Morgunblaðið - 02.07.2000, Síða 20
20 E SUNNUDA.GUR 2. JÍJLÍ .2000
MQRGUNBLAÐIÐ
Önnur af tölvuteiknuðum myndum sumarsins, Titan A.E.
Ein af töluveiknuðum myndum sumarsins er Dinosaur frá Disneyfyrirtækinu.
Tom Cruise, Rene Russo, Patrick Stewart,
Bruce Willis, Jim Carrey, Travolta, risaeðl-
ur, hasarblaðamyndir og margt, margt
fleira er að fínna í sumarmyndapakkanum
* frá Bandaríkjunum, sem Arnaldur Indriða-
son kynnti sér lítillega fyrir skemmstu.
STÓRU sumarmyndirnar
frá Bandaríkjunum eru
byrjaðar að koma hingað í
bíóhúsin. Skylmingakapp-
inn var sú fyrsta en síðan hafa
spennumyndin Horfinn á 60 sek-
úndum með Nicholas Cage og Ég,
um mig, frá mér til írenu með Jim
Carrey verið frumsýndar á Islandi.
Hollywood sparar ekkert við gerð
stóru sumarmyndanna sinna,
hvorki í peningum né mannafla og
eru allar mestu stjörnur drauma-
verksmiðjunnar á flot dregnar yfir
sumarmánuðina. Hér getur að líta
nokkrar af helstu myndum sumar-
sins 2000, sagt frá aðalleikurum,
leikstjórum, efni og gerð þeirra.
Óveður, Cruise
og Irena
Þýski leikstjórinn Wolfgang Pet-
ersen, sem hreiðraði um sig í Holly-
wood eftir að hann gerði „Das
Boot“, sendir frá sér mynd byggða á
þekktri bók sem heitir „The Perfect
Storm“ og er eftir Sebastian Jung-
er. Með aðalhlutverkin fara George
Clooney og Mark Wahlberg en sag-
an er byggð á sönnum atburðum og
greinir frá því þegar nokkrir skip-
verjar á sverðfiskaveiðum úti fyrir
Gloucester í Massachusetts lenda í
bandbrjáluðu veðri.
„Við fylgjum frásögn bókarinnar
mjög vel eftir“, segir Petersen og
var höfundur hennar að sögn ákaf-
lega hrifinn af því hversu kvik-
myndagerðarmennimir létu sig öll
smáatriði miklu varða. „Ég lít á
þessa mynd sem svona sambland af
„On the Waterfront" og „Twister“,
bætir Petersen við.
John Woo stýrir Tom Cruise í
framhaldsmyndinni „Mission:
Impossible 2“. Hún var tekin í
Ástralíu og segir af enn frekari æv-
•<*» intýrum leyniþjónustumannsins Et-
han Hunts. Crusie valdi sjálfur has-
arleikstjórann frá Hong Kong til
þess að stýra myndinni uppveðrað-
ur af tökum Woos á hasaratriðum í
myndum eins og „Face/Off‘ og
dauðþreyttur eftir að hafa leikið
fyrir Stanley Kubrick í tvö ár. Það
átti að frumsýna myndina um síð-
ustu jól en tökur drógust og kostn-
aðurinn fór fram úr áætlunum. Woo
og Cruise virðast hafa skilað ágætri
afurð, myndinni hefur vegnað mjög
vel í miðasölunni vestra.
Farrelly-bræðumir („Kingpin",
Það er eitthvað við Maríu) gera
gamanmyndir sem hneykslað geta
áhorfendur um leið og þeir fá þá til
þess að hlægja. Ég, um mig, frá mér
til írenu er engin undantekning.
Jim Carrey leikur góðhjörtuðu
lögguna Charlie sem þjáist af per-
sónuleikaklofningi er virkar þannig
að stundum tekur brjálæðingurinn
Hank af honum völdin. „Við vildum
að honum liði eins og hann væri í
sumarfríi", segja bræðurnir um
Carrey, sem lék í myndinni eftir að
hafa lagt á sig talsvert erfiði við tök-
ur á Manninum í tunglinu. Leik-
arinn mun þó ekki hafa slappað neitt
af og heimtað fleiri og fleiri tökur
löngu eftir að bræðurnir sögðu að
nú væri nóg komið. Þeir segja að
hann þjáist af fullkomnunaráráttu.
Tvær tölvuteiknimyndir eru í
sumarpakkanum frá Hollywood.
Önnur fjallar um risaeðlur þegar
loftsteinn fellur á jörðina. Hún heit-
ir einfaldlega „Dinosaur" eða Risa-
eðla. „Júragarðurinn var skrímsla-
mynd,“ segir annar leikstjóri
myndarinnar, Ralph Zondag. „Þessi
hefur sín skrýmsli en samúðin ligg-
ur meira hjá risaeðlunum.“
Hugmyndin varð til fyrir meira
en áratug og átti fyrst að vinna
myndina með gömlu aðferðinni, lík-
önum og raðmyndum. Áhuginn
dofnaði með tímanum en þegar
tölvuteikningarnar náðu flugi í
myndum eins og Júragarðinum var
verkefnið endurræst. Disney er
framleiðandi.
