Morgunblaðið - 25.07.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2000
+ Sigrid Agnes
Kristinsson,
fædd Miinch, fæddist
í Hamborg 1. nóvem-
ber 1927. Hún lést á
Landsspftalanum 16.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Helga Einarsdóttir,
f. 1897, húsmóðir, d.
1968, og Alfred
Ferdinandsson
MUnch, f. 1899, mat-
reiðslumaður, d.
1973. Systkini Sigrid
eru Inga María
Hannesson, f. 1923,
tækniteiknari; Viktor Einar Al-
fredsson, f. 1929, tæknifræðingur
og Ferdinand Alfredsson, f. 1937,
arkitekt.
Sigrid Agnes giftist 3. aprfl 1948
Guðmundi Kr. Kristinssyni, f. 5.
júlí 1925, arkitekt. Börn þeirra: 1)
Einar Otti, f. 1949,
dýralæknir, kvæntur
Sigríði Rósu Magnús-
dóttur, f. 1950. Þeirra
börn eru: a) Magnús, f.
1973, í sambúð með
Jóhönnu Jakobsdótt-
ur, f. 1978, b) Guð-
mundur Otti, f. 1977, í
sambúð með Völu
Dögg Marínósdóttur,
f. 1975 og eiga þau
eina dóttur, f. 2000, c)
Guðbjörg, f. 1981, d)
Kristinn Loftur, f.
1986 og e) Einar
Bjami, f. 1992. 2)
Helga, f. 1950, arkitekt, gift Ingólfi
Gísla Ingólfssyni, f. 1941, d. 1996.
Böm þeirra em: a) Guðmundur
Gísli, f. 1976, í sambúð með Maríu
Kristínu Jónsdóttur, f. 1977, b)
Helgp Ingólfur, f. 1979, c) Gunnar
Öm, f. 1982 og d) Fanney Sigrid, f.
1986. 3) Kristinn, f. 1952, líffræð-
ingur, kvæntur Kristínu Norðdahl,
f. 1956. Böm þeirra em: a) Snorri
Helgason, f. 1974, í sambúð með
Armi Lindén, f. 1977, þeirra dóttir
er Anja Kristín, f. 2000, b) Anna
Rúna, f. 1983, c) Grímur, f. 1991 og
d) Birkir, f. 1994. 4) Guðrún Anna,
f. 1954, d. 1974. 5) Guðmundur AI-
fred, f. 1961, líffræðingur, kvænt-
ur Sólveigu Grétarsdóttur, f. 1959.
Þeirra börn em: a) Grétar Öm, f.
1985 og b) Jóhanna Fríða f. 1985.
Sigrid Agnes ólst upp í Hamborg
en flutti ásamt fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur 1945. Hún starfaði
fram að giftingu sem teiknari hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Hún
var húsmóðir, lengst af í Vesturbæ
á Álftanesi, uns hún lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1976 og snéri sér að há-
skólanámi í bókasafnsfræðum og
þýsku. Frá útskrift 1979 til 1992
starfaði hún sem bókasafnsfræð-
ingur við bókasafn Bessastaða-
hrepps og bókasafn Garðabæjar.
Utför Sigrid Agnesar fer fram
frá Bessastaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
SIGRID AGNES
KRISTINSSON
Elsku amma Sísí.
Ég vil kveðja þig með nokkrum
orðum á blaði en á bara svo erfitt
með að finna þau réttu. Kvöldið sem
við fengum að vita að amma okkar
ætti aðeins stutt eftir las ég góða
sögu, Bróður minn Ljónshjarta, fyr-
ir bræður mína. í sögunni fer fólk til
Nangilima þegar það deyr, lands æv-
intýranna, langt frá jörðinni. En
hvað sem það heitir og hvar sem það
er þá veit ég að þú hefur farið á góð-
an stað. Og þú munt ávallt lifa í
hjarta mínu og hjá okkur sem minn-
umst þín. Ég þakka fyrir allt sem við
fengum að lifa með þér, minningarn-
ar eru margar og góðar.
Þín ömmustelpa,
Anna Rúna.
í minningu ömmu minnar.
