Morgunblaðið - 02.07.2000, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.07.2000, Qupperneq 12
12 E SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Vegna mikilla verkefna leitum við eftir PC söluráðgjafar í okkar fyrirtækjasöluhóp. Viðkomandi þarf að hafa tölvukunnáttu og hafa góða þekkingu á almennu tölvuumhverfi. Háskólamenntun er æskileg. Viðkomandi mun taka þátt í mjög spennandi og fjölbreytilegum söluverkefnum þar sem frumkvæði, dugnaður og fagleg vinnubrögð njóta sín. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst. I bodi eru góð laun, krefjandi og skemmtileg verkefni og gódur starfsandi. Vid meðhöndlum allar umsóknir sem trúnaðarmál og svörum þeim öllum. Umsóknarfrestur er til lS.júli nk.Frekari upplýsingar um stöðurnar veitir Inga Jona Jónsdóttir i sima 569 7700 eða í netfangi inga@'nylterji.is. Umsóknareyðublöð liggja á heimasiðu Nýlterja, http://www.nyherji.is. Skaftahlíð 24 105 Reykjavík Sími: 569 7700 www.nyherji.is NÝHERJI Félágsþjónustan Sálfræðingur Frá september nk. mun Félagsþjónustan starf- rækja nýja skrifstofu barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Skrifstofan mun taka við þeim verk- efnum sem fjölskyldudeild Félagsþjónust- unnar hefur hingað til annast fyrir nefndina. Vegna opnunar skrifstofu barnaverndarnefndar Reykjavíkur leitar Félagsþjónustan að reyndum sálfræðingi í stöðu yfirsálfræðings. Áskilin er starfsreynsla ásamt haldgóðri þekkingu og reynslu af málefnum barna og fjölskyldna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2000. Laun eru samkvæmt kjara- samningi Reykjavíkurborgar og Stéttarfélags sálfræðinga á Islandi. Nánari upplýsingar veita Þorgeir Magnússon, forstöðumaður sálfræðisviðs, og Gunnar Sand- holt, aðstoðarmaður félagsmálastjóra, í síma 535 3000. Umsóknarfrestur ertil 21. júlí 2000 og skulu umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, berasttil Félagsþjónustunnar, Síðu- múla 39, 108 Reykjavík. Félagsþjónustan er fjölmennur vinnustaöur sem veitir borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin leggur mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk sitt, að upplýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavikurborgar í málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu sem veitt er. Allir nýir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og kynningu um Félagsþjónustuna og borgarkerfið og fréttabréf reglulega um starisemi stofnunarinnar. Nýr vefur! www.radning.is Akureyrarbær Búsetu- og öldrunardeild Forstaða sambýlis fatlaðra Laust ertil umsóknar starf forstöðumanns sambýlis fatlaðra á Akureyri. Við óskum eftir starfsmanni með menntun á félags, heilbrigðis- eða uppeldissviði. Starfsmaður með mikla reynslu af vinnu með fötluðum getur komið til greina. Starfið er laust strax eða eftir nánara samkomu- lagi. Búsetu- og öldrunardeild annast þjónustu við íbúa á 12 sambýlum fyrir fatlaða. Starf for- stöðumanns er m.a. fólgið í daglegri stjórn starfsmanna, leiðsögn um fagleg vinnubrögð, tengslum við aðra þjónustuaðila og umsjón með sameiginlegum heimilisrekstri íbúanna. Akureyrarbær annast þjónustu við fatlaða á Eyjafjarðarsvæðinu og er hún hluti af verkefn- um bæjarins sem reynslusveitarfélags. Á und- anförnum árum hefur farið fram mikilvæg þróunarvinna í samþættingu þjónustu við fatlaða og almennrar félagsþjónustu. Laun eru skv. gildandi kjarasamningum við- komandi stéttarfélags. Upplýsingar um starfið veitir Þórgnýr Dýrfjörð, deildarstjóri, í síma 460 1410. Upplýsingar um launakjör fást á starfsmanna- deild Akureyarbæjar í síma 460 1060. