandske Maan- eds Tidender áriö 1773. Hann hefur ugg- laust ekki örað fyrir þeim breytingum sem áttu eftir að vera á blöðum í tímans rás hvað þá að þeirra biði nýr vettvangur: Net- ið. Fyrir utan landsmálablööin Morgun- blaðið, Dag og DV hafa nokkur héraðs- fréttablöð haslaö sér völl á Netinu. Eitt þeirra er Víkurfréttir á Suðurnesjum, www.vf.is. Páll Ketilsson, ristjóri Víkurfrétta á Suð- urnesjum, sem gefur út samnefnt héraðs- fréttablaö og tímrit mánaöarlega, segir að héraðsfréttablöð séu aö ganga í endur- nýjun lífdaga með tilkomu Netsins. Nú þurfi þau ekki lengur að bíða með fréttir t vikutíma heldur eru þær birtar um leið og búiö er að skrifa þær. „Áður fýrr biöum við með fréttir í marga daga til þess að setja það t vikublaöið okkar en nú setjum allt efni beint á Netiö. Við reynum aö sinna fréttavefnum okkar af kostgæfni og höfum náð aö skrifa allt að 20 fréttir á dag.“ Fjölmiðlar sigla inn í nýtt umhverfi Páll segir að Víkurfréttir, sem er meðal elstu héraösfréttablaöa á landinu, hafi verið fyrsti íslenski fjölmiðillinn til þess að setja allt efni á Netið, árið 1995. „Við juk- um við vægi vefjarins smátt og smátt en það var ekki fyrr en um áramót sem við tókum ákvörðun um að efla fréttaþjónust- una á Netinu til mikilla muna. Nú horfum við allt öðrum augum á það efni sem frá okkur kemur því það fer allt á Netið, burt séð frá mikilvægi fréttanna. Við ákváöum að efla vefinn okkar því allt er meira minna á Netinu og greinilegt að fjölmiðlar eru að sigla inn í nýtt umhverfi. Það tekur sjálfsagt tíma fyrir okkur aö aðlagast þessu nýja umhverfi, en fram að þessu hefur okkur gengið vel enda tæknin oröin slík að auðvelt er aö flytja efni og myndir yfir á Netið." Páll segir aðspurður að Netið muni eflaust breyta umhverfi héraðs- fréttablaöa verulega en telur erfitt að spá fyrir um hver þróunin veröi. „Það má eigin- lega horfa á þessa þróun úr tveimur átt- um. Netvæðingin mun eflaust ekki skaða blöð, eins og Víkurfréttir, sem er dreift frítt og lifir á auglýsingum, en það horfir öðru vísi við blöðum sem eru seld í lausasölu og áskrift því áskrifendur munu hætta að kaupa blaðið í einhverju mæli um leið og það er farið á Netið. Má þar nefna Bæjar- ins besta á ísafirði sem til dæmis hefur ekki fengið jafn mikiö í auglýsingatekjur á móti því sem það hefur misst í tekjur vegna færri áskrifenda.” Stóru miðlarnir fylgist með Ekki hefur verið fylgst með því hve marg- ir hafa nýtt sér fréttaþjónustu Víkurfrétta frá áramótum en Páll segir að ástæðan sé sú að talningavélin virki ekki sem skyldi, en það standi til bóta. Hann segir að vef- urinn hafi vakið athygli stóra fjölmiðlanna, sem hafa náð í fréttir frá Víkurfréttum, og fengiö góð viöbrögð bæjarbúa sem eru óð- um að átta sig á þessu breytta umhverfi. Uppsagnir eftir að biaðíð fór á Netið Bæjarins besta, sem er eitt elsta hér- aðsfréttablað landsins, var sett á vefinn árið 1996. Var hægt að lesa það með Acropat Reader en útgáfa þessi var fremur þung og tók langan tíma fyrir lesendur að hlaða blaðinu inn. Því var útgáfu hætt í maí áriö 1999. Nýr vefur, www.bb.is, var opnaöur 8. janúar á þessu ári en auk margra frétta úr blaðinu, sem er 12-16 síöur og kemur út vikulega, er vefurinn uppfærður meö fréttum allan daginn. Sigurjón J. Sigurðsson, sem er ritstjóri blaðsins og vefjarins, segir fjölmargar nýj- ungar hafa verið settar upp á síöunni og enn fleiri eigi eftir aö líta dagsins Ijós, gangi allt eftir. „Síðastliðinn vetur vorum við beintengdir við skíðasvæöið í Tungu- dal, bæði með rituðum upplýsingum og myndum sem Tölvuþjónustan Snerpa ehf. á ísafirði hefur sett upp á svæöinu. Þessi þjónusta verður áfram næsta vetur. Þá höfum viö sett upp í samstarfi við Snerpu, sem hannaði vefinn, atburðadagatal, þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hvað eina sem er að gerast á svæðinu. Þá er í bígerð að opna sérstakt umræðutorg þar sem hægt verður að skiptast á skoð- unum um hin ýmsu mál auk fjölmargra annarra nýjunga sem ekki er hægt að greina frá að sinni,“ sagói Sigurjón. Sigurjón segir að frá því að Bæjarins besta fór á vefinn hafi hann orðið talsvert var við að fólk hafi sagt blaöinu upp. „Það er fyrst og fremst fólk sem býr utan Vest- fjaröa, einhverjir tugir áskrifenda, sem hafa hætt að kaupa blaðið. Það munar um minna fyrir blað eins og BB að missa svo marga áskrifendur. Því miður hefur blaðið fengið litlar tekjur inn á móti, auglýsingar á Netinu hafa gefið lítið í aðra hönd þrátt fyrir að allt að 4.500 heimsæki vefinn á sólarhring á virkum dögum. Ég veit ekki til þess aö nokkurt landsbyggðarblað á Net- inu fái jafn margar heimsóknir og BB.