Morgunblaðið - 02.07.2000, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 02.07.2000, Qupperneq 8
8 E SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Fjármálasijóri Vegna aukinna umsvifa leitar íslenska Vefstofan að öflugum fjármálastjóra. Fjölbreytt og krefjandi stjórnunarstarf hjá vaxandi fyrirtæki Starfssvið: • Dagleg fjármálastjórn og umsjón með rekstri skrifstofu • Áætlanagerð, kostnaðareftirlit og umsjón uppgjörs • Yfirumsjón með bókhaldi • Ýmis sérverkefni Hæfniskröfur: • Viðskiptafræði eða sambærileg menntun • Góð reynsla af sambærilegum störfum • Góð tölvuþekking • Skipulagshæfni og nákvæmni • Stjórnunarhæfileikar • Þekking á Concorde æskileg • Hæfni í mannlegum samskiptum Nánari upplýsingar veita Arndís Kristjánsdóttir hjá íslensku Vefstofunni f síma 511-6020 og Ingvaldur Gústafsson hjá Teymi í síma 550-2500. Umsókn ásamt mynd þarf að berasttil auglýsingadeildar MBL fyrir ío.júlí merkt "Vefstofan 2001" fslenska Vefstofan var stofnuð árið 1998 og er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sviði upplýsingatækni fyrir Netið. Eigendur fyrirtækisins eru Flugleiðir ogTeymi. íslenska vefstofan er þekkingar- fyrirtækisem sérhæfir sig í heildrænni ráðgjöf, þróun og innleiðingu á lausnum á sviði veftækni og rafrænum viðskiptum í starfsemi fyrirtækja. íslenska vefstofan býður upp á einstakan starfsanda, möguleika á starfsþróun og valrétti f fyrir- tækinu. 4>j ÍSLENSKA VEFSTOFAN www.stofan.is BYKO er stærsta byggingavöruverslun landsins með víðtæka starfsemi hér ó landi sem og erlendis. Aðalstarfsemi BYKO felst í rekstri 5 verslana með byggingavörur og vörur tíl heimilisins. BYKO stendur auk þess fyrir umfangs- mikilli framleiðslu ó timbri í Timburvinnslunni og Sér- verkstæðinu í Breiddinni, Gluggum og hurðum í Njarðvík og í Lettlandí. Einnig rekur BYKO raf- tækjaverslunina ELKO í Smóranum. Starfsemi BYKO er í stöðugri þróun þar sem dugmiklum einstaklingum með frumkvæði býðst fjölbreytt og spennandi starfsumhverfi. Hjó BYKO starfa nú um 500 starfs- Við leitum að grafískum hönnuði Ef þú erf snjall hönnuður, vanur umbrotsvinnu og f left að kref jandi starfi þar sem sicöpunarhæfileikar þínir fá sín notið er þetta örugglega rétta starfið fyrlr þig Starfið felst í umsjón með hönnun og útliti á útsendu kynningarefni og auglýsingum auk hönnunar skilta og merkispjalda ásamt því að annast samskipti viðauglýsingastofurogfjölmiðla. Þú þarft að hafa þekkingu og reynslu af gerð auglýsinga og kynningarefnis, vera hugmyndafrjór með gott frumkvæði og opinn fyrir nýjungum, vanur notkun helstu teikniforrita, áhugasamur um markaðs- mál og eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi. í boði er nýtt og spennandi starf í Markaðsdeild BYKO / ELKO þar sem vinnuaðstaðan er góð og starfsandinn léttur. Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí n.k. Gengið verður frá ráðningusemfyrst. Guðný Harðardóttir og Pálína Björnsdóttir veita nánari upplýsingar, en viðtalstímar eru frá kl. 10-13. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem er opin frá kl.10-16 alla virka daga. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu www.stra.is Með starf fyrir þig STRA STARFSRÁÐNINGAR GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR Mðrkinni 3-108 Reykjavík - sími 588 3031 - bréfsfmi 588 3044 Fagmennskan í fyrirrúmi SÍMSMIÐUR Á PATREKSFIRÐI Síminn óskar eftir að ráða símsmið til starfa sem fyrst fyrir notendalínudeild fyrirtækisins á Patreksfirði. í starfinu felst m.a.: • Jarðsímatengingar og jarðsímalagnir, innanhússlagnir og tengingar á símbúnaði. • Viðhald og bilanaleit í dreifikerfi Símans. • Uppsetning og viðhald á innanhúss- lögnum ogýmsum notendabúnaði. Hæfniskröfur: • Leitað er að lærðum símsmið • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi Upplýsingar veita IngibjörgThors (ingibjorgth@simi.is) í síma 550-6477 og Sturla Jóhann Hreinsson (sturlah@simi.is) í síma 550-6476. Vinsamlegast sendið umsóknir á ofangreind netföng eða til starfsmannaþjónustu, Landssímahúsinu v/Austurvöll, 150 Reykjavík. fyrir 9. júlí nk. merkta "Símsmiður á Patreksfirði". Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Símans og einnig í starfsmannaþjónustu. Síminn er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins og er hiutaféiag i samkeppni á markaði þar sem stöð- ugar nýjungar eru og verða allsráðandi á komandi árum. Fyrirtækið stefnir að því að vera áfram í fararbroddi á sínu sviði. Síminn býður upp á einstakt tækifæri til að kynnast fjarskiptatækninnijagi sem þekkir engin landamæri. Síminn leitast við að veita bestu möguiegu fjarskiptaþjónustu sem völ er á hverju sinni og rekur eittfullkomnasta fjar- skiptakerfi heimsins. simirm.is | SÍMINN Landlæknisembættið Hjúkrunarfræðingur Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings við embætti landlæknis. Um er að ræða nýja stöðu og mun meginverkefni viðkomandi vera að hafa eftirlit með áreiðanlegri og réttri notk- un RAI mælitækisins á öldrunarstöfnunum. Um er að ræða fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjöreru skv. kjarasamningi Félags ísl. hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Upplýsingar um starfið gefur Vilborg Ingólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, Landlæknisembætti (s. 510-1900), og Emma R. Marinósdóttir, deildarstjóri, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti (s. 560-9700). Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Landlæknisembætt- inu, Laugavegi 16, fyrir 17. júií 2000. Landlæknisembættið Reykjavík 28. júní 2000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.