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingaanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9 og á heimasíðu bæjarins: www.akureyri.is Umsóknarfrestur er til 14. júlí 2000. Sérkennarar — talkennarar! Ágæt laun í boði. Skólaskrifstofa Suðurlands auglýsir tvær stöður: Kennsluráðgjafi Helstu störf: Greining á námslegri stöðu einstaklinga og hópa. Athuganirá hegðun og líðan nemenda. Ráðgjöf til kennara og leiðbeiningartil foreldra. Eftirfylgd með börnum með fatlanir og mikla náms- erfiðleika. Menntunarkröfur: Framhaldsnám í sérkennslufræðum og grunnskólakennara- réttindi eru skilyrði. Talkennari/talmeinafræðingur Helstu störf: Greining á tal- og málþroska grunn- og leikskólanemenda. Ráðgjöf til kennara og leiðbeiningar til foreldra. Menntunarkröfur: Framhaldsnám í tal- kennslu/talmeinafræðum. Bæði störfin fela í sér tíðar skólaheimsóknir og eru unnin skv. grunnskólalögum; reglugerð um sérfræðiþjónustu skóla og stofnsamningi Skólaskrifstofu Suðurlands. í boði eru ágæt laun og viðkomandi þarf ekki að leggja eigin bíl til starfsins. Fyrirgreiðsla vegna ferðakost- naðar er möguleg fyrir starfsfólk af höfuðborg- arsvæðinu. Umsókn um störfin, ásamt yfirlitii um náms- og starfsferil, berist Skólaskrifstofu Suður- lands, Austurvegi 56, 800 Selfossi, fyrir 11. júlí. Nánari upplýsingar gefur Ragnar S. Ragnars- son, forstöðumaður, símar 482 1905, 482 3199. Á vefslóðinni, www.sudurland.is/skolasud/ er að finna upplýsingar um skrifstofuna. „Au pair" — Sviss íslenskfjölskylda í Genf óskareftir reyklausri „au pair" til að gæta 6 ára stúlku frá 1. septem- ber í eitt ár. Möguleiki á frönskunámi. Skrifleg svör óskast send til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 10. júlí merkt: „Au pair" — Sviss". Nánari upplýsingar fást í símum 553 1382 og 897 0312. Menntamálaráðuneytið Laust embætti skólameistara Með auglýsingu ráðuneytisins, dags. 9. júní sl., var embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík auglýst laust til umsóknar. Mistök urðu við birtingu auglýsingarinnar í Lögbirtingablaðinu og því er nauðsynlegt að framlengja umsóknarfrestinn um embættið eins og nánar greinir í auglýsingu þessari. Tekið skal fram að þeir sem þegar hafa sótt um embættið þurfa ekki að endurnýja umsókn- ir sínar vegna þessarar auglýsingar. Samkvæmt 17. gr. laga nr. 86/1998 um lög- verndun á starfsheiti og starfsréttindum grunn- skólakennara, framhaldsskólakennara og skóla- stjóra skal skólameistari hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Menntamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni tillögu hlutaðeig- andi skólanefndar, sbr. 2. mgr. 11.gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996, með síðari breyt- ingum og lögum um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breyt- ingum. Gert er ráð fyrir því að skipað eða sett verði í embættið frá og með 1. nóvember 2000. Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjara- nefndar, sbr. lög nr. 120/1992 um Kjaradóm og kjaranefnd, með síðari breytingum. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennt- amálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 24. júlí 2000. Menntamálaráðuneytið, 30. júní 2000. www.mrn.stjr.is FJÖLBRAUTASKÓLI VESTURLANDS Á AKRANESI auglýsir: Vegna mikillar aðsóknar vantar okkur kennara í eftirtaldar kennslugreinar • Danska 18 kennslustundir • Enska 18 kennslustundir • Málmiðnaðargreinar 24 kennslustundir. • Raungreinar 12 kennslustundir • Stærðfræði 6 kennslustundir • Tölvufræði 6 kennslustundir • Viðskiptagreinar 12 kennslustundir Ennfremur vantar kennara til að sinna fagstjórn í fornámi. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2000. Laun eru samkvæmt kjarasamningum við fjár- málaráðuneytið. í Fjölbrautaskóla Vesturlands eru rúmlega 600 nemendur í bóklegu og verklegu námi. Þar er góð vinnuaðstaða og gott starfslið sem tekur vel á móti nýjum samstarfsmönnum. Umsóknarfrestur er til 21. júlí. Öllum um- sóknum verður svarað. Umsóknir skulu sendar Fjölbrautaskóla Vestur- lands á Akranesi, Vogabraut 5, 300 Akranesi. Ekki þarf að nota sérstök umsóknareyðublöð. Upplýsingar veitir skólameistari í síma 431 2544 eða 431 2528. Einnig er bent á heimasíðu skólans www.fva.is Skólameistari. Kórstjóri óskast Samkór Kópavogs óskar að ráða stjórnanda frá og með 1. september nk. Skriflegum um- sóknum skal skilað til auglýsingadeildar Mbl., merktar: „Kórstjóri — 9838", fyrir 10. ágúst. Nánari uppl. veitir Ketill í síma 554 4295.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.