“ Vestfirðingar erlendis skoði blaðið Sigurjón, sem stofnaði Bæjarins besta ásamt Halldóri Sveinbjörnssyni árið 1984, segir að Vestfirðingar skoði vef blaðsins mikið en einnig fólk sem býr utan svæð- isins og Vestfirðingar erlendis. „Við höfum fengiö mikil og góð viðbrögð eins og sést á gestabókinni. Kveójur koma víða að og allir eru ánægðir að fá blað á Netinu sem segir frá gangi mála á Vestfjörðum. Þá má geta þess að Fjóröungssamband Vestfirð- inga sá ástæðu til að álykta um ágæti vefjarins á síðasta fundi sínum. Jafnframt voru fýrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hvött um að tryggja að vefurinn gæti hald- ið áfram að tryggja lifandi umræðu um Vestfirðingafjórðung með því að auglýsa á vefnum. Ég hef sjálfur sent fyrirspurn til sveitarfélaga og nokkurra fyrirtækja á svæðinu um að þau auglýsi hjá mér og er að vonast eftir jákvæöum viöbrögöum. Ef auglýsingum fjölgar er ekkert því til fyrir- stöóu aö efla vefinn enn frekar en nú er.“ Ónaöi ekki fyrir þessum viðbrögðum !*£!£■.. Morgunblaðið/Sverrir Kristján J. Kristjánsson segirað viðbrögðin vió Fréttavef Austurlands hafi komið sér í opna skjöldu. Fréttavefurinn Fréttir frá Austur- landi var stofnaöur fyrir rúmu ári og er óllkur öðrum héraðs- fréttamiólum að hann er ein- göngu á Netinu. Kristján J. Krist- jánsson, sem ‘stofnaði vefinn og hefur stýrt honum, sagði að það hefði ekki verið ætlun sín í upp- hafi aö vefurinn yrði eins viða- mikill og hann væri nú orðinn. Hann hefói ætlað sér að búa til upplýsingavef, www.frettavefur- inn.is, fyrir brottflutta Austfirð- inga, ekki sfst þá sem væru bú- settir erlendis. „Frá áramótum hef ég gefið vefnum meiri gaum því heimsóknum fjölgar stöðugt. Við erum nú að fá átta þúsund raunheimsóknir á viku, fjóróung- ur er innanlands, hvaðanæva af landinu. Þá hefur ekki reynst vandamál að fá auglýsingar á síöuna. Það hefur ekki gefist tlmi til þess að safna auglýsing- um því ég hef unnið við vefinn samhliða námi I vetur, var I hagnýtri fjölmiölun I Háskóla ís- lands. Vegna þess hve vel gengur hef ég hugsað mér að stækka og breyta vefnum enn frek- ar næsta haust. Það má eiginlega segja að er ég hóf uppsetningu vefjarins hafi mig ekki órað fyrir þessum við- brögðum, en þau komu mér óþægi- lega á óvart því ég haföi engan tíma til þess að sinna þessu þegar aösóknin jókst.“ Kristján segir að sér hefði ekki tekist að halda úti jafn góðum vef ef ekki kæmu til þeir sem hefðu lagt honum lið með því að senda honum efni. „Ég hef yfir að ráða góðu neti heimildar- manna, er með 88 manns á skrá. Þá er mikiö um að fólk sendi mér fréttir og láti vel af vefnum. Einnig hef ég gert samn- ing við Eystrahorn, á Hornafiröi, um að fá fréttir frá þeim til þess að birta á vefnum. Nú þegar náminu er lokiö hyggst ég halda á Norðfjörð á ný til þess að sinna vefnum. Við ætlum að opna gátt frá Austurlandi þar sem Fréttavefurinn verður stað- settur sem og annaö efni, svo sem vefsíðugerð sem þjónustar fyrirtæki," segir Kristján, sem kveðst sjá fram á að hann þurfi að fá til sín starfsfólk til þess að sinna þeirri vinnu sem framund- an er. Nokkur héraðsfréttablöð halda úti vefsíöum á Netinu. Flest halda úti einhvers konar fréttaþjónustu, en I mismikl- um mæli. Bæjarins besta á ísafirði www.bb.is Víkurfréttir á Suðurnesjum www.vf.is Fréttavefurinn Fréttir á Austurlandi www.frettavefurinn.is Suöurnesjafréttir www.sudfr.is Sunnlenska fréttablaðið www.selfoss.is/sunnlenska Skessuhorn www.skessuhom.is Stykkishólmspósturinn www.aknet.is/stpostur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.