Góðkunningjar
hasarblaðanna
Hin tölvuteikinmyndin er Titan
A. E. eftir Don Bluth, sem lengi hef-
ur fengist við teiknimyndagerð en
með misjöfnum árangri. Myndin
segir af jarðlingum sem ferðast um
geiminn í leit að Titanvélinni sem
REUTERS
John Travolta fer með aðalhlutverkið í geimtryllinum Battleship Earth sem ekki þótti feitur biti vestra.
George Glooney heldur sér fast í sumarmyndinni A Perfect Storm, sem
byggist á samnefndri metsölubók.
endurskapað getur jörðina eftir að
hún hefur verið eyðilögð í geiminn-
rás. Matt Damon, Drew Barrymore
og Bill Pullman sjá um raddirnar.
X-mennirnir eru kunnar hasar-
blaðahetjur og hafa verið það í ein
38 ár. Nú hefur verið gerð samnefnd
sumarmynd um þá. Shakespeare-
leikarinn Partrick Stewart fer fyrir
flokki stökkbreyttra mannvera sem
eiga í baráttu við ofurmenni og að
auki skelfilegan hægri öfgamann,
sem Bruce Davison leikur. Myndin
kostaði 75 milljónir dollara og
Bryan Singer var fenginn til þess að
stýra henni. Singer gerði einhverja
bestu glæpamynd síðari tíma, Góð-
kunningja lögreglunnar.
Hann hefur ekki áður fengist við
brellumynd eins og X-mennina en
fékk áhuga á brellugerð fyrir nokkr-
um árum og heimsótti m.a. James
Cameron þegar hann var að kvik-
mynda „Titanic" og síðar „The
Phantom Menace" eða Stjörnustríð
4. Hann varð brögðóttari en Keyser
Söze en alls eru 370 tæknibrelluskot
í nýju myndinni hans.
Stewart er ekki eini breski stór-
leikari myndarinnar. Ian McKellen
leikur ofurmenni á móti honum og
maður spyr sig, eru allir bestu leik-
ararnir sokknir í B-myndirnar?
Önnur hasarblaðamynd er vís-
indaskáldskapurinn „Impostor"
með Gary Sinise sem gerist árið
2075. Ein hnattstjórn er yfir heila
galleríinu og berst hún gegn að-
steðjandi geimverum en geimflaug-
arsérfræðingurinn Sinise stekkur á
flótta þegar hann er sakaður um að
vera geimvera. Eiginkonu hans leik-
ur Madeleine Stowe en leikstjóri er
Gary Fleder, sem áður gerði fjölda-
morðingjatryllinn „Kiss the Girls“.
Myndin byggist á sögu eftir einn
af helstu postulum vísindaskáld-
skaparins, Philip K. Dick. „Tilvist-
arkreppa er eitt af meginefnum sög-
unnar,“ er haft eftir leikstjóranum
Fleder. „Hún fjallar um það sem
gerir mann að manneskju."
Sá hrikalegi skellur „Battlefield
Earth“ með John Travolta fellur
einnig í dálk með hasarblaðamynd-
um sumarsins. Hún kostaði zilljónir
dollara en í ljós kom að fólk vestra
hafði engan áhuga á henni enda fékk
hún vonda dóma. Myndin er byggð á
sögu eftir stofnanda hinnar svoköll-
uðu Vísindakirkju, L. Ron Hubb-
ards, sem út kom árið 1982 og lýsti
því hvernig risavaxnar geimverur
höfðu náð völdum á jörðinni og áttu í
baráttu við uppreisnarmenn á með-
aljarðarbúa.
Travolta er sjálfur einn af fram-
leiðendum myndarinnar enda í söfn-
uði Vísindakirkjunnar og segist
leika „eins vondan karakter og hægt
er að hugsa sér“.
Leikarar og
teiknimyndir
Þeir í Hollywood hafa verið iðnir
við að dusta rykið af gömlum sjón-
varpsþáttaröðum og gera úr þeim
kvikmyndir. Ein af þeim er Ævin-
týri Rockys og „Bullwinkles“ eftir
Des McÁnuff, sem byggð er á
teiknimyndaseríu frá sjöunda ára-
tugnum.
Með helstu hlutverk fara Robert
De Niro, Rene Russo og Jason Al-
exander en erfitt er að lýsa því um
hvað myndin nákvæmlega fjallar
nema það er eins og vondu kallarnir
ætli að drepa alla með leiðinlegu
sjónvarpsefni. I myndinni er bland-
að saman leikurum af holdi og blóði
og teiknimyndafígúrum rétt eins og
í Hver skellti skuldinnin á Kalla
kanínu?
Bruce Willis-mynd sumarsins er
ekki hasar heldur fjölskyldugaman.
Hún heitir Krakkinn eða „Disney’s
The Kid“. Hann leikur mann sem
tapað hefur barninu í sjálfu sér en
það kemur ekki að sök því atvikin
(og Hollywood-brellurnar) haga því
svo til að hann kemst í samband við
sjálfan sig þegar hann var krakki og
fær að vita að hann hafi ekki orðið sá
góði maður sem hann ætlaði sér sem
barn.
Fjölmargar fleiri stórmyndir
koma hingað til lands frá sumar-
myndaverksmiðjunni á næstu mán-
uðum en hér hefur aðeins verið tæpt
á nokkrum þeim helstu.