Morgunblaðið - 30.06.2000, Síða 5

Morgunblaðið - 30.06.2000, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ + g fatahönnunarsýning • 1 ________________________________FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 E 5 | PAGLEGT LÍF Futurice alþjóðleg fatahönnunarsýning # Morgunblaðið /Arnaldur Auk þess að vera fatahönnuður er Sæunn lærður dansari. Innblásturinn fyrir hönnun sína fær Sæunn úr öllum áttum. „Ég fæ jafnmikinn innblástur af því að fara í byggingavöruverslun og að skoða gamla þjóðbúninga. Af því að ég er lærður klæðskeri hef ég líka mjög gaman af öllu handbragði. Ég skoða oft föndurbækur til að fá hugmynd- ir,“ segir hún. I tískuheiminum er ekkert nýtt undir sólinni írekar en í öðru að sögn Sæunnar. „Sömu hlutirnir eru alltaf að endurtaka sig en sífellt á nýjan hátt. Það þarf ekki að fínna upp hjólið oftar en einu sinni.“ Hvernig skyldi Sæunn lýsa eigin hönnun? „Ég er að hanna á konur sem eru meðvitaðar um tískuna. Ekki fyrir konur sem eru bara að leita sér að þægilegum bol og galla- buxum,“ segir hún. Einn af uppáhalds hönnuðum Sæunnar er Yves Saint Laurent, ekki síst þegar hann var upp á sitt besta. „Mér finnst tíska of oft fara út í fífla- gang. Það er eitthvað sem er ekki hægt að ásaka Yves Saint Laurent um. Hann hefur alltaf sýnt kvenlík- amanum og kvenímyndinni svo mikla virðingu,“ segir hún. Hún nefnir einnig John Galliano sem hönnuð sem hún fylgist vel með. „Það er líka fullt af ungum hönnuðum að gera góða hluti, sérstaklega í Bretlandi en ég hef alltaf horft meira á Bretland í þessu sambandi," segir Sæunn. Ekki er á dagskránni hjá Sæunni að hanna karlmannsföt. „Ég hef eng- an sérstakan áhuga á að hanna fyrir stráka. Þeir eiga helst að vera í klæð- skerasaumuðum jakkafötum," segir hún og hlær við. Sæunn vill endilega koma því á framfæri að fatahönnuðu séu ekki alltaf við saumavélina. „Ég bý til snið, ákveð frágang og efni. Svo sendi ég þetta til saumastofu og vinn með henni. Fatahönnuðir þurfa ekki að vera að sauma. Það er útbreiddur misskilningur," segir hún. Sem stendur er Sæunn að leita fyr- ir sér hvar nýja fatalínan fyrir Futur- ice fari í framleiðslu. „Ég er að leita að framleiðslufyrirtækjum og lít til Asíu í því sambandi. Ég er einnig í viðræðum við umboðsaðila í Bret- landi en þetta á eftir að koma betur í ljós.“ aðra upp,“ segir Bára. Hrafnhildur tekur undir þetta. „Við erum ótrú- lega hreinskilnar og gagnrýnar hvor á aðra. Við erum líka oftast í svipuð- um pælingum. Eins og einn vina okk- ar segir þá „þyrlum" við saman hug- myndum," segir hún. Fyrir þá sem ekki vita þá er sögnin „að þyrla“ skemmtilegt íslenskt orð yfir enska orðið „brainstorming". Eins og hjá öðrum hönnuðum „Futurice" hvílir mikil leynd yfír sýningunni í ágúst. „Það fær enginn að koma inn í hugmyndaherbergið okkar,“ segja þær samtaka. „í ágúst verður allt sem við sýnum nýtt. Fata- lína er eitthvað sem við vorum að fara að gera hvort sem var. „Futur- ice“ ýtti bara á eftir okkur,“ segir Bára. Hrafnhildur ítrekar þetta og segir jafnframt að sýningin eigi án efa eftir að koma sér mjög vel fyrir þær. Þeim finnst báðum skemmtilegt hve margir þekktir, erlendir blaða- menn hafa boðað komu sína hingað til lands til að fylgjast með „Futur- ice“. „Það er mjög gott fyrir íslenska tískuheiminn að fá almennilega um- fjöllun um sýninguna. Staðreyndin er nefninlega sú að það er því miður ekkert tískutímarit á íslandi og það vantar umfjöllun um tísku hérlend- is,“ segir Hrafnhildur. Bára tekur undir þessa skoðun. „Blaðamennirnir þarna úti lifa og hrærast í tískuheiminum og það verður gaman að heyra skoðun þeirra,“ segir hún. Systurnar eru þó alls ekki óvanar umfjöllun í erlendum tímaritum því nú þegar hafa m.a. Dazed and Confused og Harper’s Bazaar ijallað um Aftur. Þær systur eru báðar sammála því að það sé mjög spennandi að taka þátt í tískusýningu að hætti fag- manna. „Þetta er í fyrsta skipti sem haldin er alvöru tískusýning á íslandi þar sem það verður faglega staðið að öllu. Það er líka eins gott að þetta verði alvöru sýning því það er ekkert hægt að blekkja ritstjóra Vogue. Sýningin myndi samt takast enn bet- ur ef íslensk stjórnvöld og fyrirtæki væru tilbúnari til að styrkja okkur,“ segir Hrafnhildur að lokum. Hót l Kirkjub: Kirkj bæjarklau^ ICELANDAIR. HOTELS Ftughotel Keflavík Loftleiðír Hótel Esja k Reykjavík Hótel Flúðtti Hótel Höfn Höfn í Hornafirði Hótel Hérað EgiUstÖðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.