Hvert hefurðu farið elsku amma
er þú mjúklega lagðir lífið.
I sárustu þymunum sínum þótt
saklaus og góð þú værir. Ég mun
kannski aldrei vita hvert leiðir þínar
fara og þetta er hugsanlega löng og
erfið ferð, en ég veit að þú ferð hana
alla, syngjandi og glöð. Ef það er
eitthvað himnaríki þá trúi ég að þú
sért þar og seinna munum við koma
til þín og syngja saman eitthvert lag.
En eitt máttu vita elsku amma
mín, að ástin er öflug og lifir þótt
augun í dauðann bresti.
Fanney Sigrid, (Sísí).
Við Sigrid hittumst fyrst í tímum í
bókasafnsfræðum við Háskóla Is-
lands. Það var að haustlagi og sólin
skein inn um gluggann og ég virti
fyrir mér stillta og glæsilega konu
sem sat við gluggann. Það fyrsta sem
ég tók eftir í fari hennar var bjarta,
fallega brosið hennar, hreinskilið og
hlýtt. Báðar vorum við seint á ferð-
inni í náminu. Við höfðum látið heim-
ili og barnauppeldi ganga fyrir frek-
ara námi eins og eðlilegt þótti á þeim
tíma en strax og börnin fóru að verða
sjálfbjarga og ýmsir námsmöguleik-
ar opnuðust drifum við okkur í nám
og völdum báðar bókasafnsfræðina
og sáum aldrei eftir því.
Það var oft erfitt að láta sólar-
hringinn endast þar sem heimilin
voru stór og skila þurfti ritgerðum
og taka próf á sama tíma og undir-
búa þurfti ef til vill fermingarveislur,
afmæli eða annað sem til féll á stór-
um heimilum. Sigrid fór ekki var-
hluta af því en með dugnaði, þraut-
seigju og samviskusemi ásamt
góðum gáfum tókst henni námið með
prýði.
Þegar ég fór þess á leit við hana að
hún kæmi til starfa að Bókasafni
Garðabæjar var það auðsótt múl og
eftir að hún hóf störf þar komu kostir
hennar enn betur í ljós. Það var mik-
ið lán fyrir mig og bóksafnið að fá
hana til starfa.
Þau fjórtán ár sem hún starfaði
við bókasafnið var það staðsett í
Garðaskóla, svonefnt samsteypu-
safn, það er skóla- og almennings-
safn og tengdist því starfsemi þess
mjög Garðaskóla og Fjölbrautaskól-
anum. Nemendur og kennarar not-
uðu bókasafnið mikið og reyndi því
mjög á okkur starfsmenn safnsins
við að leiðbeina og aðstoða við heim-
ildaritgerðir og kjörbókaritgerðir
nemenda. Þar naut Sigrid sín afar
vel. Hún var hjálpsöm og þolinmóð
en föst fyrir og tókst með reisn og
hlýju að vekja virðingu nemendanna.
Hún var víðlesin og ötul við að finna
heimildir um hin margvíslegu efni.
Með afar góðri samvinnu við
kennara skólanna tókst okkur að
sinna heimildavinnunni nokkuð vel
þó að oft væri þröngt á þingi þegar
heilu bekkjardeildirnar biðu óþolin-
móðar eftir aðstoð. Með tímanum
komum við okkur upp nokkuð góðum
heimildabanka sem reyndist okkur
ómissandi hjálpartæki.
Lykillinn að hveiju bókasafni er
spjaldskráin. Það var sérfag hennar.
Með nákvæmni, eljusemi og dugnaði
skildi hún eftir sig einhverja þá full-
komnustu spjaldskrá sem eitt bóka-
safn hefur eignast. Hún hafði afar
næmt auga fyrir réttritun og ís-
lensku máli og að hafa umsjón með
og vélrita spjöld fyrir rúmlega tut-
tugu þúsund bækur þar sem minnst
þijú til fimm spjöld þurfti fyrir
hverja bók er ekki heiglum hent.
