Morgunblaðið - 02.07.2000, Blaðsíða 3
MbRGÚNBLAÐÍÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 E 8
Eitthvaö fýrir þig?
Framleiðslufyrirtæki (214961)
Röskur starfsmaður óskast sem fyrst til starfa
hjá traustu og snyrtilegu framleiðslufyrirtæki.
Vinnutími er 8:00-18:00 mán/þri/mið/fim. og til
hádegis á föstudögum. Mötuneyti er á staðnum.
Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 25 ára.
Vilt þú... (216483)
vinna á skemmtilegum vinnustað, þar sem ríkir
góður starfsandi, mikið er að gera og dagurinn
líður hratt? Við erum að leita að hressu fólki
sem er tilbúið að vinna hjá þjónustufyrirtæki
sem leggur metnað sinn í að veita
viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Starfið
felur í sér afgreiðslu og þjónustu við
viðskiptavini og hentar öllum aldurshópum.
Unnið er á vöktum. Við leitum að
framtíðarstarfsfólki en þó er möguleiki á
sumarstarfi eingöngu.
Afgreiðsla (216512)
Stórt þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða
afgreiðslufólk á kassa sem fyrst. Um er að ræða
snyrtilegan vinnustað og er starfsandi mjög
góður. Unnið er á vöktum og er bæði um sumar-
og framtíðarstörf að ræða. Starfið hentar vel
báðum kynjum og fólki á öllum aldri.
IKEA (216879)
Boltaland er undraveröld fyrir mikilvægasta fólk
í heimi „börnin“. Þar geta þau leikið sér á meðan
foreldrarnir sinna erindum sínum í IKEA. Við
leitum að ábyrgðarfullum og traustum
einstaklingi til að starfa í boltalandi. Viðkomandi
þarf að hafa mikla hæfni í mannlegum
samskiptum og hafa ánægju af að starfa með
börnum. Vinnutími er 10:00-18:00 - möguleiki á
sveigjanlegum vinnutíma.
Áfyllingar (217331)
Þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða einstakling
í áfyllingar. Starfið felst í að fara í verslanir á
höfuðborgarsvæðinu, sjá um áfyllingar og
fylgjast með uppröðun. Um framtiðarstarf er að
ræða og þarf viðkomandi að hefja störf sem
fyrst.
Byggingavöruverslun - lager (215173)
Ein af stæm byggingavöruverslunum landsins óskar
eftir að ráða hressan og jákvæðan starfsmann í
almenn lagerstörf. Starfið felst i vörumóttöku, tiltekt
í verslanir, afgreiðslu, ffágangi á pöntunum og
þjónustu við viðskiptavini. Lyftarapróf er kostur en
ekki skilyrði. Vinnutími er 8:00-18:00 og annar hver
laugardagur 10:00-16:00.
Sérvinnsluverkstæði (215188)
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í öllu sem viðkemur
byggingaiðnaði óskar eftir að ráða til sín
öflugan starfsmann á sérvinnsluverkstæði.
Starfið felst í vinnu í vélasal, plötusög o.fl.
Reynsla af vélavinnu æskileg en ekki skilyrði.
Vinnutími erfrá kl. 8:00-18:00. Viðkomandi þarf
að hefja störf sem fyrst.
Smur- og hjólbarðaþjónusta (213235)
Olíufélagið hf. óskar eftir að ráða til sfn hressan
og þjónustulipran einstakling á eina af
þjónustustöövum sínum í Reykjavík. Um er að
ræða hefðbundin olíuskipti og
hjólbarðaþjónustu fyrir fólksbíla og jeppa.
Viðkomandi þarf að vera traustur og
samviskusamur og geta byrjað fljótlega.
Vinnuaðstaða ertil fýrirmyndar og starfsandi er
mjög góður. Vinnutími erfrá kl. 8:00-18:00 alla
virka daga.
Meiraprófsbílstjóri (215302)
Stöndugt fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir
starfsmanni með meirapróf. Starfið felst
aðallega í að dæla upp olíuafgöngum úr
skipum, bátum og bensínstöðvum. Einnig er
unnið á holræsabíl þegar svo ber undir.
Bílakosturfyrirtækisins er mjög góður.
Umsækjendur þurfa að vera vinnusamir,
hraustir og áreiðanlegir. Fastur vinnutími er
8:00-17:00 virka daga - mikil yfirvinna.
Vaktavinna (217274)
Starfsfólk óskast i vaktavinnu hjá nokkrum
fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að
ræða afgreiðslu, þjónustu og símasvörun, auk
útivinnu. Sumar- og framtíðarstörf.
Þrif - dagvinna (215287)
Gott veitingahús í Reykjavík óskar eftir
manneskju í öll almenn þrif og aðstoð í eldhús.
Æskilegt er að umsækjendur séu 35 ára eða
eldri. Umsækjendur þurfa einnig að vera
snyrtilegir og áreiðanlegir. Reynsla af svipuðu
starfi er kostur en þó ekki skilyrði. Vinnutími er
8:00-16:00 virka daga auk u.þ.b. fjögurra tíma
vinnu aðra hvora helgi.
Límskurður (216004)
Fyrirtæki sem er í bílamerkingum,
gluggamerkingum o.fl. óskar eftir að ráða
hörkuduglegt fólk í límskurðardeild fyrirtækisins.
Um er að ræða vinnslu bæði á staðnum og eins
úti í bæ. Viðkomandi verður að vera vandvirkur
og eiga gott með að vinna undir álagi. Reynsla
kostur en ekki nauðsynleg. Vinnutími er 8:00-
18:00 virka daga, auk tilfallandi yfirvinnu. Um
er að ræða framtíðarstörf.
Verkstæði (216019)
Traust fyrirtæki óskar eftir að ráða nú þegar
duglega blikksmiði, járnsmiði eða menn vana
smíðavinnu á verkstæði. Um er að ræða smíði
á skiltum og umhverfismerkingum af ýmsum
toga. Þrifaleg vinna og góð laun í boði.
Vinnutími er 8:00-18:00, auk tilfallandi yfirvinnu.
Um framtíðarstörf er að ræða.
Lagerstarf (215004)
Framleiðslufýrirtæki óskar eftir að ráða
starfsmann á lager. Viðkomandi þarf að hefja
störf I ágúst og í síðasta lagi 1. sept. n.k.
Fyrirtækið er staðsett í Reykjavík og er
lageraðstaðan mjög góð og snyrtileg. Vinnutími
er 8:00-17:00 yfir vetrartímann en 8:00-16:00 á
sumrin. Tvisvar á ári eru miklir uppgangstímar
og yfirvinna þá mikil. Mötuneyti er á staðnum.
Æskilegt að viökomandi sé eldri en 25 ára.
Véivirki og/eða bifvélavirki (217119)
Traust þjónustufyrirtæki staðsett í Reykjavík
óskar eftir að ráða vélvirkja og bifvélavirkja á
vélaverkstæði. Viðkomandi þarf að hefla störf
fljótlega. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu.
Nánari upplýsingar veittar hjá Vinna.is. Ráðið verður í störfin sem fyrst -
allar upplýsingar um framgang mála veittar á Netinu, æskilegt að mynd fylgi umsókn.
Vinna.is
Domus Medica
Egilsgötu 3
101 Reykjavík
Sími 511-1144
Fax 511-1145
www.vinna.is
Vinna.is er í eígu Gaiiup og Ráðgarðs
*
vmnajs
aTvmRUfniÐLun