Þegar svo tölvuvæðingin ruddi
gömlu bókaskránni úr vegi tókst hún
á við tölvuna og byrjaði að tölvuvæða
safnið og var talsvert komin áleiðis
þegar hún þurfti að hætta störfum
vegna veikinda, langt um aldur fram.
Fljótlega eftir að hún fór að vinna
við bókasafnið fór hún að hafa orð á
SObSI’BlNAR
Leqsteinar
í Lundi
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Sími 564 4566
því að sig langaði til að koma upp
bókasafni í Bessastaðahreppi, henn-
ar heimabyggð. Þegar svo skólahús-
næði grunnskólans þar var stækkað
opnaði hún lítið bókasafn í skólanum.
Fyrstu árin fékk hún smávegis
peningaupphæðir á ári til að kaupa
bækur fyrir en að öðru leyti vann
hún við safnið í sjálfboðavinnu. Hún
fékk mikið af bókum lánað úr Bóka-
safni Garðabæjar til að lána fólkinu á
Álftanesinu. Með dugnaði og þraut-
seigju tókst henni að kom upp litlu
en vönduðu bókasafni sem hún var
afar stolt af.
Þegar ég svo aðstoðaði hana í
veikindum hennar við Bókasafn
Bessastaðahrepps sá ég hve vel hún
hafði vandað til bókavalsins. Þar sem
hún var víðlesin og hafði vandaðan
bókasmekk undraðist ég ekki hve
fjölbreytt úrval var þar af góðum
bókum. Á þeim fjórtán árum sem
Sigrid starfaði við Bókasafn Garða-
bæjar ávann hún sér vináttu og virð-
ingu okkar allra sem við fáum seint
þakkað.
Eiginmanni hennar, bömum,
tengdabörnum og bamabörnum
votta ég mína dýpstu samúð. Blessuð
sé minning hennar.
Erla Jónsdóttir.
Á ^íjcT
( — GARÐHEIM A ÓMABÚÐ • STEKKJARBA ^ SÍMI 540 3320
jœxxxxxxxxxxxxxix;
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfisdrykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
xxxxxxxxxxrrrrxfc
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Utfararstjórar okkar búa yfir aratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
sími 896 8242
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
+
Elskulegur faðlr okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GESTUR PÁLSSON
prentari,
lést á Elliheimilinu Grund föstudaginn 21. júlí.
Útförin ákveðin síðar.
Fyrir hönd annarra ættingja,
Ólöf Gestsdóttir,
Páll Gestsson,
Fríður Gestsdóttir,
Jóhann Löve,
Ragnar Gunnarsson,
Þórunn B. Jónsdóttir,
Arnar Jóhannsson,
Sígríður Pálsdóttir.
+
Systir okkar,
SÓLVEIG ÖLVERSDÓTTIR,
lést á heimili sínu í Seattle í Bandaríkjunum fimmtudaginn 20. júlí.
Jón Ölversson,
Þráinn Ölversson,
Magnús Ölversson,
Þóra Ölversdóttir,
Lovfsa Ölversdóttir,
Þórarinn Ölversson,
Sigurður Ölversson
og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
INGIMUNDUR INGIMUNDARSON
frá Svanshóli,
lést á sjúkrahúsinu á Hólmavík laugardaginn
22. júlí.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ingibjörg Sigvaldadóttir
og synir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
dr. BENJAMÍN H. J. EIRÍKSSON,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 23. júlí.
Kristbjörg Einarsdóttir,
Þórunn Benjamínsdóttir, Magnús K. Sigurjónsson,
Eiríkur Benjamínsson,
Einar Benjamínsson, Erla Indriðadóttir,
Sólveig Benjamínsdóttir, Árni Páll Jóhannsson,
Guðbjörg Benjamínsdóttir, Gunnar Harðarson,
barnabörn og langafabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför
UNNAR Á. SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavik.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 4. hæðar á
Skjóli fyrir góða umönnun.
Hannes Hafliðason,
Dagný Hildur Leifsdóttir
og fjölskylda.
1 ■ Jr
Mm
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
*
Onnumst atia þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
$
Prestur
Kistulagning
Kirkja *
Legstaður x _ V
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
QF/
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.